Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1996, Side 30
30
LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1996 3 > ~'%T
íslendingur endurhannar heimasíðu CNN í Bandaríkjunum:
Hittir Jane Fonda
daglega í lyftunni
„Félagi minn, sem ég kynntist
gegnum Intemetið, hjálpaði mér til
Bandaríkjanna. Það má segja að
Internetið hafi hjálpað mér að fá at-
vinnuleyfí. Félagi minn fór inn á
heimasíðuna mína, var ofsalega
hrifinn og sendi mér póst á Intemet-
inu. Með okkur tókst kunningsskap-
ur og hann kom til íslands og gisti
hjá okkur eina helgi. Hann hauðst
tU þess að fá atvinnuleyfi, redda lög-
fræðingi og sjá um pappírsvinnuna
fyrir mig,“ segir Stefán Kjartans-
son, grafískur hönnuður hjá banda-
rísku sjónvarpsstöðinni CNN í Atl-
anta.
Endurhannar
heimasíðu CNN
Stefán fékk atvinnuleyfi til
þriggja ára og flutti til Bandaríkj-
anna í fyrrahaust. Hann vann
fyrstu vikumar i lausamennsku og
hannaði meðal annars CD disk, lógó
og ýmislegt fyrir hinn bandariska
kunningja sinn, sem rekur marg-
miðlunarfyrirtæki í Atlanta. Hann
vUdi þó komast í fast starf og „fór
því rúntinn tU að leita mér að
vinnu“, eins og hann orðar það. Það
er mjög erfitt að fá atvinnuleyfi i
Bandaríkjunum, því fylgir mikil
skriffínnska, en vegna hjálpar
Bandaríkjamannsins tók það aðeins
hálfan annan mánuð.
„Maður verður að hafa ábyrgðar-
mann, starfsheiti, sem enginn
Bandaríkjamaður hefur þannig að
maður sé ekki að taka starf frá
Bandaríkjamanni, og svo fylgir
þessu gríðarleg skriffínnska. Ég
varð að fá mér lögfræðing því að ég
er ekki með græna kortið og varð að
borga bUverð fyrir þetta. Ég vildi
prófa þetta og athuga hvort ég fengi
ekki meiri byr undir vængina," seg-
ir hann.
í byrjun desember fékk Stefán
vinnu hjá sérstakri fréttastofu hjá
CNN, sem sér um að koma ferskum
fréttum inn á heimasíður fyrirtæk-
isins á Intemetinu. Stefán hefur það
verkefni með höndum að breyta og
endurhanna heimasíðu CNN. Hann
segist halda að þetta sé stærsta síð-
an á netinu og hann fari í gegnum
hverja einustu síðu og breyti útlit-
staðgreiðslu-
og greiðslukorta-
afsláttur og
stighækkandi
birtingarafsláttur
Smá-
auglýsingar
inu á þeim, breyti hverjum einasta
haus og myndum á hverri síðu.
„Þetta er ný deild hjá CNN, sem
byrjaði fyrir tíu mánuðum,
skömmu áður en ég kom til starfa.
Áður en ég byrjaði voru þrír að
vinna við þessa deild. Nú sjö mán-
uðum síðar vinna þar 140 manns.
Þetta hefur verið algjör sprenging,
það er mikið að gerast og þetta er
ungur vinnustaður og mjög
skemmtilegt andrúmsloft," segir
Stefán.
„Þetta er eiginlega algjört ævin-
týri því að það hefur enginn gert
það áður að fara með heila frétta-
stofu á netið. Strax og eitthvað ger-
ist fer fréttin á netið. Við erum með
okkar eigin fréttir, eigin túlkanir á
fréttum og sækjum bara myndir í
sjónvarpsstöðina," segir hann og
bætir við að allar myndir séu sóttar
til sjónvarpsstöðvarinnar.
Gríðarstór
vinnustaður
Vinnustaður Stefáns er gríðarstór
á íslenskan mælikvarða. Hann segir
að í aðalstöðvunum, þar sem hann
hefur skrifstofuaðstöðu, starfi um
1.000 manns.
„Ég er með skrifstofu við hliðina
á Jane Fonda. Ég hitti hana í lyft-
unni á hverjum degi. Hún er alltaf
með þykk sólgleraugu og hálfspæld
á svipinn," segir hann.
-GHS
Stefán Kjartans-
son kynntist
Bandaríkjamanni
sem fór inn á
heimasíöuna
hans á Internet-
inu og aöstoöaöi
hann vifi afi fá at-
vinnuleyfi i
Bandaríkjunum.
Þafi má því segja
afi þafi sé Inter-
netinu afi þakka
afi Stefán er i
vinnu hjá CNN.
FH« CdH UUm> 6o Bookmart:» Optlont Dirxtory mindom
NHtcape: CNN tnteracttue I
Oi
m ■'sbw’wvi
fiitsrsctive
■Mfe-
,-SHOHBIÍ
NEW»
iromi
ÁIUíEflUifcs.
F^TiTmMirTmrnTTTM
Welcone Page Hclp
I rooo^HEjUHj^mu
1 CMttatt í ÍWCfc
June 26.1996-Upd«wl 7:10 *.jn.EDT<mOOMT> ^
*
G-7 leaders pledge to figbt terrorism
Tbe n«d»a of tt» wts nehHt wluitniiaid tukm movtd tot$ptm « rwotaaon eond»iwunc *nwt>» TTwmdiy. nut tvo d«yi
»íw»tniekt ' .........
-Puli S<t>er-
• Uus______________________
• gfmteh>ft,a{ tcrnt mi ivuá
ív
fflBQ
T85Tingl 0
f»ll« tmr mmm4twr. AID8 tUH fttl hmt »
mfHP' Tnmrv wrrtouna
Special Report
FA&.l»kMW..T>llJ«t.»Ú,Ofcmc tOEttOt.U
Link of tbft D«y
tiae Q ffl
TUfifíCurt Showbiz Main Page Sf-ARCM BACK TOCNN HOMf l'AGt fffDBACK Mft.P
New Featur*
What's on TV
Beíozt ytm re*ch tor tfui naott, kt ycnr mou» do the lm»jr vork Yott'H fiM eœnpk* elevjslon íitmjs tor mcce thtn 65 imrvotks
ttteU t.,i«nun*rte«ofyo«fevortwihovi,7Vnov*atKrtjtJowi»adnttori,phurponu«mwœhedttiti And,yjnc«»wt
up yonr ovn i«isox»*liad progwn gxúde
•rtdl 2tirv-
» <> DOWN
Clitk here for Hie Greot ISUZU Oearance Evenl.
T echnology Guidc
Quakc' i> sure to shske gauners up
V. 14«
TT* not t ««i»rty «fldetp«*d eompwi »*m» of 0« y*u a inddwiy rnjirtdi, 6tu you cefl' t i»tw»t t>» fottwn »«m« .
For nov, th» ulcirvioleflt œ v ihoov'em-op from 9m cnvan oí *Doom* mtm be piclwd upontoe Invmet
•Pvfl fitnv
Stefán Kjartansson, grafiskur hönnuöur, starfar hjá bandarísku sjónvarpsstöfiinni CNN vifi afi endurhanna heimasífiu fyrirtækisins.