Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1996, Side 56

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1996, Side 56
Alla laugarúaga Vertu viðbúin(nj vummgi! Föstudagur 16.08.1996 24)®{30) KIN s: ix3 <a: FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996 Veitingahúsin skoðuð: Ólögleg starfsemi svæld út „Þetta snýst um fikniefni, ólög- legt áfengi og hugsanlega vöruskipti á þýfi í einhverjum tilfellum. Stað- irnir eru auðvitað afskaplega mis- munandi en við munum taka nokkra fyrir í einu. Það er ljóst að við munum hafa þessa veitingastaði undir smásjánni alla helgina,“ segir Friðrik Gunnarsson aðstoðaryfir- lögregluþjónn í samtali við DV. Fíkniefnalögreglan í Reykjavík fór í leit á Hafnarkránni í gær og að sögn Kristjáns Inga Kristjánssonar hjá fíkniefnadeildinni var einn handtekinn þar með fíkniefni. Að auki fannst haglabyssa, kylfa og töluvert af debetkortum og persónu- skilríkjum á kránni. Lögreglan í Reykjavík boðar að hún muni líta stift til með ákveðn- um veitingahúsum í bænum til þess að reyna að „svæla út þá ólöglegu starfsemi sem farin er að viðgangast á þessum stöðum", eins og það var orðað við DV í gær. -sv Frumsýnum nýjan Nissan Terrano I1197 Verð frá kr. 2.498.000.- • Inavar Jttth Helgason hf. fWEgmi : Savarhofða 2 Simi 525 8000 EINN BJÓR OG EITT DEBETKORT, TAKK! Alvarlegt ástand fram undan á vestanverðum Vestfjörðum í vetur: Hvergi læknir nema á ísafirði - alveg burtséð frá yfirstandandi læknadeilu, segir Sighvatur Björgvinsson „Alveg burtséð frá yfirstand- andi læknadeilu steftiir í að lækn- islaust verði á öllum vestanverð- um Vestfjörðum nema á ísafirði. Það hljóta allir að sjá að hér er um gríðarlega alvarlegt mál að ræða, sem finna verður lausn á með ein- hverjum hætti,“ sagði Sighvatur Björgvinsson, þingmaður Vestfirð- inga, í samtali við DV. Hann segir að læknar sem hafa verið fastráðnir vestra séu að hætta störfum og flyfja burt og það tengist alls ekkert læknadeilunni. „Yfirlæknirinn á heilsugæslu- stöðinni í Bolungarvík og jafn- framt héraðslæknir Vestfjarða, Ágúst Oddsson, hefúr sagt upp störfum. Hann er á forum eftir fáar vikur. Það er ekki vitað um neinn lækni sem hefur sýnt vilja til að taka við þessu starfi. Það eru lækn- ishéruð bæði á Þingeyri og Flat- eyri. Þar voru læknar en nú er bara annar eftir, á Flateyri, og hann hefur sagt upp störfum og er á forum. Ekki er vitað um neinn sem tekur við af honum. Héraðs- læknirinn á Patreksfírði er að hætta. Hann gerir það ekki síst vegna ágreinings út af sjúkrahús- inu sem hefur lent undir niður- skurðarhnífnum," sagði Sighvatur. Þar með verður orðið læknis- laust á Patreksfirði, Tálknafirði, Bíldudal, Þingeyri, Suðureyri, Flateyri og Bolungarvík og héraðs- læknislaust á Vestfjörðum. Sighvatur segir að þaö hafi tek- ist, á sínum tíma að fá lækna til starfa vegna ákveðinna staðarupp- bóta. Nú hafi þessar uppbætur að mestu verið af þeim teknar. Þá sé mjög mikið álag á lækna sem starfa einir. Þeir komist ekki í frí vegna þess að þeir fái ekki lækna til að leysa sig af. Það blasir afar alvarlegt ástand við þegar vetur gengur í garð, sagði Sighvatur Björgvinsson. -S.dór Hjónin Helgi Sveinbjörnsson og Björg Ólafsdóttir, sem reka dýragarðinn í Slakka í Laugarási í Biskupstungum, segja að sonurinn Egill Óli sofi aldrei betur en við malið í kettlingunum sem lauma sér iðulega í hlýjuna til hans. Kettling- arnir séu afar góðir við hann og geri honum ekki mein þótt sá litli borgi ekki alltaf jafn blíðlega fyrir sig. DV-mynd -rt Reykj avíkurborg: Hátíðahöld fram á nótt Það verður mikið um að vera í miðbæ Reykjavíkur í nótt. í tilefni 210 ára afmælis borgarinnar verður nóttin helguð menningu og um all- an miðbæinn mun hljóma tónlist auk þess sem leikrit verða sýnd og í flestum kaffihúsum og galleríum miðhæjarins hafa verið settar upp ýmiss konar listaverkasýningar. Menningarnóttin stendur til kl. 3.00 og margar verslanir miðbæjarins ætla að hafa opið til miðnættis. Ókeypis verður í bílastæðahúsin og strætisvagnar munu fjölga ferðum sínum talsvert. Á morgun er svo sjálfur afmælis- dagurinn og ekki verður minna um að vera í borginni þá. Reykjavíkur maraþon verður hlaupið og afmæl- isdagskráin heldur áfram allan lið- langan daginn. -ilk Lést eftir umferðarslys Karlmaður lést af völdum áverka sem hann hlaut eftir að hafa ekið á ljósastaur á Kringlumýrarbraut í fyrradag. -sv Veörið á morgun: Víðast þurrt Á morgun verður austan- og norðaustankaldi eða stinningskaldi og rigning og súld við suðaustur- og austurströndina. Annars staðar skýjað með köflum og víðast þurrt. Hiti verður á bilinu 7 til 15 ast sunnanlands og vestan. Veðrið i Veðrið á mánudag: Hlýjast sunnanlands Á mánudag er búist við kalda eða rigningu, einkum norðanlands og austan, þó verður þurrt sums staðar. Bjart verður annars staðar. Hiti verður á bilinu 6 til 13 stig, hlýjast sunnanlands.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.