Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1996, Blaðsíða 6
6
útlönd
LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1996 JjV
stuttar fréttir
Villibráð bönnuð
Stjórnvöld í Víetnam hafa
bannað matsölustöðum landsins
að hafa villibráð á matseðlinum
þar sem mörg villt dýr eru í út-
rýmingarhættu.
Datt af hjóli
Rudolf
'Scharping,
| þingflokks-
; formaður
þýskra jafn-
I aðarmanna,
i verður að
dvelja á
sjúkrahúsi
I næstu daga
; vegna höfuðáverka sem hann
: hlaut þegar hann datt af kapp-
j reiðahjóli sínu á fleygiferð nið-
í ur krókóttan fjallveg.
Leiðtogar í Sýrlandi
Leiðtogar Egyptalands og
P Sádi-Arabíu komu til Damaskus
1 í Sýrlandi í gær til viðræðna
: við Assad Sýrlandsforseta um
I friðarhorfur í Mið-Austurlönd-
1 um eftir valdatöku hægrimanna
í ísrael.
Hommar á móti
Samtök homma og lesbía í
í Rússlandi segja að sigur fram-
bjóðanda kommúnista í forseta-
I kosningunum um næstu helgi
| yrði mikfll harmleikur fyrir
landið.
Sækir um ESB-aöild
Janez Drnovsem, forsætis-
I ráðherra Slóveníu, sagði í gær
. að land sitt mundi sækja um
fulla aðild að Evrópusamband-
| inu á mánudag.
Dauðarefsing burt
Belgíska þingið greiðir at-
kvæði um afnám dauðarefsing-
I ar í næstu viku og að sögn
munu lögin þar um fljúga í
í gegn, enda enginn verið tekinn
I af lífi í Belgíu síðan 1950.
Boðað til kosninga
Gro
Harlem
Brundtland,
1 forsætisráð-
| herra Noregs,
| og stjórn
hennar hafa
boðað til al-
| mennra þing-
Í kosninga í
I Noregi þann 15. september 1997
| en síðast var kosið þar 13. sept-
í, ember 1993.
Vonir dofna
Portúgalir hafa ítrekað and-
I stöðu sina við að slaka á banni
við sölu bresks nautakjöts og
I þar með hafa vonir Breta um
jí skjóta lausn á málinu dofnað
1 mjög.
Látinn borga
Vellauðugum lífstíðarfanga í
: Missouri-fylki í Bandaríkjunum
I hefur verið gert að greiða rúmar
sex milljónir króna fyrir uppi-
hald sitt í fangelsinu. Reuter
Heimsmarkaðsverð:
Og enn lækkar
bensínið
Heimsmarkaðsverð á bensíni
heldur áfram að lækka í Rotterdam
og London. Á einum mánuði hefur
verðið lækkað um allt að 20 pró-
sent. Vegna hótana Bandaríkja-
manna um viðskiptabann á Níger-
íu gæti þó svo farið að verð hækki
á ný. Hráolía hefur hins vegar
hækkað litillega og er það éinkum
vegna þess að horfur eru á auknu
framboði á næstunni.
Hlutabréfavísitölur helstu káuþ-
hafla heims hafa tekið óverulegum
breytingum í vikunni. Dow Jones í
Wall Street hefur lækkað ef eitt-
hvað er, mældist 5667 stig að lokn-
um viðskiptum á fimmtudag. Örlít-
fl hækkun varð í London og Frank-
furt. Reuter
Leiðtoga bókstafstrúarmanna í Tyrklandi falin stjórnarmyndun:
Bjartsýnn þrátt
fyrir hrakspárnar
Necmettin Erbakan, leiðtogi ís-
lamska Velferðarflokksins, flokks
bókstafstrúarmanna í Tyrklandi,
fékk umboð til myndunar nýrrar
ríkisstjómar i gær eftir að Suleym-
an Demirel forseti hafði rætt við
foringja allra flokka. Stjórnmálaský-
rendur sögðu þó að litlar líkur væru
á að Erbakan tækist að koma sam-
an starfhæfl'i stjórn.
„Forsetinn fól Velferðarflokkin-
um, stærsta flokki Tyrklands, þetta
verkefni," sagði Erbakan við frétta-
menn fyrir utan forsetahöllina og
hélt uppi því sem hann sagöi vera
skriflega beiðni forsetans til hans
um að mynda stjórn.
Velferðarflokkurinn fékk flest at-
kvæði í kosningunum í desember
síðastliðnum en hann náði þó ekki
meirihluta í þinginu. Erbakan var
bjartsýnn á að honum tækist ætlun-
arverk sitt, þrátt fyrir hrakspár
fréttaskýrenda.
„Með góðum ásetningi getum við
starfað með öllum flokkunum sem
eiga fulltrúa á þingi,“ sagði hann.
Mesut Yflmaz, fráfarandi forsæt-
isráðherra, sagði af sér á fímmtudag
þegar ljóst þótti að þingið mundi
samþykkja vantrauststillögu bók-
stafstrúarmanna. Þá hafði Tansu
Ciller, fyrrum forsætisráðherra,
lýst því yfir að flokkur hennar, sem
átti sæti í ríkisstjóm Yilmaz, mundi
ganga í lið með stjómarandstöðunni
og greiða vantrauststfllögunni at-
kvæði sín.
Demirel forseti sagði eftir fundi
sína með flokksleiðtogunum að eng-
inn þeirra hefði kynnt honum
stjórnarmynstur sem mundi njóta
meirihlutastuðnings á þingi.
Tansu Ciller hefur hvatt til þess
að stofnuð verði samfylking fjög-
urra flokka tfl að koma í veg fyrir
að bókstafstrúarmenn komist til
vald'a en það gæti reynst erfitt
vegna djúpstæðs ágreinings mifli
flokkanna, borgar-aflokka hennar og
Yilmaz og tveggja vinstriflokka.
Velferðarflokkurinn fékk 21 pró-
sent atkvæða í þingkosningunum
en í bæjarstjórnarkosningum í síð-
ustu viku jók hann enn við fylgi sitt
og fékk 33,5 prósent atkvæða.
Reuter
Zhírínovskí
setur á fullt
fyrir loka-
sprettinn
Rússneski
| þjóðernisöfga-
maðurinn
| Vladimír
R Zhírínovskí
:/ tilkynnti í
I gær að hann.
ætlaði að
| setja allt á
;: fulla ferð fyr-
| ir lokasprett baráttunnar vegna
forsetakosninganna í Rússlandi
í eftir átta daga.
| Zhírínovskí veittist við það
tækifæri harkalega að Borís
| Jeltsin forseta og Gennadí Zjúga-
Ínov, frambjóðanda kommúnista.
Sáttatónn undanfarinna vikna,
þár sem Zhírínovskí hvatti til
þjóðstjórnar til að koma í veg fyr-
ir borgarastríð, var á bak og burt.
„Þeir eru allir svikahrappar,"
[ sagði Zhírínovskí við mannfjöld-
ann í iðnaðarbænum Orekhovó-
Zújevó, nærri Moskvu.
Paul McCartney leiðir Elísabetu Englandsdrottningu um sali nýs skóla í Liverpool sem hann kom á laggirnar þar sem
áhersla er lögð á listir af ýmsu tagi. Símamynd Reuter
Paul McCartney bauð Elísabetu 2. í nýja skólann sinn:
Drottningu leist bara vel á og
hún skemmti sér konunglega
Gamall draumur Pauls McCart-
neys, fyrrum Bítils, rættist í gær
þegar hann leiddi Elísabetu Eng-
landsdrottningu um listaskóla sem
hann kom á laggimar í heimaborg
sinni, Liverpool. Skólinn, sem var
opnaður formlega í gær, er til húsa
í sömu byggingu og gamli skólinn
hans Pauls og félaga hans, Georges
Harrisons, var á sínum tíma.
Drottningu virtist skemmt, að
minnsta kosti brosti hún, þegar hún
hlýddi á rokkhljómsveit nemenda
og horfði á nútímadans. í heimsókn-
inni afhjúpaði hún skjöld sem er við
sviðið í skólanum.
Drottningu „leist mjög vel á, hún
skemmti sér yfir þessu öflu,“ sagði
Paul McCartney eftir að hann hafði
fylgt drottningu aftur að glæsibif-
reiðinni sem beið hennar við hlið
skólans.
Æstir aðdáendur Bítilsins gamla
höfðu safnast saman fyrir utan hús-
ið í þeirri von að berja átrúnaðar-
goðið augum.
Paul lagði sjálfur fram hálfan
annan milljarð króna til að koma
skólanum á laggimar, auk þess sem
hann fékk fégjafir frá tvö þúsund
stuðningsmönnum, þar á meðal
drottningunni sjálfri. Með stofnun
skólans vildi Paul McCartney þakka
borginni þar sem hann hóf frægðar-
feril sinn.
Reuter
Kauphallir og vöruverð erlendis
DV
Ört vaxandi
borgarsamfé-
lög skaða börn
Börn verða helstu fórnarlömb
meinsemda ört vaxandi borga
heimsins og fátæktar á næstu
! Öld, að því er fufltrúar Barna-
/ hjálpar SÞ (UNICEF) sögðu á ráð-
stefnu SÞ um byggðamál.
„Sex af hveijum tíu börnum
í sem fæðast í þróunarlöndunum
/ árið 2025 munu fæðast í borg og
helmingur þeirra mun lifa við fá-
| tækt,“ sagði Stephen Lewis, að-
| stoðarframkvæmdastjóri UN-
ICEF.
Hann sagði að milli fimm og
I sex milljónir barna dæju á ári af
völdum niðurgangspesta og önd-
unaifærasýkinga sem rekja
mætti til mengaðs vatns, lélegrar
| hreinlætisaðstöðu, slæmra híbýla
I og loftmengunar.
/ Lewis var þó bjartsýnn á að
börnum yrði veitt meiri athygli í
; framtíðinni þar sem metfjöldi
ríkja heföi'þegar staðfest barna-
sáttmála SÞ.
Tékkneskir
kratar setja
Klaus skilyrði
i/ Milos Zem-
an, leiðtogi
I flokks jafnaö-
armanna í
| Tékklandi
| (CSSD), kynnti
| i gær skilyrðin
| sem flokkur-
I inn setur fyrir
8 stuðningi við
| minnihlutastjórn Vaclavs Klaus for-
I sætisráöherra.
ÍZeman sagði á fúndi meö ffétta-
mönnum aö ekki mætti vænta
stuðnings krata ef stjórnin héldi til
|: streitu að einkavæða samgöngu- og
Íorkufyrirtæki landsins. Þá skýrði
hann einnig frá þvi aö málamiölan:
ir i lifeyrismálum, heilsugæslu og
| menntamálum væru lykillinn að
* stuöningi CSSD við minnihluta-
[ stjóm Klaus.
Svíar rannsaka
áhrif farsíma á
heilsufar
Visindamenn Karólínsku stofn-
I unarinnar í Svíþjóð hafa komist aö
| því í fyrstu rannsóknum sínum að
fólk sem er viðkvæmt fyrir raf-
, bylgjum gæti fundiö fyrir óþægind-
um af völdum farsíma i námunda
I við sig.
Sjö tóku þátt í rannsókninni og
fengu þrir þeirra höfuðverk og
| fundu fyrir ertingu og doða f andlit-
inu þegar farsimi var í gangl í lok-
Suðum kassa 70 sentimetra í burtu.
Frekari rannsóknir verða gerðar á
| áhrifum farsímanna. Reuter