Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1996, Side 3
JjV LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996
fréttir
Haraldur Böövarsson hf.:
Áfram
unnið að
sam-
einingu
Áfram verður unnið að samein-
ingu útgerðarfyrirtækjanna Harald-
ar Böðvarssonar hf., Miðness í
Sandgerði og Krossvíkur þrátt fyrir
að Þormóður rammi á Siglufirði
hafi dregið sig út úr sameiningar-
viðræðum. Þegar hefur verið undir-
rituð samrunaáætlun á milli Har-
cddar Böðvarssonar og Krossvíkur
sem kunnugt er starfa bæði á Akra-
nesi.
Þegar þær fréttir spurðust út að
Þormóður rammi hefði hætt við
lækkaði gengi hlutahréfa í Haraldi
Böðvarssyni og Þormóði ramma á
Verðbréfaþingi töluvert. Gengi bréf-
anna í HB fór úr 5,25 í 4,50 á
fimmtudag, lækkaði um 14%, og
bréfin í Þormóði ramma lækkuðu
úr 5,05 í 4,25, eða um 16%. Eftir að
fréttist af sameiningarviðræðum
þessara fyrirtækja fyrir nokkrum
vikum hækkaði gengi hlutabréf-
anna. Miðnes og Krossvík eru að
vísu ekki á hlutabréfamarkaði.
Stjórnendum og stærstu hluthöf-
um Þormóðs ramma þótti samein-
ing ekki hagkvæm þegar öllu var á
botninn hvolft. í upphafi viðræðna,
sem tekið höfðu töluverðan tíma,
sáu menn þó töluverðan ávinning af
sameiningu. Grandi í Reykjavík er
stærsti hluthafinn og samkvæmt
heimildum DV voru uppi efasemdir
á þeim bæ um sameininguna. -bjb
Flúðir:
Flugvél
óká
tvær aðrar
Fyrir nokkru varð slysalegt
óhapp á flugvellinum á Flúðum.
Verið var að snúa lítilli Cessna flug-
vél í gang og var flugmaðurinn því
ekki viðbúinn að hún færi af stað.
Hann sat í vélinni en áður en hann
gat nokkuð að gert hafði vélin ekiö
stjómlaust á tvær aðrar. Töluverðar
skemmdir urðu á vélijini sem fór af
stað og annarri þeirra sem hún lenti
á. Menn voru ekki í hættu. -sv
Hraðakstur:
450 ökumenn
teknir í
Reykjavík
~ á 6 sólarhringum
ILögreglan í Reykjavík hefur
tekið óvenjumarga ökumenn
fyrir hraðakstur á síðustu 6 sól-
arhringum. Alls hafa 450 öku-
menn verið teknir og 15 sviptir
ökuleyfi í borginni á þeim tíma.
„Við erum með átak í gangi
: þar sem grunnskólamir eru að
fara að byrja. Þetta er fólk á öll-
um aldri sem við erum að taka
| fyrir að keyra of hratt, jafnt
| unglingar sem fullorðið fólk,“
sagði Jakob Þórarinsson hjá
umferðarlögi'eglunni. -RR
Lögfræðingur ósáttur við að borga af námslánum of snemma:
Óþolandi að LÍN ákvarði
námslok að eigin geðþótta
„Mér finnst sem menn hjá Lána-
sjóði íslenskra námsmanna séu
farnir að túlka nokkuð þröngt
áikvæði laga um námslok. Ég út-
skrifaðist í febrúar 1995 og fékk
rakkun í maí síðastliðnum, rúmu
ári eftir námslok. Lögin segja að
líða eigi tvö ár þar til greiðslur eigi
að hefjast og mér finnst óþolandi að
LÍN geti ákvarðað námslok að eigin
geðþótta," segir lögfræðingur í sam-
tali við DV.
Lögfræðingurinn segist ekki
treysta sér til þess að koma fram
undir nafni því hann sé upp á Lána-
sjóðinn kominn ætli hann sér í
framhaldsnám. Hann segist hafa
fengið lán allan námstímann, 6 ár,
en námið miðist við fimm þar.
„Ég hef ekkert formlegt svar feng-
ið frá LÍN um ástæður þess að ég
var rukkaður þetta snemma en mið-
að við það sem ég hef heyrt frá kol-
legum mínum í svipaðri aðstöðu þá
sýnist mér að nú sé verið að refsa
mér fyrir að hafa verið einu ári
lengur í náminu en gert er ráð fyr-
ir, jafnvel þótt menn séu að meðal-
tali meira en 6 ár að ljúka því,“ seg-
ir lögfræðingurinn.
Hinn nýútskrifaði lögfræðingur
sagðist í samtali við DV hljóta að
gera athugasemdir við „hið ólög-
mæta valdframsal“ þar sem svo
virðist sem Lánasjóðurinn geti sett
reglur eins og honum sýnist og túlk-
að þær að vild.
„Það kom alveg flatt upp á mig
þegar ég fékk rukkunina í pósti og
með þvi að rukka þetta snemma.
Mönnum era i lögunum gefin tvö ár
til þess að koma sér fyrir að námi
loknu og sá tími var styttur um eitt
ár við síðustu breytingar. Ég held
að öllum hljóti að skiljast að styttri
megi þessi tími ekki vera,“ segir
lögfræðingurinn.
„Skrifi menn stjórn Lánasjóðsins
formlegt bréf fá þeir formlegt svar
og mér þykir einkennilegt ef þessi
maður hefur ekki fengið nein svör.
Hitt er að hér gilda ákveðnar reglur
um námslok og fari menn fram úr
því svigrúmi sem við veitum þá fá
þeir ekki lán. Reglurnar um náms-
lok hafa verið einfaldaðar og vita-
skuld geta komið upp álitamál. Ég
skora á þennan mann að tala við
mig og skýra sitt mál. Það mun
verða séð til þess að leyst verði úr ef
hægt er,“ segir Lárus Jónsson,
framkvæmdastjóri Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna. -sv
KIA
KIAjeppi á frábæru verði, piús aukabúnaður!
- Hverjum KIA jeppa fylgir plúspakki aö verðmæti 171.900.-
Upphækkun 4 cm
Stígbretti
Álfelgur
+ Stærri dekk
+ Hlíf á varadekk
Staöalbúnaöur KlA er m.a.:^ Hátt og lágt drif► Rafmagnsrúður^Aflstýri ► Veltistýri
► Samlæsingar ► útvarp meö segulbandi ► Rafstýrðir útispeglar ► Litaö gler
KIA! Kemur út í plús !
KlA Sportage 5 dyra handskiptur m/ plúspakka:
1.998.000
KIA Sportage 5 dyra sjálfskiptur m/ plúspakka:
2.141.000
HEKLA
SÍMI 569 5500