Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1996, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1996, Blaðsíða 8
 8 %elkerínn Ljúffengar samlokur eru listgrein sælkerans: Japanskur lax og samloka frá Víetnam Sérlöguð samloka er frábær skyndibiti til að hafa með sér í vinn- una eða ferðalagið og er hægt að búa til hollan og ljúffengan mat úr góðu brauði og fjölbreyttu áleggi. Hér á eftir koma tillögur að nokkrum samlokum, sem hægt er að búa til og að sjálfsögðu er hægt að breyta og bæta uppskriftirnar að vild og því hvort hráefnið er til í eldhússkápunum eða ekki. Laxasamloka á japanska vísu - fyrir fjóra - 3 msk. léttmajones 1 msk. ferskur sítrónusafl 1 msk. sojasósa IV2 msk. ferskt, flnt skorið engifer V2 tsk. sykur 100 g kaldur, soðinn lax V, bolli fínt skorið selleri 2 msk. niðurskorinn laukur V, tsk. wasabi krydd 8 sneiðar heilhveitibrauð 1 y2 bolli karsi Majones, sitrónusafi, sojasósa, engifer og sykur eru þeytt saman. Laxi, sellerii og lauk er blandað var- lega saman við. Ef wasabi krydd er notað á sam- lokuna er því blandað saman við 1 msk. af majonesi og svo er blönd- unni smurt á brauðsneiðarnar. Sal- atinu er jafnað á fjórar brauðsneið- ar og efst settur karsinn. Brauð- sneiðar eru settar ofan á. Samloka frá Víetnam - fyrir fjóra - 1 marið hvítlauksrif V2 tsk. salt V4 bolli vínedik 2 tsk. sykur 1V2 bolli smátt saxaðar gulrætur y3 bolli vel saxaður laukur 1-2 msk. fínt skorinn rauður pipar 1 snittubrauð 4 tsk. léttmajones um 300 g beinlaus kjúklingur eða svínalund, skorin í þunnar sneiðar 1 msk. ferskur sítrónusafi V2 tsk. krydd að eigin vali y2 bolli kóríander-lauf Skerið niður og blandið saman hvítlauk og salti. Bætið ediki og sykri saman við og hrærið saman. Setjið saman við gulrætur, lauk og papriku. Setjið til hliðar. Skerið snittubrauðið í fernt og hvem hluta aftur langsum. Smyrjið majonesi á brauðið. Raðið kjötinu á sneiðarnar, hellið sltrónusafa og kryddið. Jafnið gulrótasalati og kór- íanderlaufi á og lokið svo samlokun- um. Jarðarberja- og ananasís Börnin hafa alltaf gaman af að prófa sig áfram, sérstaklega þegar um eitthvaö sérstaklega gómsættj og vin- sælt er að ræða. Hér kem- ur upp- skrift sem eflaust matgæðingur vikunnar eftir . V. að verða vinsæl á mörg- um heimilum. 2 bollar fersk eða fryst jaröarber 200 g ananasbitar, safanum er hellt af % bolli jarðarberjasulta 1 msk. sítrónusafi 2 bollar fryst vanillu jógúrt (bragðlaus jógúrt), má nota krap Takið laufln af jarðar- berjunum, skerið berin iður og setjið helmingin á pönnu. Bætið við ananasbitum, sultu og sltrónusafa. Sjóðið og hrærið í öðru hvoru þar til jarðarberin eru orðin mjúk, eða um 5 mínútur. Hrærið gætilega afgang- inum af jarðarberjunum saman við. Takið til hliðar og geymið meðan hinir réttimir eru borð- aðir. Þegar ísinn er borinn fram er sósunni skipt í fjögur ísglös og efst sett frosin jógúrt. Setjiö af- ganginn af sósunni ofan á. Skreytið, til dæmis með flöggum eða berj- um. -GHS Athugasemd Eins og lesendur hafa tekið eftir hefur DV boöiö fram- bjóðendum til forseta islands að vera sælkerar á matarsíöu helgarblaðsins og hafa flestir frambjóðendurnir þegar kynnt uppskriftir sinar. Ólafi Ragnari Grímssyni hefur einnig veriö boðin þátttaka en hefur því miöur ekki séö sér fært að kynna uppskriftir í blaöinu. -GHS Bára Karlsdóttir er matgæðingur vikunnar: Salat með osti og rækjum og BBQ kjúklingur í fati „Þessar uppskriftir eru mjög vin- sælar hér á heimilinu en sjálf er ég hrifnari af grænmeti og fiski en kjöti. Ég hef mikinn áhuga á matargerð, sérstaklega á grænmeti enda hef ég unnið skreytingar úr grænmeti ásamt manninum mínum. Það er áhugamál okkar með stóru Á-i,“ seg- ir Bára Karlsdóttir á Hólmavík en hún er matgæðing- Íur vikunnar að þessu sinni.. Bára gefur k hér uppskrift S að salati með 9 . osti 2 stk. Camembert ost- ur eða Stóri Dímon í bitum öllu blandað saman stóra skál, Sósuna má bera fram sér eða hella yfir. 1 msk. sætt sinnep 1 msk. tómatsósa 2 msk. ananassafi 2 msk. koníak, má sleppa 1 msk. sérrí, má sleppa pipar, salt og Season All eft- ir smekk Allt er hrært saman og borið fram með salatinu eða hellt yfir það. BBQ kjúklingar og sósa 2 kjúklingar, hlutaðir 50 g Barbecue-sósa 1 dl sojasósa 1 dl aprikósusulta 100 g púðursyk- ur Kjúklinga- hlutunum er raðað í eld- fast fat. Sós- unni blandað er um í for- rétt og Bar- becue- kjúklingum aðalrétt. Salat með osti og rækjum 1 agúrka brytjuð 4 niðursneiddir tómatar y2 gul paprika, söxuð V2 rauð paprika, söxuö V2 dós brytjaður ananas 300 g blá vínber, skorin i tvennt og steinarnir fjarlægðir 3-4 bollar rækjur Bára Karlsdóttir frá Hólmavík er matgæöingur vikunnar aö þessu sinni. Bára gefur uppskrift aö bragögóöu salati og vinsælum kjúklingarétti. DV-mynd GS Sósan 1 dl majonnes 1 dl sýrður rjómi 1 dl rjómi, þeyttur saman og hellt yfir kjúklinga- hlutana. Rétturinn er hitaður í ofni við 200 gráður í 50 mínútur. Kjúklinga- bitunum er velt í sós- unni meðan steikt er. Gott er að bera fram jasmín hrísgrjón með og nota soðið af réttinum sem sósu á grjónin. Bára skorar á Rögnu Þóru Karls- dóttur, systur sína. -GHS Rósir úr þurrkuðum apríkósum Fallegar skreytingar eru alveg nauðsynlegar og oftast punktur- inn yfir i-ið á sykursætum og Ijúffengum tertum. Margir eru snillingar að gera fallegar rósir eöa blóm úr marsipani en það eru þó ekki allir sem vilja svo fituríkar skreytingar. Hér kemur því hug- mynd að rósum úr þurrkuðum aprikósum með ekta laufblöðum, til dæmis beint úr garðinum. Athugið að í hverja rós þarf fjórar mjúkar, þurrkaðar aprikósur, grófan sykur og tann- stöngla. Aðferðin Dreifið 2 msk. af sykri á borð. Leggið aprikósuna á sykurinn til að fá sykurhúð. Sléttið úr aprikósunum með kökukefli og búið til hringlaga platta úr þeim. Haldið áfram að dreifa sykri á aprikósuna þangað til hún er orðin góð og gerið sama við hin- ar aprikósurnar. Raðið aprikósunum á sama hátt og sést hér á myndinni og rúlliö þeim upp eins þétt og mögulegt er þannig að þær myndi rós. Þrýstið neðri endan- um vel saman. Skerið neðan af rósinni og stingið tannstöngli í neðri end- ann til að festa hana betur. Sker- ið svo endana á tannstönglinum varlega af með skærum. Opnið rósina gætilega og lagið rósarblöðin til þannig að rósin verði falleg. Aprikósurósir má geyma í eina viku við herbergishita og þarf þá að breiða eitthvað laus- legt yfir þær. -GHS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.