Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Side 22
sérstæð sakamál LAUGARDAGUR 24. AGUST 1996 Sjö barna faðir Frederick hafði kvænst Cheryl Berberat þegar hann var átján ára en hún ári yngri. Á þeim tólf árum sem síðan voru liðin höfðu þau eignast sjö börn; Frederick 12 ára, Sharon Lee tíu ára, Debru Ann níu ára, Paul átta ára, Roderick sex ára, Holly Lyn fimm ára og Mary Lou fjögurra ára. Frederick brunaliðsmanni fannst tíminn lengi að líða á leiðinni heim að húsinu enda hafði hann miklar áhyggjur af konu sinni og börnum. Hann huggaði sig hins vegar við að þau hjón höfðu margrætt hvað gera skyldi ef svo færi að eldur kæmi upp á heimilinu. Þegar húsið kom í augsýn létti Frederick því hann sá að það var orðum aukið að húsið stæði í ljós- um logum. Eldurinn var mun minni en talið hafði verið þegar tilkynn- ingin barst. Ljóst var hins vegar að mikill reykur var innandyra. Frederick var einn reykkafar- anna sem fóru inn í brennandi hús- ið og það var hann sem kom að Cheryl liggjandi á eldhúsgólfmu. Var eldur þá kominn í fot hennar. En þegar hann beygði sig til að taka hana upp og bera út sá hann að blóð rann úr sári á brjósti hennar. Þá varð honum einnig ljóst að hún var með áverka á hnakka. Hún var lát- in og hafði verið myrt. Voðaverk í angist sinni hélt Frederick úr eldhúsinu í leit að börnunum en þá höfðu félagar hans þegar fundið nokkur þeirra. Var sú aðkoma á þann veg að þeir treystu sér ekki til að láta föður þeirra sjá þau og stöðv- uðu hann. Á meðan þetta gerðist stóð slökkvistarfíð yfir og gekk það nokkuð vel þannig að ekki leið á löngu þar til hægt var að gera sér grein fyrir hvað gerst hafði. Reykkafaramir höfðu komið að hverju barninu á fætur öðm þar sem það lá bundið og myrt i húsinu. Höfðu þau verið slegin í höfuðið eins og móðir þeirra og var ljóst að vopnið var lykill af því tagi sem not- aður er við að skipta um dekk á bíl- um. Fimm barnanna fundust á gólf- inu í tveimur barnaherbergjum, tvö vom í baðherberginu og elsta stúlk- an, Sharon Lee, lá nakin í rúmi Be- audoin-hjónanna. Var greinilegt að morðinginn hafði nauðgað henni. Alls voru likin átta, eða einu fleira en bömin sem þarna áttu heima, og nokkra síðar gat Freder- ick staðfest að áttunda barnið var frænka Cheryl, Jennifer Santoro, sex ára, en hún kom oft í heimsókn til fjölskyldunnar. Hafði hún átt að sofa þar um nóttina. Eldsvoðinn sviðsetning Frumrannsókn leiddi í ljós að morðinginn hafði reynt að villa um með því að kveikja í húsinu. Hafði hann greinilega haldið að mikill Kah- Frederick og Cheryl Beaudoin á brúökaupsdaginn. Lorne Acquin milli tveggja löggaeslumanna. hann ætla að binda hendurnar á þeim fyrir aftan bak. Þau héldu að skemmtilegur leikur biði þeirra en þegar Lorne hafði bundið þau gekk hann að hverju þeirra á fætur öðru og sló þau í hnakkann, að Sharon Lee undanskilinni. Hann dró hana með sér upp í svefnherbergið þar sem hann reif utan af henni fötin og nauðgaði henni. Að þvi loknu sló hann hana í hnakkann með skrúflyklinum. Lorne sótti nú bensínbrúsa, hellfi innihaldinu á húsgögnin og kveikti í. Síðan gekk hann út í bíl og um hríð virti hann húsið fyrir sér. Loks hafði honum tekist að koma fram hefndum á stjúpbróðurnum sem hann hafði hatað í svo mörg ár. Slökkviliðsmennimir á nætur- vaktinni höfðu átt rólega nótt, eins og svo oft áður, og höfðu látið tím- ann líða með því að spila á spil. Það var reyndar engin nýlunda að rólegt væri á slökkvistöðinni, því bærinn Prospect í Connecticut í Bandaríkj- unum er safn íbúðarhverfa og mikl- ir eldsvoðar þar frekar sjaldgæfir. En þessa júlínótt áttu þeir sem á vaktinni vora eftir að verða vitni að atburði sem þeim liði seint úr minni. Klukkan var fjögur þegar kallið barst. Tilkynnt var að íbúðarhús við Cedar Hill-götu stæði í ljósum logum. Örskömmu síðar lögðu slökkvibílamir af stað með tilheyr- andi sírenuvæli en það var fyrst þá sem einn brunaliðsmannanna gerði sér grein fyrir að hann átti heima í húsinu sem eldurinn var laus í. Maðurinn hét Frederick Beaudoin og stóð á þritugu. Börnin átta. um við húsið að kvöldi sama dags. Konan gat gefið nokkuð góða lýs- ingu á manninum. Var hún skráð en síðan var gert boð fyrir Freder- ick Beaudoin, honum lesin lýsingin og hann spurður hvort hann kann- aðist við manninn. Hann kinkaði kolli og sagði hana geta átt við stjúpbróður sinn, Lorne Acquin, tuttugu og níu ára. Forsagan Móðir Fredericks hafði dáið þeg- ar hann var tólf ára en nokkru síð- ar kvæntist faðir hans á ný konu sem átti fyrir dreng, Lorne, sem var þá tólf ára. Drengjunum tveimur kom aldrei vel saman. Lorne var ætíð afbrýðisamur út í Frederick, sem gekk í augun á stúlkunum, en sjálfur var Lorne óframfærinn. Hann lagði út á glæpabrautina og var aðeins nítján ára þegar hann fékk fyrsta dóminn. Að refsingunni afplánaðri heimsótti Lome Freder- ick sem vildi þá ekkert með hann hafa og sagði Cheryl að hún mætti aldrei bjóða honum inn fyrir dyr. Cheryl hafði vorkennt Lome og ekki verið sammála Frederick sem hún taldi vantreysta bróður sínum um of. Hann sagðist þekkja stjúp- bróður sinn frá fyrri tíð og hafa góða ástæðu til þess að vilja ekki fá hann á heimilið, en vildi þó ekki ræða málið frekar. Lorne var ekki lengi frjáls. Hann framdi innbrot og fékk nýjan fang- elsisdóm. Nokkru síðar fékk hann svo viðbótardóm fyrir að ráðast á fangavörð við flóttatilraun. Handtakan Þremur dögum eftir morðin sá lögreglan í Bethny, tvö hundruð kflómetra frá Prospect, bíl Lomes Acquin. Hann var handtekinn en neitaði að vita nokkuð um það sem gerst hafði á heimili stjúpbóður síns. Yfirheyrslur yfir honum urðu fleiri en ein og þar kom að hann gafst upp á að halda fram sakleysi sínu og játaði á sig morðin níu. Lome sagðist svo frá að daginn fyrir nóttina örlagaríku hefði hann setið lengi í bfl sínum fyrir framan hús stjúpbróður síns til þess að kynna sér aðstæður. Á meðan hefði hann reykt maríjúana. Um sjöleytið hefði hann séð Fred- erick fara að heiman. Þá hefði hann hringt dyrabjöllunni. Cheryl hefði komið til dyra og boðið sér inn. Skömmu síðar hefði hún boðið hon- um mat. Á eftir hefði hann farið út í garð að leika við bömin. Lorne sagði að hjá sér hefði vakn- að löngun til að eiga mök við Sharon Lee þótt hún væri aðeins tíu ára. Hún hefði verið laglegust af stúlkun- um og lifandi eftirmynd föður síns. Atburðarásin í húsinu Þegar bömin voru hætt að leika sér i garðinum fóra þau inn. Þá gekk Lorne fram í eldhús, sló mág- konu sína í höfuðið og rak hníf í brjóst hennar. Hún lést samstundis. Bömin höfðu hins vegar ekki hug- mynd um það sem gerst hafði í eld- húsinu þegar Lorne lagði til við þau að þau færu í „fangaleik". Sagðist Málalok Líkskoðun leiddi i ljós að í það minnsta þrjú barnanna höfðu enn verið á lífi þegar Lorne kveikti í húsinu, þrátt fyrir mikla áverka. En þau köfnuðu í reykhafinu. Ákæra var gefin út á hendur Lorne Acquin og kom málið fyrir rétt í Waterbury. Geðlæknar voru meðal þeirra sem kallaðir voru tfl. Voru þeir beðnir að skýra hvað búið hefði getað að baki þessu mikla voðaverki. Var það samdóma álit þeirra að um hefði verið að ræða djúpstæða afbrýðisemi sakbornings- ins og hatur hans í garð stjúpbróð- ur síns. Lome hefði mistekist að koma undir sig fótunum í lífinu en stjúpbróður hans ekki. í raun væri um að ræða fyrirbæri sem í sálfræð- inni væri þekkt sem Kain Abel-hefl- kennið en nafnið vísar til sögunnar í Biblíunni. Þá töldu geðlæknarnir að ástæðan tfl þess að Lorne nauðg- aði Sharon Lee hefði í raun ekki átt mikið skylt við kynhvöt heldur það sem komið hefði fram í fyrstu frá- sögnum sakborningsins sjálfs, það að honum fannst stúlkan eftirmynd föður síns. Lorne hefði því í raun verið að svívirða ímynd hans. Eftir framburð sérfræðinganna tóku fjölmiðlamenn að nefna glæ- pina sem Lome var saksóttur fyrir „Kain- og Abelmorðin“ og undir því nafni hefur málið verið þekkt vestra síðan. Þann 19. október 1979 var Lorne Acquin dæmdur í nífalt ævflangt fangelsi en að auki fékk hann tutt- ugu ára dóm fyrir íkveikjuna. Ljóst var því að hann myndi ekki lifa það að fá frelsið. Faöir Jennifer. Brunnin húsgögn viö hús Beau- doin-hjónanna. eldsvoði myndi þurrka út öll um- merki um morðin. Eldurinn hafði hins vegar ekki breiðst út með þeim hraða sem hann hafði gert ráð fyrir. Morðin níu voru mesta fjöldamorð sem sögur fóru af í Connecticut og í byrjun hafði rann- sóknarlögreglan ekki margar vís- bendingar. Þótt hundruð manna væra yfirheyrð strax daginn eftir kom ekkert fram sem bent gat til þess hver verið hafði að verki. En tveimur dögum síðar gaf nágranna- kona sig fram þegar hún minntist þess að hafa séð ungan mann sitja í bil fyrir framan hús Beaudoin-hjóna daginn fyrir ódæðið. Þá taldi konan að hún hefði séð manninn í garðin- Abelmorðin og

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.