Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1996, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1996, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1996 ^ Skoðanakönnun Stöðvar 2 og DV á fylgi forsetaframbjóðenda: Olafur Ragnar og Pétur dala en aðrir bæta við sig Ólafur Ragnar Grímsson er enn með stuðning um meirihluta kjós- enda sem næsti forseti islands. Hann er með nær tvöfalt meira fylgi en Pétur Kr. Hafstein. Þó hefur fylgi þeirra dalað lítillega á meðan Guð- rún Agnarsdóttir, Guðrún Péturs- dóttir og Ástþór Magnússon hafa bætt við sig, Ástþór hlutfallslega mestu. Þetta eru helstu niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Stöðvar 2 og DV sem gerð var á fylgi forseta- frambjóðenda af markaðsdeild Frjálsrar fjölmiðlunar hf. í fyrra- kvöld. Úrtakið í könnuninni var 600 manns. Jafnt var skipt á milii kynja sem og höfuðborgarsvæðis og lands- byggðar. Spurt V£ur: „Hvern af þess- um forsetaframbjóöendum kýst þú: Ástþór Magnússon, Guðrúnu Agn- arsdóttur, Guðrúnu Pétursdóttur Ólaf Ragnar Grímsson eða Pétur Kr. Hafstein?" Af þeim sem tóku afstöðu nefndu 49,4 prósent Ólaf Ragnar, 25,1 pró- sent Pétur, 12,3 prósent Guðrúnu Agnars, 10,1 prósent Guðrúnu Pét- urs og 3,2 prósent Ástþór. Alls tóku tæplega 68 prósent úr- taksins afstöðu í könnuninni sem þýðir að um 32 prósent eru óákveð- in eða gefa ekki upp afstöðu sína. - breytingar þó óverulegar frá síðustu DV-könnun Ólafur Ragnar Grímsson - niðurstaða skoðanakönnunar DV og Stöðvar 2 - 60% 26,6 254 10,3 ■■■"£ Skoöanakönnun DV, apríl '96 H Skoðanakönnun DV, maí '96 09 Nú Pétur Kr. Hafstein Guðrún Agnarsdóttir Guðrún Pétursdóttir 0 24 3,2 . .Mfli Ástþór Magnússon 4 DV Fylgi frambjóðenda eftir kynjum Cf & O Karlar Olafur Ragnar Grímsson Pétur Kr. ^ Hafstein Guörún Agnarsdóttir Guörún Pétursdóttir cf Astþór Magnússon Konur “28% 72% 69% 31%^ DVl Þetta er aðeins meira hlutfall óá- kveðinna en í síðustu könnun í lok maí sl. þegar 29 prósent voru óá- kveðin eöa neituðu aö svara. Sé tekið mið af úrtakinu öllu þá sögðust 33,5 prósent ætia að kjósa Ólaf Ragnar, 17 prósent Pétur Kr. Hafstein, 8,3 prósent Guðrúnu Agn- arsdóttur, 6,8 prósent Guðrúnu Pét- ursdóttm\og 2,2 prósent ætluðu að styðja Ástþór Magnússon. Enn dalar Ólafur Miðað við síðustu könnun sem DV birti í lok maí hefur fylgi Ólafs Ragnars minnkað úr 52,3 prósentum í 49,4 prósent. Frá könnun DV í apr- íl hefur fylgi Ólafs minnkað um 11,6 prósentustig. Fylgi Péturs hefur sömuieiðis minnkað eða úr 26,6 í 25,1 prósent. Þá er aö sjálfsögðu miðað við þá sem tóku afstöðu í könnun DV og Stöðvar 2. Guðrún Agnarsdóttir bætir við sig tveimur prósentustigum frá maí- könnuninni, er úr 10,3 í 12,3 pró- sent, og hefur verið í stöðugri sókn í könnunum DV frá því í mars. í síð- ustu könnun fór Guðrún í fyrsta sinn upp fyrir nöfnu sína Péturs- dóttur og heldur því sæti. Guðrún Pétursdóttir fer úr 8,7 prósentum í lok maí í 10,1 prósent núna en þess má geta að hún féll í síðustu könnun um 5,3 prósentstig- um frá aprílkönnun DV. Ástþór Magnússon bætir enn við sig, fer úr 2,1 í 3,2 prósenta fylgi. Hlutfallslega er fylgisaukning hans mest eða um 52%. Meirihlutastu&ningur kynsystkina frambjóðenda Sé litið á niðurstöðurnar eftir kynjum kemur strax í ljós að fram- bjóðendurnir njóta ailir meirihluta- stuðnings kynsystkina sinna. Mesta jafnvægið er þó hjá Ólafi Ragnari sem er með 56 prósenta hlutfall karla í sínu liði. Af fylgismönnum Guðrúnar Agnars eru 72 prósent konur en sama hlutfall er rúm 63 prósent hjá nöfnu hennar Péturs- dóttur. Nálægt 70% af stuðnings- mönnum Ástþórs eru karlar og hjá Pétri er hlutfallið 60 prósent. Miðað við síðustu könnun hefur stuðning- ur eftir kynjum breyst mest hjá Guörúnu Agnarsdóttur en körlum hefur hríðfækkað í hennar hópi. Konum hefur fækkað í liði Péturs um leið og þeim hefur fjölgað hjá Ástþóri. Munur á fylgi frambjóðenda eftir búsetu kjósenda er ekki marktækur nema í liði Ólafs Ragnars sem er ívið fjölmennara á landsbyggðinni. Óákveðnir kjósendur eru mun fleiri á höfuðborgarsvæðinu. Ólafur stóð sig best í þættinum á Stöö 2 Um leið og könnunin fór fram voru þeir þáttakendur, sem horfðu á umræðuþátt Stöövar 2 á miðviku- dagskvöldið með frambjóðendun- um, spurðir hver þeirra hefði staðið sig best. Niðurstaðan er í nokkru samræmi við fylgið. Flestir töldu að Ólafur Rágnar hefði staðið sig best. Pétur kom þar næstur og hvað þátt- inn varðar fór Guðrún Pétursdóttir upp fyrir nöfnu sína Agnarsdóttur. Ástþór rak lestina. -bjb Stórmerk myndlistarsýning í Hafnarborg: íslensk portrett frá upphafi aldarinnar Aöalsteinn Ingólfsson, Pétrún Pétursdóttir og Sigurður Ör- lygsson fyrir framan verk á sýningunni. DV-mynd GS Þann 8.júní nk. verður opnuð sýning á íslensk- um portrettmyndum í Hafnarborg. Þar verða sýnd u.þ.b. 80 verk eftir um 50 listamenn. Sýning- in er haldin á vegum Hafnarborgar en það var Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur sem hafði veg og vanda af því að finna og velja verkin sem sýnd eru. Myndirnar koma víða að, sumar eru fengnar að láni frá söfn- um, aðrar eru í einka- eign, enn aðrar eru í eigu hinna ýmsu stofnana og að lokum eru sum verkin fengin að láni hjá listamönn- unum sjálfum. Aðalsteinn sagði að viðbrögð hefðu verið mjög góð þeg- ar falast var eftir að fá verk að láni á sýninguna. Pétrún Pétursdóttir, forstöðumaður Hafnarborgar, sagði það hafa verið gamlan draum þeirra Aðalsteins að koma á þessu sam- vinnuverkefni og eftir langt og strangt ferli væri búið að koma sýn- íngunni saman. Myndimar á sýningunni eru all- ar frá þessari öld, sú elsta er frá 1907 og þær yngstu voru málaðar sérstaklega fyrir sýningunna. Aðal- steinn sagði að allar myndirnar væru málaðar af þekktum lista- mönnum, hér væri ekki um að ræða nýuppgötvaðar myndir óþekktra listamanna. Hann sagði að tilgang- ur sýningarinnar væri m.a. tilraun til að finna hvort við íslendingar ættum okkur hefð í por- trettmyndum. Aðspurð- ur hvort hann hefði fundið slíka hefð við söfhun verkanna sagði hann að líklega væri ein- staklingseðli íslendinga of mikið til að slík hefð hefði náð að festa rætur. íslenskir listamenn hefðu oft frekar leitað sér að fyrirmyndum er- lendis í stað þess að líta til innlendra samverka- manna. Aðalsteinn sagði að á heildina litið væri útkoman sú að hér væri um frá- bæra listamenn að ræða en þeir væru allir mjög ólíkir. Sýningunni er skipt niður í kafla, t.d. er eitt svæði eingöngu helgað portrett- myndum af Halldóri Laxness, annað svæði er helgað myndum af persón- um úr opinberu lífi og enn annað svæði býður upp á portrettmyndir Kjarvals. Sýningin í Hafnarborg stendur til 8.júlí. -ggá Bílabúö Benna fær nýtt bílaumboö: Frumsýnir Musso frá SsangYong um helgina Nýr fjórhjóladrifsbíli, Musso, verður frumsýndur nú um helg- ina hjá nýju bílaumboði, en Bíla- búð Benna hefur fengiö einkaum- boð fyrir SsangYong i Suður- Kóreu en þaö er sjötta stærsta fyr- irtækjasamsteypa Kóreu. Musso er mjög vel búinn jeppi, búinn vélum frá Mercedes Benz og drifbúnaöi frá bandarísku fyr- irtækjunum Borg-Wamer og Dana Spicer. Bíllinn er hannaður fyrir Evrópumarkað og er rými fyrir ökumann og- farþega jafn mikið eða meira en í sambærileg- um bílum. Bíllinn er hannaður af breska bifreiðahönnuðinum Ken Greenley en hann hannaði meðal annars glæsivagna á borð við Aston Martin Virage og Bentley Continetal. Musso verður til sýnis í nýjum sýningarsal hjá Bílabúð Benna Musso frá SsangYoþg i Suöur- Kóreu veröur frumsýndur hjá Bílabúö Benna nú um helgina. við Vagnhöfða laugardag og sunnudag frá kl. 10 til 18 báða dagana. -JR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.