Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1996, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1996, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996 JjV 37 I LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996 Náttúrubarnið og læknirinn Gunnar Ingi Gunnarsson stjórnar viðræðum heilsugæslulækna við ríkið: ber virðingu fyrir drullupollum „Ég er strákur úr Laugarneshverf- inu. Ég var svo gæfusamur að fæðast í afskaplega góða fjölskyldu. Góðir foreldrar leyfa barni að mótast við ástúð og aga og öðlast sjálfstæði í hugsun og atferli og ég var þetta heppinn. Ég mótaðist á æskuárunum mjög mikið í sveit hjá föðurbróður mínum að Hrosshaga í Biskuþstung- um og legg mikið upp úr því. Þetta tvennt tel ég að hafi verið mín gæfa,“ segir Gunnar Ingi Gunnarsson, yfir- læknir heilsugæslustöðvarinnar í Árbæ. Gunnar Ingi hefur stjórnað að- gerðum heilsugæslulækna í viðræð- unum við samninganefnd rikisins að undanfórnu - verið þeirra herforingi - en hann er einmitt formaður samn- inganefndar heilsugæslulækna. Hver skyldi hann vera, þessi heimilis- læknir sem hefur verið óhræddur við að láta stór orð falla að undan- fömu? Gunnar Ingi er fæddur í Reykjavík 21. ágúst 1946. Foreldrar hans eru Gunnar Þorbjöm Gunnarsson, fyrr- verandi forstjóri, og Guðrún Jó- hanna Ólafsdóttir húsmóðir sem nú er látin. Gunnar Ingi er elstur fjög- urra systkina. Hann stundaði nám í Menntaskólanum í Reykjavík og lauk læknisprófi frá Gautaborgarhá- skóla 1976. Hann er þrígiftur og á sex börn, Huldu Margréti, Guðrúnu Katrínu, Svanhildi Ástu, Sverri Inga, Áslaugu Heiðu og Gunnar Þorbjöm. Núverandi eiginkona hans er Erna Matthíasdóttir, hjúkrunarfræðingur og lyfjakynnir, og á hún eitt barn fyr- ir. „í sveitinni var mér kennt verks- vit. Bóndinn sagði að það væri bara hægt að læra verksvit í sveit. Það væri allt í lagi að tala meðan maður væri í vinnu en maður ætti ekki að hætta að vinna meðan maður væri að tala,“ segir hann. I læknisfræði fyrir mömmu „Ég byrjaði 13 ára í verkamanna- vinnu á Hornafirði og vann verka- mannavinnu á sumrin út mennta- skólann. Þá fékk ég tækifæri til að skoða fjölbreytileika þjóðfélagsins mínus sjómennsku. Ég tel það af- skaplega gott veganesti," segir hann og kveðst eiga minninguna frá þeim tíma þegar hann vann með verka- fólki á jafnréttisgrundvelli og skilja því betur lýsingar þess og líðan þeg- ar það komi á stofuna til sín. „Sú reynsla sem ég upplifði sem drengur kemur mér að verulegum notum. Og hver veit nema þessi reynsla hafi smám saman mótað mínar pólitísku skoðanir,“ segir hann. Gunnar Ingi segist ekki hafa haft mótaðar skoðanir varðandi framtíð- ina í menntaskóla og ekki verið metnaðargjam. „Ég hef oft sagt við kollega mína að ég hafi farið í lækn- isfræðina fyrir hana mömmu því að henni þótti það svo flott, en eftir að ég byrjaði fann ég að þetta var ágæt- is ákvörðun,“ segir hann. Með krónískan sjúkdóm Gunnar Ingi segist alla tíð hafa verið náttúrubarn, skynja náttúruna mjög sterkt og fylgjast til dæmis mjög vel með veðurfari. Hann segist hafa verið haldinn krónískum sjúk- dómi frá fimm, sex ára aldri, sem sé veiðiskapur. „Það er bara til ein meðferð við þessum sjúkdómi og það er að veiða. Mér finnst hann versna ef ég hætti að veiða. Það er hægt að halda einkennunum niðri með því að halda á stöng,“ segir Gunnar Ingi. Þykir vænt um Homo sapiens „Mér þykir vænt um Homo sapi- ens og held að einhver alvarlegustu mistök þess dýrs hafi verið að segja sig úr dýraríkinu og halda að það væri eitthvað spes. Frá og með þeim tíma hefur Homo sapiens verið týnd- ur. Trúin á sér fyrst og fremst rætur í óttanum við að vera eina vitsmuna- veran og vita að maður á eftir að deyja. Þetta tvennt er undirrótin að öllum trúmálum," segir hann og heldur áfram að tala um náttúruna. „Ég ber ákveðna virðingu fyrir drullupolli vegna þess að í honum er hægt að finna allar efniseiningar sem ég er búinn til úr. Þegar ég horfi í drullupoll gæti ég jafnvel vorkennt honum fyrir að vera ekki jafngóð uppskrift og ég er því að allir bygg- ingarsteinarnir eru í honum en mér er miklu betur raðað. Ef maður gæti skynjað náttúruna svona þá líður manni miklu betur. Þá verður maður ekki eins fjarrænn og er einkenn- andi fyrir nútímaþjóðfélagið." því að dauðinn sé það eðlilegasta sem til sé. Hann segist aldrei hafa náð „sambandi þangað upp. í stað þess að reyna mikið að ná samband- inu upp hef ég frekar reynt að finna leið til að þuiTa ekki að óttast að vera vitsmunavera eða eiga eftir að deyja,“ segir hann. - En trúirðu þá ekki á Guð? „Mér finnst alltaf vera á tali þegar ég reyni að ná sambandi. Ég ber mikla virðingu fyrir trúmálum en ég hef ekki náð sambandi enn þá. Og mér finnst það í rauninni allt í lagi. Ég er tilbúinn að slá á þráðinn öðru hvoru," segir hann. Smyglaði sár í háskóla Gunnar Ingi „smyglaði" sér inn í há- skólann í Gautaborg um það leyti sem síð- ustu öldurnar frá stúd- entaóeirðunum í París skullu á útveggjum Háskóla íslands kringum 1970. Hópur læknanema fór þá til Gylfa Þ. Gíslasonar, þá- verandi menntamála- ráðherra, til að mót- mæla kennslunni, þar á meðal frændi Gunnars Inga og vinur frá frumbernsku, en Gunnari Inga fannst það vonlaust. „Gylfi var snjall. Hann ákvað að losa þjóðina við þennan hóp , og hringdi í vin sinn, j Ingvar Carlsson, ! menntamálaráðherra í Svíþjóð, og bað hann að taka við þessu fólki,“ segir Gunnar Ingi og segist hafa far- ið um sama leyti í heimsókn til frænda sins á Gamla Garð, sem ekki var heima, og skoðað þar póst- inn hans. „Þar sá ég að honum var boðið að sækja háskóla í Svíþjóð. Ég fór með bréfið á skrifstofu Háskólans, límdi yfir nafnið hans, tók Ijósrit, setti svo bréfið aftur í póstkassann, fór heim og skrifaði umsóknarbréf. Ég byrjaði bréfið svona: „í samræmi við það bréf sem ég hef fengið frá yður sæki ég hér með um...“,“ segir Gunnar Ingi og þar með voru þeir frændur komnir inn í háskóla í Svíþjóð. Gunnar Ingi dvaldist átta ár í Sví- þjóð við nám og störf og lauk þaðan prófi. Árið 1978 fluttist hann alkom- inn til íslands og hóf fljótlega störf sem heilsugæslulæknir í Árbæ. Þar hefur hann gegnt störfum í 17 ár, þar af átta ár sem yfirlæknir. Hann hef- ur verið virkur, var einn af stofnend- um Félags islenskra heimilislækna og Læknavaktarinnar sf. og gegndi þar stjórnarformennsku frá 1986. Hann hefur gegnt formennsku í samninganefndum lækna, verið í stjórnarnefnd Ríkisspítalanna og gegnt trúnaðarstörfum fyrir Alþýðu- flokkinn. Island er Hlemmtorg Gunnar Ingi segist alltaf hafa litið á læknisfræðina sem listgrein því að læknar þurfi að kunna að höndla mannskepnuna, virða hana og hressa við ef hún er döpur og leyfa henni að finna að hver og einn sé mikils virði. Sumir segi að eitt af því mikilvægasta sé að kalla fram lækn- inn í hverjum og einum. Andstæðan sé að gera fólk háð sér þannig að fólkið fari að lifa fyrir lækninn. „Slíkt hef ég alltaf forðast," segir Gunnar Ingi. Þegar rætt er um togstreituna milli heimilislækna og sérfræðinga segir hann þar vera um stjórnskipu- leg mistök að ræða. íslendingar hafi þá sérstöðu að láta erlendar þjóðir sérmennta lækna sína og því sé Is- land nokkurs konar Hlemmtorg læknavisindanna, þar komi saman sérfræðingar að austan og vestan. Frumþjónustan hafi hins vegar aldrei verið byggð upp í þétt- býlinu eins og í dreifbýlinu þar sem sérgrein heimilis- lækninganna fái að njóta sín í fram- kvæmd. Stjómskipulaginu hafi verið „klúðr- að“, afleiðingarnar séu árekstrar milli læknahópa. „Það er mikið slys. Ég vona að það leysist hið allra fyrsta því að þessir hópar eiga að vinna teymivinnu," segir Gunnar Ingi og telur fólk ekki bera vantraust til menntunar heimil- islækna og þjónustu þeirra heldur sé þar fyrst og fremst um lélegra að- gengi að heimilislæknum að ræða. Illa við nýliða Gunnar Ingi er félagi í Alþýðu- flokknum og gegnir nú formennsku í Alþýðuflokksfélagi Reykjavikur. Hann hefur brennandi áhuga á þjóð- málum og innanflokks- málum og segir frá því að á einum af sín- náð mjög góðu sambandi við unglið- ana í flokknum. Það er mitt stóra markmið að beisla það afl sem varð til í síðustu kosningum, fyrst og fremst hjá unga fólkinu sem hefur slegist í félagsskapinn.“ Gunnar Ingi hefur mikinn áhuga á siðferðismálum og segist aldrei hafa fundið neitt að siðferði Alþýðu- flokksins. Hann viðurkennh- að upp hafi komið erfið mál sem hafi gert það að verkum að flokkurinn hafi fengið „óviðeigandi merkimiða" en segist hafa reynt að finna leiðir til að taka til innanhúss í Alþýðuflokknum í Reykjavík, reyna að koma á betra skipulagi, því að flokkurinn sé „fú- inn innvortis. Þar þarf bæði að hreinsa til, styrkja og smíða,“ segir um fyrstu fundum í flokknum hafi komið til sín eðalkrati sem hafi spurt sig til nafns og sagt síðan að krötum væri „frekar illa við nýliöa". Þá fór Gunn- ar Ingi að velta fyrir sér hvort þetta væri ekki skýringin á smæð flokksins. „Undanfarið hef ég , reynt að safna afli hjá ungliðum til að byggja upp Alþýðuflokkinn í Reykjavík og stuðla þar með að stækkun flokks- ins á landsvísu. Sú vinna er í Læknaforinginn Gunnar Ingi Gunnarsson þjáist af krónískum sjúkdómi sem er veiöiskapur. Hann segir aö sjúkdómnum veröi aöeins haldiö niöri meö því aö halda á stöng. Á tali hjá Guði gangi og ég hef besta mn ur. „Mér hefur þótt það fráleitt frá upphafi að Alþýðuflokkurinn sé í samstarfi við Jóhann. Ég hef fylgst með honum gegnum árin og komist að þeirri niðurstöðu að allar þær fjöl- skyldur sem hann hefur skilið eftir í botnlausu gjaldþroti hér og þar um landið og sá máti sem hann virðist upplifa það sem hann hefur valdið gerir það að verkum að ég set stórt spurningarmerki við það hvort þessi maður skynji siðferði yfirleitt," segir hann og vonar Alþýðuflokksins vegna að málið fái „rétta afgreiðslu". Sighvatur bestur Gunnar Ingi var einn af nánustu ráðgjöfum Sighvats Björgvinssonar í heilbrigðisráðuneytinu og tel- ur hann hafa verið lang- heilbrigðisráð- herra sem hann hafi kynnst og tel- ur að það hefði endanlega sann- ast fyrir þjóð- inni ef hann hefði haft tækifæri til að vera ráð- herra leng- enda vilji nú margir læknar fá hann stól- aft- Gunnar ingi segir að sér þyki vænt um Homo sapiens þó aö sú dýrategund hafi gert þau alvarlegu mistök að segja sig úr dýrarík- inu og haldið sig eitthvaö spes. Hann hefur ákveðnar skoðanir á flestu og segir til dæmis að góöir foreldrar leyfi barni aö mótast viö ástúö og aga. í fanginu á pabba sínum er Gunnar Þorbjörn. Það kemst hvorki ljós eða hljóð frá því eftir að málið er dottið í bókun,“ heldur hann fram og segir lækna ekki fara til starfa aftur fyrr en við- unandi niðurstaða liggi fyrir og staða heimilislækna innan BHMR hafi verið leiðrétt. Heimilislæknar hafa ákveðið að halda stefnunni óbreyttri en Gunnar Ingi segir að spurningin sé hvort hægt sé að ná markmiðinu óbreyttu á stuttum tíma. Læknar séu tilbúnir i strúktúrbreytingar en ekki tilbúnir til að bóka þær. Þær verði því að ger- ast strax. En telur hann að kjarakröf- ur heimilislækna skemmi fyrir öðr- um launþegum? Úyndisúrræði „Ef ég teldi að krafan um þessa leiðréttingu myndi skemma fyrir al- þýðu manna að fá betrumbætur á sín kjör þá tæki ég ekki þátt í þessu. Hin skammarlega lágu laun á íslandi verða að fá leiðréttingu en við hjálp- um ekki hinum almenna launþega neitt með því að láta okkur hrapa áfram. Við megum ekki gleyma því að það eru 85 þúsund krónur sem eru fóstu launin og það sem er grunnur ellilífeyrisins. Á þeim byggjast allar vaktgreiðslur lækna,“ segir hann. Siðferði lækna er Gunnari Inga einnig hugleikið, enda hefur það ver- ið til umræðu í tengslum við upp- sagnirnar. Hann segir að samninga- nefnd ríkisins hafi viðurkennt að heimilislæknar hafi hrapað of lágt og ekki staðið sig jafn vel og hinir inn- an BHMR. Sannleikurinn sé sá að þeir sem hafi staðið sig best hafi ver- ið með ofbeldisaðgerðir. Hann spyr hvort verið sé að kalla á ofbeldi til að halda sjó í launamálum. Slíkt sé fyr- ir neðan virðingu lækna. „Það er algjörlega ósæmilegt að gera læknum það að grípa til óyndis- úrræða til að reyna að halda sjó í launamálum. Það verður að finna aðrar leiðir til að tryggja að komið verði í veg fyrir launatap. En kannski er hægt að tala um uppsagnir lækn- anna sem neyðarrétt,“ segir hann og bætir við að læknar eigi að sjálfsögðu ákveðnum skyldum að gegna samkvæmt eið sínum en þar segi ekkert um það hvar læknar eigi að gegna skyldum sínum í heim- mum. hann og gefur sjálfum sér tíma fram að næstu kosningum þvi að þetta sé bara spurning um vilja. Gunnar Ingi segist ekki vilja missa Jón Baldvin Hannibalsson úr formannssætinu í Alþýðuflokknum, ekki einu sinni fyrir sameiningu Al- þýðuflokks og Þjóðvaka eða allra vinstriflokkanna. Það yrði flokknum of dýrkeypt. Hann segist virða hæfi- leika Jóns Baldvins og telja hann einn hæfileikaríkasta stjórnmála- mann þjóðarinnar. Jafnaðarmenns- kunni verði ekki bjargað með því að losa Alþýðuflokkinn við Jón Bald- vin. Ekki sé hægt að sameina Þjóð- vaka og Alþýðuflokk ef Jóhanna kemur aftur heim. „Sameining vinstri flokkanna þarf að eiga sinn eðlilega tima og fá að þróast. Hjá ungliðunum sé ég tákn um stærri jafnaðarmannaflokk. Þeir stinga saman nefjum," segir hann og kveðst aldrei hafa skilið gamaldags skítkast í pólitík. Sér finnist rétt að viðurkenna og hæla andstæðingun- um ef þeir gera eitthvað gott. „Mér er meinilla við þessi hefð- bundnu ósannindi sem eru praktíseruð á Alþingi þar sem allt er óalandi og óferjandi eftir því hverjir eru í stjórn eða stjómar- andstöðu. Það eru ekki nútímastjórn- mál,“ segir hann. Fráleitt í Hafnarfirði Gunnar Ingi bendir á að dauðinn sé bannorð, jafnvel þó að hann sé tímabær, og telur það mikil mistök Gunnar Ingi Gunnarsson heilsugæslulæknir hefur vakiö athygli í fjölmiölum heimilislækna viö samninganefnd ríkisins. Hér er hann meö eiginkonu sinni, fyrir aö vera óhræddur viö aö láta stór orö falla en hann hefur einmitt ieitt viöræöur Érnu Matthíasdóttur, hjúkrunarfræöingi og lyfjakynni, og syninum Gunnari Þorbirni. DV-myndir GS „í Guðmundar Árna-málinu valdi ég að taka ákveðna afstöðu og kom opinberlega fram með mína skoðun. Ég taldi að heildarhagsmunanna vegna ætti Guðmundur Ámi að segja af sér. Ég er sannfærður um að það var rétt. En allt þetta hefur skemmt mikið fyrir flokknum," segir Gunnar Ingi og kveðst hafa kristaltær við- horf varðandi meirihlutasamstarf krata við Jóhann G. Bergþórsson í Hafnarfirði. „Heilbrigðisráðuneytið er geysileg Ijónagryfja. Þar þurfa menn að standa klárir á flestöllu öðru en læknavísindum. Þeir þurfa að höndla útgjöld og skipuleggja þjón- ustu. Sighvatur er fyrsti ráðherrann sem leyfir sér að fara um landið og opna hin ýmsu ormabox. Fyrir það fékk hann skömm i hattinn. Það er enn mikið verk óunnið í ráðuneyt- inu,“ segir Gunnar Ingi. Hann telur að Ingibjörg Pálmadótt- ir hafi verið óheppin í upphafi sinn- ar tíðar í heilbrigðisráðuneytinu því að um sama leyti hafi þar átt sér stað miklar mannabreytingar. „Það þarf mikla reynslu og þjálfun til að höndla þetta ráðuneyti. Þar skiptir ekki máli hvort maður er læknir eða hjúkrunarfræðingur ef maður hefur ekki þeim mun meiri reynslu úr fjár- laganefnd og góða aðstoð þjálfaðra embættismanna. Annars lendir mað- ur í erfiðleikum og það hefur Ingi- björg gert,“ segir hann og telur heim- ilislækna hafa átt gott samband við ráðuneytið. Bókanir eru svarthol Gunnar Ingi hefur leitt samninga- viðræður heilsugæslulækna við fjár- málaráðuneytið og segir þar allt í hnút. Reynt sé að leysa vanda sem hafi safnast upp til margra ára enda hafi samninganefnd ríkisins sagt að vandamálið sé orðið of viðamikið. Eftir marga fundi um það hvert vandamálið væri hafi komið í ljós að umboð samninganefndar ríkisins hafi ekki verið í neinu hlutfalli við stærð vandamálsins. Því hafi við- ræðurnar sjálfgefið strandað. „Okkur hefur verið boðið að vinna að strúktúrbreytinginn og gera bók- anir af ýmsum gerðum. Við höfum afskaplega dapra reynslu af því. Við höfum skúffur fullar af bókunum. Það er eins og bókanir milli okkar og þeirra séu einhvers konar svarthol. Kerfið er að hrynja Gunnar Ingi segir að læknar horfi upp á það í þéttbýlinu að heilsugæslukerfið sé að hrynja. Ef kerfið hrynji þar leiði það til hruns um allt land. Neyðarástand hafi ríkt í málefnum heilsugæslulækna í mörg ár en ríkið hafi dregið lapp- irnar. Útilokað hafi verið að ræða um kaup og kjör með slikt hrun yf- irvofandi. Læknar séu því hættir og ræði ekki kaup og kjör fyrr en búið sé að tryggja framtíð heilsu- gæslunnar í þéttbýli og á landsvísu. Eftir tímamótaplagg frá heilbrigðis- ráðherra sé læknum nú núið því um nasir að kjaradeilan sé forsenda5* uppsagnanna. Það standist ekki. „Er það á ábyrgð læknanna einna þegar ekki næst samkomulag til að leysa svona deilu áður en uppsagn- ir taka gildi?“ spyr hann og telur að læknar og ríkið verði að deila þeirri ábyrgð. Siðferði geti ekki komið í veg fyrir að læknar tryggi starfskjör sín. Læknar séu fórnar- dýr fyrirkomulags sem gangi ekki upp - siðferðið sé veikast í kerfinu sjálfu. Gunnar Ingi hefur lýst því yfir að hann ætli ekki að snúa til baka í heilsugæslustöðina í Árbæ náist ekki viðunandi árangur i viðræð- unum. Hann staðfestir þetta og seg- ist aldrei hafa verið í vandræðum með verkefni, hann vilji gjarnan takast á við erfið viðfangsefni og hafi gjarnan tekið að sér forystu. Náist óviðunandi árangur þá láti hann einfaldlega bjóða í sig. - En myndi hann taka að sér stöðu heilbrigðisráðherra fyrir Al- þýðuflokkinn? „Já, það hugsa ég. Ég hef ekki hugsað út í það en það kæmi vel til greina. Ég hef gaman af spennandi verkefnum, skipuleggja og reyna að leysa, og það passar inn í það mynstur,“ segir hann. -GHS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.