Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1996, Qupperneq 24
32
FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 1996
Sviðsljós
Aha ekki endurreist
Morten Harket, sjarmörinn úr
Aha-hljómsveitinni sem naut
mikilla vinsælda á seinasta ára-
tug, hefur gefið út nýja smáskífu.
Nefnist sú „Heaven Is not for
Saints" og fjallar um það að
menn eigi að leggja áherslu á eig-
ið líf. Af því tilefni sá Harket
ástæðu til að neita öUum sögu-
sögnum að Aha-hljómsveitin
verði endureist á næstunni.
Michael og Lennox
bítast um hús
Stórstjörnurnar George Mich-
ael og Annie Lennox eru að leita
sér að nýju húsi. Þau hafa bæði
fundið hús sem þeim líst vel á.
Vandamálið er bara að það er
sama húsið sem þau hafa orðið
hrifm af. Það er víst ekki hægt að
ljá þeim það því húsið sem um
ræðir er enginn torfkofl Það er í
útjarði Lundúnaborgar og kostar
um 500 milljónir króna. Meðal
þess sem húsiö inniheldur er bíó-
salur, sundlaug, flottur foss inn-
anhúss, æfingarherbergi, bóka-
safn, þrjár borðstofur og fimm
svefnherbergi. Ekki er orðið ljóst
hvort þeirra nælir í húsið.
Culkin viU
fjárhaldsmann
Bamastjarnan Macaulay Culk-
in reynir hvað hann getur til að
fá skipaðan fjárhaldsmann yfir
eignum sínum, sem nema um 2
milljörðum króna. Hann er
hræddur um aö foreldrar hans
eyði auðnum, en móðir hans og
faðir hafa átt í miklum illdeilum
að undanfómu.
Hasselhoff og Ekberg
David Hasselhoff, vöðvabúntið
íturvaxna sem er á bak við vel-
gengni þáttanna um Strandverð-
ina, ætlar að fara að gefa út nýja
plötu. Hann hefur beðið engan
annan en Ulf Ekberg úr hljóm-
sveitinni Ace of Base aö hjálpa
sér með lagaskrif og upptökur.
Hasselhoff kemur því til Svíþjóð-
ar í ágúst til að syngja inn á plöt-
una en hún á að vera tilbúin í
október. Þaö er svo John Ballard,
framleiðandi Ace of Base, sem
sér um skipulagshliðina.
DV
Demi Moore farin að undirbúa sig fyrir nýtt hlutverk:
Klagaði í Clinton forseta
Demi Moore fækkar fötum af mik-
illi innlifun í nýjustu mynd sinni sem
nefnist Striptease. Nokkuð var rætt
um hve stælt hún var orðin fyrir
myndina og fannst mörgum nóg um.
En Demi Moore er þekkt fyrir að lifa
sig inn í hlutverkin sín. Og hún lét
sér ekki nægja að koma sér í topp-
form líkamlega heldur dvaldi hún
langtímum á fatafellubörum þar sem
hún pældi fram og aftur í þeirri list
að tína af sér spjarirnar.
Þegar Demi Moore mætti til frum-
sýningarinnar á dögunum ásamt eig-
inmanni sínum, Bruce Willis, og
tveimur barnungum dætrum þeirra
rak marga í rogastans. Héldu sumir
að fatafelluhlutverkið hefði markað
sérkennileg spor á leikonuna þar sem
hún mætti krúnurökuð á staðinn. En
kiwiklipping Moore á sér skýringar.
Hún er byrjuð að vinna við næstu
mynd sína sem nefnist GI Jane. Leik-
ur hún konu í sérsveitum hersins þar
sem allir eru krúnurakaðir.
Þeir hjá Bandaríkjaher voru ekk-
ert of viljugir við að hjálpa til við tök-
ur myndarinnar. Gramdist aðstand-
endum myndarinnar eðlilega sú
framkoma og Moore reiddist. Hún
var ekkert að tvínóna við hlutina
heldur hringdi beint í Bill Clinton
forseta og klagaði. Þeir hjá hernum
fengu orð í eyra og hafa síðan verið
ljúfir eins og lömb.
Það getm- komið sér vel að eiga
vini í háttsettum stöðum.
Demi Moore kemur til frumsýningar Striptease ásamt fjölskyldu sinni.
Mikil tónlistarhátíð var haldin í Berlín um helgina eins og flestir áhorfendur MTV sjónvarpsstöðvarinnar hafa vafalaust tekið eftir. Meira en hálf milljón æstra
aðdáenda techno-tónlistar dansaöi villt í svokallaðri Ástargöngu, sem er orðinn árlegur viðburður í Berlín og nýtur sívaxandi vinsælda. Það voru 40 stórar
sendibifreiðar, hver meö kraftmiklu magnarakerfi, sem fóru í fararbroddi en ungmennin fylgdu á eftir í góöri sveiflu. Hér má sjá nokkur þeirra við Branden-
borgarhliöið.
Stórtenórarnir þrír, Placido Domingo, Jose Carreras og Luciano Pavarotti, héldu tónleika í Vínarborg á laugardag
inn. Hér sjást þeir veifa til áhorfenda aö loknum tónleikunum.
Hinn gamalreyndi söngvari Iggy
Popp kom nýlega fram á mikilli tón-
listarhátíð á Spáni. Um 25 þúsund
manns horfðu á goðið sem sýndi
gamla takta af mikilli list.