Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1996, Blaðsíða 14
14
LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996 DV
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON
Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLT111,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVÍK, SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727- RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, simi: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., Helgarblað 200 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Bob Dole lagður af stað
Bob Dole, sem um langan aldur var einn helsti foringi
bandarískra repúblikana í þjóðþinginu í Washington,
var formlega krýndur sem forsetaframbjóðandi flokksins
á þingi sem lauk í gær í San Diego í Kaliforníu. Sú nið-
urstaða hefur auðvitað legið fyrir allt frá því að prófkjör-
um lauk snemma sumars, en þá lagði Dole keppinauta
sína að velli hvern af öðrum. Hann hefur því loksins náð
markmiðinu, sem hann hefur keppt að síðustu 15 árin;
að fá tækifæri til að ná kjöri sem forseti Bandaríkjanna.
Það hefur reyndar lengi verið almennt viðhorf svokall-
aðra stjórnmálaskýrenda að Bob Dole hefði enga raun-
hæfa möguleika á að sigra núverandi forseta, Bill Clin-
ton, sem verður með svipuðum hætti krýndur sem for-
setaframbjóðandi demókrata á flokksþingi í Chicago eft-
ir nokkra daga. Honum er fundið margt til foráttu; hann
sé orðinn of gamall, sé óspennandi ræðumaður og hafi
þar að auki á bakinu langa pólitíska fortíð í landi þar
sem álit almennings á stjórnmálamönnum er í lágmarki.
Sjálfur er Bob Dole á annarri skoðun. í ræðu sinni á
flokksþinginu lagði hann áherslu á að aldrinum fylgdi
reynsla og þekking kynslóðar sem fórnaði miklu fyrir
föðurlandið, ólíkt núverandi forseta sem kom sér undan
herþjónustu á tímum styrjaldarinnar í Víetnam. Og víst
er að Bandaríkjamenn setja ekki aldurinn fyrir sig, ef
þeim líst á manninn, eins og sannaðist á Ronald Reagan.
Dole hefur líka gætt kosningabaráttu sína nokkru lífi
með vali á varaforsetaefni. Jack Kemp, sem var kunn
ruðningshetja þar vestra á sínum yngri árum, er snjall
ræðumaður sem boðar pólitíska trú sína með ákafa far-
andpredikarans. Þá styrkti það einnig stöðu Doles að
Colin Powell, sem sagður er njóta mestrar virðingar
allra manna í Bandaríkjunum um þessar mundir og
margir vildu fá í forsetaframboð, lýsti yfir stuðningi við
hann og gaf kost á sér sem ráðherraefni í hugsanlegri
ríkisstjórn Doles eftir kosningamar í nóvember.
Dole lagði á það áherslu í ræðu sinni á flokksþinginu
að repúblikanar væru flokkur Abrahams Lincolns og á
þeim miðjugmndvelli stjórnmálanna myndi hann leita
til bandarísku þjóðarinnar. Sú stefna er í ljósri andstöðu
við þá afar hægrisinnuðu málefnayfirlýsingu sem sam-
þykkt var á flokksþinginu. En auðvitað er löng hefð fyr-
ir því að forsetaframbjóðendur taki ekkert mark á slík-
um plöggum þegar út í kosningaslaginn er komið.
Dole virðist ætla að byggja kosningabaráttu sína ann-
ars vegar á mjög hörðum árásum á Bill Clinton og verk
hans síðustu fjögur árin og hins vegar á fjölda loforða
sem enginn hefur trú á að hann muni geta staðið við ef
hann nær kjöri. Hann lofar til að mynda 15 prósenta
lækkun tekjuskatts sem á þó ekki að skerða framlög rík-
isins til stærstu útgjaldaliðanna á fjárlögunum. Á sama
tíma ætlar hann að standa að hallalausum fjárlögum.
Samkvæmt skoðanakönnunum hefur Dole verulega
minna fylgi meðal bandarískra kjósenda en Bill Clinton.
Bilið mun eitthvað hafa minnkað meðan á sýningunni í
San Diego stóð, en búast má við að það aukist á ný þeg-
ar bandarískir sjónvarpsáhorfendur fá að fylgjast með
sýningu demókrata í Chicago. í millitíðinni mun Fram-
faraflokkurinn, sem fundar um helgina á Langasandi í
Kaliforníu, útnefna milljónamæringinn Ross Perot sem
frambjóðanda sinn, en Perot fékk um 19 prósent í síð-
ustu forsetakosningum. Framboð hans mun hins vegar
skipta litlu nema bilið á milli frambjóðenda gömlu flokk-
anna þrengist verulega þegar nær líður kjördegi.
Elías Snæland Jónsson
Lebed lætur sverfa
til stáls í Kreml
Alexander Lebed hefur lagt til
atlögu í Moskvu í því skyni að
vinna bug á nær tveggja ára ófriði
í Tsjetsjeníu. Sem hershöfðingja
með orðstír sæmir hefur hann
ákveðið að leggja allt undir í
viðureigninni um undirtökin í
valdabaráttunni í Kreml og hver
best standi að vigi að taka við af
Jeltsín forseta, hvort sem honum
endist heilsa til að sitja út kjör-
tímabilið eða ekki.
Atburðarásin hefur verið hröð
síðan Tsjetsjenar lögðu til atlögu
gegn setuliði Rússa í höfuðstað
sínum, Grosní, mestmegnis sveit-
um úr liði innanríkisráðuneytis
Rússlands, daginn áður en Jeltsín
tók við forsetaembætti öðru sinni.
Hámarkinu i þeim þættinum sem
felst í valdabaráttu í Kreml var
náð í gær, þegar Lebed krafðist
þess opinberlega að Anatolí
Kúlíkov innanríkisráðherra yrði
vikið úr embætti fyrir ábyrgð
hans á óförum Rússa í Tsjetsjeníu
og blóðbaðinu sem þar hefur átt
sér stað.
Lebed fullyrti að Kúlíkov hefði
vitað fyrir um atlögur Tsjetsjena
að Rússum í Grosní, bæði í síð-
ustu viku og í mars í vetur, en lát-
ið undir höfuð leggjast að gera
ráðstafanir til að bregðast við
þeim. Aftur á móti hefðu nánir
samstarfsmenn hans í innanríkis-
ráðuneytinu lagt drög að því að
færa stríðið út til annarra
Kákasuslýðvelda með ögrunarað-
gerðum í Dagestan og Ingúsetíu,
nágrannalýðveldum Tsjetsjeniu
að austan og vestan.
Ríki sem vill láta líta svo á að
það haldi lýðræði í heiðri getur
ekki leyst vandamál sín með eld-
flaugum og sprengjum, sagði
Lebed við fréttamenn. Hann
kvaðst telja, eftir viðræður við
forustumenn Tsjetsjena, að nú
væri tækifæri til að koma á friði,
gripi Rússlandssstjórn það af heil-
indum.
Á tæpri viku hefur Lebed farið
tvær ferðir til Tsjetsjeníu. í þeirri
fyrri var tvívegis skotið á bíl hans
og fer ekki á milli mála að í ann-
að skiptið að minnsta kosti voru
Rússar að verki. Við myndatökur
lét Lebed sjást að hann hafði látið
vera að bera skothelt vesti í ferða-
lögunum.
Eftir fyrri ferð Lebeds tók
Jeltsín forseti ákvörðun um að
fela honum einum yfirstjórn á
samræmingu aðgerða allra stofn-
ana framkvæmdavalds Rússlands
í Tsjetsjeníu. Um leið leysti forset-
inn frá störfum umsjónarnefnd
með aðgerðum í Tsjetsjeníu sem
starfað hefur undir forsæti Vikt-
ors Tsjernomyrdíns forsætisráð-
herra, en hann hafði rætt það op-
Erlend tíðindi
Magnús Torfi Ólafsson
inberlega að lýsa yfir neyðar-
ástandi í Grosní.
Umsjónamefndin hafði komið á
laggirnar leppstjóm í Grosní, en
Tsjetsjeninn sem fyrir henni fór,
Dúkú Savgajev, ílýði til Moskvu
um leið og bardagasveitir aðskiln-
aðarsinna tóku að sækja að Rúss-
um. Löggæslulið leppstjórnarinn-
ar, sem Rússar höfðu vopnað, fór í
felur eða gekk í lið með bardaga-
sveitum landa sinna um leið og
þriðja orustan um Grosní hófst.
Tvískinnungurinn í afstöðu
rússneskra yfirvalda kom berlega
í ljós strax eftir fyrri ferð Lebeds
til Tsjetsjeníu. Hann kvaðst hafa
komið í kring vopnahléi, að mönn-
um telst til því þrettánda frá því
stríðið hófst. Konstantín Púlikov-
skí, yfirhershöfðingi Rússa í
Tsjetsjeniu, vildi hins vegar ekki
við neitt vopnahléssamkomulag
kannast. Þrátt fyrir það hafa bar-
dagar i návígi I borginni fjarað út
síðustu daga.
Aðilar í rússnesku herstjóm-
inni, sem ekki vilja friðargerð,
hafa hins vegar látið þyrlur og
árásarflugvélar halda uppi árás-
um á flóttafólk á leið frá Grosní og
nálæg sveitaþorp. Réðust sex flug-
vélar á eitt, vörpuðu 18 sprengjum
og drápu átta manns, þar af sex
manna fjölskyldu.
Lebed sagði fréttamönnum eftir
fyrri Tsjetsjeníuferðina að margir
græddu fé á ófriðnum. Lýsingar
hans á soltnum, klæðalitlum og
forustulausum rússneskum her-
sveitum gáfu til kynna að hann
áliti að fé sem veitt er til her-
kostnaðarins renni að drjúgum
hluta í vasa þeirra í stjórnkerfl
hersins sem eiga að koma því
áleiðis. Herforingi sagði þetta ber-
um orðum á fréttamannafundi í
Moskvu.
Gera verður ráð fyrir að Jeltsín
hafl gert sér grein fyrir því hvað
Lebed ætlaðist fyrir, þegar hann
fól honum yfirumsjón með öllum
málum sem Tsjetsjeniu varða.
Brátt kemur í ljós, og máske áður
en þessi orð birtast, hvort Rúss-
landsforseti viðurkennir í verki,
eins og hann hefur þegar gert í
orði, að Tsjetsjeníustríðið sé sín
herfllegustu mistök.
Sfmamynd Reuter
skoðanir annarra
Marklaus stefnuskrá
i;
Flokksþing repúblikana samþykkti á mánudag
stefnuskrá sem forsetaefnið segist aldrei lesa og sé
I ekki skyldugt að framfylgja. Stefnuskráin var af-
greidd snarlega svo röð ræðumanna kæmist að á
besta tíma í sjónvarpinu. Flestir þeirra voru fulltrú-
ar fyrir þá nútímastefnu repúblikana sem ekki er 1
neinu samræmi við samþykkta stefnuskrá. Þess
i vegna veltir þjóðin því fyrir sér hvort taka eigi al-
j varlega stefnuskrá flokks sem leiðtogar hans virð-
: ast staðráðnir í að hundsa.
Úr forustugrein New York Times 14. ágúst.
Kvabb fyrir dómstóla
Þegar hópur hörðustu andstæðinga gegn aðild
; Danmerkur að Evrópusambandinu leitar til dóm-
stóla með fullyröingar um að samþykkt okkar á
j Maastricht-sáttmálanum gangi í berhögg við stjóm-
j arskrána virðist hreinasta kvabb á ferðinni. Það er
það líka. En eftir að hæstiréttur úrskurðaði að lát-
ið yrði reyna á fuflyrðinguna fyrir rétti hefur mál-
inu verið lyft á hærra og athyglisverðara plan. Tek-
ið skal fram að úrskurður hæstaréttar felur einung-
is I sér að málið verði tekið fyrir en ekki nein vís-
bending um að aðildin að Maastricht sé ómkerk.“
Úr forustugrein Jyllands Posten 13. ágúst.
Engir grænir karlar
Steinrunnar örverur í sprungum steins, sem
mögulegt er að hafi komið frá Mars fyrir milljónum
ára, líkjast í engu litlum grænum körlum eða fyrir-
bærum sem sáust í stjörnukíki Harvardháskóla
fyrr á öldinni. Framleiðendur í HoUywood geta ekki
notað slikar örverur tfl neins. Dramatískur út-
varpsþáttur um tUveru þeirra er ekki líklegur tU að
orsaka öngþveiti. En engum er þó sama. Forstjóri
NASA sagði: Við erum við þröskuld himnaríkis og
það er stórkostlegt að vera tU.“
Úr forustugrein Washington Post 13. ágúst.