Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1996, Síða 4
desember eða 15 prósent á móti um
24 prósentum nú.
Sé borgarfulltrúum skipt á milli
flokkanna í samræmi við niður-
stöður könnunarinnar myndi D-
listi bæta við sig tveimur fulltrúum
miðað við úrslit kosninganna og fá
9 menn kjöma. R-listinn myndi
hins vegar tapa tveimur og fá 6
menn kjörna. Þetta er sama skipt-
ing fulltrúa og í könnun DV í des-
ember sl.
Samkvæmt könnuninni núna er
nokkur munur á afstöðu kynjanna
til borgarstjórnarflokkanna. Hlut-
fallslega sögðust töluvert fleiri karl-
ar ætla að styðja D-listann frekar
en R-listann en skiptingin var jafn-
ari hjá konum milli flokka. í stuðn-
ingsmannahópi sjálfstæðismanna
voru karlar talsvert fleiri en konur
en konur fjölmennari en karlar í
fylgisliði Reykjavíkurlistans.
-bjb
Skipting
boigarfulHrúa
- eftir kosningar 28. maí '94
REYKJAViKUR
LISTINN
DV
Fylgi borgarstjórnarflokkanna
REYKJAVÍKUR
USTINN^
43,6%
56,4%
Niðurstöður
skoðanakönnunar DV
- þeir sem afstööu tóku
REYKJAVÍKUR-
LISTINN
Niðurstöður
kosninga 28. maí
fjéttir
LAUGARDAGUR 29. JUNI1996
Skoðanakönnun DV um fylgi borgarstjórnarflokkanna:
Sjálfstæðismenn með
öruggan meirihluta
- fengi 9 fulltrúa kjörna í borgarstjórn á móti 6 frá R-lista
I Harður árekstur
Íí Reykjanesbæ
Harður árekstur varö á
Reykjanesbraut á móts við Hag-
kaup í Reykjanesbæ í hádeginu
í gær. Tveir bílar keyröu þar
saman. Þrennt var flutt á
SSjúkrahús Suðumesja. Að lok-
inni skoðun þar fengu tveir að
fara heim en sá þriðji var flutt-
ur til Reykjavíkur til nánari
rannsóknar. -RR
Aftur ekið á
barn í Njarðvík
Ekið var á barn á reiðhjóli í
Njarövík í gærdag. Barnið var
flutt á Sjúkrahús Suðumesja en
fékk að fara heim að lokinni
skoðun þar. Þetta er í annað
skiptið á þremur dögum sem
ekið er á hjólandi barn í Njarð-
vík. -RR
7.-. _ *
Ólafur og Guðrún á útihátíð
Stuðningsmenn Ólafs Ragnars Grímssonar efndu til svokallaðrar útihátíðar
fyrir utan kosningamiðstöðina við Hverfisgötu á fimmtudagskvöldið. Fjöl-
margir listamenn komu fram og undir lok dagskrárinnar komu þau Ólafur og
Guörún Katrín á svæðiö að lokinni fiugferð á stærstu kosningamiðstöðvar
um landið. Mikill mannfjöldi var fyrir utan kosningamiðstöðina og stemning
góð. DV-mynd JAK
Pétursmenn á Ingólfstorgi
Stuðningsmenn Péturs Kr. Hafstein efndu til hátíðar á Ingólfstorgi síðdegis
á fimmtudag. Þar var boðið upp á fjölbreytt skemmtiatriði auk þess sem Pét-
ur flutti ávarp en áheyrendur voru á fimmta hundrað. Hér eru þau hjón, Pét-
ur og Inga Asta, á spjalli við einn stuðningsmanna sinna og sonur þeirra
fylgist vel með. DV-mynd JAK
Ástþór í Borgarleikhúsinu
Ástþór Magnússon og sambýliskona hans, Harþa Karlsdóttir, voru meðal
boðsgesta í Borgarleikhúsinu á fimmtudaginn þegar hommar og lesbíur
fögnuðu alþjóðlegum baráttudegi sínum og að hjúskaparlöggjöf tók gildi á
íslandi. Ástþór og Harpa eru hér á spjalli við einn boðsgesta en að athöfn-
inni lokinni fóru þau til Grindavíkur þar sem stuðningsmenn Ástþórs stóðu
fyrir friðarvöku. DV-mynd JAK
Arekstur tveggja bíla varð um
miðjan dag í gær á gatnamótum
Bústaðarvegar og Réttarholts-
vegar. Þrennt var flutt á slysa-
deild, báðir ökumennirnir og
farþegi úr öðrum bílnum.
Meiðsl þeirra voru ekki talin al-
varleg. DV-mynd S
Núverandi meirihluti Reykjavík-
urlistans í borgarstjóm Reykjavík-
ur myndi falla ef gengið yrði til
borgarstjórnarkosninga núna, sam-
kvæmt nýrri skoðanakönnun DV.
Sjálfstæðisflokkur myndi þá komast
í meirihluta á ný eftir að hafa verið
í minnihluta frá kosningunum vor-
ið 1994.
Niðurstöður skoðanakönnunar
DV urðu á þann veg að 42,7 prósent
aðspurðra sögðust styðja D-lista
Sjálfstæðisflokks og 33 prósent R-
lista Reykjavíkurlistans. Alls 20
prósent aðspurðra reyndust óákveð-
in og 4,3 prósent neituðu að gefa
upp afstöðu sína.
Sé einungis tekiö mið af þeim
sem tóku afstöðu í könnun DV sögð-
ust 56,4 prósent ætla að styðja Sjálf-
stæðisflokkinn og 43,6 prósent
Reykjavíkurlistann. Munurinn á
fylgi listanna reyndist því 12,8 pró-
sentustig. Miðað við gengi listanna í
kosningunum vorið 1994 hefur fylgi
R-listans minnkað um 9,4 prósentu-
stig og fylgi D-lista aukist að sama
skapi. Þá fékk R-listinn 53 prósent
atkvæða og D- listinn 47 prósent.
Úrtakið í skoðanakönnun DV var
424 kjósendur í Reykjavík, þar af
216 karlar og 208 konur. Spurt var:
„Hvaða lista mundir þú kjósa ef
borgarstjómarkosningar færu fram
núna?“ Könnunin fór fram í fyrra-
kvöld og var gerð af markaðsdeild
Frjálsrar fjölmiðlunar hf.
Miðað við síðustu könnun DV á
fylgi borgarstjómarflokkanna, sem
fram fór í byrjun desember sl„ hef-
ur R-listinn aukið fylgi sitt um 4,3
prósentustig og fylgi D-lista minnk-
að að sama skapi. Hlutfall óákveð-
inna og þeirra sem ekki svöruðu
spurningunni er mun hærra nú en í
Guðrún í ráðhúsinu
Guðrún Agnarsdóttir og maður hennar, Helgi Valdimarsson, buðu íbúum
höfuðborgarsvæðisins á opinn borgarafund í Tjarnarsal Ráðhúss Reykja-
víkur á miðvikudagskvöldið. Guðrún og Helgi fluttu ávörp og svöruðu fyrir-
spurnum auk þess sem boðið var upp á tónlistarflutning. Meðal gesta í ráð-
húsinu var sjálfur borgarstjórinn, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. I fundarlok
tók hún Guðrúnu tali og eins og sjá má fór vel á með þeim, enda fyrrum
samflokkskonur í Kvennalistanum. DV-mynd S
Skipting
borgarfulltrúa
- samkv. skoöanak. DV
“i • • A
REYKJAVIKUR
Skoðanakönnun
trraJ
Fylgi borgarstjórnar-
flokkanna
Sjálfstæðisflokkur
33,0
Reykjarvíkur-
llstinn
24,3
Oákv./sv. ekki
j Skoðanakönnun
gjSkoðanakönnuii |