Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Síða 10
LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1996
Þaö er glatt á hjalla og stundum brugöið á leik aö Suðurlandsbraut 52 en þar hafa saman skrifstofur viöskiptafræöingar, lögfræöingar og bókhaldsráögjafi sem landsþekktir eru fyrir þátttöku sína
í íþróttum og hafa sumir jafnvel verið í atvinnumennsku á því sviöi erlendis. Framararnir Rúnar Gíslason og Eggert Steingrímsson eiga í eilífri varnarbaráttu gegn Völsurunum Olafi H. Jónssyni,
Bergi Guönasyni, Stefáni Gunnarssyni og Brynjari Haröarsyni en Valsarinn Jón Óskar Carlsson hefur á stundum þótt fullhallur undir Framarana. DV-mynd Pjetur
Gamlar keppnishetjur úr Val og Fram vinna saman við Suðurlandsbraut:
Lærðar rökræður um íþróttir
í bland við létt karlaspaug
- eigum undir högg að sækja en berum okkur vel, segir Eggert Steingrímsson Framari
Sá frægi maður Henson geröi mynd sem prýöir vegg inni á kaffistofu og er
afskaplega táknræn fyrir þaö andrúmsloft sem á vinnustaönum ríkir. Hér
stendur Bergur Guönason, elstur Valsaranna, fyrir framan myndina meö bik-
ar sem þeir félagarnir keppa um í golfi. Þetta er nýr bikar, Hennessy-bikar-
inn, því aö Völsurunum tókst aö eignast síöasta bikar meö jafntefli á golf-
móti nýlega. DV-mynd Pjetur
„Við Framaramir emm hrein-
ræktaðir knattspymumenn, Valsar-
amir eru að megninu til handbolta-
menn og orð þeirra vega mun léttar
því að sú íþrótt hefur náttúrlega
enga útbreiðslu miðað viö knatt-
spyrnu í heiminum þannig að það
jafnast fyllilega upp og meira en
það. Vígstaðan breytist alltaf öðm
hverju. Við Framarar eigum svolít-
ið undir högg að sækja af því að við
erum í annarri deild en reynum
náttúrlega að bera okkur vel. Golfið
er það eina sem við keppum í en
hitt eru lærðar rökræður," segir
Framarinn Eggert Steingrímsson
viðskiptafræðingur.
Á annarri hæð í húsinu númer 52
við Suðurlandsbraut em nokkur
fyrirtæki til húsa þar sem starfa
lögfræðingar, viðskiptafræðingar og
bókhaldsráðgjafi og allir eru þeir
þekktir fyrir frægðarferil úr íþrótt-
unum, gamlir keppnismenn í íþrótt-
um, fyrrverandi leikmenn í Val og
Fram og núverandi áhugamenn um
knattspyrnu, handknattleik og golf.
Allir em þeir nú félagsmenn í Golf-
klúbbi Reykjavíkur.
Það eru gömlu kempurnar Rúnar
Gíslason og Eggert Steingrímsson,
knattspyrnumenn úr Fram, og
handbolta- og knattspymumennim-
ir Jón Óskar Carlsson og Bergur
Guðnason úr Val og Ólafur H. Jóns-
son, Stefán Gunnarsson og Brynjar
Harðarson úr Val sem ráða ríkjum
á Suðurlandsbrautinni. Greinilegt
er að þar eru miklir spaugarar á
ferð, menn sem vita að hláturinn
lengir lífið í bland við alvömna
enda njóta þeir félagar þess að ræða
íþróttir af miklum þunga í matar-
og kaffitímum.
Túlkað sem sigur
Umræðumar geta, að sögn Egg-
erts, orðiö „feikilega fjörugar" á
góðri stundu hjá sjömenningunum
á Suðurlandsbrautinni og skeggrætt
um íþróttirnar. Eggert segir að
sporin geti stundum verið þung í
vinnuna þegar vígstaðan hjá Fröm-
urum sé ekki nógu góð. Þeir félag-
amir em þó allir sjóaðir og taka
áhugamálin af mátulegri alvöru og
snúa í glens. Það sést strax og þeir
eru heimsóttir á Suðurlandsbraut-
ina.
Ein er sú íþrótt sem á hug og
hjarta sjömenninganna allra og
jafnvel annarra gamalla félaga úr
íþróttunum og það er golfið. Golfið
er gjarnan til umræðu hjá þeim og
fara þeir oft saman að leika þá göf-
ugu íþrótt. Þeir eru nýkomnir af
golfmóti þar sem gamla mulnings-
vélin í Val lék gegn nokkrum fót-
boltamönnum úr Fram. Mótið end-
aði með jafntefli, 12:12, og segir Egg-
ert að í rauninni hafi allir misst
glæpinn. Valsararnir hafi þó haldið
bikarnum því að þeir unnu mótið í
fyrra. Þetta hafi þeir túlkað sem
nokkum sigur þrátt fyrir jafnteflið.
Jón Úskar þótti
hallur undir Fram
Það er oft glatt á hjalla á Suður-
landsbrautinni, mikið glens og grin
gert að sjálfum sér og öðrum eins og
vera ber. Einn Valsarinn, Jón Ósk-
ar Carlsson handboltakappi, á til
dæmis peysu sem er til helminga
Valspeysa og til helminga Fram-
peysa en hana eignaðist hann á golf-
móti á Akureyri í fyrra. Eggert seg-
ir að þá hafi Valsmennirnir verið
farnir að hafa áhyggjur af því að
Jón Óskar væri ekki hreinræktaður
Valsari og jafnvel talið hann hallan
undir Fram.
„Pabbi hans var Framari og hefur
aldrei gefið sig neitt í því þó að
strákurinn hafi verið að bulla eitt-'
hvað. Svo gerðist það við verðlauna-
afhendinguna fyrir norðan að það
hafði veriö gerð svona peysa, biá og
rauð til helminga. Henson gerði
þessa peysu og þetta var Jón Óskar
klæddur í,“ útskýrir Eggert.
Halda hópinn
í golfinu
Sjömenningarnir halda mikið
hópinn ásamt fleiri gömlum íþrótta-
mönnum, bæði úr mulningsvélinni
í Val, sem svo var kölluð vegna sig-
urgöngu liðsins á áttunda áratugn-
um, og knattspymunni í Fram, til
dæmis Ásgeiri Elíassyni, Jóhannesi
Atlasyni og Ágústi Guðmundssyni,
og leika árlega um Hennessy-bikar-
inn. Þeir hafa ekki hætt íþróttaiðk-
un þó að allir hafi þeir lagt skóna á
hilluna og leika bara golf. Þeir
keppa bæði saman og í smærri ein-
ingum, hafa farið saman til Skot-
lands en þá fóm fjórir Valsmenn og
fiórir Framarar og kepptu um
skjöldinn „Rusty Nail“, ryðgaða
naglann.
Iþróttaumræðurnar við Suður-
landsbrautina einskorðast af um-
ræðum karlpeningsins þó aö nokkr-
ar konur vinni á hæðinni. Eggert
segist vorkenna konunum svolítið
því að „þær kremjast svolítið undir
í þessu iþróttakjaftæði".
Ólafur H. skýtur inn í að hann
furði sig oft á því umburðarlyndi
sem konurnar sýna þegar rætt er
um íþróttir og þá sérstaklega þegar
rætt er um golf.
Táknræn mynd i
frá Henson
Athygli vekur að inni á kaffistofu |
sjömenninganna er mynd, sem Hen-
son, sá landsþekkti maður Halldór
Einarsson, gerði og er hún vissu-
lega vel við hæfi. Henson, sem
einnig framleiddi Vals- og Fram-
peysuna hans Jóns Óskars, lét
ramma myndina inn og gaf
sjömenningunum þegar þeir fluttu
inn í þetta húsnæði. Á grænu grasi
eru fótbolti, handbolti og golfkúla
og svo halda Valsari og Framari í
bikarinn. Óneitanlega táknræn
mynd, að minnsta kosti hvað varðar
þennan vinnustað.
„Þetta var bara grín af því að þeir
voru að opna sameiginlega skrif-
stofu og eru annars vegar Valsarar
og hins vegar Framarar. Mér fannst
ég verða að gera mynd þar sem
fram kæmu þeirra áhugamál, sem
eru mjög einhæf eða íþróttir. Þeir (
taka höndum saman sinn hvorum
megin við bikarinn og eru sameig-
inlegir sigurvegarar," segir Henson. i
Hann útskýrir að upprunalega
hafi Valsarinn og Framarinn verið
látnir svífa í ,lausu lofti því að
sjömenningarnir séu alltaf að rífast
um hver þeirra sé stærstur og best-
ur. Hann hafi því neyðst til að mála
undir þá sandhóla og þar með hlýt-
ur það deilumál að vera endanlega
útkljáð.
-GHS