Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1996, Page 26
26 utlönd
LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996
Tilvonandi áttburamóðir gagnrýnd fyrir að ætla að fæða öll börnin:
Spilar póker um líf fóstranna
- ásamt sambýlismanninum sem strax sá gróðavon í áttburagetnaði
Forsíöa News of the World þar sem Mandý fullyröir aö hún ætli sér aö fæöa öll börnin átta. Sést verulega á henni
eftir 14 vikna meðgöngu. Læknir varar við afleiðingum þess og segir afar lítinn möguleika á að börnin lifi.
Fátt hefur vakið meira umtal í
Bretlandi síðustu vikuna en þær
fréttir að 31 árs kona frá Mið-
Englandi, Mandý Allwood, gangi
með áttbura. Slík meðganga hlaut
sjálfkrafa að kalla á mikla athygli.
En athyglin magnaðist þegar hinir
ýmsu fletir málsins komu í ljós og
urðu kveikjan að heitri umræðu
sem ekki sér fyrir endann á.
Mandý og sambýlismaður henn-
ar, Paul Hudson, hafa selt blaðinu
News of the World einkarétt að birt-
ingu frétta og greina um meðgöng-
una og fæðinguna. Upphlaup varð
síðan þegar sérfræðingur í marg-
burafæðingum, sem annast Mandý,
ráðlagði henni að láta eyða að
minnsta kosti sex fóstrum til að
tryggja líf og limi eineggja tvibura i
fóstrahópnum. Að öörum kosti gætu
öll fóstrin látist. Inn í þá umræðu
fléttaðist síðan sú staðreynd að átt-
burarnir voru skilgetið afkvæmi
vísindanna þar sem Mandý hafði
gengist undir frjósemisaðgerð
skömmu fyrir getnaðinn. Siðferði-
legum spumingum var velt fram og
aftur og á alla kanta.
Heit umræða varð um einkarétt-
arsamninginn við blaðið. Komu þau
viðhorf fram að þar á bæ mundu
menn breyta meðgöngunni í sirkus
með Mandý í hlutverki viðrinisins.
Og baráttuhópar gegn fóstureyð-
ingum risu strax upp með miklum
látum þegar heyrðist af fóstureyð-
ingarhugleiðingum læknisins.
Kröfðust þeir þess að gangur náttúr-
unnar yrði ekki truflaður. Því varð
mikill fögnuður í þeim herbúðum
þegar Mandý lýsti yfir að hún væri
staðráðin í að fæða öll bömin, þrátt
fyrir viðvaranir lækna um hættuna
á fósturláti, lífshættu hennar sjálfr-
ar og rökstudda spádóma um að
ekkert barnanna átta mundi lifa
fæðinguna af. Var þá vísað til fyrri
tilfella átt- og níburafæðinga.
Mandý er nú komin 14 vikur eða
rúma þrjá mánuði á leið. Læknir
hefur staðfest að meðgangan sé, enn
sem komið er, eðlileg. En innan
skamms verður ástand hinnar verð-
andi áttburamóður slíkt að hún
mun eiga erfitt með gang og endar
loks í hjólastól eða rúminu. Hætta
er á að blæðingar gangi nærri bæði
móður og fóstrum. Hvernig fæðing-
in heppnast verður tíminn að skera
úr um.
Gjaldþrota flagari
En sé svipast um á bak við tjöld-
in i þessu máli kemur ýmislegt for-
vitnilegt í ljós og minnir margt
óþægilega á sápuóperu.
Mandý Allwood er 31 árs, fráskil-
in og móðir Charles, fimm ára
drengs sem hún á með fyrrum sam-
býlismanni sínum. Hún rekur leigu-
miðlun. Mandý kynntist verðandi
barnsföður sínum, Paul Hudson, 37
ára, fyrir fjórum árum, þegar hún
var enn í sambúð með fyrri manni
sínum.
Paul, hálfur Jamaíkamaður, er
gjaldþrota byggingarverktaki sem
lifir á 4.700 króna atvinnuleysisbót-
um á viku. Hann bað Mandý að hug-
leiða fóstureyöingu en snerist hug-
ur þegar í ljós kom að hún gekk
með áttbura. Hann sá strax mögu-
leika á að græða milljónir á öllu
saman og virðist ætla að verða vel
ágengt. Mun Paul hafa átt hug-
myndina að samningnum við News
of the World og eins þeirri ráðstöf-
un að ráða harðskeyttan almanna-
tengslamann til að sjá um mál
þeirra gagnvart fjölmiðlum og öðr-
um peningalindum.
En Paul er ekki við eina fjölina
felldur. Hann er enn í reglulegu
sambandi við Maríu, fyrrum sam-
býliskonu sína og móður tveggja
bama þeirra. Reyndar vissi Maria
ekkert um samband Pauls við
Mandý fyrr en það hafði staðið í
þrjú ár og nú horfast Mandý og ætt-
ingjar hennar í augu við þá stað-
reynd að Paul er flagari sem sefur
reglulega hjá Maríu og fleiri kon-
um. Mandý virðist kæra sig koll-
ótta, segir einfaldlega að þau séu
bæði frjálslynd og sjálfstæð og hún
sætti sig fullkomlega við ástandið.
Fréttaljós
á laugardegi
Haukur L. Hauksson
En fjölskylda hennar er afar
áhyggjufull.
Móður Pauls líst síður en svo á
hvað sonur hennar hefur komið sér
í og ber honum ekki vel söguna.
Segir hún að hann muni hlaupast á
brott um leiö og eitthvað bjátar á.
Hann hugsi eingöngu um peningana
og henni bjóði við því. Mamma
gamla efast síöan stórlega um að
hægt sé að taka ábyrgðarfullar
ákvarðanir um líf og dauða þegar
peningar eru annars vegar.
Heimtaði fóstureyðingu
Mandý mun oft hafa sett fram ósk
um að eignast börn með Paul en
hann sagðist ekki reiðubúinn til
þess. En hún var yfir sig ástfangin
og vildi halda í hann fyrir alla
muni. Fór hún í heilsugæslustöð-
ina, gekkst undir frjósemisaðgerð
þar sem hún át frjósemislyfið
Pregnyl. Paul vissi ekkert um þá
ráðagerð og var því grunlaus um
mögulegar afleiðingar þegar hann
gerðist ástleitinn við konuna kvöld
eitt snemma í vor.
Simoni Pugh, fyrrum sambýlis-
manni Mandýar, gjaldþrota múrara
sem býr nú með æskuástinni sinni,
líst ekkert á stöðu mála. Berst hann
enn hatrammri baráttu fyrir for-
ræði yfir syni þeirra Mandýar. Vill
hann ekki að Charles litli fái al-
brenglaða mynd af heimilislífi þar
sem húsbóndinn sefur um allan bæ
og áttburar eru á leiðinni. Þá hefur
hann upplýst aö Mandý hafi heimt-
að fóstureyðingu þegar hún upp-
götvaði að hún var ófrísk að
Charles.
Tugir milljóna í veði
Fyrrnefndur almannatengslamað-
ur, Max Clifford, þykir harðskeytt-
ur og snjall peningaplokkari. Hann
segist ætla að gera Mandý og Paul
moldrík. Þau fái að minnsta kosti
100 milljónir króna á tveimur árum
heppnist fæðingin. Þar á meðal eru
greiðslur fyrir sjónvarpsviðtöl og
kostunarsamningar við framleið-
endur bamavara. Þá er fullyrt aö
samningurinn við News of the
World gefi um 35 milljónir króna í
aðra hönd. Hann vísar hins vegar á
bug þrálátum orðrómi um að parið
fái meira því fleiri börn sem fæðast
lifandi.
Loks er það læknirinn, prófessor
Kypros Nicolaides, sérfræðingur í
fjölburafæðingum. Hann varar ein-
dregið við því að Mandý fæði öll
börnin, þau muni aldrei lifa.
Eftir fárið sem gengið hefur yfir
vegna málsins hefur læknirinn
krafist þess að Mandý veiti fjölmiðl-
um ekki fleiri viðtöl. Umstangið
valdi of mikilli streitu sem skaðað
geti fóstrin.
Afkvæmi vísindanna
Sú skoðun hefur heyrst að hér sé
á ferðinni sérlega afbrigðilegt mál
þar sem spilaður er póker um líf
fóstranna. Ekki verði horft fram hjá
þeirri staðreynd að fullyrðingar
Mandý um að fæða öll börnin teng-
ist þeim miklu peningum sem þá
eru í vændum. Þá sé hún að auki
studd rækilega af peningaplokkar-
anum Max Clifford og baráttuhóp-
um gegn fóstureyðingum. Ekki má
gleyma því, þegar síðasttöldu hóp-
arnir eiga í hlut, að náttúran fékk
ekki að hafa sinn gang óárpitt þegar
áttburarnir voru getnir. Hefði svo
verið væri Mandý ekki ófrísk af átt-
burum í dag. Áttburarnir eru skil-
getið afkvæmi vísindanna og þykir
ófáum dapurlegt til þess að hugsa
hve maðurinn virðist vanmáttugur
gagnvart afleiðingum eigin gerða.
Er þar bent á hyldjúpa gjá milli
hvítklæddra sérfræðinga tilrauna-
stofanna og almennings.
Mandý Allwood meö frumburöinn, Charles. Hún heimtaöi grátandi fóstur-
eyöingu þegar henni var Ijóst að hún var ófrísk að honum.