Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1996, Side 59
LAUGARDAGUR 29. JÚNI1996
67
Birgir Guðmundsson
Birgir Guðmundsson, fréttastjóri
á Tímanum, Lokastíg 9, Reykjavík,
verður fertugur á morgun.
Starfsferill
Birgir fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann lauk stúdentsprófi
frá MH, BA-prófi í sögu og stjóm-
málafræði frá Essex University í
Bretlandi 1980, lauk prófi í uppeld-
is- og kennslufræði við HÍ 1981 og
MA-prófi í stjórnmálafræði við
Manitoba University í Kanada 1984.
Birgir stundaði vegavinnu og sjó-
mennsku á sumrin á námsárunum,
var kennari við grunnskóla
1977-81, stundakennari við Man-
itoba University 1982-84 og kennari
við MR 1985-87. Hann var blaða-
maður við Tímann 1985, fréttastjóri
þar 1986-93, lausamaður í
blaðamennsku haustið
1993 en hóf aftur störf við
Tímann í ársbyrjun 1995
og hefur verið þar frétta-
stjóri síðan.
Birgir situr i stjórn
Blaðamannafélags Is-
lands frá 1986, í vara-
stjórn Lífeyrissjóðs BÍ frá
1996. Hann hefur ritað
fjölda blaða- og tímarits-
greina og annast úgáfur
ýmissa fag- og afmælis-
rita.
Fjölskylda
Birgir kvæntist 1986 Rut Peter-
sen, f. 2.1. 1958, hjúkrunarfræðingi.
Hún er dóttir Gunnars Kristins Pet-
ersen og Dóm Scheving
Petersen, verslunar-
manna í Reykjavík.
Böm Birgis og Rutar
eru Gunnar Ernir Birg-
isson, f. 16.6. 1987; Iðunn
Dóra Birgisdóttir, f. 7.4.
1992.
Systkin Birgis era Ragn-
heiður Guðmundsdóttir,
f. 9.5. 1954, dr. í eðlis-
fræði og kennari við
Rudges University í
Princeton í Bandaríkj-
unum; Gunnar Bragi
Guðmundsson, f. 27.10.
1960, sjávar- og tækni-
fræðingur og gæða- og þróunar-
stjóri við Royal Greenland í Nuuk á
Grænlandi; Guðrún Bryndís Guð-
mundsdóttir, læknir við sérnám í
bamageðlækningum í Ósló.
Hálfsystur Birgis, samfeðra, em
Anna María Guðmundsdóttir, f. 3.1.
1973, nemi í Noregi; Birgitta Sólveig
Guðmundsdóttir, f. 6.3.1974, nemi í
Noregi; Guðný Þóra Guðmundsdótt-
ir, f. 1.12.1980, nemi í Reykjavík.
Foreldrar Birgis eru Guðmundur
Ernir Sigvaldason, f. 24.7. 1932, for-
stöðumaður Norrænu eldfjalla-
stöðvarinnar, og Áslaug Brynjólfs-
dóttir, f. 13.11. 1932, fræðslustjóri í
Reykjavík.
Birgir verður staddur á Klafa-
stöðum í Skilmannahreppi á afmæl-
isdaginn.
Birgir
Guðmundsson.
Guðni J. Guðbjartsson
Guðni Jón Guðbjartsson, fyrrv.
stöðvarstjóri á Ljósafossi (Gríms-
nesi), Dalalandi 4, Reykjavík, er átt-
ræður í dag.
Starfsferill
Guðni er fæddur í Reykjavík og
ólst þar upp á Bræðraborgarstígn-
um. Hann var einn vetur í Gagn-
fræðaskóla Ingimars og síðan i vél-
smíðanámi í Landssmiðjunni
1932-36 og þá samhliða í Iðnskólan-
um í Reykjavík. Guðni lauk vél-
stjóranámi frá Vélskólanum 1938 og
frá rafmagnsdeild sama skóla ári
síðar.
Guðni var vélstjóri á Súðinni og
síðar Esjunni og varðskipunum til
1943. Frá þeim tíma og til 1985 var
hann vélstjóri og stöðvarstjóri yfir
Sogsstöðvunum. Guðni var enn
fremur slökkviliðsstjóri í Gríms-
nesi, Grafningi og Þingvallasveit í
aldarfjórðung.
Guðni, sem hefur verið félagi í
Oddfellow-reglunni í 50 ár, var for-
maður i Slysavarnafélaginu Björg-
úlfi. Hann var sæmdur heiðurspen-
ingi frá ríkisstjóm Islands vegna
eftirminnilegrar farar Súðarinnar
til Petsamo á stríðsárunum en
Guðni var þar vélstjóri um borð.
Fjölskylda
Guðni kvæntist 11.11. 1939 Ragn-
heiði Guðmundsdóttur, f. 10.6.1913,
d. 13.9. 1995, húsmóður. Foreldrar
hennar: Guðmundur Þórarinn Guð-
mundsson útvegsbóndi, Næfranesi,
Dýrafirði, og Guðmunda Kristjana
Benediktsdóttir.
Börn Guðna og Ragnheiðar:
Halldóra Salóme, f. 2.12. 1940, hús-
móðir í Garðabæ, maki
Sigurður Ingi Sveinsson
húsasmiður; Írís Bryn-
dís, f. 7.11. 1942, tann-
smiður á Seltjarnamesi,
maki Jón Birgir Jónsson
tannlæknir; Kristjana
Samper, f. 12.11. 1944,
myndlistarmaður í
Kópavogi, maki Baltasar
Samper myndlistarmað-
ur; Ásgeir, f. 22.2. 1947,
vélfræðingur í Hafnar-
firði, maki Bryndís Sím-
onardóttir kennari; Sig-
þrúður Þórhildur, f. 10.4.
1950, húsmóðir í Reykjavík, maki
Árni Mogens Björnsson prent-
smiðjustjóri; Ragnheiður Gunnhild-
ur Gaihede, f. 18.7.1951, húsmóðir í
Danmörku, maki Ove Gaihede
kennari. Barnabömin eru sautján.
Systkini Guðna: Sigurður, látinn,
bryti; Páll, látinn, vél-
smiður; Halldóra, látin,
húsmóðir; Sigmundur,
látinn, vélstjóri; Marsi-
bil, húsmóðir; Sigþrúð-
ur, húsmóðir. Systkini
Guðna, sem voru ellefu
en fimm dó í æsku,
hafa öll búið í Reykja-
vík.
Foreldrar Guðna: Guð-
bjartur Guðbjartsson, f.
10.6. 1873, d. 27.10. 1954,
vélstjóri frá Læk í
Dýrafirði, og Halldóra
Salóme Sigmundsdótt-
ir, f. 25.7.1877, d. 13.7.1939, húsmóð-
ir frá Hrauni á Ingjaldssandi. Þau
bjuggu í Reykjavík.
Guðni tekur á móti gestum á af-
mælisdaginn frá kl. 16 til 19 í Odd-
fellowhúsinu, 2. hæð, Vonarstræti
10.
Guðni Jón Guðbjarts-
son.
Garðar Eymundsson
Garðar Eymundsson
trésmíðameistari,
Bröttuhlíð 8, Seyðis-
firði, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Garðar fæddist á
Seyðisfirði og ólst þar
upp. Að loknu skyldu-
námi á Seyðisfírði fór
hann til náms í tré-
smíði í Reykjavík.
Hann lauk iðnnámi frá
Iðnskólanum í Reykjavík 1950,
sveinsprófi sama ár og varð síðar
meistari í sinni iðn.
Garðar flutti aftur til Seyðisfjarð-
ar 1951 og 1956 stofnaði hann Tré-
smiðju Garðars Eymundssonar sem
starfaði samfleytt til 1994 þegar
hlutafélagið Töggur var stofnað um
reksturinn. Fyrstu árin störfðu fjór-
ir menn á verkstæðinu en í gegnum
tíðina hefur oft verið unnið við stór
Garðar Eymundsson.
verkefni og þá unnu
munu fleiri hjá fyrir-
tækinu auk undirverk-
taka.
Af verkefnum sem unn-
ið hefur verið við á
þessu tímabili má
nefna félagsheimilið
Herðubreið á Seyðis-
firði, byggingu grunn-
skólans á Seyðisfirði,
íbúðir aldraðra, verka-
mannabústaði, vinnu
við hús heilsugæslunn-
ar á Seyðisfirði og endurbyggingu
Seyðisfjaröarkirkju eftir brana árið
1989. Þá má nefna innréttingar í
fjölda báta sem byggðir voru hjá
Vélsmiðju Seyðisfjarðar. Tuttugu
hús byggði Trésmiðjan fyrir Al-
þýðusamband Austurlands á Ein-
arsstöðum og hús Kaupfélags
Vopnafjarðar á Vopnafirði.
Garðar hefur lagt ýmsum málum
lið á Seyðisfirði og nýlega gáfu
hann og kona hans Seyðfirðingum
húsið Skaftfell undir listamiöstöð.
Sjálfur málar hann mikið og hefur
verið virkur í skáklífi Seyðisfjarðar
og sönglífi á staðnum.
Fjölskylda
Eiginkona Garðars er Karólína
Þorsteinsdóttir, f. 27.1. 1928, hús-
móðir. Hún er dóttir Þorsteins
Brynjólfssonar, bónda á Hreiður-
borg í Sandvíkurhreppi, og k.h.,
Júlíönu Jóhönnu Sturlaugsdóttur
húsfreyju.
Börn Garðars og Karólínu era
Ómar, f. 17.9.1949, ritstjóri í Eyjum,
kvæntur Þorsteinu Grétarsdóttur
og eiga þau fjögur böm; Sævar, f.
2.6. 1951, kaupmaður í Reykjavík,
kvæntur Láru Vilhjálmsdóttur og á
hann tvær dætur; Gréta, f. 31.10.
1962, sjúkraliði á Seyðisfirði, gift
Þórði Jakobssyni og eiga þau þrjá
syni; Júlíana Björk, f. 21.6. 1965,
verslunarmaður í Reykjavík og á
hún eina dóttur en hún býr með
Jónasi Jónassyni bílasprautara.
Sonur Garðars og Valgerðar
Gróu Ingimundardóttur er Ingi-
mundur Bergmann Garðarsson, f.
29.3. 1949, bóndi og vélstjóri að
Vatnsenda i Flóa.
Systkin Garðars: Axel Hartmann,
f. 8.3.1929, múrarameistari á Akur-
eyri; Stella Kristín, f. 24.9. 1931,
kennari í Kópavogi; Anna Erla, f.
17.10. 1934, húsmóðir á Siglufirði;
Arabella, f. 29.12. 1939, húsmóðir í
Reykjavík.
Foreldrar Garðars: Eymundur
Ingvarsson, f. 31.5. 1883, d. 9.6. 1959,
verkamaður á Seyðisfirði, og k.h.,
Sigurborg Gunnarsdóttir, f. 9.4.
1906, d. 22.11. 1983, húsmóðir.
Garðar og Karólína taka á móti
gestum i félagsheimilinu Herðu-
breið frá kl. 18 á afmælisdaginn.
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson, for-
stjóri Össurar hf., Hvassa-
leiti 18, Reykjavík, er fer-
tugur í dag.
Starfsferill
Jón er fæddur á Sel-
fossi. Hann lærði sím-
virkjun í Símvirkjaskól-
anum, rekstrartækni-
fræði í Tækniskólanum í
Óðinsvéum, Danmörku, og
Jón Sigurðsson.
rekstrarhagfræði í
Bandaríkjunum.
Jón var símvirki hjá
Pósti og síma og síð-
ar hjá LM Ericsson í
Svíþjóð. „Hann var
tæknifræðingur hjá
þróunardeild Bang &
Olufson í Danmörku,
forstöðumaður yfir
Ameríkudeild og
seinna utanlands-
deild Eimskipa, fjár-
málastjóri Álafoss og viðskiptafull-
trúi Útflutningsráðs i New York.
Jón er nýtekinn við sem forstjóri
Össurar hf.
Fjölskylda
Fyrrverandi eiginkona Jóns er
Anna María Sigurðsson hjúkrunar-
fræðingur, búsett í New York.
Sonur Jóns er Gunnar Öm Jóns-
son, f. 1976, nemi.
Systkini Jóns: Elín Sigurðardótt-
ir, f. 1941, fóstra; Sigríður Sigurðar-
dóttir, f. 1942, húsmóðir; Þorbjörn
Sigurðsson, f. 1946, verðbréfamiðl-
ari; Elsa Sigurðardóttir, f. 1961, hús-
móðir.
Foreldrar Jóns: Sigurður Þor-
bjömsson bifvélavirki og Guðfmna
Jónsdóttir húsmóðir, þau eru bæði
látin.
Jón tekur á móti gestum í
Naustinu í kvöld frá kl. 20 til 22.
111 hamingju með
afmælið 30. júní
85 ára__________________
Helga Sveinsdóttir,
Göröum, Garðabæ.
80 ára__________________
Bergljót Ólafsdóttir,
Álfheimum 42, Reykjavík.
Helga Finnbogadóttir,
Sléttuvegi 13, Reykjavík.
75 ára
Bergljót Kristinsdóttir,
Austurvegi 12, Seyðisfirði.
Jónas Halldórsson,
Langholtsvegi 178, Reykjavík.
70 ára_____________________
Lilja Svavarsdóttir,
Löngubrekku 35, Kópavogi.
Martha Hjartardóttir,
Furagerði 17, Reykjavík.
Þórir Þorláksson,
Frostafold 57, Reykjavík.
Guðmundur Helgason,
Knarrarstíg 1, Sauðárkróki.
Sigríður Þóra Gestsdóttir,
Stóragerði 1, Reykjavík.
60 ára ______________________
Magnús Guðmundsson,
Uxahrygg I, Hellu.
Tómas Högni Jón Sigurðsson,
Tjamarbraut 5, Hafnarfirði.
50 ára__________________
Arnór Páll Valdimarsson,
útgerðarmaður
og vélstjóri
Hrauntúni 57,
Vestmannaeyj-
um.
Kona hans er
Svanhildur Ei-
ríksdóttir.
Hann tekur á
móti gestum á heimili sínu í
dag, eftir kl. 20.
Margrét Viðarsdóttir,
Stífluseli 6, Reykjavík.
Gréta H. Guðmundsdóttir,
Flögu, Svalbarðshreppi.
Helga Jónasdóttir,
Sjólyst 1, Stokkseyri.
Höskuldur Þráinsson,
Hjalla, Akrahreppi.
Sæmundur Guðmundsson,
írabakka 22, Reykjavík.
Bjami Bergmann Sveinsson,
Furugrund 7, Akranesi.
Sigurður Jónsson,
Hrísateigi 1, Reykjavík.
Rúnar Guðjónsson,
Bræðratungu 17, Kópavogi.
Magnús Þór Hilmarsson,
Gljúfraseli 2, Reykjavík.
Elísabet Jónsdóttir,
Stuölaseli 26, Reykjavík.
Ingibjörg Guðmundsdóttir,
Hamraborg 18, Kópavogi.
Þórunn Kristinsdóttir,
Baughúsum 9, Reykjavik.
40 ára_________________________
Sólveig Hrafnsdóttir,
Múlasiðu 5 D, Akureyri.
Ragnar Jónsson,
Valshólum 4, Reykjavík.
Pálina Guðný Emilsdóttir,
Torfufelli 13, Reykjavík.
Anna Hjálmarsdóttir,
Heiðarbraut 3, Blönduósi.
Guðrún Katrín Aðalsteins-
dóttir,
Laugarnesvegi 53, Reykjavík.
María Lourdes Hafsteinsson,
Flétturima 11, Reykiavík.
Ingibjörg Áslaug Olafsdóttir,
Laufvangi 13, Hafharfirði.
Herdís Hjörleifsdóttir,
Flókagötu 4, Hafiiarfírði.
Sigríður Ámý Sævaldsdóttir,
Kirkjubraut 43, Höfn í Homa-
firði.
Þuríöur Guðný Ingvarsdóttir,
Breiðvangi 26, Hafnarfirði.
Magnús Páll Brynjólfsson,
Dalbæ II, Hrunamannahreppi.
Valgerður Skúladóttir,
Logafold 111, Reykjavík.
Jónína Berglind Ivarsdóttir,
Blómsturvöllum 2, Grindavík.
Gísli Jóhannesson,
Nökkvavogi 62, Reykjavík.
Ásdfs Helgadóttir,
Tómasarhaga 39, Reykjavík.
Eiríkur Ingi Björnsson,
Melabraut 23, Blönduósi.
'J&Ufo£. '