Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1996, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1996, Blaðsíða 17
UV LAUGARDAGUR 8. JÚN! 1996 menning Daniel Barenboim íslenskir tónlistarunnendur kannast flestir viö ísraelska piaiiö- leikarann og hljómsveitarstjórann Daniel Barenboim, þótt ekki væri nema vegna tengsla hans við Vla- dimir Ashkenazy. Barenboim var giftur sellóleikar- anum Jaqueline de Pré sem dó á sorg- legan hátt lahgt fyrir aldur fram en margir muna enn eftir íyrir hrífandi sellóleik. Barenboim hefur notið mikils álits sem sérlega listrænn pí- anóleikari og vandaður hljómsveit- arstjóri. Hann hefur fyrst og fremst lagt fyrir sig flutning á klassískri tónlist en fæst nú einnig i verslun- um diskur þar sem Barenboim stjórnar tuttugustu aldar tónlist þar sem eru verk eftir franska tónskáld- ið Pierre Boulez sem fyrr hefur ver- ið minnst á í pistlum þessum. Hljómsveitin sem Barenboim stjórnar þarna er sjálf Orchestre de Paris sem Barenboim hefur haft löng kynni af. Er ljóst að hér hefur hvergi veriö til sparað að gera út- komuna sem besta enda er Boulez eins konar ríkistónskáld Frakka. í bæklingi, sem fylgir diskinum, er ritgerð eftir Robert Piencikowski sem er eins konar óopinber ævi- skrárritari Boulezs og sérfræðingur í tónlist hans. Upptakan var gerð hjá Radio France. Á diskinum eru þrjú verk: Rituel, sem samið er í minningu ítalska tónskáldsins og hljómsveitarstjór- ans, Bruno Maderna, Notations, sem er unnið upp úr gömlu píanóv- erki með sama nafni, og Messa- gesquisse fyrir sex selló. Öll þessi verk eru fyrir virtúósa þótt hljómsveitar- verk séu. Aðalá- herslan er á hljómsveitarútsetningunni, hljóm- inum sjálfum, og ber þar margt glæsilegt fyrir eyru. Sérstaklega eru slagverkshljóðfæri smekklega notuð og setja þau mikinn svip á heildina. Hendingar í verkunum minna á handapat mælsks Frakka, glæsilegt og hrífandi að sjá, en óljóst að inn- taki. Rétt er að taka fram að Boulez sjálfur mundi ekki taka undir þessa lýsingu að öllu leyti og telja að áherslan lægi á meðferð hljóma og forms en svona birtast verk þessi eyrum undirritaðs. Spilamennska á diskinum er frá- bærlega góð og hvergi verður vart minnsta óöryggis. Fer ekki milli mála að Barenboim stendur jafnvel að vígi í þessari krefjandi tónlist samtímans og í gömlu tónlistinni. Er áberandi hve samhljómur hljóð- færanna er hreinn og skilvirkur hjá honum og hve vel blæbrigði komast til skila. Umsjón Finnur Torfi Stefánsson Nú er allt að helmingi ódýrara að hringja innanlands Keflavíkur og Póstur og sími hefur einfaldaö gjaldskrá fyrir innanlands- Egilsstaða kostar símtöl. Nú eru aðeins tveir gjaldflokkar og næturtaxtinn 2 krónur og átta liefst klukkan 19.00. Það jafngildir 50% lækkun á símtöl- aura á mínútu eftir um frá kl. 19.00 til 23.00 og 33% lækkun á símtölum frá klukkan 19.00. klukkan 23.00 til 08.00 á þeim símtölum sem tilheyrðu gjaldflokki 3. PÓSTUR OG SÍMI Simtal á milli Vörubílar eru hannaðir til að fara frá einum stað til annars. Renault ákvað að flytja þá frá fortíð til framtíSar. Sýning í dag í húsakynnum Hagvagna aö Melabraut 18, Hafnarfirði. Sími 565-4566. Opi6 frá kl. 10 til 17. Markmið Renault var að hanna nýjan vörubíl til að annast dreifingu á stuttum leiðum og við langflutninga. Þetta var útgangspunkturinn við hönnun á tveimur línum af Renault Premium. Gott útsýni ökumanns og lipurð í akstri gerir Premium Distribution vel fallinn til aksturs á þröngum götum. Öll umgengni við bílinn er þægileg því auðvelt er að lækka ökumannssæti og losa um stjllingu S | á stýri. Renault Road er ætlaður fyrir langflutninga, hann | er með rúmgóðu húsi með loftfjöðrun og miklum búnaði til þæginda, lága hleðsluhæð, öflugri vél o.fl. Fyrirtæki og einstaklingar sem sinna vörudreifingu eða langflutningum finna bíl við hæfi í Premium. RENAULT RENAVLT ÁRMÚLA13 SlMI: 568 1200 BEINN SfMI: 553 1236
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.