Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1996, Side 13
FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 1996
13
Fréttir
Bandarískt fyrirtæki ræöir kaup á Áburðarverksmiðjunni:
Vill endurvinna
smurolíu í Gufunesi
Áburöarverksmiöjan í Gufunesi.
„Á þessu stigi er talað um að þeir
myndu kaupa öll hlutabréf verk-
smiðjunnar og greiða fyrir að hluta
með hlutabréfum i þessari hreinsi-
stöð þannig að ríkið yrði 25 prósent
eignaraðili," segir Skúli Bjamason,
stjómarformaður Áburðarverksmiðj-
unnar hf. um óformlegt tilboð banda-
ríska fyrirtækisins Allied Resource
Corporation í verksmiðjuna. Fyrir-
tækið hefur áhuga á að breyta
Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi í
smurolíuendurvinnslustöð.
Að sögn Skúia sýnist mönnum
rekstrargrundvöliur Áburðarverk-
smiðjunnar til framtíðar mjög
ótryggur, tapið í fyrra hafi verið 82
miiljónir, og leiða því leitað til að
nýta fjárfestingar. „Kynni af þess-
um aðilum hófust fyrir um tveimur
árum í tengslum við hugsanlega
sinkframleiðslu. Þeir sendu okkur
svo bréf í apríl síðastliðnum og
lýstu áhuga á að setja upp olíuend-
urvinnslustöð." Vegna þessa hefur
verið sótt um umhverfismat til
Skipulags ríkisins og er búist við
niðurstöðu í vetur. „Ef svarið verð-
ur jákvætt verður hægt að sækja
um starfsleyfi ef samningar takast.
En það er ekki búið að taka form-
lega ákvörðun í stjórn verksmiðj-
unnar um að selja. Þetta er allt á
könnunarstigi."
Dótturfyrirtæki Allied Resource
Corporation, Puraiube, hefur einka-
leyfi á nýrri aðferð við hreinsun ol-
áunnar. „Þetta hefur í fór með sér að
þeir myndu nýta áfram vetnisfram-
leiðsluna því hún leikur lykilhlut-
verk í hreinsunaraðferðinni. Að-
ferðin felst í því að vetni er spraut-
að á olíuna undir miklum þrýstingi.
Framleiðsu á saltþétursýru og amm-
óníaki yrði hætt en það eru aðal-
hættuvaldarnir. Þar að auki yrði
hávaðamengun minni,“ greinir
Skúli frá.
Rætt er um að hreinsa um 70 þús-
und tonn af smurolíu á ári. „Þar af
falla um 4 þúsund tonn innanlands.
í dag er vandamál hvað á að gera
við þá olíu. Mér skilst að hún sé
brennd upp í Sementsverksmiðj-
unni við ófullnægjandi aðstæður,"
bendir Skúli á.
Gert er ráð fyrir að heildarkostn-
aður erlendu aðilanna vegna verk-
smiðjukaupanna verði um 2,4 millj-
arðar íslenskra króna. -IBS
V ínveitingaleyfi:
Stjórn-
end-
urnir
skuld-
lausir
Borgarráð hefur samþykkt að
beina því til lögreglustjóra að
krefja umsækjendur um vínveit-
ingaleyfi um upplýsingar um
hvort þeir hafi staði skil á opin-
berum gjöldum og gjöldum til
lífeyrissjóða.
Jafnframt skulu fylgja um-
sókn um vínveitingaleyfi upp-
lýsingar um fyrirhugaðan opn-
unartíma veitingastaðarins og
varðandi nýja veitingastaði skal
nágrönnum nú gefast kostur á
að tjá sig um fyrirhugaða starf-
semi þeirra. Þá skal félagsmála-
ráð og borgarráð ekki taka um-
sóknir um nýja veitingastaða til
afgreiðslu fyrr en eftir að bygg-
inganefnd borgarinnar hefur
íjallaö um þær. -SÁ
Neito,,,
eldhús - bað - fataskápar
Eigum fyrirliggjandi
fallegu og vönduðu
dönsku NETTO-line
baðinnréttingarnar.
Einnig margar stærðir
fataskápa á frábæru verði.
ÞESSI GLÆSILEGA
BAÐINNRÉTTING,
GERÐ „ROMANTIC",
KOSTAR AÐEINS
KR. 69.800,-
FYRSTA FLOKKS FRÁ
/FOnix
HÁTÚNI 6A REYKJAVÍK SlMI 552 4420
Faxamjölsverksmiðjan
í Örfirisey stækkuð
Eftir stækkun Faxamjölsverksmiöjunnar veröur hægt aö bræöa 600 tonn á
sólarhring í staö 140 áöur. DV-mynd S
Verið er að reisa 600 fermetra við-
byggingu við Faxamjöl í Örfirisey
og gert er ráð fyrir að nýja húsnæð-
ið verði tilbúið í janúar á næsta ári.
„Það er verið að stækka verk-
smiðjuna úr 140 tonnum á sólar-
hring í 600 tonn,“ segir Kjartan Örn
Ólafsson, verksmiðjustjóri hjá Faxa-
mjöli í Örfirisey. „Við erum búnir
að sanna að við höfðum rétt fyrir
okkur þegar við sögðum að þetta
yrði lyktarlaust og þess vegna feng-
um við að stækka," leggur Kjartan
áherslu á.
„Það er rosalegt þegar Grandi er
að frysta loðnu á hávertíðinni og
kannski hrogn að flytja þurfi
kannski 15 til 20 þúsund tonn af
hrati úr Reykjavík með sanddælu-
skipi til Siglufjarðar. Það er hægt að
ímynda sér hvemig hráefnið er þá
orðið. Það fást miklu betri afurðir
þegar karlinn er tekinn beint og
bræddur hér,“ bætir Kjartan við.
Hann segir hinn nýja hluta verk-
smiðjunnar verða í gangi á loðnu-
vertíð og þegar uppgrip koma.
-IBS
Aukablað um FERÐIR
INNANLANDS
Afmælisár að heQast á Sauðárkróki:
Fernum tíma-
mótum fagnað
Sauðárkróksbær undirbýr af full-
um krafti afmælishátíð í tilefni af
því að á þessu ári og því næsta verð-
ur fernum tímamótum i sögu byggð-
arlagsins fagnað. Hátíðin hefst helg-
ina 20. og 21. júlí næstkomandi og
lýkur í raun ekki fyrr en 20. júlí á
næsta ári.
Á þessu ári eru 125 ár liðin frá
því að byggð hófst á Sauðárkróki.
En á næsta ári verða 140 ár liðin frá
því Sauðárkrókur varð löggiltur
verslunarstaður, 90 ár frá því Sauð-
árkrókur varð sérstakt sveitarfélag
og 50 ár frá því bærinn hlaut kaup-
staðarréttindi.
Á komandi afmælisári er ætlunin
að taka til hendinni og gera góðan
bæ betri, eins og segir í tilkynningu
frá Afmælisnefnd Sauðárkróks. Af-
mælisárið verði því í senn hátíðar-
ár og átaksár. Litið verði yfir farinn
veg og lærdómur dreginn af fortíð-
inni og hann nýttur til að búa bæj-
arfélagið undir framtíðina.
í upphafi hátíðarinnar verður
boðið upp á fjölbreytta dagskrá,
jafnt fyrir bæjarbúa sem ferðamenn
og aðra gesti.
DV gaf út aukablað
í tilefni af tímamótunum gaf DV
út aukablað um Sauðárkrók. Blaðið
kemur út miðvikudaginn 17. júli
næstkomandi. Þetta er í fyrsta sinn
sem DV gefur út aukablað um Sauð-
árkrók en blaðið hefur um árabil
gefið út sambærilegt blað um Akur-
eyri auk þess sem skrifað hefur ver-
ið sérstaklega um Borgarnes, Sel-
foss og Hveragerði.
Miðvikudaginn 24. júlí mun aukablað um
ferðir innanlands fylgja DV.
í þessu blaði verður fjallað um útihátíðir um verslunar-
mannahelgina. Efni blaðsins verður að öðru leyti tengt
flestu því sem er á boðstólum vegna ferðalaga innanlands.
Fjallað verður um afþreyingarvalkosti, viðlegu- og annan
ferðabúnað og ýmsa athyglisverða staði og ferðamöguleika.
Umsjón efnis hefur Ingibjörg Óðinsdóttir blaðamaður.
Þeir auglýsendur sem hafa áhuga á að auglýsa íþessu
aukablaði eru vinsamlega beðnir að hafa samband við
Guðna Geir Einarsson í síma 550 5722
á auglýsingadeild DV.
Vinsamlega athugið að síðasti skiladagur auglýsinga er
fimmtudagurinn lö.júlí.
ATH! Bréfsími okkar er 550 5727
Auglýsingar
Sími 550 5000, bréfasími 550-5727.
-bjb