Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1996, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1996, Blaðsíða 2
fréttir LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1996 ^ Sjómenn í Norður-Noregi sætta sig ekki við að íslendingar veiði í landhelgi: Utilokað að verðlauna veiðiþjófa með gjöfum segir Einar Jóhannesson, formaður sjómannasamtaka Finnmerkurfylkis „Satt aö segja líta nýjustu fréttir ekki glæsilega út. Við getum aldrei sætt okkur við að norsk stjómvöld opni fiskveiðilögsögu okkar fyrir veiðum skipa sem hafa þar engan rétt. Þá væri verið að verðlauna veiðiþjófana með gjöfúm,“ segir Einar Jóhannesson, formaður sjó- mannasamtaka Finnmerkurfylkis, í samtali við DV. „Fyrst veiða íslendingar eins og þeim sýnist í Smugunni. Svo segja þeir að það geti verið hagkvæmara að veiða í norskri landhelgi og eru þá tilbúnir að veiða aðeins minna þar. Aðalatriöið er samt að íslend- ingar hafa aldrei haft rétt til að veiða úr þorskstofninum í Barents- hafi og geta ekki áunnið sér rétt með veiðiþjófnaði," sagði Einar. í dag hefjast í Ósló viðræður utanríkisráðherra íslands, Noregs og Rússlands um veiðamar í Smug- unni. Upplýst er að þar verður m.a. rætt um að íslendingar fái að veiða í lögsögu Noregs og Rússlands gegn því að kvótamir verði miklu minni en þau 3^ þúsund tonn sem síöustu ár hafa fengist í Smugunni og gegn því að nota ekki flottroll. Jóhann A. Jónsson, formaður Samtaka úthafsveiðiútgeröa, sagði við DV í gær að útgerðarmenn gætu sætt sig við helmingi minni afla í Barentshafi en síðustu tvö árin gegn því að fá að fara.í landhelgi Noregs og Rússlands og gegn því aö friður ríki um veiðamar. Meðal norskra sjómanna og út- gerðarmanna er mikil andstaða við slíkar hugmyndir og höfðu menn á orði í gær að það yrði þrautin þyngri hjá Jan Henry T. Olsen, sjáv- arútvegsráöherra Noregs, að „selja“ sjómönnum slíkan samning. Einar Jóhannesson sagði að það væri að vísu til að bóta ef íslending- ar hættu að nota flottroll en fyrir það ættu þeir engin verðlaun skiliö. Aðrar þjóöir notuðu ekki flottroll og þau ætti að banna með öllu. „Það er auðvitað nauðsyn að koma á friði milli íslendinga og Norðmanna. Það hefur vissulega rofað heldur til á þessu ári og sjó- menn hér eru mjög ánægðir með kaup íslendinga á fiski. Það hefur bjargað mörgum smáútgerðum nú þegar frystihúsin hér eru lokuð og enginn vill kaupa fiskinn. Við get- um hins vegar ekki gefið endalaust eftir fyrir mönnum sem hafa tekið okkar fisk með yfirgangi" sagði Ein- ar. -GK Hafnarfjörður: Sex ár fyrir að skera á háls Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir Baldri Gunnarssyni sem á nýársmorgni sl. réðst inn til sof- andi manns í Hafnarfirði og skar á háls. Baldur er dæmdur í sex ára fangelsi skilorðsbundið. Af hálfu ákæruvalds var krafist þyngingar á refsingu og skaða- bóta til fómarlambsins að upp- hæð kr. 1.500.000 en bótakrafan þótti ekki nægilega vel rök- studd. Þau gögn sem fyrir lágu um áverka og afleiðingar þeirra fyrir fómarlamb ofbeldismanns- ins þóttu ekki rökstuðningur fyrir hærri bótum en 400.000 kr. sem ákærði hefur samkvæmt dómsoröi Hæstaréttar samþykkt að greiða. -SÁ Silfurlax: Ekkert sam- komulag „Það hefúr ekkert samkomulag tekist við veiðiréttarhafa um að starf- rækja hafbeitarstööina í Hrauns- firði,“ segir Trausti Bjamason, for- maður veiðifélags Krossár í Dölum. Trausti er í samninganefnd veiði- réttarhafa sem átt hefur í viðræðum við landbúnaöarráðuneytið, veiði- málastjóra og þrotabú Siifurlax. Hann segir að landeigendum hafi al- veg nýlega borist drög að samkomu- lagi frá veiðimálastjóra sem landbún- aðarráðuneytið hafi samþykkt fyrir sitt leyti, en landeigendur muni aldrei samþykkja þau. -SÁ Sumar í Mjódd: Eins og útlönd „Það tala margir vegfarendur um að þetta sé eins og í útlönd- um.,“ sagði Pétur Christiansen í Gleraugnaversluninni í Mjódd en þar hafa verslanir og fyrir- tæki staðið fyrir hátíðinni Sum- ar í Mjódd. Um er að ræða úti- markað í Mjódd með mörgum skemmtilegum uppákomum, t.d. dansi, lifandi tónlist og leik- tækjum. Hátíðinni lýkur í dag. -RR Málþing Kynfræðifélagsins og Landlæknisembættisins um kynskipti: Anna er flutt heim í fordómaleysið á íslandi - tíu Islendingar eftir að komast í kynskiptaaðgerð og fyrsta aðgerð innan skamms þekktu Önnu viðtal- inu í DV og tóku henni fagnandi. „Þetta var eins og ég væri Björk Guðmundsdóttir. Það bjargaði al- veg deginum hjá mér,“ seg- „Ég er komin heim, búin að finna húsnæði en vantar enn vinnu," seg- ir Anna Kristjánsdóttir, konan sem áður hét Kristján Kristjánsson og var vélstjóri að atvinnu. Anna sagði DV sögu sína síðasta haust og lét þá í ljós ósk um að flytja heim frá Sviþjóð þar sem kynskiptin fóru fram. Nú hefur sá draumur ræst og einnig sá að landsmenn virðast taka henni án fordóma. „Hér á landi hefur lítið verið rætt um kynskipti. Við þurfum því ekki að leiðrétta svo mikið af for- dómum. Við byrjum á núlli en ekki í mín- us,“ segir Anna. Hún nefnir sem dæmi um fordómaleysið að á dögunumj var hún ferð í bíl í systur sinni.j í Kópavog hittu tvær stelpur sem Hún segir að íslendingar séu miklu fremur óöruggir en fordómafullir þegar fjallað er um kynskipti. Víða erlendis verði kynskipt- ingar hins vegar að fást við inikla og neikvæða um- ræðu. Hér sé engu slíku til að dreifa. Anna var einn fyrirlesara á mál- þingi Kynfræðifé- lagsins og Landlækn- isembættisins í Nor- ræna húsinu í dag. Þar var fjallað um kyn- skipti og sagði Anna frá _______________________________________ reynslu sinni. Anna Kristjánsdóttir er komin heim frá Svíþjóð. Hún hefur fengið húsnæði í Reykjavík en á eftir að finna vinnu. DV-mynd JAK Þú getur svaraö þessari spurningu með því aö hringja í síma 904-1600. 39,90 kr. mínútan. Já jJ Nel 2] ,r ö d d FOLKSINS 904-1600 Á að leyfa áfengisauglýsingar í íslenskum fjölmiðlum? Aflakvótinn: Þorsteinn staöfestir tillögu Hafró Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra hefur staðfest tillögu Haf- rannsóknastofnunar um þorskkvóta næsta fiskveiðiárs, sem hefst 1. sept- ember næstkomandi. Samkvæmt því verður heimilt að veiða 186 þús- und lestir af þorski. Ráðherra eykur aðeins við ýsuk- vótann. Hafrannsóknastofnun lagði til 40 þúsund lestir en ráðherra leyf- ir 45 þúsund lestir. Hafrannsókna- stofnun lagði til 50 þúsund lestir af ufsa, 65 þúsund lestir af karfa og 15 þúsund lestir af grálúðu. Það stend- ur allt óbreytt. Úthafsrækjan hækk- ar úr 55 í 60 þúsund lestir, skarkoli úr 10 í 12 þúsund lestir, og síldin fer úr 100 í 110 þúsund tonn. -S.dór Nú bíða um tíu íslendingar eftir að komast í kynskipti og verður fyrsta aðgerðin gerð hér á landi inn- an skamms. Áður hafa íslendingar einkum leitað til Svíþjóðar eftir að- gerðum. Ólafur Ólafsson landlæknir sagði við DV aö ekki væri réttlætanlegt að horfa um of í kostnað vegna að- gerðanna. Það væri lagaskylda að veita íbúum landsins læknisþjón- ustu, þar á meðal kynskipti. Þar að auki væru kynskipti ekki sérlega dýr. „Það er lögleysa að neita fólki um aðgerðir af þesu tagi,“ sagði Ólafur. Hann sagði erfitt að átta sig á hve þörfm væri mikil. Þegar til lengri tíma væri litið mætti vart búast við nema einu tilfelli á þriggja ára fresti. Þá er upplýst að í Svíþjóð fær að- eins þriðjungur þeirra sem sækja um kynskipti að fara í aðgerð. Anna þekkir þar til og segir að oft ráði annarlegar ástæður því að fólk vilji skipta um kyn. Hún segir að ekki sé hægt aö hleypa þeim I aðgerð sem síðar geti séð eftir henni. „Ef ég sæi eftir að hafa farið í þessa aðgerð þá væri ég fyrir löngu búin að hengja mig,“ segir Anna. -GK stuttar fréttir Spáö meiri hagvexti I Þjóðhagsstofnun spáir að hag- vöxtur verði meiri á þessu ári : en áður var taliö, eöa 4,5% í stað j 3%. Spáð er að hagvöxtur veröi 1 3,3% á næsta ári. * - Akært fyrir tryggingasvik Þrir .verða ákærðir fyrir tryggingasvik því grunur RLR reyndist á rökum reistur. Sjónvarpið greindi frá. Helmingur með bílbelti Rúmur helmingur ökumanna og farþega spennir belti í bilum. Á Selfossi og Akureyri var 72% ökumanna með beltin spennt en aðeins 21% á Djúpavogi, skv RÚV. 100 milljóna vanskil ísafiarðarbær er með 100 milljónir í vanskilum, að sögn Bylgjunnar. Fyrir sameiningu sveitarfélaganna var bærinn með góða skuldastöðu. -GHS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.