Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1996, Qupperneq 6
6
MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1996
Fréttir :dv
Hréilnm fmtu 23,1 Mánitóte
Eimskip íslandsbanki Síldar- Grandl Haraldur Skeljungur Þormóður Hamplðjan Plastprent Marel
vinnslan Böðvarsson ramml
DV
Milliuppgjör 10 stórra fyrirtækja á hlutabréfamarkaði:
Gróðinn jókst um
hálfan milljarð
- samanlagt fyrstu 6 mánuðina miðað við sama tíma í fyrra
Sparisjóðsstjóra-
skipti á Flateyri
Ægir Haf-
berg lætur af
starfi spari-
sjóðsstjóra
Sparisjóðs Ön-
undarfjarðar á
Flateyri í lok
september nk.
þar sem hann
hefur verið
ráðimí útibússtjóri Landsbank-
ans í Þorlákshöfn. Ægir hefur
stýrt sparisjóðnum í 17 ár en
hann komst m.a. í fréttir í fyrra
fyrir að fella niður þjónustu-
gjöld.
Eiríkur Finnur Greipsson,
framkvæmdastjóri Fjórðungs-
sambands Vestfirðinga, tekur
við af Ægi.
Kartöflur
hækkuðu
neysluvísitöluna
Neysluvísitalan, miðað við
verðlag í byrjun mánaöarins,
reyndist vera 178,0 stig í mæl-
ingu Hagstofunnar og hækkaði
um 0,6% frá júlí sl. Vísitala
neysluverðs án húsnæðis í ágúst
reyndist vera 182,6 stig og hækk-
aði um 0,6% frá júlímánuði.
Helsta ástæðan fyrir hækkun
vísitölunnar er að kartöflur
hækkuöu i verði um 52%, þá
hækkuðu grænmeti og ávextir
um 3,8%, húsnæðiskostnaður
um 1% og bensínkostnaður um
1,5%.
Síðustu tólf mánuði hefur
neysluvísitalan hækkað um 2,6%
en um 0,6% síðustu þrjá mánuði.
Það jafngildir 2,5% verðbólgu á
ársgrundvelli. Neysluvísitalan í
ágúst gildir til verðtryggingar í
september og vísitala fyrir eldri
fjárskuldbindingar, sem breytast
eftir lánskjaravísitölu, er 3.515
stig fyrir september nk.
Gjaldeyrisforði
Seðlabankans
jókst í júlí
Gjaldeyrisforði og gjaldeyris-
staða Seðlabankans styrktust
um 5,6 milljarða króna í júlí sl.
Batinn skýrist einkum af er-
lendri lántöku ríkissjóðs. Gjcdd-
eyrisforðinn í lok júlí var upp á
rúma 27 milljarða. -bjb
Hasar
Hlutabréfaviðskipti hafa verið
afar lífleg undanfarnar vikur og sú
síðasta var engin undantekning. Þá
fóru 239 milljónir í skráðum við-
skiptum um Verðbréfaþingið og
Opna tilboðsmarkaðinn. Þar af voru
viðskipti með bréf SÍF fyrir rúmar
94 milljónir króna. Sem kunnugt er
hefur útboð staðið yfir á 122 millj-
óna króna nýju hlutafé í SÍF og því
töluverð hreyfing á bréfunum.
Önnur töluverð hlutabréfavið-
skipti í síðustu viku voru upp á 28
milljónir með bréf íslandsbanka,
Gróði þeirra 10 fyrirtækja á
hlutabréfamarkaði sem skilað hafa
milliuppgjöri fyrir fyrstu sex mán-
uði ársins jókst um hálfan milljarð
króna miöað við sama tíma í fyrra.
Samanlagður hagnaöur þessara fyr-
irtækja nemur 1,5 milljörðum króna
en nam rétt rúmum milljarði eftir
fyrstu sex mánuðina 1995.
Fyrirtækin sem hér um ræðir eru
Eimskip, íslandsbanki, Síldar-
vinnslan, Grandi, Haraldur Böðv-
arsson, Skeljungur, Þormóður
rammi, Hampiðjan, Plastprent og
Marel. Hjá aðeins tveimur þeirra,
Þormóði ramma og Plastprenti,
minnkaði gróðinn milli ára. Nýj-
ustu uppgjörin komu í gær hjá ís-
landsbanka og Þormóði ramma. At-
hygli vekur að bankinn tvöfaldaði
hagnaðinn milli ára en niðurstöðu-
14,6 milljónir með hlutabréf Harald-
ar Böðvarssonar, rúmar 14 milljón-
ir með bréf Síldarvinnslunnar og
bréf fyrir 13,7 milljónir skiptu um
eigendur hjá Granda. Helsta ástæð-
an fyrir þessum líflegu viðskiptum
er að fyrirtækin á hlutabréfamark-
aði eru hver af öðru að tilkynna
batnandi afkomu í milliuppgjörum
sínum þessa dagana.
Þingvísitala hlutabréfa fór í tæp
2100 stig sl. föstudag og sló enn eitt
sögulega metið en lækkaði lítillega
á mánudag þrátt fyrir að gengi
tölur sjást nánar á meðfylgjandi
grafi.
Þess ber að geta að Eignarhaldsfé-
lag Alþýðubankans og íslenski
hlutabréfasjóðurinn hafa skilað já-
kvæðum milliuppgjörum en þessi
hlutafélög geta vart talist fyrirtæki í
hefðbundnum skilningi þess orðs.
Þá hefur Vinnslustöðin skilað átta
mánaða uppgjöri upp á nokkra tugi
milljóna króna hagnað en upphaf
rekstrarársins þar miðast við nóv-
ember en ekki janúar.
Næstu daga munu fleiri uppgjör
berast. Þannig er von á milliupp-
gjöri Flugleiða í lok ágúst. Væri það
komið núna myndi það skekkja
ofangreinda mynd þar sem fyrstu
sex mánuðirnir hafa jafnan komið
út í stóru tapi hjá Flugleiðum.
„Hagkerfið hefur búið við mikla
bréfa Vinnslustöðvarinnar í Eyjum
hækkaði um 28%, fór úr 2,35 í 3,00.
Ástæða vísitölulækkunar var að
bréf í stórum félögum eins og Flug-
leiðum, Eimskip og Olíufélaginu
lækkuðu í verði.
Lækkað álverð
Staðgreiðsluverð áls hefur lækk-
að á heimsmarkaði síðustu daga en
reiknað er með stöðugleika á næst-
unni, svo fremi sem birgðastaðan
taki ekki stökkbreytingum. Vonast
er til að þriggja mánaða verðið hald-
uppsveiflu og almennt er búist við
hagvexti upp á 4,5% á þessu ári.
Uppsveiflan hefur ekki síst verið í
sjávarútvegi með sterkari þorsk-
stofni í hafinu. Þetta, og sá mikli
hagnaður hjá sjávarútvegsfyrirtækj-
um á árinu, hefur staðið undir
hækkunum á hlutabréfum ásamt
því að fyrirtæki í þjónustugreinum
við sjávarútveginn hafa notið góðs
af uppsveiflunni. Einnig er það
versta yfirstaðið í útlánatöpum í
fjármálakerfinu, eins og sjá má í af-
komu íslandsbanka sem tvöfaldar
hagnaðinn milli ára,“ sagði Ragnar
Hannes Guðmundsson, viðskipta-
fræðingur hjá Kaupþingi, í samtali
við DV, aöspurður um helstu ástæð-
ur fyrir batnandi afkomu fyrirtækj-
anna.
ist í 1500-1525 dollurum tonnið en
staðgreiðsluverðið var um 1479 doll-
arar þegar viðskipti hófust í gær-
morgun í London.
Ekkert skip landaði afla sínum í
erlendum höfnum í síðustu viku,
samkvæmt upplýsingum frá Afla-
miðlun LÍÚ, og nýjar upplýsingar
um gámasölu lágu ekki fyrir.
Óverulegar breytingar hafa orðið
á gengi helstu gjaldmiðla gagnvart
íslensku krónunni. Helst er að jenið
hefur lækkað og pundið hækkað.
VSI vill sporna
viö þenslu
Vinnuveitendasamband ís-
lands, VSÍ, hefur sent áskorun til
ríkisstjórnarinnar um að draga
úr ríkisútgjöldum og hamla
þannig á móti þenslu í hagkerf-
inu. í bréfi til fjármálaráðherra
segir formaðm- VSl, Ólafur B.
Ólafsson, að breyttar aðstæður í
efnahags- og atvinnumálum kalli
á ný viðhorf og viðmið fyrir
ákvörðunum í ríkisfjármálum.
Bent er á að ríki og sveitarfé-
lög hafi á undanförnu samdrátt-
arskeiði haldið uppi framkvæmd-
um og öðrum umsvifum til at-
vinnusköpunar með lánsfé. Þetta
hafi réttlæst af þvi að í næstu
uppsveiflu yrði dregið úr á móti.
VSÍ telur þær aðstæður nú
komnar og því eðlilegt að stefna
að umtalsverðum afgangi í rikis-
búskapnum á næsta ári. Þannig
verði grynnkað á skuldum ríkis-
sjóðs og stuðlað að jafnvægi í
hagkerfínu án skaðlegra vaxta-
hækkana sem geti verið hætta á.
Skattalegt tap
verði yfirfæran-
legt í 10 ár
Verslunarráðið hefur skorað á
fjármálaráðherra að beita sér fyr-
ir því að skattalegt tap í atvinnu-
rekstri verði yfirfæranlegt í 10 ár
í stað 5 ára nú. Fram til ársins
1991 höfðu fyrirtæki ótíma-
bundna heimild til að færa tap á
milli ára en að öllu óbreyttu kem-
ur 5 ára reglan fyrst til fram-
kvæmda um næstu áramót.
Utanríkisráðu-
neytiö annast
Alþjóðabankann
Síðastliöinn mánudag hóf ut-
anríkisráöuneytið að annast sam-
skipti íslands við Alþjóðabank-
ann og systurstofnanir hans í
stað viðskiptaráðuneytisins.
Samkvæmt reglugerð um Stjórn-
arráð íslands, sem breytt er af
þessu tilefni, fer utanríkisráðu-
neytið almennt með mál sem
snerta þróunarsamvinnu.
Auk Alþjóðabankans (IBRD)
annaðist viðskiptaráðuneytið
samskipti við Alþjóðaframfara-
stofnunina (IDA), Alþjóðalána-
stofnunina (IFC) og Alþjóðastofn-
un um lausn fjárfestingardeilna
(ICSID).
Verðbólga í nokknim ríkjum
3,6 %
ísland með mestu
verðbólguna á
Norðurlöndum
Samkvæmt tölum Hagstofunn-
ar um hækkun neysluvísitölunn-
ar í nokkrum ríkjum frá júní
1995 til júní í ár var verðbólgan á
íslandi sú mesta á Norðurlönd-
um, eða 2,6%. í Danmörku var
verðbólgan 2%, í Noregi 0,9%,
0,8% í Svíþjóð og 0,4% í Noregi.
Að meðaltali var verðbólgan
2,5% í ESB-ríkjum og 1,9% í við-
skiptalöndum íslendinga. Þetta
sést nánar í meðfylgjandi grafi en
tölumar voru valdar af handa-
hófi. -bjb
-bjb
-bjb
á hlutabréfamarkaði