Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1996, Qupperneq 13
JL>V LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996
13
Brúðarpar DV, Jara og Einar:
Stóri dagurinn er í dag
Brúðarpar DV, Jara Guðnadóttir og Einar
Sigurðsson, ganga upp að altari Hall-
grímskirkju kl. 17 í dag þar sem sr. Guö-
laug Helga Ásgeirsdóttir mun gefa þau
saman.
Jara og Einar ættu að vera lesendum
DV vel kunn því blaðið valdi þau til
þess að vera brúðarpar DV og gaf þeim
af því tilefni 300 þúsund krónur til þess
að kaupa það sem þau vantaði úr smá-
auglýsingum blaðsins. Lesendur hafa
síðan fengið að fylgjast með því þegar
þau fluttu inn í nýja íbúð og hvernig
gengið hefur að fá í hana ýmsa
hluti í gegnum smáauglýsing-
arnar.
Jara er 24 ára bogmað-
ur, vinnur hjá
Scandia, og Einar
26 ára fiskur,
vinnur sem
flugþjónn hjá
Flugleiðum.
Þau kynntust
þegar þau
störfuðu bæði
hjá flugfélag-
inu Atlanta,
hann sem flug-
þjónn, hún sem
flugfreyja. Ástin
kviknaði í
Jeddah í Sádi-Ar-
abíu og þau hafa
nú búið saman í
þrjú ár.
„Við vorum
búin að velta
þessu upp og mig
langaði til þess að
bera bónorðið upp
á frumlegan hátt. Ég
var búinn að hugsa
mig lengi um og mér
datt ekkert annað í hug
en að fara með hana
upp í Öskjuhlið í há-
degi á mánudegi,
krjúpa ofan í drullu-
poll með blómvönd fyr-
ir aftan bak. Það gekk
eftir, hún sagði já,“
sagði Einar við DV 18.
maí.
Jara sagði við DV 22.
júní að hún hefði
Hallgrímskirkju
kirkjugólfið væri
langt. Hún sagðist
að njóta þess til fullnustu að ganga inn gólfið í
kjólnum sem hún myndi taka þátt í að sauma
og hanna.
„Kjóllinn verður íburðarmikill og frekar
gamáldags. Ég er ekki mikið fyrir það sem
er vinsælast í dag og vil fá nokkurs konar
prinsessukjól með löngum slóða,“ sagði
Jara í júní.
DV óskar brúðhjónunum til hamingju með
daginn.
-sv
Jara og Einar ganga upp að altari Hallgrímskirkju í
dag þar sem sr. Guðlaug Helga Ásgeirs-
dóttir mun gefa þau saman. Lesendur
DV hafa fylgst með þeim í sumar, allt
á því að þau voru valin brúðar-
par DV.
DV-mynd GS
kraftw; gœði, ending
Ármúla 17, Reykjavik, simi 568-8840
Dömur & Herrar
Er meltingin í standi?
Margt getur truflað
eðlilega starfsemi
meltingarfieranna,
t.d. langvarandi óheppilegt
mataræði. Einnig er algengt
að neysla fúkkalyfja setji
meltinguna úr jafnvægi vegna þess
að lyfin eyða því miður ekki
einungis sjúkdómsvaldandi
sýklum, heldur rústa þau jafnffamt
nauðsynlegum gerlagróðri
meltingarfæranna.
Til að koma starfsemi þeirra
aftur í eðlilegt horf eru notaðir
Acidophilus gerlar. Acidophilus
hylki eru þægileg í inntöku og
koma jafhvægi á meltinguna.
Éh,
íeilsuhúsiö
Kringlunni & Skólavörðustíg
GULI MIDINN TRYGGIR GÆÐIN!
Askrifendur fá
aukaafslátt af
smáauglýsingum DV
aM mil// hlrnjn.
Smáauglýsingar
550 5000
';S
Tilboðsverð
á Charade
sedan 1500
Aðeins örfáir sjálfskiptir
bílar á einstöku tilboði
- athugaðu málið!
Innifalið: Vökvastýri, útvarp/segulband,
bein innspýting, 1,5 lítra, 90 hestafla vél og fullur bensíntankur
BRIMB0RG
FAXAFENI 8 • SlMI 515 7010