Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1996, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1996, Síða 22
22 fyjiglingaspjall LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1996 DV Tískan í unglingaskyrtunum er litrík og ýkt: Beinar bowling-skyrtur og aðskornar úr næloni Skyrtutísk- an er ljölbreytileg og blómleg um þessar mundir í orðsins fyllstu merkingu. Það er mikið úr- v£il af stelpu- og strákaskyrtum í tískubúðunum og allar eiga skyrt- urnar það sameiginlegt að vera lit- ríkar, einlitar eða mynstraðar, gjarnan í neonlitunum. Stelpuskyrt- umar eru úr næloni eða polyester og aðskornar í anda sjöunda áratug- arins en strákamir klæð- ast bandarískum stutt- erma og beinum bowl- ing-skyrtum til að tolla í tískunni. Verslunarmenn- irnir Anna Bent- ína Hermansen og Geir Borgar Geirsson í Kringlunni segja að alit sé leyfilegt i unglingatisk- unni í sumar og það sé ekkert endilega neitt ákveðiö í tísku. Fötin séu þó fremur áberandi og mikið sé um stutterma skyrtur enda eðlilegt miðað við árstíma. Það er ekkert ákveðið mynstur í tísku hjá strák- unum en einlitar langerma skyrtur eru þó meira hugsaðar við jakkafót- in. Innan um má sjá afskaplega skrautlegar skyrtur með svörtu og hvítu mynstri. Anna segir að meira sé að gerast í stelputiskunni og úrvalið sé djarf- legra í skyrtum fyrir stelpur, þar séu fjölbreytileg mynstur og margir litir, sérstaklega neon, með stórum krögum og svo eru skyrturnar einnig til með rennilásum. Anna segir að krakkar velji sér skyrtur eftir heildinni, ef buxurnar séu grænar þá sé skyrtan kannski svört og öfúgt. „Það er mjög mismunandi hvað fólk þorir að vera djarft í klæðavali og þess vegna erum við líka með einlitar skyrtur,“ segir hún og bend- ir á að krakkar séu almennt mjög sjálfstæðir í klæðaburði. Tískuskyrturnar á borð við þær sem fjallað er um hér fást á bilinu 1990 upp í 7990 krónur. Anna og Geir segjast eiga von á því að tískan verði svipuð í haust. Hún haldi áfram að vera djarfleg og skraut- leg, ermarnar verði langar og krakkam- ir miklir, en engar stökkbreyt- ingar verði í sniðum og lit- um. „Tískan hefur verið ýkt og heldur áfram að vera svip- uð,“ segir Anna. -GHS Stelpur eru í aðskornum og litríkum skyrtum í anda sjöunda áratugarins og strákar klæðast stutterma og skrautlegum bowling-skyrtum til að tolla í tískunni. DV-myndir ÞÖK Hin hliðin: Leiðinlegt að horfa á fréttir og körfubolta - segir Sigrún Huld Hrafnsdéttir, sundkonan frækna í Ösp Sigrún Huld Hrafiisdóttir, sundkonan, sem hefur gert garðinn frægan erlendis og æfir með sundfélaginu Ösp, mun keppa fyrir íslands hönd á Ólympíuleikum fatlaðra í Atlanta í sumar. Sigrún Huld hefur lagt hart að sér við æfingar að undanfomu. Hún æfir á hverjum degi og ætlar sér að ná langt í Atlanta. Sigrún Huld sýnir nú á sér hina hliðina. Fullt nafh: Sigrún Huld Hrafnsdóttir. Fæðingardagur og ár: 12. janúar 1970. Vinur: Gunnar Þór Gunnarsson. Böm: Engin en ég á eina systur og einn bróður. Bifreið: Engin. Starf: Pakka súkkulaði hjá Nóa Sír- íusi. Laun: Góð. Áhugamál: Ég hef gaman af sundi, fara í búa og leika við frænda minn, Hrafh. Hefur þú unnið í happ- drætti eða lottói? Neí, aldrei. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Spila á spil, fara í sumarbústað. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Horfa á fréttir og körfu- bolta í sjónvarpinu. Uppáhaldsmatur: Lambahryggur og læri. Uppáhaldsdrykkur: Kók og vatn og alls kyns safar. Hvaöa íþróttamaður stendur fremstur f dag, að þínu mati? Ég. Uppáhaldstímarit: Les alltaf um bíóin og skemmtanir í blöðunum. Hver er fallegasti maður sem Sigrún Huld Hrafnsdóttir keppir þú hefur séð, fyrir utan vin þinn?1 sund' á Ólympíuleikum fatl aðra i Atlanta í sumar. DV-mynd GVA Veit ekki. Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjóminni? Á móti. Hvaða persónu langar þig mest að hitta? Svo marga, til dæmis vinkonu mína, vin og frænda. Uppáhaldsleikari: Veit ekki. Uppáhaldsleikkona: Veit ekki. Uppáhaldssöngvari: Enginn. Uppáhaldsstjómmálamaður: Það er enginn í uppáhaldi. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Tommi og Jenni. Uppáhaldssjónvarpsefhi: Grínmynd- ir. Uppáhaldsmatsölustaður: Hard Rock Café. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Ég les voða sjaldan bækur en það er svo margt sem mig langar að lesa. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Ég hlusta mest á Bylgj- una og Stjömuna í vinnunni. Uppáhaldsútvarpsmaður: Enginn sérstakur. Á hvaða sjónvarpsstöð horfir þú mest? Stöð 1. Uppáhaldssjónvarps- maður: Þeir era svo marg- ir. Ég vil ekki nefha neinn sérstakan. Uppáhaldsfélag i íþrótt- um: Ösp. Uppáhaldsskemmtistaður: Vil ekki nefna neinn. Stefhir þú að einhverju sér- stöku í framtíöinni? Reyna að ná eins langt og ég get í 50 og 100 metra skriðsundi í Atlanta. Hvað ætlar þú að gera í sumarírí- inu? Vera í sundi og fara til Atlanta. -GHS Craig kynntist Donnu á Internetinu: Ætlaði að kvænast lygara Craig Bottomley þóttist him- inn hafa höndum tekið þegar hann hitti og varð ástfanginn af Donnu Qalawi frá Texas á Inter- netinu enda sagðist daman vera hrein mey á framabraut í lögg- unni og eiga von á tugmilljóna arfi. Donna heimsótti Craig til Lundúna og þau ákváðu að gift- ast. Brúökaupið var á næsta leiti þegar Craig uppgötvaði blekking- arvefinn og komst að raun um hvílíkur lygalaupur Donna var. Hún haföi spunnið allt saman upp og var bara venjuleg skrif- stofustúlka á lágum launum með eina dóttur. Brúðkaupinu var strax aflýst. Kynni Craigs og Donnu hófust þegar Craig hafði samband við hana á Intemetinu á síðasta ári. Þau náðu strax mjög vel saman og eftir stuttan tíma ákváðu þau að hún kæmi til Lundúna. Craig tók á móti henni ásamt fjöldan- um öllum af sjónvarpsstöðvum og hún veitti viðtöl á báða bóga þar sem hún sagðist vera lög- reglumaður hjá fikniefnadeild lögreglunnar i Dallas, búa í höll, vera dóttir ríks olíueiganda í Bandaríkjunum og að faðir hennar vildi gefa hana manni sem hún elskaði ekki. Allar lýsingar Donnu hljómuðu vel og voru trúverðugar. „Ég vissi að lífið yrði ekki leiðin- legt með þessa konu mér við hlið,“ segir Craig um fyrirhugaða gift- ingu. Donna flutti fljótlega inn til Craigs og þriggja ára sonar hans, Callum. Þau ákváðu síðan að fara til Bandaríkjanna að hitta fjöl- skyldu hennar. Þá kynnti Donna Craig fyrir frænku sinni, sem var í raun litla dóttir hennar, og þá fór að komast upp um lygarnar. Þegar grunur vaknaði og Craig fór að hlýða henni yfir viðurkenndi Donna að hafa spunnið allt saman upp og bað Craig að fyrirgefa sér. Hann var þó í sárum og fór til for- eldra sinna að hugsa málið. Donna hefur sagt í viðtölum í Bretlandi að lygamar hafi i upphafi bara átt að vera djók, hún hafi alls ekki búist við að verða ástfanginn af Craig. Hún hafi ætlaö að segja honum sannleikann við komuna til Bretlands en ekki komið því í verk. „Ég elska Craig ennþá og ég vil fá hann aftur. Ég ætlaði aldrei að særa hann,“ segir hún.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.