Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1996 ■ >~\7~ Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLT111, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., Helgarblað 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt tii að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Lloyds kemur til bjargar Félag íslenzkra bifreiöaeigenda hefur unniö þrekvirki og fengið þekktasta tryggingafélag heimsins, Lloyds, til að hefja samkeppni við íslenzku fáokunarfélögin í bíla- tryggingum. Er reiknað með, að tryggingagjöld bíla hér á landi muni lækka um fjórðung við komu Lloyds. Þetta er hægt, af því að fimm þúsund af nítján þúsund félagsmönnum FÍB hafa ákveðið að vera með í sameigin- legu tryggingaútboði félagsins. Þannig er með samtaka- mætti hinna smáu hægt að skáka innlendu risunum, sem allt of lengi hafa misnotað markaðsaðstöðuna. Búast má við, að fáokunarfélögin reyni að mæta inn- rás Lloyds með því að lækka iðgjöld bíleigenda. Þau hafa ráð á því, enda hafa þau haft digra sjóði af viðskipta- mönnum sínum á undanfórnum árum. Skyndilega munu þau finna út, að þau hafi efni á að lækka iðgjöld sín. Hingað til hafa innlendu tryggingafélögin þótzt tapa á bílatryggingum. Sannleikurinn mun hins vegar koma í ljós, þegar Lloyds tekur til starfa. Þá mun skyndilega koma í ljós, að tryggingafélögin hafa hingað til farið með ósannindi um slæma afkomu sína af bílatryggingum. Félag íslenzkra bifreiðaeigenda setti sér það markmið fyrir ári að ná innlendum bílatryggingum niður um 20%. Samkvæmt samningunum við Lloyds, sem nú eru á lokastigi, mun árangurinn verða nokkru betri, eða 25%. Þetta verða háar krónutölur hjá hverjum og einum. Enn meira máli skiptir, að FÍB hefur ekki samið við neitt einnar nætur tryggingafélag, heldur þekktasta tryggingafélag heims, sem íslenzku tryggingafélögin end- urtryggja hjá, þegar áhættan verður of mikil. Lloyds hef- ur því úthald í samkeppni við okurfyrirtækin. Nú reynir á íslendinga, sem áratugum saman hafa orðið að sæta skilmálum fáokunarhrings tryggingafélag- anna. Ýmis dæmi eru um, að við séum þýlyndari en borgarar í nágrannaríkjunum og látum vaða yfir okkur án þess að grípa til sameiginlegra gagnaðgerða. Frægt er, þegar bíleigendur ætluðu um árið í eins dags akstursverkfaH til að mótmæla hækkun benzín- verðs. Aðgerðin fór út um þúfur, af því að bíleigendur voru ekki nógu harðir af sér til þess að standa saman. Vonandi verður annað uppi á teningnum í þetta sinn. íslendingar eru íhaldssamir eins og klárinn, sem vill vera þar sem hann er kvaldastur. Ef kvalarar þeirra í bílatryggingum lækka iðgjöldin til að mæta nýrri sam- keppni, munu margir þeirra halda tryggð við kvalarana í staö þess að flytja sig til þess, sem braut ísinn. Þannig vilja menn njóta óbeins góðs af framtaki ann- arra, en kæra sig ekki um að taka sjálfir neinn þátt í frumkvæðinu. Ef allir hugsuðu svona, væri aldrei hægt að brjóta neinn ís. Frumkvöðlar gæfust upp og fáokun héldist með sama hætti og hefðbundin er í landinu. Tryggingafélögin eru í góðri aðstöðu til að halda sauðahjörðinni saman. Þau hafa safnað digrum sjóðum í skjóli fáokunar. Vextirnir einir af sjóðunum nema tíu þúsund krónum á hverju ári á hvern bíleiganda í land- inu. Þau lána fólki úr sjóðunum og hafa gert það háð sér. Ástæða er til að vona, að ekki fari í þetta skipti eins og stundum áður. Gegn fáokuninni stendur nú þekktasta tryggingafélag heimsins og öflug samtök bíleigenda. Uppreisnarliðið hefur því úthald til langvinnra átaka við eigendur sauðahjarðanna, innlendu tryggingafélögin. Þetta er eitt bezta tækifærið, sem þjóðin hefur fengið til að losna á einu sviði úr langvinnri ánauð kolkrabba og smokkflsks. Nú reynir á hana sem sjaldan fyrr. Jónas Kristjánsson Hráskinnsleikur æsist meðal æðstu manna Á fundi með fréttamönnum í Moskvu eftir fyrstu ferð sína til Tsjetsjeníu fræddi Alexander Lebed áheyrendur sína á að skip- un sin til að samræma aðgerðir stofnana framkvæmdavalds Rúss- lands til að friða Kákasuslýðveld- ið væri niðurstaða af refjum inn- an stjómkerfisins. Ekkert samráð hefði verið haft við sig og hann hefði fyrst frétt af skipuninni hjá ritara sínum. Framhaldið hefur verið eftir þessu upphafi. Á hálfum mánuði hefur komið í ljós að hver höndin. er upp á móti annarri á æðstu stöðum í rússneska stjórnkerfinu. Hver reynir að koma á annan ábyrgðinni á óforum rússnesks herliðs í Tsjetsjeniu. Vitað er í Moskvu að bæði Vikt- or Tsjernomyrdín forsætisráð- herra og Anatólí Tsjuhæs, starfs- mannastjóri Jeltsíns forseta, hafa horn í síðu Lebeds og allir þrír hafa augastað á forsetaembættinu hvenær sem það losnar. Hörðust er þó rimman milli Lebeds og Anatólís Kúlíkofskís innanríkisráðherra en ráðuneyti hans og hersveitir þess hafa haft með höndum yfirstjórn hemaðar- ins í Tsjetsjeníu. Á fréttamanna- fundi eftir aðra för sína til Tsjetsjeníu hvatti Lebed til að Kúlíkofskí yrði vikið frá fyrir af- glöp og vanrækslu í því hlutverki. Ekki hafði Lebed fyrr komist að samkomulagi um vopnahlé við Aslan Maskhadof, herstjóra Tsjetsjena, en fram kom skjal með undirskrift Jeltsíns þar sem skip- að var fyrir að koma skyldi án taf- ar á því ástandi í Grosní, höfuð- stað Tsjetsjeníu, sem þar ríkti fyr- ir 5. ágúst þegar Tsjetsjenar lögðu til atlögunnar sem hrifsaði borg- ina að mestu úr höndum hersveita Rússa. Yfirhershöfðingi sveita innan- ríkisráðuneytisins í Tsjetsjeníu, Konstantín Púlíkofskí, beið ekki boðanna og tilkynnti að allsherj- aratlaga lofthers og stórskotaliðs að Grosní hæfist að tveim sólar- hringum liðnum, og væri frestur- inn veittur svo óbreyttir borgarar ættu þess kost að forða sér áður en gereyðingarorusta skylli yfir. Öryggisráð Rússlands, sem Lebed veitir forustu, tilkynnti jafnharðan að vafi léki á að undi- skrift Jeltsíns á símbréfi með fyr- irskipuninni ætti sér stoð í raun- veruleikanum og efni þess væri ekki í samræmi við fyrri stefnu- mótun hans. Jeltsín lét ekki frá sér heyra, enda farinn frá Moskvu í rétt eina hvíldardvölina en starfslið hans bar á móti því að athugasemdir Öryggisráðsins ættu við rök að styðjast. En Lebed lét verkin tala eins og fyrri daginn. Hann hélt rakleitt til Grosní og fékk því komið til leið- ar að rússneska herstjórnin hætti loftárásum sem hófust að morgni sama dags, sólarhring fyrr en boð- að var í hótun Púlíkofskís. Hlaut Erlend tíðindi Magnús Torfi Ólafsson hann við það stuðning Igors Rod- inofs landvarnaráðherra sem hlaut embættið fyrir atbeina Lebeds. Rodínof vítti Púlíkofskí fyrir að ætla að grípa til aðgerða í heimild- arleysi. Var þar kominn opinber- lega fram klofningurinn sem lengi hefur verið vitað um milli Rúss- landshers og hersveita innanríkis- ráðuneytisins í aögerðum í Tsjetsjeníu. Skömmu síðar var til- kynnt að Púlíkofskí hefði verið færður til annarra starfa. Þegar þetta er ritað er Lebed nýkominn til Moskvu úr þriðju ferðinni til Tsjetsjeníu með undir- ritað samkomulag um vopnahlé sem er virt í svipinn. Jafnframt kveðst hann hafa óskað eftir fundi með Jeltsín til að leggja fram til- lögu um grundvöll varanlegrar friðargerðar í Tsjetsjeníu sem hann hafi heitið að færa svo leið- togum Tsjetsjena í dag, laugardag. Meðan Lebed var að ganga frá vopnahléssamkomulaginu í Tsjetsjeníu kom Jeltsín fram í sjónvarpi í fyrsta skipti frá emb- ættistökunni fyrir hálfum mán- uði. Aðalerindi hans var að skút- yrða Lebed fyrir að efna ekki kosningaloforð um að friða Tsjetsjeníu, hefði hann til þess vald. Nú hefur hann fengið valdið, en árangurinn lætur á sér standa, sagði forsetinn. Skrifstofa Jeltsíns tilkynnti í gær að enginn fundur hefði verið ákveðinn með forsetanum og Lebed. Sá síðarnefndi kvaðst halda áætlun um Tsjetsjeníuferð í dag hvað sem því liði. Hráskinns- leikurinn í Kreml hélt því áfram. Alexander Lebed lætur fara vel um sig í bíl sínum að lokum samninga- fundi um vopnahle í þorpinu Novíé Atagí suður af Grosní. Símamynd Reuter skoðanir annarra Dole litlaus „Þeir sem dást aö persónuleika Bobs Doles og j hugrekki og eru auk þess kunnugir útsjónarsemi í hans og svörtum húmor í samræðum geta ekki ann- að en hrist höfuðið daprir yfir hve honum mistekst að koma leiðtogahæfileikum sínum til skila í ræðu- höldum. Hröð atburðarás á fyrstu þremur dögum flokksþings repúblikana gerði að verkum að litlaus, j klukkustundarlöng ræða hans lokakvöldið virtist enn litlausari og lengri. Ræöan var svo innihalds- rýr og full af mótsögnum að hún gróf nánast undan orðstír hans sem heiðarlegs manns.“ Greinarhöfundur í Washington Post 20. ágúst. Stöðvið bílþjófana „110 bílum er stoliö dag hvern. En hægt er að setja startlás í bíla fyrir tiltölulega lágt verð og hindra þannig að þeim verði stolið. í fyrra kröfðust tryggingafélögin þess að 5000 eigendur lúxusbíla létu setja slíka lása í bíla sína. í framhaldinu var nær hætt að stela lúxusbílum. Því þykir furðulegt að tryggingafélögin skuli ekki fyrir löngu hafa gert sömu kröfur til annaira bíleigenda." Úr forystugrein Jyllands Posten 15. ágúst. Misheppnuð tilraun „Á tveggja ára tilraunatímabili hafa einungis fjögur af hverjum 20 fórnarlömbum ofbeldismanna fallist á að hitta kvalara sína á vegum svonefnds sáttaráðs. Því verður ekki vísað á bug að í sumum tilfellum getur það haft jákvæðar afleiðingar í för meö sér að fórnarlamb hitti kvalara sinn. En að hinn slaki árangur ráðsins hafi leitt til útvíkkunar á starfi þess og samkomulags um að glæpamenn fái afslátt af dómi mæti þeir til slíkra funda er alveg út í hött.“ Úr forystugrein Jyllands Posten 20. ágúst.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.