Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1996, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996
5
DV
Fréttir
Óánægja meðal sjómanna eftir að togarinn Freri RE fór til veiða rétt fyrir sjómannadag:
Eiga að vera í landi
á hádegi á laugardag
- segir Hólmgeir Jónsson hjá Sjómannasambandinu og segir að tekið verði á brotum
„Við gerum þeim auðvitað ekki
upp brot fyrir fram en bæði lög og
kjarasamningar eru skýr í þessu
efni. Skipið á að vera komið í land á
hádegi laugardaginn fyrir sjó-
mannadag," segir Hólmgeir Jóns-
son, framkvæmdastjóri Sjómanna-
sambandsins, í samtali við DV.
Óánægja hefur verið meðal sjó-
manna vegna þess að frí um sjó-
mannadaginn sé ekki virt. Síðdegis
í gær lét Freri RE, í eigu Ögurvíkur,
úr höfn í Reykjavík þegar skammur
tími er til sjómannadagsins. Hjá Ög-
urvík vilja menn ekkert gefa upp
um ferðir skipsins en ef ætlunin er
að veiða kaifa á Reykjaneshrygg,
eins og í síðasta túr, getur skipið
várt verið meira en sólarhring að
veiðum áður en halda verður í land
á ný.
„Ég er engin ríkisstjórn og er
ekki með stefnuyfirlýsingar. Ætli
skipstjórinn ráði ekki hvert hann
fer en það hefur verið efnilegast
fiskiríið á Reykjaneshryggnum,"
sagði Gísli Jón Hermannsson hjá
Ögurvik í gær.
Heldur var að skilja á honum að
hann ætlaði ekki að gerast lögbrjót-
ur og sagði að ef samkomulag væri
um borð að fara ekki í land á sjó-
mannadag þá yrði ekki farið í land.
„Við sjáum bara til á sjómanna-
daginn,“ sagði Gísli Jón.
„Ef samningarnir verða brotnir
þá munum við að sjálfsögðu taka á
því,“ sagði Hólmgeir. I samningnum
er gert ráð fyrir að sjómenn hafi 48
tíma frí um sjómannadagshelgina.
Er þá miðað við tímann frá hádegi á
laugardegi til hádegis á mánudegi.
Freri RE lét úr höfn eftir hádegið í gær. Verði farið til veiða á Reykjaneshrygg hefur togarinn aðeins einn sóiarhring
til veiða þar áður en haldið verður til lands í sjómannadagsfrí eins og lög kveða á um. DV-myndir S
Gísli Jón Hermannsson hjá Ögurvík og Jónas Garðarsson, formaður Sjó-
mannafélags Reykjavíkur, á hafnarbakkanum í gær.
Undantekning frá þessu eru sigling-
ar ísfisktogara til erlendra hafna en
ef siglt er á sjómannadegi verður að
bæta 36 tímum við fríið þegar kom-
ið er úr siglingunni.
Þá hefur og verið mælt með því af
hálfu Sjómannasambandsins að sjó-
menn á togurum á Flæmska hattin-
um geymi að taka út frí vegna sjó-
mannadagsins þar til komið er í
land. Samningar gera ráð fyrir að
hægt sé að krefjast þess að siglt sé
til næstu erlendrar hafnar. Hólm-
geir sagði að borið hefði á óánægju
vegna þessa.
„Það gilda engar sérreglur um
Flæmska hattinn. Það er ekkert
sérstakt friðland fyrir íslenskum
lögum þótt Sjómannasambandið
virðist halda það. Það getur líka vel
verið að skipið fari bara í siglingu,"
sagði Gísli Jón.
-GK
Bíll eyöilagöur í meöan eigandinn fór í frí:
Skemmdarfýsnin
ein hefur ráðið
- viðgerð svarar ekki kostnaöi, segir Pétur Kristjánsson
Voivoinn hans Péturs Kristjánssonar er ónýtur eftir að skemmdarvargar
lögðu hann í rúst um helgina. Engu var stolið. DV-mynd S
„Það er greinilegt að skemmdar-
fýsnin ein hefur ráðið. Það er allt
brotið sem hægt er að brjóta, allar
rúður, ljós, útvarp og mælaborð en
engu stolið að því er ég fæ best
séð,“ segir Pétur Kristjánsson,
starfsmaður Iþrótta- og tómstund-
aráðs Reykjavíkur, í samtali við
DV.
Hann brá sér úr bænum um
hvítasunnuhelgina og skildi Volvo
sem hann á eftir á stæði í Laugar-
dalnum. Þegar hann kom aftur að
vitja bOsins að kvöldi annars í
hvítasunnu var bíllinn í rúst.
„Það svarar engan veginn kostn-
aði að gera við bílinn. Þetta var ár-
gerð 1982 en í ágætu standi. Núna er
ekkert annað að gera en henda hon-
um,“ segir Pétur.
Hann hefur enga hugmynd um
hver eða hverjir hafa verið að verki.
Það hafa þó ekki verið innbrotsþjóf-
ar því bíllinn var bara eyðilagður
en engu stolið.
-GK
Opnun sundstaða á hvítasunnudag:
Engin kæra
komin fram
- ein kæra vegna sjoppu
Samkvæmt upplýsingum Frið-
riks Gunnarssonar hjá rannsókna-
deild lögreglunnar í Reykjavík
hafði í gær engin kæra borist
vegna opnunar sundstaða á hvíta-
sunnudag. Hins vegar hafði ein
kæra borist vegna þess að sjoppa
viö einn sundstaðanna var opin.
Sundgestur í Laugardalslaug á
hvítasunnudag varð vitni að því
að maður nokkur hótaði starfs-
fólki laugarinnar því að kæra til
lögreglu að sundlaugin væri opin á
helgidegi.
Ómar Einarsson, forstöðumaður
íþrótta- og tómstundaráðs, sagði í
gær að engin kvörtun af þessu tagi
hefði borist honum, enda væri
málið fáránlegt í hans huga. Ekki
hefði það verið í fyrsta sinn nú
sem sundstaðir borgarinnar hefðu
verið opnir um hvítasunnuna en
eins og áður hefði verið haft sam-
band við m.a. lögreglu og biskups-
stofu sem ekki hefðu gert athuga-
semdir. „Fyrst þegar við geröum
þetta leituðum við sérstaklega eft-
ir áliti nokkurra aðila, þar á með-
al biskupsstofu og lögreglu, og
fengum skriflegt álit þeirra og yfir-
lýsingar um að ekki yrðu gerðar
athugasemdir.
Baldur Kristjánsson biskupsrit-
ari segir að lög um helgidaga séu
orðin gömul og þjóðfélagsaðstæður
aðrar en þegar þau voru sett. Þeg-
ar kirkjan hafi verið spurð um álit
vegna t.d. opnunar sundstaða og
útivistarsvæða á helgidögum und-
anfarin ár þá hafi hún yfirleitt
ekki gert athugasemdir við það.
-SÁ