Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1996, Page 36
K
IV G A
LOTT9
•jil sTi^ilhi/s 0$ ■
fcySafio)(i3Ki4)(i6:
®@®
KÍN
> C3 CZ) FRÉTTASKOTIÐ
CC j—j uxj SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
'13 Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotjð í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn.
s: LT3 <C OO ' '
1— LD >- UD S 550 5555
Frjálst ohaö dagblað
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ1996
Ólafur Ragnar:
Mér finnst þjóðin
vilja drengilega
kosningabaráttu
„Ég met mikils þann afgerandi
^®stuðning og meirihlutafylgi sem
fram kemur í þessari könnun þrátt
fyrir að hart hafi verið að mér sótt
síðustu daga.
Ég tel hins vegar mikilvægt að
kosningabaráttan fari fram á heið-
arlegan og drengilegan hátt. Mér
finnst niðurstaða þessarar könnun-
ar sýna að þjóðin vill það einnig,"
sagöi Ólafur Ragnar Grímsson um
niðurstöðu skoðanakönnunar DV
sem framkvæmd var í gærkvöldi
vegna komandi forsetakosninga.
Hann fær þar 52,3 prósenta fylgi
þeirra sem taka afstöðu. -Ótt
Pétur Kr. Hafstein:
___ Staðfestir
það sem
ég hef fundið
„Ég fagna þessari niðurstöðu. Ég
tel að hún staðfesti það sem mér
finnst ég hafa fundið á undanförn-
um dögum og vikum að það sé að
verða veruleg breyting á fylgi fram-
bjóðenda og í þessa átt sem mér sýn-
ist nú vera að gerast. Ég fagna því
alveg sérstaklega að hafa sam-
___kvæmt þessu komist í annað sætið
að svo stöddu. Ég vona sannarlega
að það verði framhald á þessari þró-
un,“ sagði Pétur Kr. Hafstein for-
setaframbjóðandi um niðurstöður
skoðanakönnunar DV. -IBS
Guðrún Agnarsdóttir:
Vaxandi
stuðningur
„Ég er mjög ánægð með þessar
fréttir og hef reyndar fundið fyrir
vaxandi stuðningi að undanförnu.
Það er samt greinilegt að fólk er al-
mennt mjög óákveðið og er að leita
fyrir sér. Það vill sjá og heyra í for-
setaframbjóðendunum áður en það
tekur ákvörðun. Ég er mjög bjart-
.. sýn sjálf á mitt gengi,“ sagði Guð-
rún Agnarsdóttir um niðurstöðu
skoðanakönnunarinnar. -ÍS
Ástþór Magnússon:
Ánægður að
komast að
„Það er lítið að marka þessar nið-
urstöður í skoðanakönnun DV hvað
mig varðar því ég er varla byrjaður
á framboði mínu enn þá. Ég ákvað
framboð mitt aðfaranótt síðasta
fostudags. Ég er samt ánægður með
að vera kominn á blað hjá kjósend-
um og á eílaust eftir að hækka þeg-
ar líður á baráttuna," sagði Ástþór
„ Magnússon.Ekki náðist í Guðrúnu
Pétursdóttur í morgun.
-ÍS
Aðalsafnaðarfundur Langholtssóknar samþykkti brottrekstur Flóka:
Aðstoðar-
prestur hættir
störfum
- segir prestinn hafa misboðið réttlætiskennd sinni
Á aðalsafnaðarfundi Langholts-
sóknar í gærkvöld var samþykkt
að skora á kirkjumálaráðherra og
yfirvöld að vikja séra Flóka Krist-
inssyni frá störfum svo fljótt sem
verða má. Tiliaga Ólafar Kolbrún-
ar Harðardóttur þessa eðlis var
samþykkt í leynilegri atkvæða-
greiðslu með 225 atkvæðum gegn
25. Tveir seðlar voru auðir og
einn ógildur. Áður hafði tillaga
um stuðning fundarins við sókn-
arnefnd verið samþykkt með 269
atkvæðum gegn 66.
Á fundinum í gærkvöld viku
tveir sóknarnefndarmenn, Ólöf
Kolbrún Harðardóttir og Margrét
Leósdóttir, samkvæmt úrskurði
séra Bolla Gústavssonar frá því í
vetur. Þá sagði varamaður í sókn-
arnefnd einnig af sér auk safhað-
arfulltrúa. Fram kom hjá öllum
þessum einstaklingum að deiluín-
ar innan safnaðarins Væru ástæð-
ur afsagnar. Fundarstjóri bar upp
tfllögu um að kosnir yrðu nýir að-
alfulltrúar í stað þeirra sem sögðu
af sér. Þá steig séra Flóki í ræðu-
stól og sagði eðlilegt að varafull-
trúar færðust upp í sæti aðal-
manna. Sú hugmynd séra Flóka
fékk ekki stuöning og var skír-
skotað tfl þess að lög væru skýr
um það að kjósa bæri nýja aðal-
menn.
Bára Friðriksdóttir guðfræðing-
ur, sem ákveðið hefur að láta af
störfum sem aðstoðarprestur,
gagnrýndi Flóka mjög í ræðu
sinni og sagði hann skorta hæfi-
leika tfl mannlegra samskipta. Þá
sagði hún að hann hefði farið í
leyfisleysi á skrifborð sitt og tekið
þar bækur sem hann hefði áður
lánað sér. Bára sagði prestinn
hafa misboðið réttlætiskennd
sinni gróflega og að hún gæti ekki
starfað undir þessum kringum-
stæðum og léti því af starfi um
mánaðamótin. Greinilegt var af
fundinum að engar sættir eru í
sjónmáli innan sóknarinnar og
þar loga ófriðareldar sem aldrei
fyrr.
Guðmundur E. Pálsson, for-
maður sóknarnefndar, sagði í
samtali við DV í morgun að ekki
lægi fyrir hver yrðu næstu skref
þegar litið væri tfl niðurstaðna
fundarins: „Ég hef enn ekki hugs-
að hvað við gerum næst til að
fylgja eftir ályktun fundarins,"
sagði Guðmundur.
Ólafur Ragnar:
Jón Steinar var
þegar búinn að
starfa að
framboði mínu
DV, Húnaþingi:
„Það væri erfitt að framkvæma
kosningar í lýðræðislegu landi ef
allir kjörstjórnarmenn færu allt í
einu að reka áróður með þessum
hætti. Það eru 2 mánuðir síðan ég
lýsti yfir framboði mínu og Jón
Steinar var búinn að starfa ágæt-
lega sem formaður yfirkjörstjórnar
varðandi framboð mitt. Hann hafði
tekið á móti skjölum og hann kvað
upp úrskurð um að meðmælendur
mínir væru réttir og eðlilegir. Hann
sendi þann úrskurð til dómsmála-
ráðuneytis þannig að hann var bú-
inn að starfa með mikilli sæmd sem
formaður yfirkjörstjórnar að fram-
boði mínu. Ef hann hefði látið þessa
skoðun sína í ljós fyrir 2 vikum,
áður en listum mínum var skilað
inn til hans, hefði verið hægt að líta
á þetta út frá einhverjum formleg-
heitum. Þegar hann gerir þetta nú
hefur það ekkert með formið að
gera,“ sagði Ólafur Ragnar Gríms-
son um afsögn Jóns Steinars Gunn-
laugssonar sem formanns yfirkjör-
stjórnar sem telur það nálgast
hneisu fyrir þjóðina að kjósa hann
sem forseta. Ástæður afsagnarinnar
segir Jón Steinar að hann geti ekki
verið hlutlaus gagnvart Ólafi Ragn-
ari í ljósi starfa sinna sem verjanda
í Hafskipsmálinu, máli Magnúsar
Thoroddsen og máli Þýsk- íslenska
en þar hafi hann „þurft að fjalla um
óforsvaranlega framkomu Ólafs
Ragnars Grímssonar" í opinberum
stöðum.
Ólafur Ragnar sagðist ekki sjá
ástæðu til að fjalla efnislega um rök-
semdir Jóns Steinars fyrir afsögn
sinni en sagði það allt vera mál sem
„lægju ljós fyrir og í sumum tilvik-
um hefði Hæstiréttur íslands kveðið
upp úrskurð og skjöl lægju fyrir“ -
löngu liðin og alþekkt mál. Hann
sagðist ekki viss um að það þjónaði
hagsmunum skjólstæðinga Jóns
Steinars að rifja umrædd mál upp
en ákvörðunin væri lögmannsins.
-MÓ/-Ótt
Bingóferöir:
Ekkert flug í nótt
Flug Bingóferða og dönsku ferða-
skrifstofunnar Whilborg Rejser féll
niður í annað sinn í nótt, en vika er
síðan flug féll niður síðast.
Hilmar A. Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri- sagði í morgun að
verið væri að ganga frá sarrningi
við erlent flugfélag og yrði ný flugá-
ætlun tilbúin um hádegi í dag.
Að sögn Hilmars voru um 45
manns skráðir frá Kaupmannahöfn
hingað heim í nótt en 85 farþegar
voru á leiðinni út. -SÁ
Aðalsafnaðarfundur var haldinn í Langholtssókn í gærkvöld. Þar var samþykkt með miklum meirihluta atkvæða að
beina því til kirkjumálaráðherra að leysa sóknarprestinn frá störfum. Tveir sóknarnefndarmenn og einn varamaður
sögðu af sér auk safnaðarfulltrúa. Þá kom fram að aðstoðarprestur hættir störfum um mánaðamót vegna
samstarfsörðugleika við séra Flóka. Húsfyllir var á fundinum. DV-mynd GS
' JPN 5TEINAR TELUR
BARATTyNA GREINjLEGA
MILLI PETURS OG ULF5-
INS!
Veðrið á morgun:
Skúrir suð-
vestanlands
Á morgun verður suðaustan-
og síðar austangola, skúrir um
landið sunnan- og vestanvert
en þokuslæðingur með austur-
ströndinni þegar líður á dag-
inn. Víðast verður léttskýjað á
Norður- og Norðausturlandi.
Hiti 11 til 13 stig norðanlands
þegar best lætur en annars 5 tfl
9 stig.
Tilvalin til að
merkja Ijósmyndirnar t
fjölskyldualbúminu
brothecPT-30°
Takmarkaö magtt
Verð 6.995 kr.
Nýbýlavegi 28 Sími 554 444
Móttaka á
brotajárni í
alfaraleið við
Sundahöfn
4i
sími 581-4757
HRINGRÁS
ENDURVINNSLA