Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1996, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1996, Blaðsíða 33
Reykjavíkur maraþon 18. ágúst: Nokkur holl ráð fyrir morgundaginn trímm LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996 11. vika 18/8-24/8 10 km 21 km 42 km Sunnudagur Reykjavíkur maraþon Reykjavíkur maraþon Reykjavíkur maraþon Mánudagur 2-4 km 2-4 km 2-4 km ról. til að ná úr sér strengjum ról. til að ná úr sér strengjum ról.tilaöná úr sér strengjum Þriðjudagur Sund og heitir pottar Sund og heitir pottar Sund og heitir pottar. Miðvikudagur 2-4 km ról. 2-4 km ról. 2-4 km ról. Fimmtudagur Hvíld Hvild Hvíld Föstudagur Sund Sund Sund Laugardagur 2-4 km ról. 2-4 km ról. 2-4 km ról. Samt.: 16-22km 27-453 km 48-54 km Umsjón Ólafur Geirsson Farið endilega í pasta-veisluna í kvöld og birgið ykkur upp af pasta. Verið í góðu skapi og hittið hlaupafélaga ykkar og ræðið mál- in á léttu nótunum. Farið frekar snemma að sofa. Hlaupið hefst kl. 11.00 þannig að þið ættuð að fara á fætur ekki seinna en 7.45. Ágætt er að drekka te og fá sér 1-2 ristaðar brauð- sneiðar með sultu eða marmelaði. Sumir þola það vel að fá sér kaffi en það verður hver og einn að meta sjálfur. Kaffið get- ur hleypt meltingarstarf- seminni af stað hjá sum- um. Ef hungriö sverfur að er ágætt að fá sér banana. Það verður þó að gæta þess að þeir eru mjög sað- samir og við ættum helst ekki að borða þá seinna en tveimur tímum fyrir hlaup. Ágætt er að drekka dálítið af vatni af og til þar til klukkutími er í hlaup. Þetta á þó sérstaklega við um lengri vega- lengdir. Athugið! Þið skuluð varast allar tilraunir með mat kvöldið áður eða sama dag og hlaupið fer fram. T.a.m. að borða eitthvað sem þið eruð ekki vön að borða. Verið mætt í hlaupið tímanlega. Verið jákvæð. Teljið ykkur trú um að þið séuð í frábæru formi og að ykkur líði ffábærlega vel. Þetta er dagurinn ykkar. Nú er stóra stundin runnin upp! Hitið upp með léttu skokki og teygjum. Tak- ið mið af veðri með fatnað i huga. Það er ekkert sniðugt sem sumir halda að klæða sig mikið í mikilli rigningu. Fötin gegnblotna hvort sem er. Betra er að smyrja sig með olíu og feiti og hlaupa léttklæddur. Smyrjið alla núningsfleti, s.s nára, geirvörtur og undir handarkrika með vaselíni. Klæðist sokkum úr bómull og ágætt er að bera talkúm (Baby Johnsons powder) á tæmar. Viðkvæmar tær er ágætt að verja með plástri. Bindið tvö- faldar skóreimar! Verið tilbúin með tímaáætlun og fylgið henni. Munið að geysast ekki af stað í byrjun. Það er næg- ur tími til stefnu. Náið ykkur í vökva um leið og í mark er komið. Farið fheitt bað eða heita potta og bG^öið, góða máltíð um kvöldið. Þöfj.sém hlaupa fullt maraþon aéÉþi áð taka það rólega næstu 3 vikumar og taka engar hraðaæf- ingar á því tímabili. Til hamingju með daginn og Gangi ykkur vel! Jakob Bragi Hannesson Reykjavíkur- j Hvað gerir hreyf- ing fyrir iíkamann? Blaöið hefur að undanfórnu : og reyndar undanfarin ár hald- ið úti svokallaðri Trimmsíðu. j Þar hefur verið hvatt til hreyf- : ingar og útivera af öllu tagi. En r hvers vegna? Nú vita það allir, | jafnt skokkarar sem kyrrsetu- menn af hugsjón, að hreyfing j og líkamsáreynsla getur oft ver- i ið leiðinleg og mesta böl að því : manni finnst. Hér á eftir koma nokkrir punktar um atriði sem almennt era viðurkennd um tengsl og gagnsemi hóflegrar hreyfingar I fyrir líkamann. Mikill fjöldi rannsókna hefur sýnt fram á að regluleg, hófleg hreyfing, eins og gönguferðir, : skokk, sund, skíðaganga og aðr- s ar greinar, sem auka þol, er holl. Álag eykst á hjarta, lungu og blóðrás og við það eykst flutningur súrefnisríks blóðs til vöðvanna. Vitað er að með reglulegum æfingum verða breytingar á 1 starfsemi hjartans. Það stækk- 1 ar og dælir meira blóði en ella. Regluleg hreyfing hefur já- S kvæð áhrif á blóðþrýsting, þ.e. S hann lækkar. Fólki með of | háan blóöþrýsting er ráðlagt að í hreyfa sig meira, en í samráði | við lækni sinn. Regluleg hreyfing virðist | hafa góð áhrif á fitusamsetn- ingu blóðsins, þannig að þau fitueftii sem tengd eru æðakölk- im (kólesteról) lækka og önnm- jákvæðari fituefni hækka hlut- * fallslega. Tvöfaldan hnút á skóreimamar Spennan eykst stöðugt og nú er loks komið að stóru stundinni. Reykjavíkurmaraþonið verður á morgun. Við tíndum saman nokkra mola sem komið geta þátttakendum að gagni þessar síð- ustu stundir fyrir hlaupið. Þar njótum við góðs af reynslu og kunnáttu manna eins og Sigurðar P. Sig- mundssonar, ritstjóra Hlauparans, íslands- methafa í maraþon- hlaupi og margfalds ís- landsmeistara. 1. Takið það rólega síðasta daginn fyrir hlaupið. 2. Leggið áherslu á kolvetnaríka fæðu, svo sem kartöflur, hrísgrjón, pasta, brauð og ávexti. Drekkið meira vatn en venjulega. Borðið frekar lítið í kvöld. 3. Farið ekki á fætur síðar en þrem klukkustundum fyrir hlaup. Gott er að byrja daginn á 10-15 mín- útna göngutúr til að koma líkams- starfseminni í gang. Síðan er gott að fá sér léttan morgunmat, til dæmis komflögur eða ristað brauð. Reynið ekkert nýtt. 4. Farið yfir þann útbúnað sem þið ætlið að hafa með ykkur á hlaupastað, fatnað og þess háttar. Hitið ekki upp í keppnistreyjunni. 5. Berið vaselín eða aðra feiti á þá staði líkamans sem veröa fyrir nún- ingi. Þeir sem auðveldlega fá blöðr- ur á fætur ættu að verja sig sem mest meö plástrum. 6. Hitið upp með léttu skokki eða teygjum í 10 til 15 mínútur. Á rá- slínu skulið þið athuga hvort allt er á réttum stað, rásnúmer í skorð- um, skórnir vel reim- aðir með tvöfoldum hnút o.s. frv. 7. Farið ykkur aö engu óðslega í byrjun hlaupsins. Farið eftir ykkar timaáætlun. Munið að þið erað að hlaupa ykkar hlaup en ekki annarra. Æskilegt er að koma sér í sam- flot með öðrum. Það er skemmtilegra og auð- veldar líka hlaupið. 8. Þörfin á drykkjum fer eftir veðri. Byrjið ekki að drekka of seint og drekkið oft en lítið í einu. Ágætt er að drekka til skiptis blandaða drykki og vatn. 9. f löngu hlaupi er nauðsynlegt að dreifa huganum frá þreytunni. Reynið að festa hugann við eitthvað annað. Gefist ekki upp þó móti blási. Dragið frekar úr hraðanum og endurskoðið tímaáætlun ykkar. 10. Eftir að i mark er komið er mikivægt að halda sér á hreyfingu og fara strax í utanyfirfót. Drekkið strax eftir hlaupið. Góða skemmtun! r Gagnlegar upplýs- ingar um aðstöð- una í miðbænum Fyrir hlaupið IBúningsaðstaða er opin fyrir þá sem þess æskja í Miðbæjar- skólanum frá kl. 9.30. Athugið að þar er ekki baðaðstaða. I Rásnúmer í'yrir hlaupara í ! heilu maraþoni eru frá 1 og upp í 199 og þau era græn að lit. 1 Númer hlaupara í hálfmara- þoni eru rauð og era frá 200 til | 699. Bláu númerin era fyrir 10 km hlaupara og nú frá 700 og upp í 2199. Skemmtiskokk- arar eru með hvít númer og I fyrir ofan 2200. ' í bílageymslu Ráðhússins | verða plastpokar, merktir : Reykjavíkurmaraþoni og Plast- | os. í þá verður hægt að setja föt og geyma á meðan á hlaupinu j stendur. I hlaupinu Fylgið öllum leiðbeiningum brautarvarða og lögreglu. Blá strik á götu visa leið á gatna- mótum. Hlaupið á götunni Ísjálfri, ekki gangstéttum. Drykkjarstöðvar eru merktar með D á korti. Notfærið ykkur það sem þar er boðið. Ef heitt er í veöri er nauðsynlegt að drekka vel einkum fyrir þá sem hlaupa lengri vegalengdir. Lög- regla og hjálparsveitir skáta verða á hlaupaleiðinni og við markið ásamt heilsugæsluliði. Ef hlauparar þurfa á aðhlynn- ingu að halda, hafið þá sam- band við þessa aðila. Látið heilsugæslufólk líta á öll meiðsli þegar komið er í mark. Eftir hlaupið í endamarki verður boðið upp á vatn og íþróttadrykk. Munið að festa rásnúmerin að framan og nælið ekki í afrif- ið, sem afhenda á við enda- ! mark. Margrét Jónsdóttir, íþróttakennari og hótelhaldari: Hlaupið eins og niótið þess „Njótið útiverunnar, njótið sam- verunnar með öllu þessu fólki sem þátt tekur í hlaupinu. Hlaupið eins og líkami ykkar „segir“ ykk- ur að þið getið, hlustið á eigin sál og hjarta. Njótið stundarinnar, hugsið ekki of mikið um tímann sem þið hlaupið vegalengdina á, gleðjist fremur yfir að geta verið með.“ Það er Margrét Jónsdóttir íþróttakennari, núverandi hótel- haldari og einn af brautryöjendum almenningsíþrótta sem lætur þessi orð falla. Við báðum um veganesti til þeirra sem á morgun ætla að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu. Sjálf ætlar hún að hlaupa hálfmara- þon. „Ég hef verið í miklum önnum að undanfornu og oft verið betur undirbúin. En ég ætla samt að taka þátt og njóta þess ásamt þeim þús- undum sem þar verða." - En hvenær tók Margrét fyrst þátt i Reykjavíkurmaraþoninu? „Það var árið 1985. Við fórum saman, ég og miösonurinn, eflefu ára. Vegalengdin á skemmtiskokk- inu þá var 7 km og í það skráðum við okkur. Þetta var frumraun okk- ar beggja og svo fór að strákurinn, 11 ára, vann mömmu sfna. Ári síðar kom síðan að því að við ákváðum að skella okkur í hálft maraþon, ég og Bryndís vinkona mín. Við vorum á námskeiði í Bandaríkjunum um hreyfingu og al- menningsíþróttir og fannst viðeig- andi að taka nú góðan þátt í mara- þoninu þegar heim var komið. Við fórum þennan rúma 21 km og eftir á séð þá var ég ekki nægflega vel undir það búin líkamlega. Þjálf- unin var ekki næg og ég hafði um það efasemdir hvort það væri yfir- leitt hollt að hlaupa svona langt. í dag veit ég að vel þjálfuð og heil- brigð manneskja á auðvelt með að leggja 21 km að baki,“ segir Margrét Jónsdóttir. Síðan þetta gerðist hefur hún ávallt tekið þátt í Reykjavíkurmara- þoni að árinu 1991 undanskildu. Þá brá Margrét sér í ferð um sviss- nesku Alpana. hjartað og segir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.