Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1996, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1996
13
Fréttir
Fríhöfnin 1 Leifsstöö:
Burt með burðar-
dýraverslunina
- óviöunandi viðskiptahættir - segja kaupmenn
Kaupmannasamtök íslands hafa
óskað eftir því við utanríkisráðu-
neytið að „póstverslun" í komu-
versltm Fríhafnarinnar í Leifsstöð
verði lögð niður. Kaupmannasam-
tökin telja það mjög óeðlilegt að
fólk geti hringt inn pantanir á sölu-
vörum Fríhafnarverslunarinnar,
gefið upp greiðslukortanúmer og
fengið síðan ferðafólk á leið til
landsins til að gerast „burðardýr"
og flytja siðan hina tollfrjálsu vöru
inn í landið. Samtökin telja þessa
viðskiptahætti óviðunandi blett á
viðskiptasiðferði ríkisins og það
einfaldlega að nota sér smugur í
eigin kerfi.
Kaupmannasamtökin hafa ritað
Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráð-
herra bréf um þetta mál og segja
það vera þriðja bréfið af sama til-
efni. Þess er krafist að fríhafnar-
verslun fyrir komufarþega til
landsins verði aflögð hið fyrsta,
enda sé ríkið með henni í óeðlilegri
samkeppni við verslunina í land-
inu.
Tilefni bréfsins að þessu sinni er
frétt DV 2. ágúst sl. þar sem greint
var frá þessari símasölu Frihafnar-
innar. Jafnframt hefur Félag ísl.
stórkaupmanna ritað fjármálaráð-
herra bréf af sama tilefhi. í því er
bent á að verslunarrekstur Frí-
hafnarinnar sé fyrst og fremst
mögulegur vegna skattastefnu
stjórnvalda sem.......með háum
vörugjöldum og ytri tollum styrkir
samkeppnisstöðu fríhafnarverslun-
ar á kostnað almennrar verslunar.
Án þeirra gjalda sem öðrum versl-
unarfyrirtækjum er gert að skila
væri grundvellinum kippt undan
rekstri Fríhafnarinnar."
Ennfremur segir í bréfinu að
ráðuneytinu sé fullkunnugt um þá
skoðun hagsmunasamtaka verslun-
arinnar að innkomuverslun með
jafn breiðu vöruvali og hér tíðkist
sé með öllu óásættanleg og stríði í
grundvallaratriðum gegn hugtak-
inu fríhafnarverslun fyrir ferða-
menn, eins og það er skilið annars
staðar í heiminum. -SÁ
Vestfirskur skelfiskur hf.:
Þurfum áætlun áður en
greiðslustöðvun rennur út
- segir Guðlaugur Pálsson framkvæmdastjóri
„Við erum að kanna möguleika
um kaup á nýju skelfiskskipi frá
Bandaríkjunum. Við höfum ekkert
viljað fara út í að kaupa nýtt skip
fyrr en við sjáum stöðuna nákvæm-
lega,“ sagði Guðlaugur Pálsson,
framkvæmdastjóri hjá Vestifirskum
skelfiski hf., við DV um stöðuna hjá
fyrirtækinu. Sem kunnugt er missti
fyrirtækið skip sitt Æsu, þegar það
sökk í Amarfirði í lok júli sl.
Að sögn Guðlaugs liggur allt starf
niðri hjá fyrirtækinu og ekkert ger-
ist í vinnslunni fyrr en nýtt skip
kemur.
„Við erum í greiðslustöðvun fram
til 28. ágúst. Við eram að ganga i að
fá fund með skuldunautum okkar
og vonumst eftir honum sem fyrst. í
framhaldi að því verður líklega
haldin stjóraunarfundur um hvert
framhaldið verður. Við verðum að
vera búnir að gera áætlun fyrir 28.
ágúst um það hvemig við ætium að
reka fyrirtækið áfram. Við erum að
kanna ýmis mál t.d. tryggingamál
en Æsa var tryggð fyrir rúmar 80
milljónir króna. Sjópróf vegna sjó-
slyssins verða haldin nú á fimmtu-
dag að okkar beiðni," sagði Guð-
laugur ennfremur.
-RR
Húsbréf
Utdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram útdráttur
húsbréfa í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1991
3. flokki 1991
1. flokki 1992
2. flokki 1992
1. flokki 1993
3. flokki 1993
1. flokki 1994
1. flokki 1995
1. flokki 1996
2. flokki 1996
3. flokki 1996
-19. útdráttur
-16. útdráttur
-15. útdráttur
-14. útdráttur
-10. útdráttur
- 8. útdráttur
- 7. útdráttur
- 4. útdráttur
- I.útdráttur
- 1. útdráttur
- 1. útdráttur
LEIÐRÉTTING
Innlausnardagur er 15. október en ekki 15. ágúst
eins og misritaðist í fyrri auglýsingu.
Upplýsingar um útdregin húsbréf
liggja frammi í Húsnæðisstofnun ríkisins, á
Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
□>*<□ HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
I I HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SlMI 569 6900
vrnSLANIR iRINGLUNNAR
IL Á W N N 1 ÓTSÖLURNAR
VÖRURNAR Ú1Á GÖlll ■ VERÐIÐ HIÐUR ÚR ÓLLN ^RLÐI
kringwn
- gatan mín ~