Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1996, Síða 26
50
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1996
Afmæli
Reynir Eðvarð Guðbjörnsson
Reynir Eðvarð Guðbjömsson raf-
verktaki, Stapasíðu 11, Akureyri, er
fimmtugur í dag.
Starfsferill
Reynir fæddist á Þórshöfn og ólst
þar upp til ellefu ára aldurs en sið-
an á Akureyri. Hann lauk gagn-
fræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Ak-
ureyrar, lauk prófi frá Iðnskólanum
á Akureyri 1971, lauk sveinsprófi í
rafvirkjun sama ár og öðlaðist
meistararéttindi í rafvirkjun 1978.
Þá er hann löggiltur rafverktaki frá
Tækniskóla íslands frá 1979.
Reynir fór ungur til sjós og stund-
aði sjómennsku með námi, einkum
á bátum og togurum frá Akureyri
og Þórshöfn og stundaði grásleppu-
útgerð með fóður sínum og bræðr-
um. Þá var hann um skeið hjá
Skipaútgerð rikisins.
Reynir hefur lengst
af stundað sina iðn-
grein frá því hann
lauk nám. Hann
starfði m.a. hjá Raf-
orku hf, hjá Slippstöð-
inni á Akureyri í þrjú
ár og var þrjú ár við
Kísiliðjuna og við
Kröflu á vegum Hauks
Ákasonar rafvirkja-
meistara. Hann hóf
síðan sjálfstæðan
rekstur í Reykjavík og
hefur verið rafverktaki
síðan.
Reynir starfaði mikið í skáta-
hreyfinguni, var flokksforingi í
Skátafélagi Akureyrar, starfaði fyr-
ir Vörð, félag ungra sjálfstæðis-
manna á Akureyri, starfaði í JC-
hreyfingunni og var formaður fiár-
öflunarnefndar JC á
Húsavík.
Fjölskylda
Reynir kvæntist 11.5.
1971 Kolbrúnu Kol-
beinsdóttur, f. 20.2.1948,
meinatækni. Hún er
dóttir Kolbeins Ög-
mundssonar, forstöðu-
manns Kassagerðar
KEA á Akureyri sem er
látinn, og k.h., Guðfmnu
Sigurðardóttur húsmóð-
ur, nú búsett i Hafnar-
firði.
Dætur Reynis og Kol-
brúnar eru Guðfinna Reynis Eð-
varðsdóttir, f. 14.9. 1970, læknaritari
við Sjúkrahús Reykjavíkur en henn-
ar maður er Arnar Einarsson,
starfsmaður við Leifsstöð og eiga
þau tvo syni; Aðalbjörg Reynis Eð-
varsdóttir, f. 17.5. 1973, hárgreiðslu-
nemi í Reykjavík en maður hennar
er Jón Ágúst Hreinsson húsasmiður
og nemi.
Systkini Reynis eru Emil Þór
Guðbjörnsson, f. 15.7.1952, útgerðar-
maður í Stykkishólmi; Ester Guð-
björnsdóttir, f. 16.4. 1961, starfsmað-
ur hjá Samherja.
Hálfbræður Reynis eru Gunnar
Sigurðsson, f. 24.8. 1942, sjómaður í
Grenivík; Guðmundur Hólm, f. 7.6.
1945, verktaki á Þórshöfn.
Foreldrar Reynis eru Guðbjörn
Jósíasson, f. 12.3. 1921, sjómaður á
Þórshöfn og síðan útgerðarmaður á
Akureyri, og k.h., Aðalbjörg Guð-
mundsdóttir, f. 20.1. 1925, húsmóðir
og kaupkona.
Reynir er að heiman á afmælis-
daginn.
Reynir Eðvarð Guð-
björnsson.
Ingimar Sigurðsson, deildarstjóri
markaðssviðs hjá Tryggingamið-
stöðinni hf, Selbraut 70, Seltjamar-
nesi, er fertugur í dag.
Starfsferill
Ingimar fæddist á Blönduósi og
ólst þar upp. Hann lauk prófi frá
Verslunarskóla íslands 1973.
Ingimar starfaði á skrifstofu
Kaupfélags Húnvetninga 1973-77. Þá
flutti hann til Reykjavíkur en hefur
búið á Seltjarnarnesinu s.l. fiögur
ár. Hann hefur starfað hjá Trygg-
ingamiðstöðinni frá 1977.
Ingimar var landsforseíi JC á ís-
landi 1984-85, forseti Hins íslenska
Senats 1995-96 og er formaður sjálf-
stæðisfélags Seltiminga frá 1994.
Fjölskylda
Ingimar kvæntist 28.7. 1984 Guð-
rúnu Hrönn Einarsdóttur, f. 21.6.
1957, hárgreiðslumeistara. Hún er
dóttir Einars Þórarinssonar mat-
sveins og Ragnheiðar Gestsdóttur
húsmóður en þau búa í Keflavík.
Synir Ingimars og Guðrúnar
Hrannar em Einar Hrafn, f. 10.5.
1986; Sigurður Kr., f. 6.1. 1992.
Systkini Ingimars eru Karlotta
Sigríður, f. 3.2. 1955, húsmóðir á
Sauðárkróki, gift Sverri Valgarðs-
syni húsasmíðameistara og eiga þau
fiögur böm; Jóhann, f. 7.11. 1963,
matreiðslumeistari í Hafnarfirði en
kona hans er Sigrún Erlendsdóttir
og eiga þau eina dóttur; Auðunn
Steinn, f. 12.12. 1966, verslunarmað-
ur í Reykjavík en kona hans er
Berglind Björnsdóttir.
Foreldrar Ingimars eru Sigurður
Kr. Jónsson, f. 8.8. 1933, húsasmíða-
meistari á Blönduósi, og Guðrún J.
Ingimarsdóttir, f. 8.10.1931, húsmóð-
ir.
Ætt
Sigurður er sonur Jóns, b. á
Sölvabakka í Engi-
hlíðarhreppi Guð-
mundssonar, b. í
Bakkakoti Guð-
mundssonar, b. í
Hjaltabakkakoti
Sveinssonar á Hnjúk-
um. Móðir Jóns var
Guðný Finnsdóttir, b.
á Ey Magnússonar.
Móðir Sigurðar var
Magdalena Jónsdótt-
ir.
Guðrún er dóttir
Ingimars, b. á Skeggs- Ingimar Sigurösson.
stöðum í Svarfaðardal
Guttormssonar,
vinnumanns á Hrauk-
bæ Gunnlaugssonar,
verkamanns í Glerár-
þorpi Þorvaldssonar
Jónssonar, í Göngustaðakoti Jóns-
sonar. Móðir Ingimars var Stefanía,
vinnukona í Garðshorni í Kræk-
lingahlíð og síðar verkakona á Ak-
ureyri Stefánsdóttir, b. á Hrapps-
stöðum í Svarfaðardal
Stefánssonar.
Móðir Guðrúnar var
Jóhanna Jónasdóttir, b.
í Brekkukoti Jóhanns-
sonar, b. þar. Móðir Jó-
hönnu var Ingigerður
Jóhannsdóttir.
Ingimar og Guðrún
Hrönn taka á móti gest-
um á heimili sínu að
Selbraut 70, Seltjarnar-
nesi á afmælisdaginn,
milli kl. 17.00 og 20.00.
Andlát
• •
Einar Orn
Einar Öm Björnsson,
bóndi í Mýnesi í Eiða-
þinghá, lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu í
Neskaupstað 17.6. sl.
Útför hans fór fram frá
Egilsstaðakirkju í gær.
Starfsferill
Einar fæddist á
Stóra- Sandfelli i Skrið-
dal 15.4.1913 og ólst þar
upp til átta ára aldurs.
Hann fór þá til Akur-
eyrar af heilsufarsá-
stæðum og dvaldi um
sumarið hjá Sigurði Kristinssyni
kaupfélagsstjóra og Guðlaugu Hjör-
leifsdóttur. Vorið 1922 fór hann aft-
ur til fiölskyldu sinnar sem í milli-
tíðinni hafði flutt að Mýnesi. Hann
gekk þar í farskóla í tvo vetur og
stundaði síðar nám við Eiðaskóla.
Sautján ára missti hann föður
sinn og aðstoöaði því móður sína
við búskapinn ásamt systkinum sín-
um þar til hann festi kaup á jörð-
inni og hóf þar búskap sjálfur fimm
árum síðar. Einar bjó í Mýnesi alla
tíð en eftir 1970 tók Guðjón sonur
hans við búskapnum.
Auk bústarfa gegndi
Einar ýmsum öðrum
störfum. Hann var
gæslumaður hjá Raf-
veitunum og Lands-
virkjun á Fljótsdals-
heiði í sextán ár, starf-
aði hjá Síldarverk-
smiðju ríkisins á Seyð-
isfirði í á annan áratug
og hafði þar m.a. um-
sjón með starfsmanna-
húsi á síldarárunum.
Einar stundaði sjóinn
um 1970, var háseti og
kokkur á Glettingi um þriggja mán-
aða skeiö, síöar kokkur á Hannesi
Hafstein í átta mánuði og starfaði
við Búrfellsvirkjun í þrjá mánuði
1968.
Einar bauð sig fram til hrepps-
nefndar 1938 og sat þar eitt kjör-
tímabil og aftur eftir að Egilsstaða-
hreppur var stofnaður og sat þá tvö
til þrjú kjörtimabil. Hann var enn
fremur í stjórn Samvirkjafélags
Eiðaþinghár og formaður þess í tvö
til þrjú ár, eða til vorsins 1941. Eftir
hann liggja greinar í Morgunblað-
Einar Örn Björnsson.
Björnsson
inu og fleiri blöðum.
Fjölskylda
Einar kvæntist 1941 Laufeyju
Guðjónsdóttur, f. 14.2. 1911, d. 4.5.
1994, húsfreyju og kennara í Vest-
mannaeyjum og Eiðaþinghá og víð-
ar. Hún var dóttir Guðjóns Þor-
steinssonar, bónda í Uppsölum í
Eiðaþinghá, og k.h., Sigríðar Þor-
valdsdóttur húsfreyju.
Einar og Laufey eignuðust sjö
börn en misstu einn son í flugslysi
1981. Böm þeirra eru Arnljótur, f.
16.5. 1941, bifvélavirki, Reykjavík,
og á hann eina dóttur; Sigríður, f.
27.4. 1942, húsmóðir á Bakkafirði,
gift Hjálmari Hjálmarssyni en var
áður gift Jóni Snæbjömssyni og
eiga þau þrjú böm; Björn, f. 15.5.
1944, sjómaður í Reykjavík, en sam-
býliskona hans er Guðrún Gústafs-
dóttir og eiga þau einn son, auk
þess Bjöm á tvö börn með fyrrv.
sambýliskonu, Hafdísi Sigurðardótt-
ur; Áskell, f. 28.7. 1945, bóndi á
Tókastöðum, en kona hans er Anna
Kristín Magnúsdóttir og eiga þau
einn son, auk þess hann á stjúpdótt-
ur og tvær dætur frá því áður; Úlf-
ur, f. 29.8.1946, bifvélavirki og versl-
unarmaður í Reykjavík; Guðjón, f.
12.5. 1949, bóndi í Mýnesi og versl-
unarmaður á Egilsstöðum, en kona
hans er Erla Þórhildur Sigurðar-
dóttir og eiga þau þrjú böm; Hjör-
leifur, f. 28.11. 1955, d. vorið 1981,
fulltrúi hjá Samvinnutryggingum,
en kona hans var Halla Björk Guð-
jónsdóttir og eru synir þeirra þrir.
Einar átti fimm systkini og eru
tvö þeirra á lífi. Systkini hans:
Hrefna, f. 1911, húsmóðir í Kópa-
vogi; Hjalti, f. 1915, lengi leigubíl-
stjóri i Reykjavík; Ari, f. 1916, nú
látinn, verslunarmaður á Egilsstöð-
um; Ólafur, f. 1919, nú látinn, versl-
unarmaður í Reykjavík; Fjölnir, f.
1922, d. 1995, verslunarmaöur í
Reykjavík.
Foreldrar Einars voru Björn
Antoníusson, f. 14.10. 1874, d. 31.5.
1930, bóndi og oddviti í Mýnesi, ætt-
aður frá Flugustöðum í Álftafirði,
og k.h., Guðrún Einarsdóttir frá
Stóra-Sándfelli, f. 8.3. 1886, d. 17.5.
1959, húsfreyja í Mýnesi.
x>v
Til hamingju
með afmaenð
26. júní
90 ára
Ingibjörg Jónsdóttir,
Kirkjuhvoli, Hvolshreppi.
85 ára
Þorbjörg Jónsdóttir,
Hrafnistu í Reykjavík.
80 ára
Gísli Guðmundsson,
Miðvangi 41, Hafnarfiröi.
75 ára
Sigríður Sveinsdóttir,
Njálsgötu 82, Reykjavík.
Bjöm Magnússon,
Urðarbraut 16, Blönduósi.
Oddný Ólafsdóttir,
Norðurbrún 1, Reykjavík.
Kristján Hansen,
Skagfirðingabraut 31,
Sauðárkróki.
70 ára
Helga Margrét Haraldsdóttir,
Sýrfelli, Keflavík.
Magnús Guðjónsson,
Bjarnhólastíg 17 A, Kópavogi.
Jakob Gestsson,
Aðagötu 4, Stykkishólmi.
Sigurður Svanur Sveinsson,
Hagamel 51, Reykjavík.
60 ára
Helga Val-
borg Péturs-
dóttir,
verslunarmað-
ur,
Þórunnar-
stræti 122, Ak-
ureyri.
Eiginmaður hennar er Amþór
Bjömsson.
Þau eiga jafnframt 40 ára brúð-
kaupsafmæli í dag.
Þau taka á móti gestum á heim-
ili dóttur sinnar, Kambagerði 1,
Akureyri, laugardaginn 29.6. frá
kl. 17.00.
Guðmundur M. Sigurðsson,
Seiðakvísl 5, Reykjavík.
Guðmundur er að heiman.
Dagbjartur Einarsson,
Ásabraut 17, Grindavik.
50 ára
Jónas Engilbertsson,
Hólabergi 2, Reykjavík.
Guðmundur Pétursson,
Fiskakvísl 4, Reykjavík.
Hjördis Sigurðardóttir,
Hrísmóum 7, Garðabæ.
40 ára
Þórður Sigmundsson,
Gnoðarvogi 42, Reykjavík.
Camilla Olga Heimisdóttir,
Gnoðarvogi 40, Reykjavík.
Haukur Friðgeir Valtýsson,
Flögusíðu 8, Akureyri.
Hermann Beck,
Smárahlíð 16 B, Akureyri.
Kristin Bragadóttir,
Freyjugötu 30, Reykjavík.
Sigurður Páll Óskarsson,
Móaflöt 24, Garðabæ.
Sm»-
auglýsingar
N\arkaðstor9