Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1996, Page 20
20
vefnum
LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996
- foreldrarnir settu kvóta
Konráð Jónsson fékk
fyrst áhuga á tölvum þegar
hann var 7 ára gamall. Þá
keyptu bræður hans 386
tölvu. í fyrra kynntist
hann Internetinu og er
orðinn tlestum öðrum
fremril heimasíðugerð og
annarri tiltekt á Internet-
inu.
Byrjaði á fikti
„Siðan tölvan var keypt
hef ég verið að fikta í leikj-
um og öðrum forritum. Ég
var að flkta einn úti í
horni án þess að vera
tengdur við einn eða neinn
í fjögur ár,“ segir Konráð.
Hann kynntist Internetinu
á síðasta ári þegar hann
var ellefu ára gamall.
„Þetta byrjaði með því að
við keyptum okkur áskrift
að Intemetinu og Netscape
var bara eitt af þeim forrit-
um sem fylgdi með. Ég
hafði nú eitthvað heyrt af
því og ákvað að prófa. Það
sem er skemmtilegast við
að skoða vefinn er að þar
fmnur maður alls konar
nýjungar og flottar síður.
Min áhugamál em líka
fyrst og fremst tölvur en
svo hef ég líka gaman af
sjónvarpi, kvikmyndum og
netinu. „Þau eru svolítið
hissa en ég held samt að
þetta sé orðið nú þegar
hluti af því sem telst
nokkuð venjulegt, það er
svo mikið fjallað um ne-
tið að nýjabrumið er far-
ið af því, held ég,“ segir
Konráð.
Víll banna sumt
efni
Konráð segist styðja að
sumt efni sé tekið af
Internetinu. „Það er bara
hið besta mál, krakkar
eins og ég, sem eru að
fikta í þessu, eiga ekki að
hafa aðgang að hverju
sem er.“
Heimasíðuhönn-
un
Konráð er að hanna
Simpsons-heimasíðu sér
til gamans. „Það eru til
svo margar heimasíður
um Simpson-fjölskyld-
una á ensku að mér
fannst nauðsynlegt að
það sé að minnsta kosti
ein til á íslensku," segir
hann. Konráð hefur líka
verið kosningastjóri fyr-
ir þá sem bjóða sig fram
jafnvel fótbolta. Á vefnum Konráð Jónsson er einungis 12 ára gamall en hann er flestum fremri á Internetinu. Slóðin á heima- * vera aðalstjórnend-
getur maður fundið efni Siöu Konráðs er http://www.treknet.is/konni
um þetta allt. Fyrst notaði
DV-mynd GS ur a
#Iceland.
ég einungis það forrit en nokkru
seinna fór ég að stunda IRC (eða
spjallið)," segir Konráð.
Gat ekki stoppað
Hann segir að hann hafi strax
orðið hrifinn af netinu og öllu sem
því fylgir. „Frændi minn kenndi
mér á IRC. Þegar ég var kominn af
stað í því þá gat ég ekki stoppað. Ég
var farinn að eyða um það bil 4-6
klukkutímum á netinu á dag. Þá
ákváðu foreldrar mínir að setja
kvóta á þann tíma sem ég fæ á Int-
emetinu. Núna fæ ég bara að vera
eina klukkustund á netinu á dag,“
segir Konráð. Hann segir að þó for-
eldrar hans hafi verið hrifnir af því
að hann kynni svona vel á tölvuna
hefðu þau ekki verið hrifin af fíkn-
inni eins og gefur að skilja.
Konráð segist ekki viss um hvort
þetta komi fyrir alla og hann telur
að það sé oft lítið varið í það sem er
að gerast á Intemetinu. „Það er oft
svo mikið bull á þessum spjallrás-
um, að minnsta kosti rásinni sem ég
er á. Það er verst að sumt fólk segir
oft nákvæmlega ekkert af viti, það
bullar bara og segir endalausa lé-
lega brandara. Það sem heillar mig
mest við spjallið er að þar get ég tal-
að við fólk sem veit jafnmikið um
tölvur og netið og ég,“ segir Konráð.
Eins og aðrir þeir sem stunda
spjallið hefur Konráð kynnst mörg-
um í gegnum það og hann segist
hitta einn netvin sinn reglulega
augliti til auglitis. „Við emm góðir
vinir en ég hef bara ekki séð hann á
spjallinu síðastliðna daga,“ segir
Konráð.
Nýjabrumið farið
Hann segist ekki hafa gefist upp á
sjónvarpinu eins og margir þeir
sem eru á Internetinu. „Ég er ekki
jafnmikill netfikill og þessir venju-
legu fíklar þannig að ef ég þyrfti að
velja á milli yrði sjónvarpið
kannski fyrir valinu," segir hann.
Að hans sögn finnst mörgum jafn-
öldrum hans skrýtið að hann sé á
spjallrásinni
Hann hefur
hannað kosningaheimasiður fyrir
tvo frambjóðendur, í fyrra og nú í
ár. Að sjálfsögðu unnu þeir sem
Konráð vann fyrir stórsigra. „Ég
gæti alveg hugsað mér að vinna
við að hanna heimasíður í framtíð-
inni, kannski mennta ég mig sem
tölvunarfræðing, segir Konráð að
lokum.
Nýja heimasíðan hans um Simp-
son-fjölskyldina kemur sennilega
ekki á vefinn fyrr í byrjun septem-
ber þegar hann snýr aftur frá
Hollandi en þar er hann nú með
fjölskyldu sinni. Slóðin á heima-
síðu hans er http://www.trek-
net.is/konni
-JHÞ
■70*; t.
úl
i
Hitaveita Akureyrar.
Nú fer brátt aö kólna fyrir norðan
og þá er ekki verra að geta
skrufað frá ofnunum. Skoðaðu
http://www.strengur.is/tk/hitak.html
og fáðu nánari upplýsingar.
Læknavísindi
Nú þegar heilsugæslulæknar hafa
sagt upp störfum verða menn að
vera eigin læknar.
Prófaðu http://demOnmac.mgh.har-
vard.edu/outsideMGH.html
NATO
Tókst að stinga uppí
Serba um daginn.
http://www.nato.int/1
Jöklar
Þeir eru jú kaldir og fara víst alltaf
minnkandi.
http://geochange.er.usgs.gov/
i
Danmörk
Hvað eru Danir að vilja upp á
dekk? Koibeinsey er fullgildur
viðmiöunarpunktur og hana nú.
http//stores.us.ohio-state.edu/~ste-
en/dk/:
|
Stuttbuxur
Því rhiður, sumarið er að verðá búið.
' http://www.shineline.it/shops/dr-
essed/jersey.htm
Independence Day
Kvikmyndin Independence Day
hefur svo sannarlega farið sigurfór
um Bandaríkin og varla er við öðru
að búast en að hún haldi áfram hér
á landi. Eins og flestir ættu
að vita var myndin frum-
sýnd hér á landi í gær og í
tilefni af því hafa Islandia
og Skífan sett upp íslenskan
vefþjón tileinkaðan mynd-
inni. Síðan er sett upp í
samvinnu við Twentieth
Century Fox.
Allt um myndina
Á síðunni, sem er á slóð-
inni http:id4.islandia.is/,
má skoða myndir af aðal-
leikurum myndarinnar,
þeim Bill Pullman, sem leik-
ur forseta Bandaríkjanna,
Will Smith, er leikur or-
ustuflugmann, og Jeff Gold-
- íslensk heimasíða
má sjá hvemig grunnþróunin að
myndinni þróaðist og hvernig hún
var ein vinsælasta kvikmynd allra
tíma. Einnig má sjá hreyfimyndir,
stillimyndir og hljóð úr
Independence Day. Enn fremur má
sjá hvenær og hvar myndin er sýnd
í bíóhúsum. Boðið er upp á sérstak-
an borða af síðunni sem
þeir sem hafa eigin heima-
síður geta sett upp á sínar
síður sem tengingu yfir á
síðu Islandia um
Independence Day. Öllum
mun vera velkomið að
senda með tölvupósti at-
hugasemdir, greinar og
annað efni sem mönnum
dettur í hug.
Bandarísk heimasíða
stórmyndarinnar er á
www.id4.com. Þaðan má
meðal annars komast á
aðrar heimasíður sem
fialla á einn eða annan
hátt um Independence
Day eða spila leik sem er
blum sem enn og aftur leik- Ný íslensk heimasíða hefur veriö sett upp fyrir stórmyndina byggður á myndinni.
ur vísindamann. Á síðunni Independence Day. Slóðin er http: id4.islandia.is/ -JHÞ
Hestar
íslenski hesturinn hefur sinn
stað á vefnum á slóðinni http:
//www.centrum.is/diddi/. Þar
halda þeir Sigurbjörn Bárðar-
son og Axel Ómarsson úti ansi
vænni heimasíðu sem greini-
lega er ætluð erlendum áhuga-
mönnum um íslenska hestinn.
Á síðunni má meðal annars
fmna hreyfimyndir af gangteg-
undum sem íslenski hesturinn
hefur upp á að bjóða. Þaðan er
hægt að tengjast heimasíðu Eið-
faxa, sem hefur fengið rúmlega
1600 heimsóknir síðan 4. janúar
1996, og lesa um hestaferðir um
ísland. Hér er um nokkuð væna
síðu að ræða hafi menn áhuga á
íslenska hestinum.
Þeir sem hafa áhuga á erlend-
um vefsíðum um hesta ættu að
skoða slóðina http://www.free-
rein.com/haynet/. Hér er um að
ræða risastóran gagnagrunn
um hesta og allt þeim tengt.
Þaðan má komast inn á aðra
vefi um hesta, skoða síður helg-
aöar dýralækningum og, hvort
sem lesendur trúa því eða ekki,
þá eru til sérstakar siður sem
fjalla eingöngu um skeifur. Þar
má til dæmis nefna hollensku
síðuna Hoefhet. Hún er á slóð-
innihttp:// www.hoef-
net.nl/eng.htm
Hjálparsveit skáta,
Hafnarfirði
Það kom blaðamanni DV á
óvart að hjálparsveit skáta í
Hafnarfirði er með nokkuð
myndarlega heimasíðu. Á
henni kemur til dæmis í ljós að
hún er eina syeitin sem hefur
yfir sporhundum að ráða. Á síð-
unni er meðal annars gerð
grein fyrir útköllum sveitarinn-
ar, hægt að lesa fréttabréf henn-
ar og skoða myndasafh hennar.
Slóðin til skátanna hjálpfúsu í
Hafnarfirði er http: //rvik.is-
mennt.is/~gro/hsh/
Aikidoklúbbur
Reykjavíkur
Hægt er fræðast um sjálf-
svarnarlistina Aikido á slóð-
inni http: //rvik.is-
mennt.is/~max/Aikido.html
Hér er um að ræða heimasíðu
Aikidoklúbbs Reykjavíkur. Þar
er sagt frá starfsemi klúbbsins
og hægt er aö komast inn á fjöl-
margar tengingar inn heimasíð-
ur sem fjalla um íþróttina er-
lendis.
Smekkleysa
Útgáfufyrirtækið Smekkleysa
er með heimasíðu á slóðinni
http://www.siberia.is/bad-
taste/. Þaðan má meðal annars
komast inn á heimasíðu hinnar
geysivinsælu hljómsveitar Un-
unar og lesa um sögu Smekk-
leysu. Einnig eru tengingar inn
á fjölda síðna sem snerta þá
listamenn sem Smekkleysa er
að gefa út. Meðal annars má
skoða texta við plötu Bjarkar,
Gling gló, á ensku.____
Umsjón
Jón Heiðar Þorsteinsson