Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1996, Page 31
JjV LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1996
31
Valgeir 0. Helgason hefur komið upp tamningamiðstöð einn og óstuddur:
DV, Suðumesjum:
„Eg held nú að menn hafi í upp-
hafi talið það tóma vitleysu af mér
að reyna að koma húsinu upp. Sjálf-
sagt hefði ég ekki farið út í þetta ef
mig hefði órað fyrir því hvað þetta
var mikil vinna, það þorði að
minnsta kosti enginn út í þetta
með mér. Þegar upp er staðið
held ég samt að þetta hús sé
búið að gjörbreyta allri að- [
stöðu fyrir héstamenn og fyrir
knattspyrnumenn að vetri
til,“ segir Valgeir Ó. Helga-
son sem byggði
íþrótta- og
tamningamið-
stöðina Sörla-
skjól í hesta-
staðið í framkvæmdum á þessum
árstíma. Þetta var mikil steypu-
vinna og furðulegt að þegar við vor-
um að slá upp í vitlausu veðri og
miklu frosti þá kom alltaf góður
dagur til steypuvinnu.
Smiðirnir hlógu oft-
ar en einu sinni
að mér þegar
ég var að
moka snjónum
til að geta sleg-
ið upp og
að uppbyggingunni að nýju, enda
hafi kostnaðurinn við niðurrifið,
flutningana og leyfisgjöldin aðeins
numið 160 þúsund krónum. Félagið
hafi hins vegar ekki þorað að fara
út í það. Það hafi látið gera könnun
hvað það myndi kosta að byggja
húsið og verið talað um 28-30 millj-
ónir. Sjálfur hafi hann talið að hægt
væri að koma því upp fyrir miklu
minna fé.
„Ég er að fara af stað með hesta-
leigu og leigi salinn út fyrir alls
konar námskeið og mót. Þá er fyrir-
hugað að hafa hér sölu á hrossum,
bæði innanlands og til útflutn-
ings. Þegar hafa verið seld-
ir nokkrir hestar. Skipu-
lagðar hestaferðir
verða farnar héðan
og hafa þegar verið
farnar
Valgeir Ó. Helgason byggði fþrótta- og tamningamiðstööina Sörlaskjól í Reykjanesbæ og var tengdasonur hans, Guðni Grétarsson, honum mjög hjálplegur.
Keflavíkurflugveili og nota þaö sem nýtilegt var í nýju bygginguna. I tamningamiöstööinni er meöal annars hægt aö þvo hesta og svo er kaffiaðstaöa í turni
hefur vaxiö fiskur um hrygg á Reykjanesi aö undanförnu og hafa 60 skráö sig í hestamannafélagiö Mána frá áramótum.
hverfinu Mánagrund í Reykjanes-
bæ.
Sörlaskjól hefur átt stærstan þátt
í því aö hestamennskan er í mikilli
sókn á Suðumesjum og hafa margir
lagt leið sína þangað til að sækja
reiðnámskeið.
„Við erum búnir að halda hér
reiðnámskeið fyrir 280 manns. Þetta
er miklu meira en við reiknuðum
nokkurn tima með. Þetta hús hefur
haft mjög jákvæð áhrif á félagsstarf-
ið, að mínu mati. Það hefur gengið
vel frá áramótum og hafa 60 manns,
allt nýliðar, skráð sig í hestamanna-
félagiö Mána sem hefur 240 félags-
menn í dag. Hestamenn hér hafa
tekið þessu mjög vel og hafa eytt
miklum tíma hér,“ segir hann.
Kraftaverki líkast
Margir hestamenn telja krafta-
verki líkast að þessum rétt tæplega
sextuga manni skuli hafa tekist
þetta ætlunarverk sitt en hann hef-
ur staðið einn að öllum fram-
kvæmdum. Grunnflötur hússins er
946 fermetrar. Valgeir segir að fram-
kvæmdir hafi byrjað í byrjun októb-
er 1994. Það tók hann sjö mánuði að
fá lóð undir húsið og segir Valgeir
það hafa verið vegna þess að menn
voru frekar svartsýnir á að húsið
færi upp.
„Það var alveg einstakt að geta
væri tómt rugl að standa í þessu. Ég
sagði þeim að hann spáði hlýju
veðri á morgun til að steypa og von-
aði síðan aö orð mín rættust sem og
varð,“ segir Valgeir.
„Ég fór út í þessar framkvæmdir
fyrst og fremst vegna þess að ég reif
niður hús á Keflavíkurflugvelli. Það
var gamalt bílaverkstæði sem Sam-
einaðir verktakar byggðu 1953 og
notuðu þegar þeir voru að hefia
starfsemi á Keflavíkurflugvelli. Þeg-
ar ég reif þetta hús var það komið í
eigu Vamarliðsins. Aðalverktakar
höfðu þetta hús til umráða meðan
þeir vom að byggja við hliðina á
því. Þeir fengu afnot af húsinu með
því skilyrði að þeir fiarlægðu það í
lok verksins. Það kom síðan að því
að nota átti stórvirk vinnutæki til
að rífa húsið. Ég fékk þá leyfi og
tíma til að rífa það niður. Ég tók
sperrurnar úr húsinu og nýtti fiórt-
án þeirra í Sörlaskjól. Menn höfðu
ekki trú á því að þær væru heilar
eftir allan þennan tíma. Það furðu-
lega er að það sá ekki á þeim. Þá
notaði ég einnig klæðninguna á
húsinu," segir hann.
Eina hesthúsið
með hitaveitu
Valgeir segist í fyrstu hafa ætlað
hestamannafélaginu Mána að vinna
„Ég ætlaði þá bara að byggja sal-
inn. Ég bætti síðan við, eftir að þeir
vildu ekki fara út í þessar fram-
kvæmdir, hestaplássi fyrir 26 hesta
og útsýnisturni en þar er gert ráð
fyrir kafllaðstöðu og hægt er að sjá
yfir alla reiðvegi hér í kring. Turn-
inn gefur húsinu ákaflega mikið
gildi. Þetta er jafnframt eina hest-
húsið sem hitaveita er komin í. Ég
get tekið hér hesta í þvott og það
hafa margir hestamenn nýtt sér að-
stöðuna. Þá er kaffiaðstaða og bún-
ingsherbergi fyrir knattspymu-
menn. Þannig að húsið hýsir einnig
tnn stundarsakir aðrar íþróttagrein-
ar en hestamennsku þangað til ann-
að hús er komið upp fyrir þær,“ seg-
ir hann.
nokkrar sem hafa slegið í gegn. Þá
hafa vamarliðsmenn látið sjá sig
mikið hér. Þeir hafa rosalega gaman
af því að skreppa á bak - það er svo
stutt fyrir þá að koma hingað," seg-
ir hann.
Vantar bara
herslumuninn
Valgeir segir aö það vanti
herslumuninn til að klára og ganga
frá húsinu að utan. Það verði hins
vegar gert í sumar en framkvæmdir
við tuminn verða látnar bíða um
sinn.
„Ég stefni að því að ganga
frá fiármálum fyrir húsið
og koma rekstri þess í
Sgang. Það er búið að gera
Imatsverð á húsinu í sam-
[bandi við lántökur og er
fþað metið á 25 milljónir.
Mér finnst bæjaryfirvöld
hafa verið ákaflega sein í
sambandi við þetta hús.
Sveitarfélögin í kring-
um okkur fiármagna
til dæmis 80 pró-
sent af bygging-
arkostnaði
svona húsa.
Bærinn
leigir síð-
an að-
stöðuna
jtil
t hesta-
manna
og
íþrótta-
hreyf-
ingar-
innar.
Ég hef
trú á því
að það
eigi eftir
að vera já-
kvæðari
tónn út í
þetta hús
hér,“ segir
hann.
„Bæjaryf-
irvöld eiga
eftir að sjá
að þetta er
lyftistöng
Valgeirfékkaörífahúsáfyrir svo
á húsinu. Hestamennsku marea hætti í
DV-myndÆMKSS
inu. Það hafa
til dæmis komið hingað böm sem
em á dagheimili til að láta teyma
sig um á hestbaki. Hér emm við
ekkert háðir veðri og aðstaðan hér
inni er mjög góð. Þá er vonandi að
hestamannafélagið komi einnig inn
í þetta dæmi að einhverju leyti.
Menn eru famir að líta öðrum aug-
um á þetta en í upphafi. Hér hefur
félagsstarfið byggst upp í vetur,“
segir Valgeir Ó. Helgason.
-ÆMK
Hestaleiga
og sala
Valgeir byrjaði í hestamennsku
þegar hann var fiögurra ára í sveit.
Hann segist hafa verið meira og
minna í hestamennskunni síðan og
hefur verið í henni hér á Suðurnesj-
um síðan 1957. Hann er málara-
meistari að mennt en segist hættur
að mála í bili og ætlar að sjá til
hvort miðstöðin getur ekki borið
sig. Þar þurfi stöðugt aö vera viðlát-
inn staifsmaður til að hlutirnir
gangi upp,^^^.
SIMVAKINN
symr og geymir
símanúmer þess sem
hringir hvort sem þú
ert heima eða að
heiman.
Geymir allt að
120 númer með
dagsetningu og
klukku.
Verð kr. 4.490 stgr.
ffl ístel
Síðumúla 37,108 Reykjavík
Sími 588 2800 - Fax 568 7447