Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Qupperneq 2
2 %éttir
LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1996 JLlV
Ökumaöur jeppa á breiðum hjólbörðum kærður fyrir 145 kílómetra hraðakstur:
Mældu meiri hraða
en bíllinn gat ekið
- var sýknaður af kröfu um ökuleyfissviptingu
Samkvæmt nýuppkveðnum dómi
Héraðsdóms Vesturlands mældi
lögreglan meiri hámarkshraða á
jeppa heldur en hann gat tæknilega
náð þegar hún kærði ökumanninn
fyrir of hraðan akstur og krafðist
þess að hann yrði sviptur ökurétti á
siðasta ári. Hann var því sýknaður
af sakargiftum um að hafa ekið bíl
sínum, sérútbúnum og upphækkuð-
um jeppa, á 145 kílómetra hraða
eins og mæling lögreglunnar gaf til
kynna.
Þegar lögreglan á Snæfellsnesi
var við umferðareftirlit á Ólafsvík-
urvegi í Bjarnarborgarhrauni þann
16. júlí 1995 kom jeppi akandi úr
gagnstæðri átt. Þarna er leyfilegur
hámarkshraði 90 kílómtrar á
klukkustund.
Framburður lögreglumanna var
á þá leið að þeir töldu sig hafa mælt
hraða jeppans þegar „nokkur
hundruð metrar, kílómetri eða jafn-
vel lengra" var í að bílarnir mætt-
ust. Samkvæmt ratsjá mældist jepp-
inn hafa verið á 145 kílómetra
hraða.
Þegar tal var haft af bílstjóranum
kvaðst hann undrandi - hann hefði
ekið á 105 kílómetra hraða sam-
kvæmt hraðamæli bílsins. Hann fór
fram á prófun á vettvangi og þegar
hraðamælir bíls hans sýndi 90 kíló-
metra hraða mældi lögreglan hann
á 94. í apríl síðastliðnum - 9 mánuð-
um síðar - var manninum boðið að
ljúka málinu með sekt og sviptingu
ökuréttar í einn mánuð. Hann hafn-
aði því og var málinu þá skotið til
Héraðsdóms Vesturlands.
Billinn, Nissan Patrol, var breytt-
ur þegar hann var mældur - upp-
hækkaður á stærri hjólbörðum.
Ökumaðurinn hélt því fram að
þannig gæti bíllinn ekki náð upp-
gefnum hámarkshraða því viðnám-
ið hefði aukist eftir breytingu. Við
rannsókn málsins var lagt fram
bréf frá Ingvari Helgasyni hf. þar
sem fram kom að hraði sams konar
bíls - sem ekki hefði verið breytt -
gæti mestur orðið 145 kílómetrar á
klukkustund. Dómurinn taldi því
að „eöli málsins samkvæmt" hefðu
fyrrgreindar breytingar valdið því
að sá hraði gæti ekki náðst á hinum
breytta jeppa.
Dómurinn taldi samkvæmt þessu
varhugavert að leggja hraðamæl-
ingu lögreglunnar til grundvallar í
málinu - því væri ósannað að jepp-
anum hefði verið ekið eins hratt og
mælingin gaf til kynna. Einnig var
tekið mið af því að mælingin hefði
verið framkvæmd úr allt að eins
kílómetra fjarlægð og jafnvel meiri
- samkvæmt skýrslu um ratsjár-
mælitæki frá 1986 segir að almennt
megi mæla í allt að 800 metra fjar-
lægð.
Niðurstaðan varð því sú að byggt
var á framburði ökumannsins,
hann hefði ekið á 105 kílómetra
hraða. Honum var því gert að
greiða 8 þúsund króna sekt en hann
slapp við sviptingu. Ríkissjóður
greiðir 5/6 hluta málskostnaðar
sem var samtals 90 þúsund krónur.
-Ótt
Ólympíumótið:
Fjögur
komin
í höfn
Ólafur Eh’íksson og Kristín
Rós Hákonardóttir unnu bæði
| til bronsverðlauna á Ólympíu-
: móti fatlaðra í fyrrinótt. Ólafur
I synti á 100 metra skriðsund á
1:01,69 mínútum og setti nýtt ís-
landsmet. Ki’istín Rós synti 100
I metra skriðsund á 1:22,87 mín-
I útum sem er íslandsmet.
í dag keppir Geir Sverrisson
j í úrslitum 400 metra hlaups og
jjj Haukur Gunnarsson til úrslita í
| 200 metra hlaupi. íslenska
S; keppnisfólkið á mótinu í Atl-
I anta hefur unnið til átta verð
I launa, fengið fjögur gtdl, eitt
silfur og þrjú brons. Ólympíu-
| mótinu lýkur á morgun.
-JKS
Skólinn undirbúinn
Nú styttist í að æska landsins setjist á skólabekk og innbyröi fróöleik af ýmsu tagi. Til aö vel megi takast þarf marg-
vísleg hjálpartæki eins og stílabækur, strokleöur, blýanta, skólatöskur, pennaveski, yddara og reglustikur. Þegar Ijós-
myndari DV var á ferðinni í Kringlunni ■ vikunni rakst hann á Dominique Elísabet þar sem hún var aö skoöa penna-
veskjaúrvaliö í Hagkaupi ásamt móður sinni. Af nógu var að taka enda tískan fjölbreytt í þeim efnum. DV-mynd JAK
KR mætir AIK í Evrópukeppni:
„Við eigum möguleika"
- segir Lúkas Kostic, þjálfari KR-inga
Enski boltinn:
KSÍ kom í
veg fyrir út-
sendingu
Sjónvarpsins
Ekkert verður af beinni útsend-
ingu í dag í Ríkissjónvarpinu frá
ensku knattspymunni vegna leiks á
milli Leiknis og Skallagrims í 2. deild
og úrslitakeppni 4. deildar. Knatt-
spymusamband íslands, KSÍ, fór
fram á þetta við íþróttadeild Ríkis-
sjónvarpsins og vitnaði til samnings
þessara aðila um að sýna ekki frá
knattspymuleikjum erlendis á með-
an leikir í efstu deildum hér heima
fara fram.
„Það er tiltekið sérstaklega í samn-
ingnum við KSÍ að þetta eigi við um
leiki i 1. deild karla og kvenna. Þar
sem ekki voru leikir í þessum deild-
um ákváðum við að sýna einn leik
beint og sendum KSÍ bréf þar um. En
við fengum þá beiðni að sýna ekki
beint og urðum við henni, nauðugir
viljugir. Við vildum einfaldlega ekki
efna til átaka við KSÍ að svo stöddu,"
sagði Ingólfúr Hannesson, forstöðu-
maður íþróttadeildar Ríkissjónvarps-
ins, í samtali við DV.
Eggert Magnússon, formaður KSÍ,
sagði við DV að það væri hlutverk
sambandsins að standa vörð um
hagsmuni íslenskrar knattspyrnu.
Til langs tíma hafi það verið regla að
Ríkissjónvarpið sýndi ekki beint frá
ensku knattspymunni fyrr en vertíð-
inni hér heima væri lokið. Síðan
væm komnar reglur frá UEFA sem
kvæðu fastar að orði.
„Þetta er í fyrsta sinn sem reynir
alvarlega á þessa samninga og við
munum fjalla nánar um þessi mál á
stjómarfundi í dag,“ sagði Eggert.
KR-ingar mæta sænska liðinu
AIK frá Stokkhólmi i 1. umferð Evr-
ópukeppni bikarhafa í knattspymu
en dregið var á mótinu í Sviss í gær.
Vesturbæjarliðið á fyrri leikinn
heima 12. september en síðari leik-
urinn verður í Stokkhólmi 26. sept-
ember. Möguleikar KR-inga gegn
sænska liðinu eru fyrir hendi en
sænska liðinu hefur vegnað sæmi-
lega í deildinni í sumar. AIK er í
fimmta sæti sænsku úrvalsdeildar-
innar með 24 stig en Gautaborg er í
efsta sæti með 30 stig.
„Þetta sænska lið er ábyggilega
nokkuð sterkt en það vann Gauta-
borg á dögunum, 6-0. Ég verð þó að
segja að mér líst vel á þennan drátt,
þetta gat verið verra. Ef við náum
að leika okkar leik eigum við mögu-
leika á að komast áfram. Þegar öllu
er á botninn hvolft er munurinn á
liðunum kannski ekki svo ýkja mik-
ill. Ég ætla að skreppa utan til Sví-
þjóðar og sjá þetta lið áður en við
mætum þeim heima í fyrri leikn-
um,“ sagði Lúkas Kostic, þjálfari
KR, í samtali við DV í gær. Dráttur-
inn í 1. umferð varð þessi:
Lokomotiv Moskva-Varteks
(Króatíu)
KR, Reykjavík-AIK, Stokkhólmi
Barcelona-Larnaca, Kýpur
Benfica-Chorzow, Póllandi
AEK, Aþenu-Humenne, Slóvakíu
Bistrita, Rúmeníu-Fiorentina
Batumi, Georgíu- PSV, Eind-
hoven Vaduz Liecthenst.-Paris St.
Germain
Nimes, Frakklandi-Kispest, Ung-
verjalandi
Stm-m Graz, Austurr.-Sparta
Prag
Chisinau, Moldavíu-Galatasaray
K’lautern-Red Star, Júgóslavíu
MyPa, Finnlandi-Liverpool
Sion, Sviss-Niva, Úkraínu
AGF, Danmörku-Ljublina, Sló-
veníu
Cercle Brugge-Brann
Stutlar fréttir
Minni gróöi SS
Að teknu tilliti til skatta minnk-
aði hagnaður Sláturfélags Suður-
lands um rúmar 10 milljónir fyrstu
sex mánuði ársins miðað við sama
tíma í fyrra, eða úr 25,7 niður í 15,1
milljón. Veltan jókst hins vegar um
4%, var rúmur 1 milljarður.
Fleiri farþegar
Farþegum i millilandaflugi Flug-
leiða fjölgaði um 12,5% á fyrri hluta
ársins miðað við árið 1995, eða úr
383 í 431 þúsund talsins.
Greiðari aðgangur
íslensk smáfyrirtæki í iðnaði
hafa nú greiðari aðgang en áður að
þróunarsjóðum Evrópusambands-
ins. Kynningarmiðstöð Evrópu-
rannsókna gefa nánari upplýsingar
um máliö.
Hlé í útflutningi
Miðað við fyrstu sex mánuði árs-
ins jókst útflutningur íslenskra iðn-
fyrirtækja, fyrir utan stóriðju, að-
eins um 2% frá því í fyrra. í Vís-
bendingu er bent á að vöxturinn á
þessu sviði hafi verið 11% árið 1994
og 34% árið 1995.
Jafnréttisfræðsla
Landsfundur jafnréttisnefnda
sveitarfélaga hófst í Reykjanesbæ í
gær. Samkvæmt RÚV er umræðu-
efnið hvemig auka megi jafnréttis-
fræðslu í grunnskólum landsins.
Skorað á yfirvöld
Stjóm Félags islenskra sjúkra-
þjálfara hefur sent frá sér áskonm
til stjórnvalda að skera á þann hnút
sem læknadeilan er komin i.
Lækkun í Flugleiðum
Gengi hlutabréfa í Flugleiðum
lækkaði verulega á Verðbréfaþingi í
gær, degi eftir að tilkynnt var um
844 milljóna tap á fyrri hluta ársins.
Bréfm lækkuðu um 13%, gengið fór
úr 3,41 í 2,96. Viðskiptin vom upp á
21 milljón króna.
Stúdentar þinga
Forystumenn samtaka háskóla-
stúdenta á Norðurlöndum koma
saman í Reykjavík um helgina til að
ræða margvísleg sameiginleg hags-
munamál.
-bjb
Þú getur svarað þessari
spurningu með því að
hringja í síma 9041600.
39,90 kr. mínútan
Já
Nel
y rödd
FÖLKSINS
904 1600
Á að rækta
Hólasand upp?
-JKS
-bjb