Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1996, Qupperneq 50
5, ‘teikmyndir
Sam-bíóin - Flipper:
Fjörugur höfrungur
Flipper er hugljúf kvikmynd af gamla skólanum
enda er handritið gert eftir gömlu kvikmyndahand-
riti. Aðalpersónur myndarinnar eru þrjár, borgar-
barnið Sandy, frændinn Porter og höfrungurinn
Flipper. Sandy er sendur nauðugur til frænda síns
á fallega eyju utan við strendur Flórída. Sandy er í
fýlu þegar þangáð kemur enda hefði hann frekar
kosið að fara á konsert með Red Hot Chili Pepper.
Þegar hann kemur til eyjarinnar hefur hann samt
ekki gefið upp á bátinn að komast á konsertinn og hefur í hyggju að strjúka.
Á eyjunni býr Porter, fyrrum rótari hjá Beach Boys, sem hefur gefið upp á bátinn
borgaralegt líferni og gerst sjómaður. Frændinn reynist skemmtilegri en Sandy átti
von á en það kemur þó ekki í veg fyrir að hugur hans sé enn við strokið.
Fyrir utan eyjuna hefur höfrungurinn Flipper orðið fyrir áfalli og er nú eins og
Sandy einn á báti. Flipper sýnir mikinn lit í að vingast við Sandy og þegar frændinn
hefur komið í veg fyrir strokið sættir Sandy sig við örlög sín og mikill vinskapur
tekst á milli hans og Flippers.
Sagan sem sögð er gæti eins verið tekin úr teiknimyndabók fyrir böm sem hefði
verið í gangi í fjölda ára, slík eru framlegheitin eða hitt þó heldur. Allt er samkvæmt
bókinni og það er allt of stutt síðan Free Willy var og hét til að koma með aðra sem
nánast er nákvæmlega eins uppbyggð.
Lítið hefur borið á Paul Hogan síðan hann lék í Krókódíla-Dundee og þótt hann sé
eins og skapaður í hlutverkið útlitslega séð þá er leikur hans einstaklega stirður og
það sama má segja um flesta aðra leikara. Þeir eru allir utangátta og er þar helst um
að kenna andlausu handriti og slakri leikstjórn. Það er aðeins Flipper sem skemmt-
ir sér vel og kann að meta athyglina sem hann fær.
Lelkstjóri og handritshöfundur: Alan Shapiro. Kvikmyndun: Bill Butler. Tónlist: Joel McNeely.
Aöallleikarar: Elijah Wood, Paul Hogan, Chelsea Field og Isaac Hayes.
Hilmar Karlsson
Sam-bíóin - Tveir skrýtnir og einn verri:
Moðhausar
Þegar Peter Farrelly leikstýrði hinni vinsælu
Dumb and Dumber hafði hann innanborðs Jim
Carrey, sem er eins og segull á hláturtaugar, og
auk þess var samleikur Carreys og Jeffs Daniels
skínandi góður. Peter Farrelly ásamt bróður sínum
Bobby eru á líkum slóðum í Tveir skrýtnir og einn
verri (Kingpin). Tveir moðhausar á ferð um Banda-
ríkin á leið í keilukeppni en nú bregður svo við að
í stað farsagríns er myndin oft á gráa svæðinu í
húmornum sem stundum virkar en stundum ekki og Woody Harrelson og Randy Qu-
aid hafa ekki sama aðdráttaraflið og Jim Carrey og Jeff Daniels þegar kemur að kó-
míkinni. Á móti kemur að persónurnar eru dýpri og þótt ekki sé hægt að segja að
þeir félagar séu venjulegir menn þá eiga þeir meira sameiginlegt með venjulegu fólki
en þær persónur sem Carrey og Daniels léku.
Umgjörð myndarinnar er keiluiþróttin. Woody Harrelson leikur efnilegan keilu-
spilara, Roy Munson, sem verður fómarlamd sér reyndari spilara, sá eyðileggur fer-
il hans á ruddalegan hátt. Sautján árum síðar er Munson i ræsinu, vinnur fyrir sér
sem sölumaður en hefur meiri áhuga á flöskunni. Dag einn sér hann hinn unga
Amish-mann, Ismael, sem hefur ótrúlega hæfileika í keilu. Með þrjóskunni fær
Munson hann til að koma með sér á milljón dollara keilukeppni í Reno. Sú ferð verð-
ur að sjáffsögðu skrautleg.
Töluvert reynir á leikhæfileika Woodys Harrelsons og nær hann ágætlega að lýsa
hinum misheppnaða keiluspilara en verður stundum eins og illa gerður hlutur í at-
riðum sem eiga að vera fyndin en eru það ekki, það sama má segja um Randy Quaid,
sum atriðin eru einfaldlega ekki nógu fyndin fyrir fiflalætin í honum. Bill Murray er
aftur fæddur gamanleikari. í löngu og frekar einhæfu lokaatriði í keiluhöllinni bjarg-
ar hann málunum og er gervi hans þar sérlega kómískt.
Lelkstjórar: Peter Farrelly og Bobby Farrelly. Handrlt: Barry Fanaro og Mort Nathan. Kvikmyndataka:
Mark Irwln. Tónllst: Freedy Johnston.
Aöallelkarar: Woody Harrelson, Randy Quald, Bill Murray og Vanessa Angel.
Hilmar Karlsson
Laugarásbíó - Mulholland Falls:
Töffarar í flottum fötum
Nýsjálenski leikstjórinn Lee Tamahori skaust
upp á sjónarsviðiö með sinni frábæru kvikmynd,
Once Were Warriors, sem fjallaði á einstaklega
kröftugan hátt um líf frumbyggjaijölskyldu í borg á
Nýja-Sjálandi. Tamahori hefur nú flutt sig yfir til
Bandaríkjanna í kjöffar frægðarinnar og er Mulhol-
land Falls fyrsta kvikmynd hans þar.
Það er erfitt að sjá að það sé sami leikstjórinn
sem leikstýrir Mulholland Falls og Once Were Warriors. Það er ekki bara að bak-
grunnur myndanna sé ólíkur heldur eru stílbrigði og áherslur ólíkar. Þá hefur kraft-
urinn í fyrri myndinni horfið í skugga fagmennskunnar og það er bæði galli og kost-
ur Mulholland Falls hversu áferðarflott hún er. Hefur Tamahori verið fljótur að til-
einka sér hin vönduðu vinnubrögð sem eru einkenni betri leikstjóra i Hoflywood.
Þessi flotta áferð, skemmtilegar persónur, sem að vísu lítið er kafað ofan í, kemur
niður á spennu. Sagan sem sögð er gefur svo sannarlega tilefni til mikillar spennu
en myndin nær þó aldrei almennilegu flugi sem spennumynd, allt er nokkuð fyrir-
sjáanlegt og alls ekki reynt að nota tæknina til að skapa spennu.
Aðalpersónurnar eru íjórar löggur sem halda hópinn og sinna störfum sínum með
stæl, hafa sínar reglur sem þær fara eftir og láta sig litlu varða þótt ekki séu þær
samkvæmt bókinni. Þær eru ákafalega flott klæddar og aflar með hatta. Mulholland
Fafls gerist á fimmta áratugnum þegar ímynd töffarans var Humphrey Bogart, með
hatt og sigarettu. Þessir fjórir töffarar eru í góðum höndum þeirra Nicks Nolte Chazz
Palminteri, Michaels Madsens og Chris Penns sem eru hver öðrum betri og gefa
myndinni góðan heildarsvip.
Mulholland Falls verður aldrei talin meðal mestu spennumynda en hún hefur sína
kosti. Sviðsetningin er frábær og vekur upp endurminningar um klassíkina í gerð
sakamálamynda, búningar eru glæsilegir, stundum þó um of, og Haskell Wexler sýn-
ir enn einu sinni hversu magnaður kvikmyndatökumaður hann er.
Lelkstjóri: Lee Tamahori. Handrit: Pete Dexter. Kvlkmyndataka Haskell Wexler. Tónlist: Dave Grusin.
Aöalleikarar: Nick Nolte, Melanle Grifflth, Chazz Palminteri, Michael Madsen, John Malcovlch og
Chrls Penn. Hilmar Karlsson
LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996
Háskólabíó:
Auga fyrir auga
get vel gert mér það i hugarlund hversu reiðin
tekur völdin í örvæntingarfullri tilraun til að
láta réttlætið ná fram að ganga.“
Handritið að myndinni skrifuðu hjónin Am-
anda Silver og Rick Jaffe og til að fá sem besta
innsýn i hugarheim fólks sem hefur orðið fyrir
skyndilegum ástvinamissi fóru þau á fundi hjá
líkum hópum og lýst er í myndinni og urðu fyr-
ir miklum áhrffum. Þar heyrðu þau sams konar
sögur úr raunveruleikanum og sagt er frá í
myndinni þar sem morðinginn gengur burt, laus
allra mála, vegna þess að sannanir voru af skorn-
um skammti og snjallir lögfræðingar fengu þá
lausa eða hroðvirknisleg vinnubrögð hjá ákæru-
valdinu gerðu réttarhöldin ógild.
Auk Sally Field leika í myndinni Ed Harris,
sem leikur eiginmann Karenar, Kiefer Suther-
land, sem leikur morðingjann, Joe Mantegna,
sem leikur lögregluforingja, og Beverly D’Angelo
sem leikur samstarfskonu Karenar.
-HK
Sally Field leikur móður sem
þarf að horfa upp á það
að morðingi dóttur
hennar sleppur viö
refsingu vegna
formgalla.
Háskólabíó frumsýndi í vikunni Auga fyrir
auga (Eye for an Eye) sem leikstýrt er af John
Schlesinger. í myndinni leikur Sally Field ham-
ingjusamlega gifta tveggja barna móður, Karen
McCann. Á afmælisdegi yngri dóttur sinnar
verður hún vitni að því í gegnum síma þegar
maður brýst inn á heimili hennar og myrðir
eldri dótturina. Við þetta hrynur lífsmunstm-
hennar og ekkert kemst að hjá henni annað en
morðinginn. Eiginmaðurinn og vinir hennar
reyna að beina hugsunum hennar í aðra átt og
reyna að telja henni trú um að hún verði að lifa
lífinu en með litlum árangri. Morðinginn, ungur
maður sem stóran hluta lífs sins hefur setið inn-
an rimla fangelsins, næst en vegna formgalla er
honum sleppt. Við það verður þráhyggja Karen-
ar enn meiri og fer hún að fylgjast með morðingj-
anum og setur um leið sjáffa sig og fjölskyldu
sína í hættu.
Myndin er gerð eftir skáldsögu Eriku Holzer,
sem bæði er blaðamaður og lögfræðingur, og er
undirstaða myndarinnar, sem og bókarinnar, sá
tvískinnungur sem felst í því að enginn er sekur
fyrr en s^nnað er. Samt er réttarkerfið svo
gallað að sekur maður á engu að síður
möguleika á að sleppa og af því
stafar sú mikla reiði sem gripur
fólk þegar það sér meintan
morðingja fara frjálsan
ferða sinna vegna ein-
hverra smámistaka í
kerfinu. Gamla boð-
orðið auga fyrir
auga verður þá
skiljanlegra. „Það
hefur aldrei
neinn mér ná-
lægur verið
myrtur svo ég
veit ekki
hvernig til-
finning það
er,“ segir
John
Schles-
inger.
„En
ég
John Schlesinger:
Glæsilegur ferill
John Schlesinger á glæsileg-
an og langan feril að baki og
þótt myndir hans hafi ekki all-
ar fengið náð hjá gagnrýnend-
um hefur hann gert margar úr-
valsmyndir sem hafa skráð
nafn hans í kvikmyndasöguna
til framtíðar. Schlesinger
fæddist í London og þar hóf
hann feril sinn með þvi að gera
stuttmyndir fyrir BBC. Meðal
hans fyrstu mynda var heim-
ildarmyndin Terminus sem
vann til margra verðlauna,
meðal annars Gullljónið á
kvikmyndahátíðinni i Venus.
Fyrsta leikna kvikmynd
Schlesinger var A Kind of Lov-
ing með Alan Bates. Sú mynd
vann Gullbjörninn í Berlín.
Næsta kom Billy Liar. í aðal-
hlutverki var Tom Courtney
en ung leikkona, Julie
Christie, háði þar frumraun
sína. Þriðja mynd hans var hin
feykivinsæla Darling sem
gerði Julie Christie að stór-
stjörnu. Fyrir þá mynd var
Schlesinger valinn besti leik-
stjórinn af kvikmyndagagn-
rýnendum í New York og nú
fékk hann sína fyrstu óskar-
stilnefningu. Fjórðu kvikmynd
sína, Far From the Madding
Crowd, gerði John Schlesinger
einnig í Englandi og fékk sú
mynd mjög góða dóma. Nú
voru Bandaríkjamenn búnir að
fá áhuga á Schlesinger og strax
með sinni fyrstu kvikmynd
vestan hafs sló hann í gegn.
Myndin var Midnight Cowboy
með þeim Dustin Hoffman og
Jon Voight. í kjöffarið fylgdu
margar úrvalsmyndir, Sunday,
Bloody Sunday, The Day of the
Locust, Marathon Man, The
Falcon and the Snowman, The
Belivers og Pacific Heights,
svo að einhverjar séu nefndar.
John Schlesinger hefur
alltaf unnið í sjónvarpi og á
leiksviði með kvikmyndagerð-
inni og hefur í gegnum árin
leikstýrt bæði hjá The Royal
Shakespeare Company og
National Theatre. Þá hefur
hann einnig leikstýrt óperum í
Covent Garden, meðal annars
uppfærslu á Ævintýrum
Hoffmans með Placido Dom-
ingo.
-HK