Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1996, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1996, Blaðsíða 33
LAUGARÐAGUR 8..JÚNI 1996 41 Skákþing íslands í Garðabæ: Helgi er sexfaldur Islandsmeistari Meðeigandi óskast í gott fyrirtæki á Laugaveginum. Þeir sem hafa áhuga sendi inn umsóknir til DV, merkt „Laugavegur 5796”, fyrir 13. júní. Fariö verður meö umsóknir sem trúnaöarmál. Helgi Ólafsson stórmeistari tryggöi sér íslandsmeistaratitilinn í skák í sjötta sinn er hann sigraði i landsliðsflokki á Skákþingi íslands sem fram fór í Garðabæ. í lokaum- ferðinni gerði hann jafntefli við Magnús Öm Úlfarsson og lagði ör- lög sín í hendur Jóhanns Hjartar- sonar og Hannesar Hlífars Stefáns- sonar. Jóhann hefði getað náð Helga að vinningum en skákinni við Hannes lyktaði með jafntefli og þar meö varð Helgi einn efstur. Helgi er vel að íslandsmeist- aratitlinum kominn, tefldi af öryggi og tapaði ekki skák. Frammistaða hans nú er aðdáendum hans kær- komin eftir misvindasamt tímabil. Nú er hann vonandi að ná sér á strik, sem lofar góðu fyrir ólympíu- skákmótið í Armeníu í hau'st. í kvennaflokki stóð baráttan lengstum milli Önnu Bjargar Þor- grímsdóttur og Ingibjargar Eddu Birgisdóttur. Svo fór að Anna Björg hafði betur, hlaut að lokum 5 vinn- inga úr 6 skákum en Ingibjörg Edda hafði hálfum vinningi minna, ásamt Hörpu Ingólfsdóttur. Næst kom Þor- björg Elsa Ingólfsdóttir, síðan Sig- rún Sigurðardóttir, Helga Guðrún Eiríksdóttir og Hulda Stefánsdóttir. Margar skemmtilegar skákir voru tefldar í Garðabænum og gilti það jafnt um landsliðsflokk sem kvennaflokk. í landsliðsflokki náðu ungu mennirnir ekki að blanda sér í baráttu stórmeistaranna um efstu sætin en þeir sýndu þó að þeir eru til alls vísir. Magnús Örn er einn þeirra sem vonir eru bundnar við í framtíðinni. Hann getur teflt falleg- ar sóknarskákir þegar svo ber und- ir en á því fékk Hannes Hlífar að kenna í 8. umferð. Þótt Hannes hefði hvítt varð hann að gefast upp eftir aðeins tuttugu leiki þegar fok- ið var í flest skjól. Þetta var ekki dagur Hannesar sem þurfti nú að leika hlutverk fórnarlambsins. Deginum áður hafði hann sjálfur teflt glæsilega fórnarskák gegn Helga Áss. Taflið vakti mikla athygli áhorfenda, sem vildu helst likja því við „ódauðlegu skákina" frægu. Það er heldur ekki á hverjum degi sem fórnað er tveim- ur hrókum en þetta var títt hér fyrr- um meöan teflt var á kaffihúsum. Hvítt: Hannes Hlífar Stefáns- son Jóhann Hjartarson hreppti 2. sæt- ið ásamt Margeiri Péturssyni en hann vann heppnissigur í síðustu umferð gegn Jóni G. Viðarssyni. Skák þeirra var síðast til lykta leidd á þinginu og var raunar dæmigerð fyrir útsjónarsemi Margeirs sem tókst að vinna endatafl þar sem hann hafði um tíma tveimur peðum minna. Margeir tefldi annars af mikilli hörku og leyfði aðeins tvö jafntefli. Tap í fyrstu umferð gegn Helga var ekki gott veganesti og síð- an varð hann að lúta í lægra haldi fyrir Sævari Bjarnasyni. Sævar reyndist Helga góður aðstoðarmað- ur - lagði einnig Hannes Hlífar á ör- lagastundu. Svart: Magnús Örn Úlfarsson Enskur leikur. I. c4 e5 2. Rc3 Rf6 3. Rf3 Rc6 4. g3 Bc5 5. Bg2 d6 6. d3 0-0 7. 0-0 a6 8. a3 h6 9. b4 Ba7 10. Bb2 Be6 11. Hcl?! Betra og eðlilegra er 11. h3. II. - Dd7 12. Hel Bh3 13. Bhl Rg4 14. e3 f5 15. Bg2? Hannesi lýst ekki á sóknarmátt svörtu stöðunnar en með þessum slaka leik kastar hann dýrmæt- um tíma á glæ og veikir um leið kóngsstöðuna. Mögulegt er 15. Hc2, með hugmyndinni að svara 15. - f4 með 16. exf4 exf4 17. d4 en hvíta staðan er ótrygg. 15. - Bxg2 16. Kxg2 f4 17. h3? Yfirsést snotur svarleikur Magn- úsar. Betra er 17. Rd5. Svart: Helgi Áss Grétarsson Spænskur leikur. 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 d6 5. c3 Bd7 6. d4 Rge7 7. Be3 Rg6 8. h4 Bg4 9. Rbd2 Be7 10. Bxc6+ bxc6 11. Da4 exd4 12. cxd4 Bxh4 13. Rxh4 Rxh4 14. Hxh4! Upphafið að laglegri atburðarás. 14. - Dxh4 15. Dxc6+ Ke7 16. Dxc7+ Bd7 Áskrifendur fá aukaafslátt af smáauglýsingum DV 5505000 auglýsingar Fjórir samstæðir frelsingjar hvíts eru öflugri en biskupinn og í prakt- isku tafli er svartur ekki öfunds- verður af hlutskipti sínu. Svo fór að lokum aö Hannesi tókst að knýja fram sigur, eftir 53 leiki. Sævar Bjarnason náði góðum endaspretti á mótinu en byrjaði illa - með einn vinning úr fyrstu fimm skákunum. Undir lokin tókst hon- um að leggja tvo stórmeistara. Gríp- um niður í tafl hcms við Margeir í 7. umferð. í miðtaflinu gætti Margeir sín ekki á duldum möguleika Sæv- ars. í þessari stöðu tókst Sævari, sem hafði svart og átti leik, að snúa taflinu sér í vil: Einstaklega glæsilegt ***** skrifborðssett úr mahóni til sölu Glæsilegt mahoni skrifborössett til sölu. Samanstendur af skrifborði, fund- arboröi, tölvu- og prentaraboröi ásamt tveimur hillueiningum. Settinu fylgir einnig mjög smekkiegur skrifstofustóll og viöskiptamannastóll, klæddir svörtu leðri. Lítiö notaö og allt sem nýtt. Nýviröi 320 þús. kr. en selst á aöeins 210 þús. kr. stgr. Kaup ársins fyrir réttan aöila. Svarþjónusta DV, sími 903 5670, tilvnr. 60827. Silkiútsala Enn meiri afsláttur Hættum með metravöru í versluninni Framvegis bjóSum viS sérpöntun á silki- metravöru. Þú getur valiS úr 1000 prufum. Vitastíg 10 • S. 562 8484 17. - Rxf2! 18. Kxf2 Dxh3 Hvítur ræður ekki við sóknina. 19, gxf4 exf4 20. c5 Re5! Einfaldast. Ef nú 21. Rxe5 Dg3+ 22. Kfl (22. Ke2 Dg2 mát) fxe3+ og endalokin eru skammt undan. Hvít- ur gafst upp. Hvítt: Hannes Hlífar Stefáns- 26. - Ra5! Auðvelt er að sjá að riddarinn er friðhelgur. 27. Dc3 Hxc5 28. bxc5 Rxb3 29. Dxb3 f6 30. Rf3 Hc8 31. a4 Ba7 32. Hd6 Hxc5 Peðið var dauðadæmt og nú á svartur sigurstanglega stööu. Eftir... 33. Ddl Hc6 34. Hd8 Bb6 35. Hb8 Hc8 36. Hxc8 Bxc8 37. Db3 Bc5 38. Rd2 Be6 39. Dc2 Bb6 40. Re4 Db4 41. Bc3 Db3 42. Dd2? Dbl+ 43. Kh2 Dxe4 44. Dd6 Dc6 45. De7+ Bf7 ...ætti að vera skammt til enda- lokanna. Sævar tefldi þó ekki sem nákvæmast, Margeir náði að þráast við en í 67. leik varð hann að gefast upp. -JLÁ Ég þakka öllum sem glöddu mig með gjöfum, blómum og skeytum á sjötugsafmœli mínu. Guð blessi ykkur öll. Lilian Guðlaugsson Veghúsum 31 KENWOOD kraftut; gœði, ending Mlil Ármúla 17, Reykjavík, sími 568-8840 Shell Rally-Cross 17. Rc4! Dhl+ 18. Kd2 Dxal 19. Dxd6+ Ke8 20. Bg5 f6 21. Bxf6! gxf6 22. Dxf6 Bb5 Aðalhótunin var 23. Rd6 mát. 23. Dxh8+ Kd7 24. Dxh7+ Kd8 25. Dg8+ Kc7 26. Dxa8 Bxc4 27. Da7+ Kd8 28. Db6+ Kd7 29. d5 Mætum öll á aðra Rally-Cross keppni sumarsins á sunnudaginn kl. 14 á brautinni í Kapelluhrauni. SUNNUÖA KAPELLUHRAUNI L
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.