Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1996, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1996, Blaðsíða 30
38 LAUGARDAGUR 8. JUNI 1996 Makar forsetaframbjóðendanna segja frá áhugamálum sínum og hugðarefnum Oft er sagt að á bak við hvern mann í oddahlutverki standi traust og sterk kona. Nú hefur þetta einnig snúist við með aukinni at- vinnuþátttöku kvenna í áhrifa- miklum stöðum og bakhjarl hverr- ar konu hlýtur þá að vera traustur og sterkur karlmaður. Blaðamenn Helgarblaðs DV fóru á stúfana og hittu að máli maka allra forseta- frambjóðendanna og spurðu þá um helstu áhugamál og hugðarefni. Sem dæmi má nefna að Guðrún Katrín Þorbergsdóttir og Ólafur Ragnar kynntust í lyftu og felldu hugi saman. Helgi Valdimarsson, eiginmaður Guðrúnar Agnarsdótt- ur, hefur vanist þeirri tilhugsun að vera bakhjarl konu í forsetafram- boði og líkar það vel. Harpa Karls- dóttir, tilvonandi eiginkona Ást- þórs Magnússonar, er hestakona og hlaupagarpur. Inga Ásta Haf- stein, eiginkona Péturs Hafstein, hefur ánægju af tónlist og fjöl- skyldunni. Ólaf Hannibalsson, sambýlismann Guðrúnar Péturs- dóttur, dreymdi í æsku um að verða bóndi. Guðrún Katrín Þorbergsdóttir: Gefandi að látta manninum störfin 1974 og eignuðumst Döllu og Tinnu tæpu ári síðar,“ segir Guðrún Katrín. Handavinnukona Guðrún Katrín hefur sinnt hönn- un, saumum og prjónaskap frá unga aldri. Hún segist alltaf hafa haft mikinn áhuga á handavinnu og þótt snemma liðtæk í þeim efnum. „Ég hafði fljótt áhuga á fótum og man að fyrsti kjóllinn sem ég saumaði var grænn ullarkjóll og ég átti í mörg ár. Síðan hef ég saumað fötin mín en auðvitað eru meiri möguleikar að kaupa föt nú en þá,“ segir hún. Handavinnan er þó ekki eina áhugamál Guðrúnar því að hún hef- ur mikinn áhuga á þjóðfélagsmál- um, lagði stund á nám í þjóðfélags- fræðum um það leyti sem þau Ólaf- uf Ragnar eignuðust tviburana og sat í bæjarstjórn Seltjarnarness i 16 ár. Aðspurð játar hún að hún sé metnaðargjörn og segist gera kröfur til sjálfrar sin. Hún segist vera skipulögð og koma miklu í verk. -Eruð þið Ólafur Ragnar lík? „Já. Að sumu leyti erum við það en hann hefúr meiri sjálfsögun en ég,“ segir hún og bætir við að hún hafi ekki sjálfsaga til að rjúka út að skokka eldsnemma á hverjum morgni eins og Ólafur Ragnar gerir. Guðrún Katrín á tvær dætur með fyrri manni sínum, Erlu og Þóru, og barnabörnin eru tvö. Ólafur Ragnar og Guðrún eiga saman Guðrúnu Tinnu og Svanhildi Döllu. -GHS „Það er alveg ljóst að störf forseta forseta og maka hans eru hæði mjög formlega og starfslega samtvinnað, hvort sem er í verkum á Bessastöð- um eða ferðum innanlands og utan. Ég tel það því óhjákvæmilegt að verði Ólafi falin sú ábyrgð að vera forseti íslands hætti ég því starfi sem ég gegni núna til að fylgja hon- um í hans störfum," segir Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, eiginkona Ólafs Ragnars Grímssonar forseta- frambjóðanda. „Ég held að á margan hátt sé það mjög gefandi og ánægjulegt starf að fá að starfa með manninum sínum og geta létt honum störfin, ekki síst ef hægt er að láta eitthvað gott af sér leiða. Ég sé ekki að það geti far- ið saman að vera framkvæmdastjóri í stóru stéttarfélagi og-gegna skyldu- störfum maka forseta,“ segir Guð- rún Katrín, sem kölluð er Búbba af eiginmanni sínum og nánustu ætt- ingju n, en undanfarin ár hefur hún verið í fullu starfi sem fram- kvæmdastjóri Póstmannafélags ís- lands. Tendraðist ílyftu Guðrún Katrín er fædd og uppal- in í Reykjavík 14. ágúst 1934 og bjó öll sín uppvaxtarár í húsi við Bræðraborgarstíg ásamt foreldrum sínum, Guðrúnu S. Bech og Þor- bergi Friðrikssyni skipstjóra, sem lést fyrir aldur fram, og þremur systkinum. Hún lauk stúdentsprófx 1955 og bjó ásamt þáverandi manni Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, eiginkona Ólafs Ragnars Grímssonar, ætlar aö láta af störfum sem framkvæmdastjóri Póstmannafélags íslands ef Ólafur Ragnar nær kjöri í embætti forseta íslands. DV-mynd GVA sínum, Þórarni Ólafssyni lækni, og tveimur dætrum í Danmörku og Svíþjóð 1965-1972 að hún kom al- komin heim. „Við Ólafur hittumst í lyftu. Ég var að vinna hjá mági mínum og Ólafur haföi verið hjá honum því hann ætlaði að fá hann í sjónvarps- þátt. Ég vissi ekkert hver Ólafur var og haföi aldrei séð umrædda sjón- varpsþætti. Það tendraði strax á milli okkar í lyftunni þegar við sá- umst fyrst og svo tókust kynni með okkur og síðan þróaðist þetta stig af stigi. Við giftum okkur i nóvember Ólafur Hannibalsson, maki Guðrúnar Pétursdóttur, ólst upp á ísafirði. Hann segist lesa mikiö, einkum rit um fræöimennsku og sagnfræði. DV-mynd GVA W Olafur Hannibalsson: Baröist við púka „Á þessum árum hafði maður drauma um að verða bóndi og þetta voru nú uppgangstimar í landbún- aði með byltingu vélvæðingar og fráhvarfi frá þúsund ára gömlum búskaparháttum. Það var mikill hugur í landsmönnum í hinu unga lýðveldi að byggja upp blómlegar byggðir í sveitunum," segir Ólafur Hannibalsson, varaþingmaður og sambýlismaður Guðrúnár Péturs- dóttur forsetaefnis, en hann er fæddur á isafirði 6. nóvember 1935. Ólafur ólst upp á ísafirði hjá móð- ur sinni, Sólveigu Ólafsdóttur og föður sínum, Hannibal Valdimars- syni, og ijórum systkinum. í æsku var hann í sveit á sumrin og á vet- urna gekk hann í skóla á Ísafírði og lauk þaðan fyrsta ári í menntaskóla áður en leiðin lá suður. Ólafur seg- ist hafa verið í góðum félagsskap harðsnúins strákahóps úr þremur götum á ísafirði. „Við áttum náttúrulega í illdeil- um við púka úr öðrum hverfum. Við vörðum okkar landsvæði fyrir ágangi annarra og þeir vörðu sín svæði. Við vorum mikið á bryggjun- um að verða okkur úti um báta til að róa fram á sjó og leika okkur á ísnum á pollinum á veturna. Síðan voru sleðaleikir og farið á skíði. Ég starfaði líka í skátunum frá unga aldri,“ segir Ólafur en kveðst löngu hættur öllu skátastarfi. Ólafur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Laugarvatni árið 1956, fór svo utan og lærði hag- fræði og tungumál og bjó erlendis í nokkur ár. Hann kom heim, fór í kennslu, var til sjós og gerðist svo ritstjóri Frjálsrar þjóðar, skrifstofu- stjóri ASÍ og bjó svo í Selárdal í tíu ár eða frá 1977 til 1987. Ólafur stofnaði íþróttafélag á upp- vaxtarárum sínum á ísafirði með öðrum strákum í hverfinu en hefur þó ekki verið mikið fyrir íþróttir. Ólafur segist alltaf hafa lesið mikið og er alæta á lesmál. Hann segist hafa lesið mikið af fræðiritum og skáldsögum en með aldrinum hafi hann flutt sig meira yfir í rit um fræðimennsku og sagnfræði. Alltaf áhuga á þjóðmálum Ólafur hefur alltaf haft áhuga á þjóðmálum. Á uppvaxtarárunum á Isafirði segir hann að hafi verið hart barist í pólitíkinni og „maður fór svo sem ekkert á mis við það. Þetta seig alveg niður í börnin. Markalínur voru skýrar og heitt í kolunum, þetta var 'miklu harðara en núna, en krakkarnir létu þetta ekki mikið á sig fá,“ segir hann. -En hyggst Ólafur hætta störfum og helga sig hlutverki forsetamaka ef Guðrún Pétursdóttir nær kjöri? „Áreiðanlega ekki en ég mun að sjálfsögðu styðja Guðrúnu I embætt- inu með ráðum og dáð. írar stigu þetta stóra skref fyrir nokkrum árum að kjósa sér gifta konu til for- seta og þeim hefur tekist að leysa þetta þokkalega. Hann er blaðamað- ur og skopmyndateiknari, að mér skilst, og ég held að hann ræki sín störf en hann var með henni í opin- berri heimsókn hér á dögunum. Ég held því að það verði enginn vandi að laga sig að þessu," segir hann. Fyrri kona Ólafs var Anna Kristj- ánsdóttir og eiga þrjú börn. Huga, Sólveigu og Kristínu. Guðrún og Ól- afur eiga tvö börn, Mörtu og Ásdísi. -GHS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.