Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1996, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1996, Qupperneq 23
JjV LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996 Farþegaflug til og frá íslandi fréttir Andvana fæddar tilraunir til virkrar samkeppni - Flugleiðir erfiður keppinautur „Það fer að komast upp í vana að ganga frá málum af þessu tagi,“ sagði Helgi Jóhannesson, deildar- stjóri í samgönguráðuneytinu, fyrr í vikunni, eftir að ferðaskrifstofan ístravel hafði hætt störfum. Helgi annast um að koma því fólki heim sem enn er erlendis og flaug með leiguflugi á vegum ístravel, sem og þeim farþegum ferðaskrifstofunnar sem eru hérlendis og komu að utan. ístravel hóf snemma í sumar leiguflug tvisvar í viku milli Amsterdam og Keflavíkur og hefur þetta flug verið auglýst talsvert. Hollenska leiguflugfélagið Transa- via, sem er að stærstum hluta í eigu KLM, annaðist flugið og notaði ný- legar flugvélar til flugsins og að nokkru leyti íslenska flugmenn. Þrátt fyrir þetta og að verðið yrði að teljast hagstætt, a.m.k. fyrst í stað, áður en aðrar ferðaskrifstofur og Flugleiðir tóku að bjóða hagstæð sértilboð, þá reyndist eftirspumin minni en vonast hafði verið til og sætanýting ekki sem skyldi. Allt bendir til að stórtap hafi ver- ið á leiguflugi ístravel frá upphafi. Endapunkturinn við þetta flug var svo sl. mánudag þegar umboðsmað- ur BSP innheimtufyrirtækisins, sem annast innheimtu fyrir IATA flugfélög hjá ferðaskrifstofum, krafðist hærri trygginga fyrir skil- vísum greiðslum fyrir farmiðasölu ístravel með IATA flugfélögum. DV hefur óskað eftir samtali við Kjart- an Helgason, framkvæmdastjóra ístravel, um þessa starfsemi, rekstr- arstöðvun ferðaskrifstofunnar og ástæður hennar, en hann vildi ekki tjá sig um hana né neitt um ferða- mál að sinni. Erfitt að keppa við Flugleiðir Enn ein tilraunin til að taka upp virka samkeppni við Flugleiðir um farþegaflutninga milli íslands og út- landa hefur því farið út um þúfur, en skemmst er að minnast leiguflugstilraunar Hilmars Kristj- ánssonar undir nafninu Bingóferðir til reglubundins leiguflugs milli ís- lands, Kaupmannahafnar og London sl. vor sem fór veg allrar veraldar á undraskömmum tíma. Áður minnist fólk gjaldþrots Am- arflugs, en þá varð talsverður fjöldi fólks strandaglópar bæði hér á landi og erlendis. Enn fremur minnast margir gjaldþrots flugfélags og ferðaskrifstofu í eigu Guðna Þórðar- sonar, ferðaskrifstofunnar Sólar- ferða. En lítum nánar á síðustu þrjár tilraunir til samkeppni á ís- landi í farþegaflutningum milli ís- lands og Evrópu sem allar hafa mis- tekist. Þær eru Emerald Air, Bingóferðir og nú síðast ístravel. Andvana fæddar tilraunir Menn sem tekið hafa virkan þátt í ofantöldum andvana fæddum til- raunum til virkrar samkeppni í far- þegaflugi milli landsins og útlanda em sammála um það að mjög erfitt sé að taka upp þennan þráð og sé veldi Flugleiða hér heima mjög al- varlegur þröskuldur í veginum fyr- ir þvi. Sem rök fyrir þessari staðhæf- ingu, nefna menn að öll flugfélög sem hingað koma og innlendar ferðaskrifstofur séu í raun undir smásjá Flugleiða, ekki síst vegna þess að Flugleiðir séu eina fyrirtæk- ið á Keflavíkurflugvelli sem annist afgreiðslu flugvéla og hafi þannig beinan aðgang að nánast öllu sem máli skiptir í sambandi við umsvif þeirra hér og hve margir farþegar séu í vélunum hverju sinni og hverjir séu söluaðilar o.s.frv. Þá sé þjónusta Flugleiða á Kefla- víkurflugvelli mjög dýr og þrátt fyr- ir að lendingargjöld á flugvellinum, þ.e.a.s. gjöld til hins opinbera, séu ekki óeðlilega há, þá sé þjónustan við vélarnar á vellinum það dýr að samanlagður kostnaður við lending- ar í Keflavík sé hærri en gerist á flugvöllum, að þeim umferðar- þyngstu undanskildum. Emerald Air í fyrrasumar reyndi flugfélagið Emerald Air í Belfast á N-írlandi að koma á reglubundnu flugi milli London og Keflavíkur með viðkomu í Belfast. Sú tilraun fór gersamlega út um þúfur þrátt fyrir að upp væri lagt með umtalsvert hlutafé og mik- inn og almennan velvilja bæði hér á landi og i N-Irlandi. Flugfélagið Emerald Air hóf í upphafi síns skamma lífs áætlunar- flug milli Belfast og Luton flugvall- cu: skammt norðan við London í samvinnu við flugfélagið European Aviation, sem lagði til flugvélamar og annaðist sjálfan flugreksturinn í fyrstunni. Þetta áætlunarflug hófst í desember 1994 en ætlunin var að hefja síðan reglubundið flug til Is- lands um sumarið og tengja það við áætlunarflugið milli Belfast og Lon- don. Það fór á annan veg: Meðan breska flugfélagið Europe- an Aviation sá um flugið fyrir Emerald gekk reksturinn allvel frá upphafi og farþegafjöldinn fór vax- andi. En eftir að félagið tók flug- reksturinn sjálft yfir undir stjóm Fréttaljós á laugardegi Stefán Ásgn'msson Kristins Sigtryggssonar fram- kvæmdastjóra, þá tók strax að síga á ógæfuhliðina og loks slitnaði upp úr samstarfinu upp úr páskum 1995 og Londonflug félagsins hætti. Fyrirhugað flug til íslands hófst engu að síður og var frá upphafi flogið á dýrum leiguflugvélum sem leigðar vom frá einu flugi til ann- ars, oftast með mjög skömmum fyr- irvara. Þetta olli seinkunum og því, að oftar en ekki var lent á öðrum flugvöllum en ætlað var í upphafi ferðar, auk margs konar annarra vandræða og uppákoma, sem allar grófu undan trú á félagið og velvilja almennings í þess garð og farþegum fór jafnt og þétt fækkandi. Flugið hélt engu að síður áfram og hlutafé félagsins eyddist upp, auk um 90 milljón króna láns frá Lífeyrissjóði bænda sem hvarf í hít- ina. Lífeyrissjóðurinn hefur ítrekað kallað eftir endurgreiðslu þeirra án árangurs og hefur nú krafist gjald- þrotameðferðar á Emerald Air. Emerald.jiættir - Gísli Orn tekur við Emerald Air hætti loks íslands- flugi sinu í ágústmánuði 1995 en við því tók Gísli Öm Lárusson og félag sem hann hafði stofnað. Það félag lifði aðeins örfáar vikur og gafst þá upp og samgönguráðuneytið tók að sér að koma farþegunum, sem byrj- að höfðu ferðir sínar með ýmist Em- erald eða hinu nýja félagi, til síns heima og leitaði við það liðsinnis Flugleiða. Bingó - og búið Bingó - flugstarfsemi Hilmars Kristjánssonar, sem hófst sl. vor, var að sögn manns sem starfar í ferðageiranum en vill ekki koma fram undir nafni, tóm vitleysa frá upphafi og mjög illa undirbúið og vanhugsað. Hilmar, sem hafi verið gersam- lega ókunnugur ferðamálum, hafi að vísu leitað eftir ráðum fólks sem þekkti til ferðamála og flugrekstrar, en fór hins vegar ekki hið minnsta eftir þeim ráðum sem honum voru gefin af heilum huga. Þegar á allt sé litið hafi Bingóflugið verið dauða- dæmt nánast frá upphafí, þrátt fyrir að grunnhugmyndin sem slík hafi ekki verið út í hött. Þegar Bingó lagði upp laupana tók samgöngu- ráðuneytið enn að sér aö koma heim farþegum sem byrjað höfðu ferðir sínar. Og ráðuneytið leitaði til Flugleiða um heimflutning þessa fólks. Bjargvætturin Flugleiðir Flugleiðir hafa, eftir því sem hin- um mislukkuðu tilraunum hefur Qölgað, fengið sifeflt sterkari áróð- ursstöðu og standa nú uppi í hugum fólks sem bjargvættir sakleysingja sem heimskast til þess að fafla fyrir gyUiboðum um ódýrar utanlands- ferðir og fara flatt á því. Það er áberandi að eftir gjaldþrot Bingóferða í vor, þá hefur þeirri skoðun vaxið mjög fylgi að ótryggt sé að fljúgja með erlendum flugfé- lögum og jafnvel hættulegt. Af þessum sökum var mjög erfitt fyrir ístravel og framkvæmdastjó- rann, Kjartan Helgason, að hefja nýja samkeppnistflraun nú i vor í kjölfar Emerald og Bingóferða. Al- menningur þorði einfaldlega ekki að kaupa sér far með enn einum að- Uanum sem notaði útlendar flugvél- ar og áhafnir og óttaðist hreinlega að komast ekki aftur til baka. Þekktur ferðaskrifstofumaður, sem ekki viU koma fram undir naíni, segir við DV að eini mögu- leikinn fyrir Kjartan Helgason í þeirri imyndarstöðu, sem komin var upp eftir vandræði og gjaldþrot undanfarið, hefði verið sá að semja við Transavia á þann hátt að Transavia tæki beinan þátt í tU- rauninni og axlaði jafnframt hluta af áhættunni. Eins og jarðvegurinn og viðskiptaumhverfið í ferðamál- um væri hér á íslandi þá þýddi ekk- ert fyrir litla og fjárvana íslenska ferðaskrifstofu að taka á sig alla áhættuna. Verður að koma að utan Eina leiðin tfl að taka upp virka samkeppni í flugi væri að sterkt flugfélag með öflugt sölukerfi að baki sér tæki upp reglubundið flug tfl landsins erlendis frá og ræki það í samvinnu við innlenda ferðaþjón- ustuaðUa og ferðaskrifstofur. Öðru- vísi sé málið ekki framkvæmanlegt. Það sem varð Kjartani Helgasyni að faUi að sögn þessa sama manns er það að samningar hans við Transavia voru þannig að Kjartan leigði einungis af þeim flugvélar sem flugu hingað og til baka tvisvar í viku fyrir fast gjald og hver ferð skyldi greidd fyrirfram. Leigujaldið hefði verið það sama hvort sem vél- in var fuU eða tóm. Áhættan hefði öU verið á herðum Kjartans og ístravel, en Transavia með aUt sitt á þurru hvemig sem færi. DV hefur heimUdir fyrir þvi að tvö stór erlend flugfélög í Evrópu og Bandaríkjunum séu alvarlega að íhuga reglubundið flug hingað tU lands. Þau setji það hins vegar sem algjört skilyrði fyrir þvi að af þess- um fyrirætiunum verði, að þau hafi annan valkost um flugafgreiðslu á KeflavíkurflugveUi heldur en þann eina sem nú er í boði, þ.e.a.s. af- greiðsluþjónustu Flugleiða. Á þriðja hundrað í vanda vegna Istravel Samkvæmt upplýsingum sam- gönguráðuneytisins, þá eru þeir sem hafa gUdan farmiða í höndum, en hafa ekki byrjað ferðir sínar, í kringum 50 manns aUs, sem varla getur talist mikið þegar um 130 sæta flugvél er að ræða sem flýgur tvisvar í viku mflli landa. Fjöldi þeirra sem byrjað höfðu ferðir sínar þegar rekstur Istravel stöðvaðist og voru strandaglópar ýmist á íslandi eða í Hollandi var mun fleiri, eða vel á annað hundrað manns, þannig að aUt í aUt er um innan við þrjú hundruð manns sem um er að ræða, sem segir sína sögu um eftirspurn- ina. I tilkynningu frá samgönguráðu- neytinu um málið segir að ístravel geti ekki annast heimflutning þeirra sem eru erlendis á hennar vegum, né heldur heimflutning ís- lendinga sem búsettir eru erlendis, eða erlendra ferðamanna sem stadd- ir eru hér á landi á hennar vegum. Ráðuneytið hafi gert samkomulag við Flugleiðir um heimflutning þessa fólks sem á annað borð eigi gildan farmiða til síns heima. Þessu fólki er bent á að hafa samband við söluskrifstofu Flugleiða við Lauga- veg I Reykjavík og við söluskrif- stofu Flugleiða í Amsterdam. Helgi Jóhannesson, deildarstjóri í samgönguráðuneytinu, sagði við DV fyrr í vikunni að þar sem flug Flugleiða á þessari flugleið væru mjög þétt bókuð, þá gæti heimflutn- ingurinn reynst erfiðleikum bund- inn, en allra leiða yrði leitað til að leysa mál þessa fólks. Helgi segir að farið verði með málefni farþega ístravel á sama hátt og við gjaldþrot Bingóferða fyrr i sumar, að þeir sem byrjað hafa ferð og eru strandaglópar á öðrum hvor- um enda flugleiðarinnar verða flutt- ir heim með Flugleiðum. Hinir sem keypt hafa farmiða en ekki byrjað ferðir sínar geta leitað til ferðaskrif- stofunnar um endurgreiðslu. Jafn- framt geti þetta fólk lagt kröfur sín- ar á hendur ístravel inn hjá sam- gönguráðuneytinu. „Við munum senda út innköllun krafna og við munum hafa sama hátt á og með Bingóferðir að taka við kröfum, fara yfir dæmið og ger- um síðan upp, eftir því sem til verð- ur af tryggingafé ferðaskrifstofunn- ar,“ segir Helgi. -SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.