Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1996, Side 16
16
LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996 DV
Bogi Agnarsson, þyrluflugmaður hjá Gæslunni, í Nígeríu:
Eins og ao vera
inn í aðra tilv
„Það merkilegasta við veruna í
Nígeriu fannst mér þegar ég flaug
leiguflug með Chief Abiola í kosn-
ingabaráttunni þegar hann sigraði í
kosningunum í Nígeríu árið 1993,“
segir Bogi Agnarsson, þyrluflug-
maður hjá Landhelgisgæslunni.
Bogi fór í leyfi frá Gæslunni og hóf
störf hjá hollensku fyrirtæki í Ní-
geríu og flaug á sams konar þyrlu
og TF SIF. Bogi flaug á olíuborpall-
ana og einnig inn í frumskóginn til
dælustöðvanna ásamt farþegaflugi
og leiguflugi.
„Við flugum með Abiola til mjög
einangraðra staða nálægt Kamerún.
Hundruð manna komu og fögnuðu
honum þegar við lentum á fótbolta-
velli. Á meðan hann hélt framboðs-
ræðu skoðuðu krakkarnir mig mjög
nákvæmlega. Allflestir höfðu aldrei
barið augum hvítan mann. Þeim
fannst ég miklu merkilegri heldur
en Abiola og höfðu engan áhuga á
ræðunni. Sumir nálguöust mig
mjög varlega og reyndu að koma við
mig til þess aö athuga hvort ég væri
af holdi og blóði eins og þeir. Þegar
þeir sáu að ég beit ekki voru þeir
mjög vinalegir. Ég varð þó að lokum
að kalla á lögregluna til þess að
halda krökkunum frá því þeir höfðu
aldrei séð þyrlu í návígi,“ segir
Bogi.
Bogi flaug meö Chief Abiola, forseta Nígeríu, í kosningabaráttunni.
Tengdamamma
í ísskápnum
Bogi segir allt koma á óvart fyrir
þá sem koma í fyrsta sinn til Níger-
íu. Siðimir eru vægast sagt dálítið
ólíkir þeim vestrænu.
„Þegar ég var nýkominn til Ní-
geríu flaug ég með vin minn út á
borpall. Áður en við fórum kom Ní-
geríumaður, sem vann í flugskýl-
inu, til hans og spurði hvort hann
gæti keypt dósakók á borpallinum.
Það var ekki til og við sögðum hon-
um það. Nígeríumaðurinn sagði
okkur þá að hann þyrfti að halda
erfidrykkju því tengdamóðir hans
væri nýlátin.
Hann sagðist
þurfa að
koma
dósunum í
ísskápinn
en flöskur
kæmust ekki
fyrir því
tengdamóðir
hans væri þar
fyrir. Þama er
meðalhit-
inn
kring-
um 30
gráð-
ur og
konan
var
drasl sem þeir notuðu fyrir strætó.
Þeir voru yfirfullir af fólki og það
hékk einnig aftan á og á hliðunum
ef það komst ekki inn og bílamir
keyröu mishratt fram hjá. Við erum
vön skipulögðum þjóðfélögum en
þama virkar ekkert. Maður er bet-
ur settur með peninga
heldur en lögleg
skjöl því maður
borgar sig út úr
öllum vand-
ræðum sem
maður lend-
Samsafn þjóðflokka
Landið er samsafn af þjóðflokk-
um og engin ein heildarmenning í
landinu. Að sögn Boga líta Nígeríu-
menn fyrst og fremst á sig sem
hluta af þjóðflokki en síðan Níger-
íumenn.
„Ég held að menn ættu að kynna
sér þjóðfélagsástandið áður en þeir
reyna að koma á lýðræði. Ólæsi og
menntunarleysi er mjög mikið
ásamt fátækt þó landið sjálft sé ríkt.
Meölimir þjóðflokkanna taka viö
skipunum frá höfðingjum þjóð-
flokkanna um hvar þeir ættu að
krossa í kosningum ef til kosninga
kæmi. í pólitískum skilningi er
erfitt að koma lýðræði á í Nígeríu."
Bogi segir Nígeríumenn ákaflega
geðuga og lífsglaða. Vissir hlutir,
sem eru mikilvægir á Vesturlönd-
um, hafa ekkert að segja í Nígeríu.
Stundvísi og tímaskyn er öðruvísi
en á Vesturlöndum og ekkert geng-
ur samkvæmt klukkunni og Níger-
íumenn hugsa lítið fram í tímann.
„Forfeður okkar þurftu að berjast
við kulda og huga að mat fram í
tímann því þeir höfðu þrjá eða fjóra
mánuði til þess. í Afríku er hægt að
leggjast undir hvaða tré sem er og
sofna. Ef maður er ekki étinn af
snáki þá vaknar maður og fær sér
ávexti af trjánum.“
geymd í ísskápnum til þess að hún
rotnaði ekki,“ segir Bogi.
Bogi segir að strax á flugvellinum
hefði honum liðið eins og homnn
hefði verið hent inn í allt aðra til-
veru. Það er mikið um ræningja og
allir aö reyna að ná i dollara. Ræn-
ingjar hafa mjög mikla tilfinningu
fyrir fólki sem er að koma til Níger-
íu í fyrsta sinn.
Rændur á flugvelli
„Þjófur náði af mér fimmtiu doll-
urum á flugvellinum með því að
þykjast eiga að taka á móti mér og
ávarpaði mig með nafni. Hann
sagðst geta komið okkur hratt í
gegn um tollinn ef ég léti hann hafa
fimmtíu dollara. Ég komst hratt í
gegn en maðurinn var horfinn þeg-
ar ég kom út,“ segir Bogi.
Að sögn Boga er umferðin hrika-
leg og engar reglur virðast gilda og
betlarar standa í hrönnum á götun-
um.
„Þama sá maður eldgamalt rútu-
Bogi eftir heimkomuna. DV-mynd BG
Kona frá Nígeríu siglir meö börn sín til
Bogi bjó í lokuðu hverfi fyrir
Vesturlandabúana en þar var rafall
sem sá um að rafmagn væri alltaf á
svæðinu. Á þessu svæði var flest
það sem Vesturlandabúar eru van-
ir, eins og sundlaugar og tennisvöll-
ur ásamt læknisþjónustu.
Umframfarþegum
hent út
„Innanlandsflug í Nígeríu er allt
í einum graut. Þegar búið er að
henda töskunum á vagn hlaupa all-
ir farþegarnir út í vél og troðast
inn. Þegar öll sæti era frátekin er
umframfarþegum hent út. Komið
hefur fyrir þegar verið var að keyra
út á flugbrautina að farþegar voru
enn þá of margir. Þá er dyrnar opn-
aðar og fólki fleygt út úr vélinni.
Það er annaðhvort að sætta sig við
þess að ná í vistir.
DV-myndir Bogi
hlutina eins og þeir eru í Afríku
eða fara heim aftur. Ég gæti alveg
hugsað mér að fara aftur,“ segir
Bogi.
Innfæddur var skotinn á hlaup-
um fyrir augunum á Boga þar sem
hann hafði trúlega verið tekinn á
stolnum bíl. Fátæktin er mikil og
meðallaun í kringum 30-40 dollar-
ar. Þess vegna eru þjófnaðir algeng-
ir. Lögreglan stöðvar bila með
reglulegu millibili til þess að at-
huga skráningarskírteini þeirra.
„Kurteisi er ekki mikils metin í
Nígeríu og er litið á hana sem veik-
leika. Maður verður að tala í bein-
um skipunum við þjóna og undir-
menn heyra það. Ef maður er kurt-
eis fást þeir ekki til þess að hlusta
eða gera það sem þeir eru beðnir
um,“ segir Bogi.
-em
Jlfttnm* ífcfc. ,s*
Bogi Agnarsson flaug samtals í eitt ár sams konar vél og SIF í Nígeríu.
mmi