Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1996, Qupperneq 6
6
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996
Viðskipti
Fjármunaeign útlendinga í atvinnurekstri á Islandi:
Níu milljarðar
um síðustu áramót
Útlendingar í atvinnurekstri á íslandi
- bein fjármunaeign í milljónum króna -
10 milljarða
viðskipti
í apríl
Heildarviðskipti á Verðbréfa-
þingi íslands í apríl sl. námu
um 10 milljörðum króna og hafa
þau aðeins fjórum sinnum verið
meiri í einum mánuði. Viðskipti
með spariskírteini ríkissjóðs
námu um 2,3 milljörðum og hafa
ekki orðið meiri í einum mán-
uði frá nóvember 1993, að októ-
ber 1995 undanskildum. Af ein-
stökum ílokkum urðu viðskipt-
in mest með spariskírteini til 20
ára eða um 1,2 milljarðar.
Viðskipti með hlutabréf námu
243 milljónum í aprílmánuði og
hækkaði þingvisitalan um 3%
frá mars. Síðustu 12 mánuði hef-
ur vísitalan hækkað um 61%.
Hugbúnaður
semur við
Norðmenn
Hugbúnaður hf. í Kópavogi
gerði nýlega samning við einn
stærsta söluaðila í Noregi á af-
greiðslukerfum, Rástvold AS,
um að þeir síðamefndu selji
verslunarkerfí frá Hugbúnaði á
öll PC-afgreiðslukerfi sem
Rastvold selur.
Rástvold er með um 25%
markaðshlutdeild í sölu upplýs-
ingakerfa til almennra verslana
í Noregi og áætla að velta um
700 milljónum króna í ár.
Bönkum skylt
að veita
upplýsingar
Vegna fyrirspumar Tryggva
Agnarssonar lögmanns hefur
bankaeftirlitið kveðið upp þann
úrskurð að bönkum og spari-
sjóðum sé rétt og skylt að veita
viðskiptamönnum sínum, eða
umboðsmönnum þeirra með lög-
fullt umboð, upplýsingar um
skuldastöðu þeirra gagnvart
viðkomandi stofnun.
Tryggvi Agnarsson lenti í því
að honum var neitað i banka
um reikningsstöðu skjólstæð-
ings síns sem var kominn með
útistandandi kröfur í inn-
heimtu. Tryggvi var ósáttur við
þetta og kvartaði við bankaeftir-
lit Seðlabankans með ofan-
greindum árangri. -bjb
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Seðlabankans var bein fjármuna-
eign útlendinga í atvinnurekstri á
íslandi 9,3 milljarðar um síðustu
áramót. Það er aukning um 500
milljónir frá árinu áður, miðað við
fast verðlag. Nær 70% af eignum út-
lendinga er bundið í rekstri tveggja
stóriðjufyrirtækja, álverinu og járn-
blendiverksmiðjunni. Tekjur er-
lendra aðila af fjárfestingu á íslandi
voru um 1,1 milljarður á síðasta ári
sem er örlítil lækkun frá árinu 1994.
Frá þessu er greint í maíhefti Hag-
talna mánaðarins frá Seðlabank ís-
lands.
Seðlabankinn hefur tekið saman
fjárfestingar útlendinga í atvinnu-
rekstri hérlendis frá árinu 1988.
Verðbréfaviðskipti eru þá undan-
skilin, sem hafa verið óveruleg.
Mest hefur fjárfestingin verið í stór-
iðnaði og verslun. Fjármunaeignin í
árslok 1988 var 4,3 mOljarðar og fór
stighækkandi til ársins 1991, þegar
hún nam 9,2 milljörðum í lok þess
árs. Árið 1992 minnkaði eignin nið-
ur í 7,9 milljarða en hefur stöðugt
aukist síðan.
Erlendir aðilar hafa fjárfest í 50
fyrirtækjum á íslandi, þar af lang-
mest í álverinu og járnblendinu
eins og áður sagði. Af einstökum
löndum eru Svisslendingar hæstir á
blaði með 5,5 milljarða eign um síð-
ustu áramót af 9,3 milljörðum. Nán-
ari skiptingu má sjá á meðfylgjandi
grafi.
Útlendingar hafa hagnast af fjár-
festingum hér á landi ef árin 1991-
1993 eru undanskilin. Munar þar
öllu um tap af rekstri álversins í
Straumsvík.
í alþjóðlegu samhengi er Qárfest-
ing útlendinga hérlendis mjög lítil.
Á meðan hún mældist að meðaltali
1,3% af landsframleiðslu OECD-ríkj-
anna árin 1990-1994 var hún vart
mælanleg á Islandi. -bjb
Miðlun samdi nýlega við Telia AB, stærsta símafyrirtæki í Svíþjóð, um að setja upp Gulu línuna þar í landi. Starfsem-
in hefst í Jönköping og geta neytendur þar nálgast margháttaðar upplýsingar um vöru og þjónustu, líkt og íslensk-
ir neytendur hafa getað síðustu 9 ár hér á landi. Næst fer Gula línan af stað í Malmö og á næsta ári um alla Svíþjóð.
Á myndinni er starfsfólk Telia AB og Miðlunar sem hafa undirbúið Gulu línuna í Svíþjóð.
Hamagangur í hlutabréfum
Hamagangur var í síðustu viku í
viðskiptum með hlutabréf, hvort
sem það var í útboði, beinni sölu
eða um Verðbréfaþing Islands og
Opna tilboðsmarkaðinn, OTM. Út-
boð fóru fram með hlutabréf Jarð-
borana, Þróunarfélagsins, Sláturfé-
lags Suðurlands og Vinnslustöðvar-
innar, alls fyrir hátt í 500 milljónir
króna.
Skráð viðskipti um Verðbréfa-
þing og OTM námu 195 milljónum
króna. Fjögur hlutafélög skáru sig
úr. Mest var keypt af bréfum Jarð-
borana, eða fyrir 33,7 milljónir,
næst komu bréf Þormóðs ramma
með 29,7 milljóna viðskipti, þá
Grandabréf með 29,6 milljóna við-
skipti og loks skiptu bréf í Haraldi
Böðvarssyni hf. um eigendur fyrir
rúmar 27 milljónir króna.
Hlutabréfaverð fór stighækkandi.
Þingvísitalan var komin í 1816 stig
sl. föstudag en viðskipti gærdagsins
lágu ekki fyrir þegar þetta var ritað.
Álverð á heimsmarkaði fór lítil-
lega upp á við í síðustu viku eftir
nokkurt fall í vikunni þar áður.
Mikil birgðaaukning hafði ekki
frekari áhrif til lækkunar. Sérfræð-
ingar spá svipuðu verði og var þeg-
ar viðskipti hófust í London í gær-
morgun, eða um 1.560 dollurum
tonnið.
Gengi marksins og jensins hefur
haldist nær óbreytt en dollar og
pund hækkuðu jafnt og þétt í síð-
ustu viku. -bjb
1500
Þingvísit. húsbr.
Skipasölur s :| 1 Dollar 1 1 Pund li I I Jen
Flugieiðir I Olís J J Olíufélagið í i Skeljungur !i i Pingvísit hlutabr. 1 1
Þróunarfé-
lagsbréf
seldust upp
Hlutabréf í Þróunarféiagi ís-
lands fyrir um 50 milljónir
króna að söluvirði seldust upp á
tveimur tímum eftir aö útboð
hófst hjá Kaupþingi í síðustu
viku. Boðin voru út bréf að nafn-
virði 43 milljóna á genginu 1,16.
Markmið útboðsins var fyrst og
fremst að íjölga hluthöfum um
a.m.k. 150 svo unnt væri að skrá
félagið á Verðbréfaþingi íslands.
Það markmið náðist og gott bet-
ur. Búast má við að hlutabréf
Þróunarfélagsins verði til við-
skipta á Verðbréfaþingi strax í
þessari viku.
Ný stjórn VSÍ
Á aðalfundi Vinnuveitenda-
sambands íslands, VSÍ, á dögun-
um var kjörin ný framkvæmda-
stjórn. ólafur B. Ólafsson var
endurkjörinn formaður og
Víglundur Þorsteinsson sömu-
leiðis sem varaformaður. Aðrir í
stjóm eru Arnar Sigurmunds-
son, Benedikt Kristjánsson,
Bjarnar Ingimarsson, Brynjólfur
Bjarnason, Einar Sveinsson,
Geir Gunnarsson, Gísli Þór
Gíslason, Gunnar Svavarsson,
Kolbeinn Kristinsson, Konráð
Guðmundsson, Kristinn Björns-
son, Magnús Jóhannsson, Sig-
urður Helgason, Sigurður Gísli
Pálmason, Stefán Friðfinnsson,
Sturlaugur Sturlaugsson, Sveinn
Hjörtur Hjartarson, Víglundur
Þorsteinsson, Þórður Magnússon
og Örn Jóhannsson.
Fimm milljarða
vöruskipta-
afgangur
Fyrstu þrjá mánuði þessa árs
voru fluttar út vörur fyrir 32,4
milljarða króna en inn fyrir 27,2
milljarða. Afgangur var því á
vöruviðskiptunum við útlönd
sem nam 5,2 milljörðum króna.
Á sama tíma í fyrra voru þau
hagstæð um 6,1 millarð. í mars-
mánuði einum var vöruskiptaaf-
gangurinn 2,7 milljarðar þegar
flutt var út fyrir 13,2 milljarða
en inn fyrir 10,5 milljarða.
Verðmæti útflutningsins fyrstu
þrjá mánuðina var 12% meira en
á sama tíma í fyrra. Sjávarafúrð-
ir voru 79% alls útflutnings og
var verðmæti þeirra 26% meira
en á sama tíma árið áður. Verð-
mæti útflutts áls jókst um 6% og
verðmæti kísfljárns um 37%. Sé
litið til innflutningsins þá var
verðmæti hans 18% meira en eft-
ir sama tímabili í fyrra. Mestu
munaði að innflutningur á mat
og drykk jókst um 19% og fólks-
bflainnflutningur jókst um 61%
fyrstu þrjá mánuðina.
Heimsins
flestu posar
Visa ísland
fékk á dögunum
viðurkenningu
frá bandaríska
fyrirtækinu
VeriFone,
stærsta posa-
framleiðanda
heims, fyrir
góðan árangur
við þróun rafrænna greiðslu-
kortaviðskipta hér á landi síð-
ustu 5 ár. Hvergi í heiminu eru
hlutfallslega fleiri posar á hvert
mannsbam, eða 2.500 á hverja
100 þúsund íbúa. Næst á eftir
koma Frakkar með 800 posa mið-
að við sama kvarða.
I viðurkenningarskyni fékk
Visa ísland forkunnafagra
Kleópötrunál úr kristal, sem
myndin er af hér- að ofan, með
áletruninni „frábær frammi-
staða“. Við afhendingu gripsins
sagði forstjóri VeriFone að ís-
land ætti bestu möguleikana á
því að verða fyrsta seðlalausa
þjóðfélagið í heiminum. -bjb