Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1996, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1996, Blaðsíða 27
rðiiŒiro nlist LAUGARDAGUR 8. JUNI 1996 Island — plötur og diskar-- . f 1. (_ ) Oskalög sjómanna Ýmsir I 2. (1 ) The Score Fugees ,3.(2) Ólder George Michae! t 4. ( - ) Ástfangnir Sixties í 5.(3) Down on the Upside Soundgarden I 6. ( 4 ) Jagged little Pill Alanis Morrissette t 7. (15) Rokkveisla aldarinnar Ýmsir # 8. ( 5 ) Evil Empire Rage against the Machine | 9. ( 7 ) To the Faithful Departed The Cranberries 110. ( 6 ) Sunburned & Paranoid Skunk Anansie 111. (19) Gangsta's Paradise Coolio 112. ( 9 ) Reif í botn Ymsir 113. (Al) Outside David Bowie 114. (10) Falling into You Celine Dion 115. (11) The Bends Radiohead 116. ( 8 ) Pottþétt 3 Ymsir t17. (Al)Post Björk 118. (13) GlingGló Björk & Tríó Guðmundar Ingólfss. 119. (Al) Greatest Hits Take That t 20. (17) The Great Southern Trendkill Pantera London -lög- ■ '• » 1 I 3 t 4- t 5. t 6. t 7. t 8. t 9- t 10. - (- ) Killing Me Softly Fugees (1 ) Three Lions Baddiel & Skinner & Lightning S... ( 3 ) Mysterious Girl Peter Andre featuring Bubbler R... ( 2 ) Ohh Ahh... Just a Little Bit Gina G (- ) Naked Louise ( 4 ) Nobody Knows The Tony Rich Project (-) Fable Robert Miles ( 9 ) Because You Loved Me Celine Dion ( 7 ) There's Nothing I Won't Do JX ( 8 ) Fast Love George Michael New York | 1.(1) The Crossroads Bone Thugs-N-Harmony | 2. ( 2 ) Always Be My Baby Mariah Carey | 3. ( 3 ) Because You Loved Me Celine Dion t 4. ( 5 ) Give Me One Reason Tracy Chapman t 5. ( 6 ) You're the One SWV t 6. ( 4 ) Nobody Knows The Tony Rich Project t 7. (- ) You’re Makin' Me High/Let It Flow Toni Braxton | 8. ( 8 ) Fast Love George Michael t 9. ( 7 ) Ironic Alanis Morissette t 10. (- ) Until It Sleeps Metallica Bretland -plötur og diskar- | 1.(1 ) Older George Michael t 2. ( 3 ) Jagged little Pill Alanis Morissette t 3. ( 6 ) The Score Fugees | 4. ( 4 ) (What's the Story) Morning Glory? Oasis t 5. ( 2 ) Everything Must Go Manic Street Preachers t 6. (10) Falling into You Celine Dion t 7. (12) Moseley Shoals Ocean Color Scene t 8. ( 5 ) 1977 Ash t 9. ( 8 ) Greatest Hits Take That t 10. (13) Ocean Drive Lighthouse Family Bandaríkin — plötur og diskar- | 1. (1 ) The Score Fugees I 2. (-) Down on the Upside Soundgarden I 3. ( - ) Gettin' It Too Short I 4. ( 2 ) Jagged little Pill Alanis Morissette » 5. ( 3 ) Falling into You Celine Dion I 6. ( 7 ) New Beginning Tracy Chapman i 7. ( 4 ) Fairvyeather Johnson Hootie & The Blowfish I 8. ( 5 ) Crash The Dave Matthew Band » 9. ( 6 ) Older George Michael |10. ( 8 ) To the Faithful Departed The Cranberries Reggae on lce fer (berjamó Þrískipt plata Fimmmenningarnir segja að plat- an þeirra, í berjamó, sé þrískipt hvað efni varðar. Fjögur lög hennar eru frumsamin, fjögur eru erlend með sínum upprunalegu textum og loks er að finna á plötunni fjögur áður útgefin íslensk lög. „Við leggjum mesta metnaðinn í frumsömdu lögin,“ segja þeir. „Þau eru þyngst í hlustun og alvarlega hliðin á hljómsveitinni ef svo má segja.“ Davíð Þór Jónsson var feng- inn til að semja texta við þrjú frum- sömdu lögin og fer á kostum að sögn Reggae on Ice-manna. Fjórði textinn er eftir Matthías. Hann er við titillagið ög þar er kórinn sem söng í uppfærslu Leikfélags Reykja- víkur á Superstar kallaður til við flutninginn. Nokkrir aðrir gestaflytjendur eru á plötunni. Þeirra á meðal er Helgi Skúlason leikari sem talar einn textann. Erlendu lögin sem verða á plöt- unni eru Redemption Song sem fyrr var nefnt, Three Little Birds, Reggae Nights og Many Rivers To Reggae on lce: Spilar ekki bara reggae. Cross. Sá möguleiki var hugleiddur að semja við þau íslenska texta en þegar betur var að gáð þótti það ekki vænlegur kostur. „Slikt er orðið meiriháttar mál,“ segir Hannes Pétursson. „Ef við færum út í slíkt þyrftum við að orðabókaþýða textann og senda til útlanda til samþykkis hjá uppruna- lega höfundinum eða þeim sem ann- ast hagsmuni hans. Þá þarf að afla ýmissa leyfa þannig að það gæti tek- ið marga mánuði að fá í gegn að hafa íslenskan texta við erlent lag. Það virðist ekki vera fyrirhafnar- innar virði lengur. Gamalkunnir slagarar Gömlu íslensku lögin sem fimm- menningarnir í Reggae on Ice hafa valið til flutnings á plötu sinni eru Ég vil fara upp í sveit, Hvers vegna varst’ekki kyrr?, Lóan er komin og Kyrrlátt kvöld við fjörðinn. Síðast- talda lagið kom reyndar út á safn- plötunni ís með dýfu I fyrrasumar og svo aftur á safnplötunni Ávextir í upphafi þessa árs. Þar eð þær plöt- ur hittu ekki jafn vel i mark og að var stefnt var ákveðið að hafa lagið einnig með á nýju plötunni. En skyldi nýja platan, í berjamó, gefa til kynna þá tónlist sem Reggae on Ice fæst við á dansleikjum og tónleikum? Jú, liðsmenn hljóm- sveitarinnar eru ekki frá því: „Það er reyndar misskilningur að við fáumst eingöngu við reggaetón- list,“segja þeir. „Við byrjuðum þannig en svo virtist okkur ekki vera markaður fyrir slíkt, nema kannski á konsertum þar sem við getum leikið reggaeið hægt og leti- lega eins og á að gera það. Þar erum við líka bestir. En annars bjóðum við bara upp á gleðipoppprógramm, spilum reggae, ska, diskóreggae og hreint og klárt diskó sem við keyr- um talsvert hratt. Við spilum ekki rokktónlist en sinnum hliðarbú- greinunum þeim mun meira. Reggae on Ice sér fram á anna- samt sumar við leik og söng víða um land. Hljómsveitin hefur viða komið viö hingað til en ætlar til dæmis að kanna ókunna stigu á Vestfjörðum og Austfjörðum í sum- ar. Þá verður hún um Verslunar- mannahelgina á sama stað og I fyrra, á bindindismótinu í Galta- lækjarskógi. Nýja platan kemur út á mánudag og henni á að fylgja eftir með trukki. Útgáfutónleikarnir verða á Astró að kvöldi nítjánda júní og tveimur kvöldum síðar verö- ur efnt til sumarsólstöðuballs á Hót- el íslandi. Já, og í kvöld? Þá er Reggae on Ice að sjálfsögðu í Hafn- arfirði á lokahúllumhæi grínhátíð- ar Hafnfirðinga. Hún byrjar reynd- ar leikinn í brúðkaupi í Firðinum en færir sig síðan til og spilar á balli á Café Royal. -ÁT- Fyrsta plata h’jómsveitarinnar Reggae on Ice, I berjamó, er rétt óút- komin en að minnsta kosti tvö lög af henni eru þegar farin að heyrast í útvarpi. Annað er hið gamalkunna Hvers vegna varst’ekki kyrr? sem Pálmi Gunnarsson gerði vinsælt hér um árið. Hitt er gamla Bob Mar- leylagið Redemption Song, ekta reggaeslagari sem flestir unnendur þeirrar eðalstefnu ættu að kannast við. Þótt Reggae on Ice sé ekki í hópi þekktustu hljómsveita á landi hér er saga hennar þó orðin alllöng. Hún var stofnuð árið 1992 og hafði þá yfir sér alþjóðlegan blæ. Auk ís- lenskra tónlistarmanna voru í henni Jamaíkamaður, New Yorkbúi og einn frá Dóminíku. í sinni núver- andi mynd hefur Reggae on Ice síð- an starfað frá því I október 1994 og .samkvæmt vel varðveittum annál- um hljómsveitarinnar lék hún fyrst opinberlega á Gauki á Stöng I febr- úar ’95. Liðsmenn hennar þá eins og nú voru Ingimundur Óskarsson bassaleikari, Hannes Pétursson trommiiléikari, Matthías Matthías- son söngvari, Viktor Steinarsson gítarleikari og Stefán Örii Gunn- laugsson sem annast hljómborðsleik og söng ásamt því að vera lagahöf- undur.sveitarinnar með Ingimundi. ‘Sí N’ w ■ ■ i rm Jarvis Cocker og félagar hans í Pulp eiga að halda ti I Reykjavík á vegum listahátíðar í byrjun næsta mánaðar eins og kunnugt er. Vonandi gengur það allt eftir en Pulp hefur þurft að af- lýsa nokkrum tónleikum aö undanfórnu vegna veikinda söngvar- ans, Jarvis Cockers. Hann varð sér úti um einhvem hitabeltissjúk- dóm á Hawaii nýlega og hefur nú veriö fyrirskipað að hafa hægt um sig á næstunni. Ekki bætti úr skák að Cocker píndi sig til að koma fram á tvennum tónleikum eftir að hann var farinn að finna fyrir veikindunum vegna þess að hann vildi ekki bregðast aðdáend- um Pulp í Ameríku. Við það varð hann auðvitað enn veikari en efni stóöu til og hefur veriö rúmliggjand að undanförnu. Við treyst- um því að hann verði tilbúinn í slaginn í Höllinni í byrjun júlí. -SþS- il
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.