Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1996, Síða 36
44
uhglingaspjall
LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1996
Ungt fólk sækir starfsnám hjá Hinu húsinu:
Yfirgnæfandi meirihluti óráðinn með framtíðina
„Þetta virkar mjög vel á okkur.
iÞað er verið að fara yfir svo breitt
svið og maður er að finna út hvað
mann langar til að gera. Það er búið
að tala um hvernig er hægt að fá
mikið út úr tímanum og virkja
hann betur,“ sagði Elín Agla Briem,
22ja ára, eftir fyrsta daginn á starfs-
námskeiði hjá Hinu húsinu. Elín
Agla var á námskeiðinu ásamt
Baldri Björnssyni, 19 ára, og yfir 30
oðrum krökkum. Námskeiðið hófst
fyrir hálfum mánuði og er það
fyrsta í sumar.
„Þetta er líka búið að vera kynn-
ing á námskeiðinu, hvaða kúrsar
eru í boði og kynning á því hvert
markmiðið er. Það er náttúrulega
að finna starf fyrir okkur. Þetta
námskeið miðast að því að kom-
ast að þvi hvað mann langar til
að gera, hvar áhugasvið manns
liggur og hæfileikar, hvað mað-
ur getur gert og hvað maður
vill gera,“ bætir Baldur við.
Baldur Björnsson og
Elín Agla Briem eru í
hópi 35 krakka á
aldrinum 18-25 ára,
sem byrjuöu á
starfsnámskeiöi hjá
Hinu húsinu á
mánudaginn. Þau
eru mjög ánægö
meö námskeiðið.
DV-mynd BG
hin hliðin
segja Elín Agla Briem og Baldur Björnsson
Atvinnulaus
í 14 mánuði
Langar mest til að
lesa Dagbók
fegurðardrottningar
-segir Kristinn Hermannsson, yngsti bæjarfulltrúi á íslandi
Kristinn Hermannsson var í
öðru sæti á Funk-lista framhalds-
skólanema á ísafirði í bæjarstjórn-
arkosningunum þar fyrir
nokkrum vikum. Listinn fékk tvo
menn kjörna og verður Kristinn
því bæjarfuiltrúi út þetta kjör-
tímabil. Kristinn er 18 ára gamall
og því yngsti bæjarfulltrúi á ís-
landi. Hann sýnir hér á sér hina
hliðina.
Fullt nafn: Kristinn Hermanns-
son.
Fæðingardagur og ár: 23. nóvem-
ber 1977.
Kærasta: Ólofaður.
Börn: Ekki ennþá.
Bifreið: Þarf ekki á svoleiðis
pjátri að halda.
Starf: Nemi, bæjarfulitrúi og
ræstitæknir.
Laun: Nóg til að viðhalda eðlilegri
neyslu.
Áhugamál: Nýrómantíska tíma-
biliö í popptónlist (’87-ið).
Hefur þú unnið í happdrætti
eða lottói? Nei.
Hvað finnst þér skemmtUegast
að gera? Öldrykkja og skemmtan-
ir.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Mynda meirihluta.
Uppáhaldsmatur: Túnfiskur.
Uppáhaldsdrykkur: Sódavatn.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag að þínu mati?
Enginn.
Uppáhaldstímarit: National Ge-
ographic.
Hver er fallegasti kona sem þú
hefur séð, fyrir utan kærust-
una? Hófí.
Ertu hlynnt eða andvíg ríkis-
stjórninni? Hlynntur.
Hvaða persónu langar þig mest
að hitta? Sly Stone úr Sly and the
Family Stone.
Uppáhaldsleikari: Clint
Eastwood.
Uppáhaldsleikkona: Uschi
Glasch.
Uppáhalds-
söngvari:
Tom Jones.
Uppá-
halds-
stjóm-
málamaður:
Bergur á Felli.
Uppá-
haldsteikni-
myndapersóna:
Tommi.
Uppáhalds-
sjón-
varps
efni: Frúin fer sína eigin leið.
Uppáhaldsmatsölustaður: Krían,
Flateyri.
Hvaða bók langar þig mest að
lesa? Hófí, dagbók fegurðardrottn-
ingar.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? rás 1.
Uppáhaldsútvarpsmaður: ELlugi
Jökulsson.
Á hvaða sjónvarpsstöð horfir
þú mest? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður:
Heimir Már Pétursson.
Uppáhaldsfélag í íþróttum:
Reynir í Hnífsdal.
Uppáhaldsskemmtistaður:
Sjallinn, ísafirði.
Stefnir þú að einhverju
sérstöku í framtíðinni?
Óhóflegu ríkidæmi.
Hvað ætlar þú að gera í
sumarfríinu? Fara í skíða-
ferðalag tO Benidorm.
-GHS
Elín Agla og Baldur hafa bæði
verið í Menntaskólanum við
Hamrahlíð og bæði hafa þau verið
atvinnulaus. Elín Agla er í kvöld-
skólanum í MH og hefur verið at-
vinnulaus í 14 mánuði. Hún hefur
alltaf unnið með skólanum, síðast
sem sendill hjá verðbréfafyrirtæki.
Baldur hefur einnig verið í MH en
er hættur í bOi. Hann hefur unnið
við ýmislegt, tO dæmis í Húsdýra-
garðinum.
Elín Agla og Baldur segja að ungt
fólk sé mjög óráðið, það viti í fæst-
um tOvikum hvað það vilji gera í
framtíðinni. „Ég myndi segja að það
væri yfirgnæfandi meirihluti sem
hefði enga stefnu varðandi framtíð-
ina. Aðeins tveir, eiginlega þrír, af
mínum félögum eru ákveðnir í .því
hvað þeir ætla að gera. Þessir tveir
eru báðir í skóla og stefna í háskóla-
nám, annar í verkfræði og hinn í
eðlisfræði, enda eru þeir mest töff
nördar sem ég veit um,“ segir Bald-
ur.
Ómótaðar skoðanir
Baldur segist vera mjög óráðinn í
hvað hann vOji fá út úr námskeið-
inu hjá Hinu húsinu en segist hafa
sett sér tímabundið markmið sem
hann vinni jafnt og þétt að, það er
að fara í myndlistarskóla í Dan-
mörku. Biðtíminn eftir að komast
þangað sé eitt og hálft ár og þangað
til ætli hann í kvöldskóla til að
ljúka stúdentsprófi.
„Ég hef ómótaðar skoðanir. Ég
hef áhuga á svo mörgu að það er
erfitt að velja úr,“ segir Elín Agla.
AOir 18-25 ára krakkar, sem eiga
rétt á atvinnuleysisbótum, geta sótt
um að komast í starfsnám Hins
hússins. Að námskeiðinu loknu fá
krakkarnir starfsþjálfun í fimm
mánuði. Um 35 krakkar eru á
hverju námskeiði.
-GHS
Fyrirsætur eru farnar að hefja störf 12 ára:
Rósrauður draumur sem getur breyst
Heitar umræður hafa átt sér stað
í Bretlandi að undanfórnu um þró-
unina í tískuheiminum. Þar hefur
færst í vöxt að stúlkur fái uppfyllt-
an rósrauðan draum sérhverrar
stúlku um fyrirsætuferil og byrji
störf 12 og 13 ára gamlar og allt nið-
ur í 11 ára. Fjölmiðlar spyrja hvort
það sé réttlætanlegt að svipta stúlk-
urnar bamæskunni og hrifsa þær
svo skyndOega inn í heim fuOorð-
inna með því álagi sem fylgir fyrir-
sætustarfinu.
Stúlkurnar eru látnar klæða sig
og mála á sér andlitið eins og fuO-
orðnar fyrirsætur. Þær þurfa að
ferðast um aUar heimsálfur og
sækja kokkteilpartý eins og full-
orðnir og hætta að geta leikið sér.
Þessi þróun hefur sætt harðri gagn-
rýni og hafa umræðurnar gengið
svo langt að ein stúlka, hin 12 ára
gamla Rachel Kirby, hefur hætt fyr-
irsætustörfum eftir stuttan en
stjörnum stráðan ferd.
„Fyrirsætustarfið er fuUorðinslíf
sem hefur valdið mörgum börnum
miklum hörmungum því að bömin
hafa byrjað of snemma og ráða ekki
við álagið sem fylgir starfinu. Menn
verða að gera sér grein fyrir að
börnin fá ekki æskuna aftur," segir
Michael Gross, höfundur bókar um
þetta efni sem komið hefur út í
Bandaríkjunum.
Gríðarleg samkeppni er mUli
Hin 12 ára gamla Rachel Kirby hætti
störfum sem fyrirsæta eftir aö um-
ræöa fór í gang í Bretlandi um nei-
kvæðar hliöar þess aö láta fyrirsæt-
ur byrja mjög ungar.
módelskrifstofa í Lundúnum. Þeir
sem tU þekkja segja að eftirspurnin
eftir nýjum andlitum geri það að
verkum að fyrirsæturnar verði sí-
fellt yngri. Flestir eru þó sammála
um að þróunin sé óæskileg enda eru
fyrirsæturnar sem betur fer í flest-
um tilfeUum 16 tO 17 ára gamlar.
Antonio og Griffith gifta sig
Antonio Banderas og Melanie
Griffith meö börnunum hennar.
Bráöum fjölgar í fjölskyldunni.
Ástin lætur ekki að sér hæða.
Þau Antonio Banderas, spænski
hjartaknúsarinn og latneski elsk-
huginn, og Melanie Griffith, banda-
ríska leikkonan og stúlkan í
þarnæsta húsi, eru svo sjúklega ást-
fangin að þau stóðust ekki mátið
þegar þau voru í Lundúnum á dög-
unum og létu pússa sig saman. Á
laun, að sjáifsögðu, að sögn
æsifréttablaðsins The Sun.
. „Þau eru sjúklega ástfangin og
vOdu gifta sig án þess að gera neitt
veður út af því,“ hefur blaðið eftir
ónafngreindum vini turtildúfanna.
Sá heldur áfram: „Melanie var stór-
glæsOeg en hún var í mjög látlaus-
um fötum.“
Antonio hefur nýlokið við tökur á
kvikmyndinni Evitu þar sem hann
lék á móti engri annarri en mestu
kynæsingakonu seinni tíma, sjálfri
Madonnu. Ekki hefur farið neinum
sögum af samdrætti þeirra.
Antonio og Melanie eiga von á
barni. Madonna á einnig von á
barni með leikfimikennaranum sin-
um.