Dagblaðið Vísir - DV

Date
  • previous monthJune 1996next month
    MoTuWeThFrSaSu
    272829303112
    3456789
    10111213141516
    17181920212223
    24252627282930
    1234567

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1996, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1996, Page 29
J*V LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1996 _________________________________________i útlönd Forsetafrúr í kreppu: og rœtt við framliðna Þegar fréttir af samráði Nancy Reagan við stjörnuspeking birtust 1988 sá Ronald Reagan Bandaríkja- forseti sig knúinn til að lýsa því yfír að stjörnuspeki hefði engin áhrif haft á stefnu sína né ákvarðanir. Þetta var sérstaklega viðkvæmt mál í Hvíta húsinu i Washington þar sem áhrif Nancy á eiginmann sinn voru viðurkennd staðreynd. Það var því ekki að ástæðulausu sem menn spurðu þeirrar spurningar hvort ákvarðanir forsetans tækju mið af stöðu stjarnanna úr því að ákvarð- anir forsetafrúarinnar gerðu það. Starfsfólk Bills Clintons Banda- rikjaforseta hefur einnig þurft að svara svipuðum spurningum í kjöl- far nýrrar bókar þar sem greint er frá því að Hillary Clinton, forsetafrú Bandaríkjanna, hafi leitað ráða hjá sálarrannsóknarkonu sem hafi hvatt hana til að eiga ímyndaðar samræð- ur við Eleanor Roosevelt, fyrrum forsetafrú Bandaríkjanna, og Ma- hatma Gandhi, fyrrum leiðtoga Ind- verja. Vitsmunalegar æfingar Hillary Clinton hefur vísað því á bug að sálarrannsóknarkonan Jean Houston hafi haft nokkur áhrif önn- ur en þau að sjá henni fyrir áhuga- verðum vitsmunalegum æfingum. Samkvæmt bók hins fræga Waterga- teblaðamanns Bobs Woodwards hitt- ust Hillary og Jean frá því síðla árs 1994 þar til í mars á þessu ári. Tals- maður forsetafrúarinnar, Neel Lattimore, segir fundi þeirra alls ekki hafa verið miðilsfundi. Nýtt fyrirbæri í Hvíta húsinu Sérfræðingar í sögu Bandaríkjafor- seta segja andlega ráðgjafa tiltöiulega nýtt fyrirbæri í Hvíta húsinú. En fyr- ir 50 árum skaðaði það fyrrum vara- forseta Bandaríkjanna, Henry A. Wallace, í baráttu hans fyrir forseta- embættinu þegar birt var frétt þess efnis að hann hefði skrifað dulspeking bréf með ávarpsorðunum: Kæri læri- meistari. Eins og Hillary þykir Bill Clinton hafa leitað á óvenjuleg mið eftir ráð- gjöf. í fyrra hitti hann Stephen R. Covey, höfund bókarinnar The Seven Habits of Highly Effective People, og rithöfundinn Anthony Robbins sem í bókum sínum og á segulböndum gefur fólki ráð til að ná hámarksárangri. Trúi ekki á anda og drauga Sjálfri er Jean Houston, einni af stj órnendum Hugarrannsóknarstofn- Nancy Reagan fyrir framan mynd af manni sínum Ronald á 85 ára afmæli hans. Á vaidatíma þeirra í Hvíta húsinu leitaði Nancy ráða hjá stjörnuspek- ingi. Símamynd Reuter Bill og Hillary Clinton voru í mikill sálarkreppu eftir ósigur demókrata 1994. Þau kölluðu þá á sinn fund ýmsa ráð- gjafa til að létta hugann. Símamynd Reuter unarinnar, ekkert skemmt þessa dag- ana. „Ég er enginn miðill. Ég trúi ekki á anda og drauga," lýsir hún yfir í við- tali við Washington Post. Hún kveðst hafa verið agndofa þeg- ar „kannski fjögurra mínútna ímynd- aðar samræður við Roosewelt og Gandhi hljómuðu eins og miðilsfund- ur.“ Houston segir að um hafi verið að ræða tækni sem notuð sé á hverj- um degi í öllum stærri fyrirtækjum heims, sem sé vitsmunalega, skapandi æfingu. Trúhneigð hjón Aðspurð um hvað fleira hafi borið á góma í Hvíta húsinu svarar Hou- ston. „Við ræddum um Hegel. Við ræddum um kóleru í Bangladesh. Við ræddum um Grameen bankann sem veitir konum í atvinnurekstri í þróun- arlöndunum lítil lán.“ Houston tekur fram að Hillary forsetafrú sé heittrú- aður meþódisti og Bill trúhneigður maður. Þau þurfi ekki á andlegum leiðbeinanda að halda. Houston þótti hún hafa verið ófrægð þegar kvöldblöðin í New York sögðu frá henni sem miðli sem stýrt hefði andafundum í sólbaðsstofunni í Hvita húsinu. Hún kveðst ekki kann- ast við þá mynd sem blaðamaðurinn Woodward gefur af henni í bók sinni. Alvöru fræðimaður Hún segist upphaflega samþykkt að veita honum viðtal þar sem hann hefði haft annarlegar hugmyndir um hvað hefði í raun farið fram, hann hefði einungis heyrt sögusagnir. Hún hefði einnig lesið og haft gaman af fyrri bókum hans. Houston þykir fréttaljós á laugardegi hann hafa stórlega ýkt hlutverk henn- ar í lífi Hillary Clinton. „Hann segir frá í gamansömum tón en þetta endar sem ófræging. Svo kemur fólk til mín með þessa vitleysu. Ég hef verið al- vöru fræðimaður." Hún hefur áhyggj- ur af því að fá einhvern nýaldarstimp- il á sig. Blaðamaður Washington Post segir Jean Houston samt eiga auðveldara með að lýsa því hvað hún sé ekki en hvað hún sé. Blaðamaðurinn segir hana oft hafa notað orðið heimspek- ingur ásamt orðunum „félagslegur listamaður". Ræöir viffAþenu á tölvunni sinni Houston stundaði nám í Barnard College, Columbia University og Union Theological Seminary og er með doktorspróf í sálfræði. Hún hefur haldið fyrirlestra um trúarbrögð og heimspeki í háskólum og tekið þátt í rannsóknum á ofskynjunarlyfjum. Hún hefur skrifað 15 bækur, er ráð- gjafi skóla í þróunarlöndum, heldur fyrirlestra hjá trúfélögum og fyrir- tækjum eins og General Motors og Xerox og les goðafræði. Hún á langar samræður við grísku viskugyðjuna Aþenu á tölvunni sinni. Samræðurnar við Hillary í sólbaðs- stofunni í Hvíta húsinu segir Jean Houston hafa verið mjög skemmtileg- ar. „Okkur fannst öllum gaman. Það sem Hillary líkaði við mig sést ekki í dag en ég er yfirleitt mjög fyndin. Ég segi sögur og brandara. Ég létti huga hennar." Hillary Clinton leitaði til Jean Houston í kjölfar ósigurs demókrata í þingkosningunum 1994, að því er segir í bók Woodwards. Hou- ston var einn af fimm sérfræðingum sem kallaðir voru til Camp David tveimur mánuðum eftir ósigurinn sem margir demókratar kenna áform- um Hillarys um endurbætur í heil- brigðiskerfinu um. Clintonhjónin áttu við mikla sálarkreppu aö striða, segir í bók Woodwards. Samræðurnar í sólbaðsstofunni Eftir fund Jean Houston og Hillary Clinton á Camp David tók sú fyrr- nefnda að skrifa forsetafrúnni bréf. í apríl 1995 hittust þær í sólbaðsstof- unni á þaki Hvíta hússins. Klukku- stundar langar viðræður þeirra voru teknir upp á segulband og voru nokkr- ir starfsmenn forsetafrúarinnar við- staddir. Jean Houston bað Hillary að loka augunum og láta sem hún rækist á El- eanor Roosevelt í anddyri. Forsetafrú- in lýsti af ákafa hátterni og útliti fyrr- verandi forsetafrúar. Hillary ræddi við Eleanor um staðfestu hennar, gagnrýni og einmanakennd þá sem fyrrverandi forsetafrúin fann fyrir. Síðán bað Jean Houston Hillary að svara fyrir Eleanor. Forsetafrúin fyrr- verandi kvaðst hafa verið misskilin en menn þurfi að gera það sem þeir telji rétt. Byggt á Washmgton Post, AP og The Times. Rýnt í stjörnurnar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue: 146. tölublað - Helgarblað (29.06.1996)
https://timarit.is/issue/196834

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.

146. tölublað - Helgarblað (29.06.1996)

Actions: