Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1996, Page 50
58
LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1996
fmæli
Sigurgísli Ingimarsson
Sigurgísli Ingimarsson tannlækn-
ir, Blátúni 3, Bessastaöahreppi,
verður fertugur á mánudaginn.
Sigurgísli fæddist i Reykjavík,
ólst upp í Sauðanesi á Langanesi til
tíu ára aldurs og í Vík í Mýrdal til
tvítugs.
Hann lauk landsprófi frá Skóga-
skóla 1972, stúdentsprófi frá ML
1976, leiðsögumannsprófí frá Leið-
sögumannaskóla Ferðamálaráðs ís-
lands 1977, stundaði þýskunám við
Goethe Institut í Berlín 1977 og lauk
prófi í tannlækningum frá tann-
læknadeild HÍ 1985.
Á námsárunum var
leiðsögumaður á sumrin.
aðstoðartannlæknir í
1985-87 en hefur síðan starfrækt eig-
in tannlæknastofu i Garðabæ auk
þess sem hann og aðstoðartann-
læknir hans hafa sinnt tannlækn-
ingum á Þórshöfn á Langanesi. Þá
var Sigurgísli stundakennari við
tannlæknadeild HÍ 1987-95.
Sigurgísli var ritstjóri Harðjaxls,
tímarits tannlæknanema í tvö ár,
formaður Félags tannlæknanema
1983-84, sat í ritnefnd Tannlækna-
tals, situr í Ársþings- og endur-
menntunarnefnd Tannlæknafélags
íslands frá 1995 og situr í stjórn Líf-
Sigurgísli
Hann var
Keflavík
eyrissjóðs Tannlæknafélagsins frá
1993.
Fjölskylda
Sigurgisli kvæntist 23.6. 1989
Kristínu Guðjónsdóttur, f. 27.6.1963,
hjúkrunarfræðingi. Hún er dóttir
Guðjóns Davíðssonar, húsasmíða-
meistara í Garðabæ, og Önnu M.
Eymundsdóttur húsmóður.
Dætur Sigurgísla og Kristínar eru
Sigríður Sigurgísladóttir, f. 26.7.
1986; Anna Gyða Sigurgísladóttir, f.
9.5. 1990, og Freyja Sigurgísladóttir,
f. 22.8. 1994.
Systkini Sigurgísla eru Ingimar
Ingimarsson.f. 7.8.1952, fréttamaður
RÚV; Þorkell Ingmarsson, f. 5.11.
1953, skólastjóri; Bjöm Ingimarsson,
f. 30.12. 1954, framkvæmdastjóri;
Hrafnhildur Ingimarsdóttir, f. 28.6.
1957, fóstra.
Foreldrar Sigurgísla eru séra
Ingimar Ingimarsson, f. 24.8. 1929,
sóknarprestur á Þórshöfn á Langa-
nesi, og k.h., Sigríður Kr. Sigur-
gísladóttir, f. 6.6. 1929, sjúkraliði.
Ætt
Föðursystir Sigurgísla er Arn-
þrúður, móðir Arnars Jónssonar
leikara. Ingimar er sonur Ingimars,
útgerðarmanns á Þórshöfn, Bald-
vinssonar, b. á Fagranesi, Metúsel-
Hjartanlega þakka ég öllum þeim sem glöddu
mig með gjöfum, blómum og heimsóknum í
tilefni af90 ára afmœli mínu 23. apríl sl.
Bryndís Nikulásdóttir
frá Miðhúsum
Hvolhreppi
Þú færð allar upplýsingar
um stöðu pína í leiknum og stöðu
efstu liðanna í síma 904 1015
Verö 39,90 mínútan.
ÍÞRÓTTADEILD
LOTTOsími
9 0 4 • 5 0 0 0
Verð aðeins 39,90 mín.
Þú þarft aðeins eitt símtal
í Lottósíma DV til að fá nýjustu
tölur í Lottó 5/38, Víkingalottó
og Kínó t
Lonósfflw
9 0 4 * 5 0 0 0
emssonar. Móðir Ingi-
mars Baldvinssonar var
Hólmfríður, systir Ing-
unnar, ömmu Gunnlaugs
Schevings listmálara og
Gylfa Þ. Gíslasonar,
fyrrv. ráðherra, föður
Þorvalds hagfræðings og
Þorsteins heimspekings.
Hólmfríður var dóttir
Stefáns, umboðsmanns á
Snartarstöðum, Jónsson-
ar. Móðir Baldvins var
Guðrún Skúladóttir,
systir Sveins, langafa Sigurgísli
Kristjönu, móður Brynj- son.
ólfs Bjarnasonar, for-
stjóra Granda.
Móðir Ingimars Ingimarssonar
var Oddný Árnadóttir, pósts á
Vopnafirði, Sigbjarnarsonar, prests
á Kálfafellsstað, Sigfússonar. Móðir
Sighjarnar var Ingveldur Jónsdótt-
ir, prests í Þingmúla, Hallgrímsson-
ar, bróður Þorsteins, afa Jónasar
Hallgrímssonar skálds. Móðir Árna
var Oddný Pálsdóttir Thorarensen,
prófasts í Sandfelli, Magnússonar.
Móðir Oddnýjar var Anna Bene-
diktsdóttir, systir Sveins, afa Einars
Benediktssonar skálds. Móðir Odd-
nýjar Árnadóttur var Þórdís, systir
Stefáns, afa Stefáns Benediktssonar,
þjóðgarðsvarðar í Skaftafelli. Systir
Þórdísar var Guðný,
amma Einars Braga rit-
höfundar. Þórdís var dótt-
ir Benedikts, b. á Brunn-
um í Suðursveit, bróður
Guðnýjar, ömmu Þór-
bergs Þórðarsonar. Bróðir
Benedikts var Sigurður,
afi Gunnars Benedikts-
sonar rithöfundar.
Hálfbróðir Sigríðar, sam-
mæðra, var Jón Sólnes
alþm. Sigríður er dóttir
Sigurgísla, skósmiðs í
Ingimars- Reykjavík, Jónssonar, b.
á Skaganesi í Mýrdal,
bróður Eldeyjar-Hjalta.
Jón var sonur Jóns, b. á
Fossi í Mýrdal, Einarssonar, b. í
Þórisholti, Jóhannssonar, föður
Gísla, langafa Erlends Einarssonar,
fyrrv. forstjóra SÍS, og Jóns Þórs
Þórhallssonar, forstjóra SKÝRR.
Móðir Sigríðar var Hólmfríður
Jónsdóttir, pósts á ísafirði, Þorkels-
sonar, prófasts á Staðastað, Eyjólfs-
sonar. Móðir Jóns var Ragnheiður
Pálsdóttir, prófasts í Hörgs-dal,
Pálssonar.
Sigurgísli heldur upp á afmælið á
heimili sínu í dag, laugardag.
Kolbrún Þóra
Oddsdóttir
Kolbrún Þóra Odds-
dóttir.
Kolbrún Þóra Odds-
dóttir, landslagsarkitekt
hjá Byggingadeild borg-
arverkfræðings,
Ásvallagötu 9, Reykja-
vik, er fertug í dag.
Starfsferill
Kolbrún fæddist í
Reykjavík og ólst þar
upp. Hún lauk prófi sem
ylræktarfræðingur frá
Garðyrkjuskóla ríkisins
1976, stúdentsprófi frá
MH 1978 og lauk prófi
sem landslagsarkitekt
frá Landbúnaðarháskól-
anum í Kaupmannahöfn
1986.
Kolbrún starfaði hjá Skógræktar-
félagi Reykjavíkur í Fossvogi 1970
og 1971, stundaði ylræktarstörf á
Laugalandi í Borgarfirði, við Garð-
yrkjuskóla ríkisins og hjá H.P.
Lindgren á Jótlandi á árunum
1974-76, stundaði ráðgjafastörf fyrir
Samband sunnlenskra sveitarfélaga
og Kvennfélag Suðurlands 1976, var
tilraunastjóri við Rannsóknarstofun
landbúnaðarins 1976, landvörður í
Landmannalaugum sumarið 1977,
var flokkstjóri á hverfabækistöð
Garðyrkjudeildar Reykjavíkurborg-
ar 1976-78, flokkstjóri í Grasagarði
Reykjavíkur 1978-79, starfaði á
Teiknistofu Einars E. Sæmundsson-
ar landslagsarkitekts sumrin 1982
og 1983, vann við endurbyggingu
torfbæjar við Bændaskólann á Hól-
um sumarið 1983, var hönnunarráð-
gjafi fyrir meðlimi Det kongelige
danske haveselskab sumarið 1985 og
hefur verið landslagsarkitekt á
Garðyrkjudeild Reykjavíkurborgar
frá 1987.
Meðal verkefna Kolbrúnar und-
anfarin ár má nefha garðskálann í
Grasagarði Laugardals, Seltjörn í
Breiðholti og garðinn þar umhverf-
is, opið svæði við Grímsbæ, hönnun
á höggmyndagarði Ásmundar
Sveinssonar við Sigtún og skipulag
og uppbyggingu á umhverfi gömlu
Þvottalauganna, auk stíga
og fjölda leiksvæða borgar-
innar. Hún hefur gert hul-
iðsvættakort af Elliðaár-
hólmum, Kópavogi, Hafn-
arflrði og ísafjarðarkaup-
stað.
Kolbrún hefur tekið þátt í
eftirfarandi sýningum:
Hönnunardagar 1995;
Rúðuborg L’enfant er l’arc-
hitecture 1995; Við sundin
blá, sýning í Ráðhúsi
Reykjavíkur, 1994; Huliðs-
vættir í Hafnarborg 1994,
og Samsýning á gömlum
görðum.
Kolbrún hefur setið í rit-
stjórn tímaritsins Arkitektúr, verk-
tækni og skipulag, var ritari Félags
garðyrkjumanna og Félags ís-
lenskra landslagsarkitekta, hefur
setið í leiktækjastaðlanefnd frá 1993
og er ritari hennar og tækninefndar
um öryggi barna á leikvöllum og sat
í nefnd um öryggi barna með hlið-
sjón af byggingareglugerð.
Fjölskylda
Eiginmaður Kolbrúnar var Krist-
ján Ari Arason, f. 30.12. 1958, blaða-
maður. Þau skildu.
Dætur Kolbrúnar og Kristjáns
Ara eru Þórhildur Kristjánsdóttir, f.
27.9. 1986, og Katrín Kristjánsdóttir,
f. 3.3. 1988.
Systkini Kolbrúnar eru Hákon
Már Oddsson, f. 1.12. 1958, kvik-
myndagerðarmaður í Reykjavík;
Guðrún Oddsdóttir, f. 12.7.1971, sál-
fræðingur í Reykjavík; Katrin Odds-
dóttir, f. 22.8. 1977, nemi í Reykja-
vík.
Foreldrar Kolbrúnar eru Oddur
Benediktsson, f. 5.6.1937, prófessor í
tölvunarfræöi, og Auður Hildur Há-
konardóttir, f. 28.4.1938, listamaður,-
Afmælið verður haldið í Bjarkar-
hlíð þar sem afi og amma Kolbrún-
ar bjuggu, þau Hákon Guðmunds-
son og Ólöf Arnardóttir.
Til hamingju
með
afmælið
8.júní
80 ára
Valgerður Emilsdóttir,
Fjarðarbakka 6, Seyðisfirði.
75 ára
Helgi Guðnason,
Þorkelsgerði, Þorlákshöfn.
Þórður Kristjánsson,
Hreðavatni, Borgarbyggð.
Sigríður Björnsdóttir,
Vitateigi 7, Akranesi.
Gunnar Auöunsson,
Vallarbraut 8, Seltjarnarnesi.
Guðrún Karitas
Sölvadóttir,
Hlíðargerði 25, Reykjavík.
Fjóla Lúthersdóttir,
Hringbraut 50, Reykjavík.
60 ára
Bergsveinn Guðmundsson,
Sævangi 6, Hafnarfirði.
Guðrún Hallsdóttir,
Hrauntúni, Kolbeins-
staðahreppi.
50 ára
Helga Aðalbjörg
yilhjálmsdóttir,
Ártúni, Ljósavatnshreppi.
Gunnar
Hjaltalin,
löggiltur end-
urskoðandi,
Sævangi 44,
Hafnarfirði.
Kona hans er
Helga R. Stef-
ánsdóttir.
Þau taka á móti vinum og
vandamönnum í Kaffi Reykja-
vík milli kl. 16 og 19 í dag.
Amar Helgason,
Merkurgötu 8, Hafnarfirði.
Katrín Erla
Gunnlaugsdóttir,
Stekkholti 6, Selfossi.
Sigurbjörg Guðjónsdóttir,
Akurholti 13, Mosfellsbæ.
Sigtryggur Jónsson,
Grundargerði 2E, Akureyri.
40 ára
Þorkell Birgisson,
Skólastíg 26, Bolungarvík.
Anna Björg Pálsdóttir,
Búðavegi 24, Fáskrúðsfirði.
Sigrún Hafdís
Svavarsdóttir,
Vanabyggð 4B, Akureyri.
Hólmgrímur
Rósenbergsson,
Baldursgötu 22A, Reykjavík.
Álfhildur Álfþórsdóttir,
Reynimel 76, Reykjavík.
Þórir Bjarnason,
Grundartanga 20, Mosfellsbæ.
Valdimar Sigurgeirsson,
Þórunnarstræti 112,
Akureyri.
Sigurður E. Valdimarsson,
Botnahlíð 29, Seyðisfirði.
Karl Friðrik Jónsson,
Kjalarsíðu 8F, Akureyri.
Eiríkur Haraldsson,
Grundartanga 23, Mosfellsbæ.
Guðrún Sigríður
Sigurjónsdóttir.
Furugerði 15, Reykjavík.
Eva-Marie Andersen,
Kristnesi 14,
Eyjárfjaröarsveit.
ístaðgreiðslu- og
greiðslukortaafsláttur og "v
stighækkandi birtingarafsláttur
I ssoseoe
Sm»-
auglýsingar
DV