Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1996, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1996, Side 33
JJV LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1996 sviðsljós Jack Nicholson leikur Golfkylfur eru til margs brúkleg- ar. Holtywoodleikarinn Jack Nicholson færði mönnum heim sanninn um það fyrir tveimur árum þegar hann réðst að einhverjum ve- sælum ökumanni sem fór i taugarn- ar á honum og maskaði framrúðuna á bUnum hans. Jack var ákærður fyrir vikið en ef minnið svíkur ekki náði hann samkomulagi við bílstjór- ann og greiddi honum viðeigandi bætur. Ákæran var því látin niður faUa og Jack slapp með skrekkinn. Síðar sama ár vakti Jack enn á ný athygli þegar hann tók að sér að vera kynnir á golfmóti lögreglunnar í Los Ángeles þar sem margir fræg- ir og ríkir taka þátt. Nú hefur verið ákveðið að Jack verði aftur með á löggumótinu sem verður haldið þann 18. maí, eða næstkomandi laugardag. Skipuleggjendur mótsins gera sér vonir um að safna sem svarar um tuttugu miUjónum króna fyrir ekkjur lögregluþjóna og börn þeirra. Jack Nicholson þykir annars lið- tækur golfari þótt hegðun hans um árið hafi ekki verið mjög íþrótta- mannsleg og hefur tekist að ná for- gjöfmni niður í þrettán. Það er aU- gott, ekki síst þegar tillit er tekið tU þess að hann sneri sér frekar seint að kylfunum. Allir vita jú að Jack er mikiU áhugamaður um körfu- bolta og uppáhaldslið hans er LA Lakers sem voru slegnir út úr úr- slitakeppni NBA-deildarinnar fyrir skömmu. Hvað um það, talsmaður lögregl- unnar í Los Angeles er ekki á því að golfvöllurinn verði stórleikaranum óþægastur ljár i þúfu á laugardag- inn kemur heldur miklu frekar meðleikari hans, einnig kvikmynda- leikari, Joe litli Pesci. Jack Nicholson kann aö sveifla golfkylfu, innan vallar jafnt sem utan. golf með löggunni Kevin Costner býður Elle MacPherson í mat: Kraumandi kossar við útigrillið í Hollywood Kevin Costner bauö sleikjó. Elle MacPherson var í havaípilsi. ÚtigrUlið var ekki það eina sem var kraumandi heitt þegar Kevin Costner stórleikari bauð ofurfyrirsæt- unni EUe „Kropp- ur“ MacPherson í mat í nýuppgerðu húsi sínu í HoUywood. Koss- arnir og káfið gáfu þar ekkert eftir og kyntu hjúin upp með bjór og límon- aði. Kevin og EUe eiga sjálfsagt margt sameigin- legt, það þó helst að bæði eru að jafna sig eftir upp- flosnað ástarsam- band. Kevin er skilinn við eigin- konu sína tU átján ára og EUe er hætt með breska miUanum og erf- ingjanum Tim Jefifries eftir þriggja ára samband. Þaö er því ekki undar- legt þótt þau hafi kysst og kjamsað svo klukkustundum skiptir úti í garði, Kevin þarf jú svo sannarlega á aUri huggun, sem hann getur feng- ið, að halda. Konan hans fyrrver- andi, hún Cindy, stendur í stappi við hann og hefur krafist sem svar- ar fimm miUjarða íslenskra króna í bætur. Cindy sagði annars skUið við karlinn eftir að sást tU húla- dansmeyjar laumast inn í vistarver- ur Kevins þegar hann var viö tökur á myndinni Vatnaveröld á Havaí á sínum tíma. I umræddu matarboði, þar sem Kevin bauð gesti sínum hamborg- ara og sleikjó, var EUe klædd í havaípUs en hvort það var tU að ganga betur í augun á stór- stjörnunni skal ósagt látið. Kevin lætur skilnaðarmálið ekki trufla foð- urhlutverkið. Nýlega fór hann með börnin sín þrjú á frumsýn- ingu myndar- innar Flipper í Los Angeles. Kunnugir segja meira að segja að hann sakni nú hennar Cindyar sinnar dálítið. Hann hefur þó ekki látið það flækj- ast fyrir sér þeg- ar kvennafar er annars vegar því frá því þau hjónin skUdu hefur hann verið orðaður við hverja feg- urðardísina á fætur annarri. Sagt er að hann hafi meira að segja spand- erað miUjón krónum í mat og drykk handa sér og ónefndri fyrirsætu. Ekki amalegt það. 41 ■LðrjlSí! nÝ ÓPER^ EFtÍRjÓn ÁSCEÍRJSOn mÍÐASÖLOn OPÍn K^L. 15-19 nEmo món. sími 551-1475 ÍSLEnSKA ÓPEK0n I. jOnI UPPSELtOC 4. jOm' VPPSELt nÆstu sÝnincoR.j. júm' s. júní u. júm' oc 14. júní KENWOOD kraftw; gceði, encling LADA SPORT -998.000 kr. LAPA afar raunhæfur kostur Öflugrí og betur búinn. 1700 sm3 vél með beinni innspýtingu. Léttara stýri, stærra farangursrými, betri sæti, ný og breytt innrétting. ÁRMÚLA 13, SlMI: 568 1200 BEINNSlMI: 553 1236 Sumarskólinn sf. Eins og undanfarin sumur verður Sumarskólinn sf. meö kennslu í fjölmörgum framhaldsskólaáföngum. Yfir 40 áfangar verða í boði. Kennt verður samkvæmt námskrá Menntamálaráöuneytisins. Allir áfangar eru matshæfir. Skólinn hefst 31. maí og lýkur 3. júlf. Kennt veröur á kvöldin í Háskóla íslands. Skólagjald er kr. 12.900 fyrir eiim áfanga, en kr. 18.900 fyrir tvo áfanga. Nemendur mega mest taka tvo áfanga. Innritun verður virka daga frá 20.-29. maí kl. 16:30-19:00 í Menningarmiðstöðinni í Gerðubergi. Nánari upplýsingar fást í símum 565-6484 og 564-2100.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.