Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1996, Blaðsíða 18
18
MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1996
Sviðsljós
Hundur drottningar
eyðilagði ástarfundinn
Kærastans hans Eövarðs
Bretaprins, Sophie Rhys Jones,
er flutt inn í Buckingham-höll-
ina en Eövarð vill ekki sofa í
sama herbergi og hún til að
styggja ekki Elísabetu móður
sína. Eðvarð lét það þó ekki
trufla sig frá því að ná fundum
sinnar heittelskuðu því hann
læddist jafnan til hennar á næt-
umar.
Þetta kemur allt fram i nýrri
bók rithöfundarins Andrews
Mortons sem þykist hafa mikið
vit á því sem gerist innan veggja
Buckingham- hallar.
Ástarfundir Eðvarðs og
Sophie gengu eins og í sögu án
vitundar Elísabetar Bretadrottn-
Eðvarð Bretaprins fær bráöum aö sofa í sama herbergi og kærastan, Sophie Rhys
Jones.
ingar en síðan hljóp snurða á
þráðinn. Elísabet á fjölmarga
litla hunda af tegundinni corgi-
er, lítil sæt kvikindi. Eitt sinn
þegar Eðvarð læddist á tánum til
ástarfundar við Sophie hafði eitt
kvikindið hennar Elísabetar
fengið sér lúr fyrir ffaman her-
bergishurð Sophie. Eðvarð varð
það á að stíga á skott hundsins
og þá bergmálaði spangól um
höflina. Eðvarð varð í framhald-
inu að láta af þessari skemmtan.
En Eðvarð á betri tíma í vænd-
um þvi líklegt er talið að hann
muni brátt ganga i hjónaband
með sinni heittelskuðu og at-
burðurinn mun fara fram í
kapellunni við Windsor-kastala.
Ástralska útgáfan af boxíþróttinni er á undanhaldi og sífellt fleiri ríki í landinu bætast í hóp þeirra sem banna hana en hún þykir öllu ofbeldiskenndari en þau
form íþróttarinnar sem tíökast í öörum siðmenntuöum löndum. Queensland er eitt þeirra ríkja í Ástralíu sem enn hefur ekki tekið ákvörðun um bann og þar
er þessi mynd tekin. Keppendur berja hvor á öörum í þrjár lotur og keppa um rúmar 1.500 krónur í verðlaun en áhorfendur borga 800 króna aögangseyri til
aö sjá atganginn. Símamynd Reuter
Undrabarn í listum:
Fær hálfa
millj ón
á verkið
Rúmenska undrabarnið Alex-
andra Nechita hefur nýtt tímann vel
á þeim tveimur árum sem liðin eru
frá því hún flúði frá heimalandinu
og fluttist búferlum til Los Angeles.
Málarahæfileikar hennar þykja með
eindæmum og er henni líkt við sjáif-
an snillinginn Pablo Picasso.
Það þykir meö eindæmum hve
þroskaðan stíl Nechita hefur, aðeins
10 ára gömul. Tía ára böm eru ekki
vön að teikna eða mála myndir í
kúbiskum eða súrrealískum stil en
Nechita hefur sýnt og sannað að
hún hefur fullkomið vald á við-
fangsefnum sínum. Hún hélt sína
fyrst einkasýningu í apríimánuði
árið 1994 og foreldrar hennar vora
hissa þegar boðið var allt að 5.000
krónur i sum verkin hennar. Síðan
hefur mikið vatn runnið til sjávar.
Sautján einkasýningum síðar er
hún farin að selja verk fyrir að með-
altali hálfa milljón króna.
Alexandra hefur verið spurð
hvemig henni líki við að vera borin
saman við Picasso og jafnvel fleiri
listamenn eins og Matisse og Kand-
insky. „Það er mér mikill heiður aö
vera líkt veð þessa miklu listamenn.
En í framtíðinni vildi ég einfaldlega
vera þekkt sem Alexandra Nechita,"
sagði þessi efnilegi listamaður.
Alexandra Nechita þykir hafa ótrúlega þroskaöan stíl sem málari þótt hún sé
aðeins 10 ára gömul.
I>V
Segist siða-
vandur maður
Ruðningshetjan O.J. Simpson,
sem sýknaður var af ákærum um
að hafa myrt fyrrum eiginkonu
sína og ástmann hennar, segir í
nýlegu viðtali að hann sé siða-
vandur maður. Hins vegar hafi
Hollywood- liðið gengið af göflun-
um. Simpson fer óblíðum orðum
um Hollywood og dætur borgar-
innar. Þær kallar hann frægðar-
sjúka dópista.
Býður við
beru holdi
Þeim sem stunda nektarný-
lendu nærri Cape Cod í Banda-
ríkjunum finnst blygðunarsemi
AIs Gores, varaforseta Bandaríkj-
anna, slík að það hálfa væri nóg.
Þannig er að varaforsetinn dvelur
um þessar mundir í sumarhúsi
nærri nýlendunni. Um leið og
Gore kom á svæðið kom lögreglan
og meinaði fastagestum strandar-
innar að striplast eins og þeir eru
vanir. Gore og fjölskylda kæra sig
ekki um að horfa á bert hold um
leið og þau dást að útsýninu.
Lék sér með
10 ára strákum
Til að Robin Williams, aðalleik-
ari myndarinnar Jack, gæti lifað
sig almennilega inn í hlutverkið
sitt þai- sem hann leikur 10 ára
dreng var brugðið á það ráð að
kalla til nokkra 10 ára gutta og
léku þeir sér með Williams í
nokkra daga. Fóru þeir félagar í
körfubolta, stunduðu veiðar, úti-
legu og fleira sem 10 ára strákum
finnst skemmtilegt að gera.
Depp og Moss
sundur og saman
Það virðist ómögulegt að finna
út úr því hvort Kate Moss og
Johnny Depp eru sundur eða sam-
an. Fleiri hallast þó að því að þau
séu saman en þau virtust mestu
mátar við komuna til Los Angeles
á dögunum.