Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1996, Side 15
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1996
þeir eru löngu búnir að fá nóg af
þessum fögum sem verið er að
| prófa í. Þeir hafa því litla mögu-
9 leika á áframhaldandi menntun.
í hverju felast þeirra möguleik-
ar?
„Það er auðvitað mikið áhyggju-
efni að 35 til 40 prósent standa sig
ekki sem skyldi á samræmdu próf-
unum. Það er alveg ljóst að þessir
unglingar, sem þarna spjara sig
ekki sem skyldi eftir ákveðnum
prófum sem sett hafa verið, búa yfir
margvíslegum hæfíleikum. Ein teg-
und af prófi í skóla getur ekki kann-
að alla hæfileika sem blunda með
fólki því þeir eru svo margvíslegir
og ólíkir. Það skiptir auðvitað mjög
miklu máli að þetta unga fólk fari
ekki út úr skólanum með skerta
sjálfsvirðingu og brotna sjálfsmynd;
þá tilfinningu að það hafi tapað, að
það hafi ekki staðið sig. Það þarf að
finna farveg til þess að rækta þá
hæfileika sem í þessu fólki búa, og
eru margvíslegir, til þess að það geti
k nýtt þá og orðið að gagni. Ég hef
" heyrt að tilraunaverkefni hefjist á
næsta vetri þar sem reynt verður að
endurmennta eða endurþjálfa þá
I sem hafa ekki staðið sig sem skyldi
á þessum samræmdu prófum.
Kannski þarf einmitt að endurskoða
| samræmdu prófin."
Dáist að hugrekki Guörúnar
Pétursdóttur
Ragnar Ragnarsson, Reykjavik:
Kom það þér á óvart að Guð-
rún Pétursdóttir skyldi draga
framboð sitt til baka?
„Ég ber fulla virðingu fyrir
ákvörðun Guðrúnar Pétursdóttur
og dáist að hugrekki hennar því ég
held að það þurfi mikið hugrekki til
að taka ákvörðun sem þessa. Þetta
kom mér á óvart. Ég's'akna hennar
úr hópnum. Mér finnst ég hafa
misst einhvem. Mér finnst hún hafa
haft mikið til málanna að leggja. Ég
1 vona að hún eigi eftir að koma fram
á einhverjum öðrum vettvangi þar
sem hún getur beitt sér í félagsmál-
um, til gagns fyrir samfélagið. Ég
held hún hafi til þess hæfileika og
eigi erindi."
Ragnar Ragnarsson, Reykjavík:
Hvaða áhrif heldur þú að þetta
hafi á þitt framboð?
„Þetta kemur til með að hafa
áhrif á alla kosningabaráttuna og er
kannski þegar farið að hafa áhrif á
hana. Ég held að ákvörðun hennar,
og þær forsendur sem hún gefur sér
fyrir ákvörðuninni, hristi upp í
fólki. Það að hæfileikarík mann-
eskja, sem hefur mikið til brunns að
bera og margt til málanna að leggja,
skuli meta stöðuna svo að hún dragi
sig í hlé vegna þess að hún sem
kona eigi ekki upp á pallborðið hlýt-
ur að raska ró jafnréttissinnaðrar
þjóðar, sem ég trúi að íslendingar
| séu, og hrista upp í henni um hver
séu forgangsatriði hjá okkur.“
Guðrún sameiningarafl
Helgi Jónsson, Reykjavík:
Ég tek eftir því að þú ert farin
að auglýsa þig sem sameiningar-
aflið. Hvers vegna telst þú frekar
það afl en aðrir frambjóðendur?
„Það er nú komið í ljós í þessum
skoðanakönnunum og í kosning-
abaráttunni að það er talað um tvær
fylkingar. Það hefur einnig sýnt sig
í könnunum að fylgjendur Ólafs
vilja allra síst fá Pétur fyrir forseta
í öðru sæti og sama gildir um fylgj-
endur Péturs. Langsamlega flestir
setja mig í annað sætið. Auk þess
hef ég verið að sveiflast mjög mikið
upp og það er mælanleg mjög mikil
fylgisaukning í stórum stökkum nú
undanfarið. Það hefur ekki komið
fram neinn styr eða óvild í minn
garð og mér sýnist það í rauninni
einboðið að það sé meiri sátt um
mig heldur en hina tvo, ef við fórum
eftir þeim skoðanakönnunum sem
gerðar hafa verið.“
Þjóðaratkvæði í stað mál-
skotsréttar
Ingibjörg Stefánsdóttir,
Reykjavík:
Ég vil spyrja um málskotsrétt-
inn. í dreifiriti stuðningsfólks
Ólafs Ragnars er sagt að þú hafir
gefið í skyn að í stað málskots-
réttarins eigi að koma almennt
ákvæði um þjóðaratkvæði ef til-
tekinn fjöldi þingmanna eða kjós-
enda krefst þess - að í stað mál-
skotsréttarins eigi að koma al-
menn atkvæðagreiðsla, þjóðarat-
kvæði.
„Ég hef ekki séð þetta dreifi-
rit en þetta er ekki rétt. Ég hef
sagt að mér finnist þessi
heimild forseta íslands, sem
er málskotsrétturinn, vera j jjjj j Jjj J
mjög mikilvæg og hún eigi
frumvarpið verður samþykkt
núna um að menn geti veðsett
þann fiskkvóta sem þeim hefur
verið úthlutaður, þó að meiri-
hluti þjóðarinnar sé á móti því
aö afsala sér þessari sameig-
FORSETA
„Forseti getur verið málshefjandi,
hann getur verið virkur í umræðu
og túlkað og tjáð sínar skoðanir á
því hvað er sæmilegt og hvað er
ekki sæmilegt. Fyrh mér er það
ósæmilegt að fólk geti ekki
séð sér farborða eftir fullan
vinnudag vegna þess að
launin eru svo lág; sem bend-
ir til þess að það er einhver
meinsemd í samfélaginu.
Fólk getur ekki séð sér far-
borða með fullum vinnudegi. í
„Ég ber fulla viröingu fyrir ákvörðun Guörúnar Pétursdóttur og dáist að hugrekki hennar því ég held að þaö þurfi
mikiö hugrekki til að taka ákvörðun sem þessa. Þetta kom mér á óvart. Ég sakna hennar úr hópnum. Mér finnst ég
hafa misst einhvern," sagði Guörún m.a. um brotthvarf nöfnu sinnar úr forsetaframboöi.
að vera þama, en til þessarar heim-
ildar eigi einungis að grípa sem
neyðarúrræðis þegar um er að ræða
mál sem varða sjálfstæði eða full-
veldi þjóðarinnar Ég hef tiltekið í
hvaða tilvikum ég myndi grípa til
þessa réttar. Það myndi ég gera ef
það varðaði ákvörðun um aðild að
ESB og ég get tekið annað dæmi -
dauðarefsingar. Það er ekkert hik í
minum huga að nýta þessa heimild
og mér finnst að þessi heimld eigi
að vera þarna. Hins vegar finnst
mér lýðræðislegra og betra að jafn-
framt séu í lögum ákvæði um þjóð-
aratkvæðagreiðslu sem leyfi fólki
atkvæðagreiðslu um mikilvæg mál
eftir settum reglum - og úrslitin þá
annað hvort ráðgefandi
eða bindandi. Það
fyndist mér
meiri styrkur
og meira lýð-
ræði heldur
en að hafa
þennan rétt
einungis í
höndum einn-
ar mann-
eskju
sem
Veðsetning auðlindar-
innar
Svanfríður Sigurþórsdóttir,
Hafnarfirði
Þú talar um aö forseti eigi að
veita ráðamönnum ákveðið að-
hald, sem ekki veitir nú af. Þá
langar mig til að spyrja hvort þú
munt biðja um þjóðaratkvæði ef
inlegu auölind.
„Ég held að það sem þú ert að tala
um þarna varði í raun grundvöllinn
að efnahagslegu sjálfstæði okkar og
menningu, það er að segja fiskstofn-
ana umhverfis landið, sem eru og
eiga að vera sameiginleg auðlind
okkar. Þess vegna er erfitt að sjá að
nokkur geti veðsett hana, eins og
hin sameiginlega auðlind þjóðarinn-
ar sé eign hans. Mér fyndist það
vera mjög mikilvægt mál sem þjóð-
in þyrfti að taka ákvörðun um, ef til
kæmi. Það þarf að endurskoða þró-
un þessara mála þannig að við fáum
skýrt úr því skorið með hverjum
hætti við getum varðveitt þetta sem
sameiginlega auðlind þjóðarinnar
því að hún er í raun grundvöllurinn
að efnahagslegu sjálfstæði okkar og
menningu og sjálfstæði.“
Völd og áhrif forseta
Lúðvík Karlsson, Reykja-
vík:
Það hefur verið talað fjálg-
lega um völd
forseta og sum-
ir segja að
það verði
erfitt fyr-
ir fram-
bjóð-
endur
að
standa við yfirlýsingar sem þeir
hafa gefið um launakjör í land-
inu. Gætirðu hugsað þér, sem for-
seti, að segja t.d. við þá hjá VSÍ í
Garðastrætinu áð þeir hefðu nú
átt að koma til móts við kröfur
frá ASÍ? Með hvaða hætti getur
forseti skipt sér af þessum mál-
um?
aðdraganda kosningabaráttunnar
kom ég með kjaramálin inn í um-
ræðuna. Það hefur orðið þess vald-
andi að allir forsetaframbjóðend-
umir hafa tekið undir það að lág-
markslaun í landinu séu ekki sóma-
samleg. Það hefur ákveðið gildi fyr-
ir umræðuna ef allir þessir aðilar
lýsa þessu yfir. Það breytir ekki
laununum - það hækkar þau ekki á
morgun - en það myndar ákveðinn
þrýsting. Það hjálpar til að móta al-
menningsálitið.“
Ekki stuöningur Vigdísar
Hrefna Sigríður, Reykjavík:
Vigdís Finnbogadóttir sagði í
viðtali við tímaritið Veru að sér
þætti það fáránleg hugsun að
kona gæti ekki tekið við af henni.
Var Vigdís ekki þar með að taka
afstöðu með þínu framboði?
„Nei, hún var alls ekki að gera
það. Ég túlka hennar orð nákvæm-
lega eins og hún sagði þau. Hún var
að lýsa þeirri skoðun sinni, sem
mér finnst alveg rétt, að það sé fá-
ránlegt að hún geti orðið þröskuld-
ur þess að önnur kona taki við af
henni. Hún hefur svo sannarlega
rutt brautina fyrir aðrar konur og
þegar til tals kemur að önnur kona
taki við af henni þá er hún af öðrum
gerð að þröskuldi í vegi kvenna.
Það hlýtur að vera gjörsamlega
óviðunandi fyrir hana að hennar
brautryðjandastarf skuli gert að
engu.“
Sátt um embættið mikilvæg
Kristján Magnússon, Reykjavík:
Fari svo að Ólafur Ragnar
Grímsson verði kjörinn forseti
munt þú geta sætt þig við hann?
„Ég mun leitast við að sætta mig
við þann forseta sem verð-
ur kjörinn. Ég held að það
ýfa sé mjög mikilvægt að sátt ná-
IW ist um þetta embætti. Ég tel
afar óheppilegt ef það gerist
f) ..) ekki. Það myndi bæði skaða
J embættið og valda sundr-
ungu meðal þjóðarinnar. Ég
vona að ekki skapist sundrung
vegna Ólafs. Blaðaskrif í aðdrag-
anda þessara kosninga bera það þó
með sér að einhverjir bera óvildar-
hug til hans.“
Ekki hugmynd Ástþórs
Baldur Hallgrímsson, Hafn-
■-» *-
Létt var yfir Guðrúnu Agnarsdóttur á beinni línu DV í fyrrakvöld, enda
hringdu margir og fylgi hennar hefur veriö að aukast í könnunum að und-
anförnu.
neyðarúrræði. Þetta hefur
greinilega eitthvað skolast til
hjá bæklingagerðarmönnum
Ólafs Ragnars."
WORSETA
iW'
arfiröi:
Munt þú beita þér fyrir leið-
togafundi hér á landi árið 2000
eins og Ástþór Magnússon hefur
barist fyrir?
„Ég hef unnið talsvert að þessari
hugmynd því hún kemur ekki frá
Ástþóri heldur bandaríska kjarneðl-
isfræðingnum Gerald 0 Barney.
Hann hefur komið hingað, fyrst
1987, og talað fyrir þessari hug-
mynd. Hann hitti þá m.a. Steingrím
Hermannsson. Þá flutti og Jón
Helgason alþingismaður þingsálykt-
unartillögu um hvernig bæri að
standa að þessari hugmynd. Barney
hefur unnið að framtíðarspám og
hugmyndin er þegar í undirbúningi
og vinnslu hér. Það eru nær tíu ár
frá þvi ég heyrði hugmyndina fyrst
og þá studdi ég hana og ræddi við
Barney."
Heimsæki fangelsi
Elin Þorsteinsdóttir, Garðabæ:
Þú talar um að þú viljir hafa
samband við fólk, fara á vinnu-
staði og víðar. Heldurðu að þú
hafir tíma til þess og hvað ertu
tilbúin að ganga langt? Muntu
t.d. heimsækja fangelsi?
„Ég held að þetta sé spuming um
forgangsröðun eins og alltaf i lífinu.
Ég ætla að vera dugleg við að heim-
sækja fólk, fara á vinnustaði og í
stofnanir, hitta fólk á þess eigin for-
sendum eins og ég er að gera núna.
Ég held að það sé vandasamt að
vera fulltrúi heillar þjóðar og til
þess að vera trúverðugur fulltrúi
þarf forsetinn að geta sett sig í spor
fólks og sjá hvernig lífinu er lifað í
landinu; þekkja önn hversdagsleik-
ans, ólík sjónarmið, ólíkar aðstæður
og ólík kjör.
Ég hef komið í flestöll fangelsin
hérna og gerði það á meðan ég var
þingkona vegna þess að ég vildi
kynna mér hvernig að fóngmn væri
búið. Mér brá satt að segja í brún
þegar ég komst að því hvernig að-
búnaðurinn í fangelsunum var. Ég
veit reyndar að þetta stendur til
bóta. Ég myndi sannarlega vilja
sinna öllum hópum í þjóðfélaginu
því forseti er málsvari og fulltrúi
allra landsmanna, hvort sem þeir
em í fangelsi eða utan þeirra."
Mannréttindi ekki til sölu
Gísli Haraldsson, Reykjavík:
Telurðu að forseti eigi að tala
fyrir mannréttindum einstakra
ríkja, jafnvel þótt það kynni að
skaða viðskiptahagsmuni okkar?
„Mér finnst að forseti eigi að vera
málsvari mannréttinda í sem víð-
ustum skilningi þess orðs. Þau
hljóta ævinlega að ganga fyrir. For-
setinn rekur ekki sjálfstæöa utan-
ríkisstefnu en mannréttindi eru
ekki til sölu.“
Forsetinn á aö greiöa skatta
Sigurður Guðjónsson, Reykjavík:
Hver telur þú að laun forseta
eigi að vera? Eru þau hæfilega í
dag?
„Ég veit ekki hver laun forseta
eru og finnst þau í raun aðeins
þurfa að vera þannig að hann geti
gegnt starfi sínu með eðlilegum
hætti. Mæta þarf þeim kostnaði sem
hlýst af þeim móttökum og öðru
sem forsetinn er talinn þurfa að
sinna fyrir hönd þjóðar sinnar. For-
setinn hefur ekkert um launamál
sín að segja en mér finnst mjög
óeðlilegt að hann greiði ekki skatta
af launum sínum. Og mér finnst
mjög undarlegt að takast á við það
að vera fulltrúi fyrir annað fólk og
vera ekki sett við sama borð og
greiða ekki skatt. Hvað þá að maki
forseta greiði ekki skatt. Það finnst
mér út í hött. Verði ég forseti munu
bæði ég og maðurinn minn greiða
hluta af launum okkar til einhverra
mála sem ég ber fyrir brjósti, t.d.
menntamála. Við höfum ekki rætt
hversu há upphæð þetta yrði en
þetta munum við gera til þess að
sýna með táknrænum hætti að það
er óeðlilegt að forseti og maki greiði
ekki skatt eins og aðrir og til að
undirstrika að það er nauðsynlegt
að fjárfesta í menntun þjóðarinnar."