Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Page 26
26 á vefnum LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1996 Spennandi könnun Það verður að teljast til tíð- inda að nú er fyrirhuguð skoð- anakönnun meðal islenskra notenda Netsins. Þetta mun vera fyrsta könnunin sem er gerð á því hvernig íslendingar nota sér þessa nýju tækni og hvaða viðhorf þeir hafa til hennar. Meðal annars eru könnuð viðhorf notenda til þess að nota Netið til að eiga við- skipti enda er hún hluti af loka- verkefni Ragnars G. Eiríksson- ar í viðskipta- og hagfræðideild Háskóla íslands. Slóðin á heimasíðu könnun- arinnar er http:/forv.itn.is/konnun og þar er hægt að taka þátt í henni. Full ástæða er til að hvetja sem flesta til þess að taka þátt svo niðurstöður verði sem áreiðan- legastar. Ilnnbrot Óprúttnir tölvuþrjótar brut- ust nýlega inn á heimasíðu bandaríska dómsmálaráðuneyt- isins og breyttu henni þannig að ósæmilegt þótti. Meðal ann- ars var hakakross settur á síð- una og mynd af George Was- hington, fyrsta forseta Banda- ríkjanna, var látin segja að síð- | an væri ólögleg þar sem hún bryti í bága við lög um velsæmi á veraldarvefnum. Tilefni þessa innbrots mun einmitt hafa ver- ið að mótmæla lagasetningu sem bannaði dreifingu á ósæmilegu efni á Netinu. Bandarískir dómstólar hafa þegar dæmt að viðkomandi lög hafi verið í ósamræmi viö mál- frelsisákvæði bandarísku stjómarskrárinnar. Hæstirétt- ur landsins á þó eftir að kveða upp lokaúrskurð í málinu. Þessi atburður hefur einnig vakið upp spurningar um ör- yggismál á Netinu enda virðast fáar síður og gögn vera óhult fyrir óprúttnum tölvusnilling- um. Teiknimyndasögur Á slóðinni http://geociti- es.com/paris/3887/garfi- eld.html ræður hinn stór- skemmtilegi köttur Garfield ríkjum. Síðan er sérstaklega skemmtileg fyrir þá sök að þar má lesa nokkrar teiknimynda- sögur um Gretti, eiganda hans, Jón, og hundinn Odda sem stíg- ur vist ekki í vitið. Á síðunni er einnig fjöldi tenginga á aðrar heimasíður teiknimyndaper- sóna. Fyrirsætur Að lokum er rétt að benda áhugasömum á http://geociti- ies.com/hollywood/6719/mod- els.html Skemmst er frá því að segja aö þar er mikið efni um fyrirsætur. Bæði má lesa ná- kvæmar ævisögur og viðtöl, að ógleymdum öUum þeim heUingi af myndum sem þarna er. — Umsjón Jón Heiðar Þorsteinsson I iHB'aiV.llHM———r mér að vera með létta síðu með miklu af upplýsingum í stað þess að hlaða hana myndurn," segir Jón. Allt um Liverpool frá 1883 Jón segir á síðunni verði alltaf nýjar fréttir af gangi mála hjá Liverpool. Til dæmis má lesa frétt- ir af hverjum leik sem liðiö spilar stuttu eftir að honum er lokið. Á henni verður einnig innra starf Li- verpool-klúbbsins kynnt af miklum krafti. Jón hefur samið við félaga sinn á Netinu, Alex Brown, en hann hefur gefið Jóni leyfi til þess að taka fréttir af hans síðu. „Hann er búinn að gera meira fyrir Liverpool á þremur árum heldur en félagið sjálft er búið að gera fyrir aðdáend- ur sína um víða veröld á ijölda- mörgum árum. Það er draumur hans að vera með greinar um alla leiki sem Liverpool hefur spilað síðan félagið var stofnað árið 1883 og það er honum reyndar að takast,“ segir Jón. Á síðu hans verður allt það markverðasta sem Alex Brown hefur safnað saman á sinni síðu. Knattspyrnutenpingar úti um allan heim Heimasíða Jóns hefur verið upp- götvuð af aðdáendum Liverpool víða um heim á veraldarvefnum og margir þeirra eru með tengingar yfir á síðu Jóns. Þar á meðal er heimasíöa aðdáendaklúbbs Liver- pool í Skandinavíu en þar má finna tengingar yfir í heimasíður Liver- pool-aðdáenda víða um Norður- lönd. „Ég er auðvitað þrælánægður með það en það er galli hjá mér að ég hef ekki enn þá sett upp síðu með miklu tengingasafni á aðrar Liverpool- og knattspyrnusíður út um allan heim. þessi síða er á leið- inni,“ segir Jón að lokum. Slóðin á Liverpool-síðu hans er www.est.is/Liverpool. Einnig skal áhugasömum bent á spjallrásina #Soccer en þar er rætt um knatt- spyrnu frá öllum hliðum. -JHÞ Enska knattspyrnan á sér fjölda aðdáenda hér á landi og nú er hún komin á fulla ferð. Á þessu tímabili verður hægt að fylgjast með deild- inni á fleiri stöðum en í sjónvarp- inu, enda búið að setja upp glæsi- lega íslenska Liverpool heimasíöu. Þetta mún verða fyrsta íslenska heimasíðan sem er helguð ensku fé- lagsliði. Því er óhætt að að kalla Jón Geir Sigurbjörnsson, höfund heimasíðunnar og stjórnarmeðlim í Liverpool-klúbbnum, frumkvöðul á þessu sviði. Beinar útsendingar Það sem helst er nýstárlegt við þessa ágætu heimasíðu er að þar eru fyrirhugaöar beinar útsending- ar á leikjum þessarar leiktíðar á Java- formi. Þær verða á ensku en samið hefur verið um að Jón fái einkarétt á að nota sér þessa þjón- ustu. Útsendingarnar koma frá breska fyrirtækinu Internation. Það var með slíkar útsendingar frá Evrópukeppninni í sumar. „Ég fylgdist með þessum útsendingum og þetta virkar alveg frábærlega. Útsendingin sem ég sá í tölvunni var ekki nema þrjár sekúndur á eft- ir þeirri sem var í sjónvarpinu," segir Jón. í slíkum útsendingum sést völlurinn með öllum tilheyr- andi línum. Einnig sést boltinn hreyfast um völlinn en hann tekur lit þess liðs sem er með hann á hverjum tíma. Auk þessa má lesa lýsingu sem er slegin inn um leið og atburðirnir gerast inni á vellin- um. Auk þessa geta áhorfendur skoðað alla tilheyrandi tölfræði og liðsskipan. „Það má segja að svona lýsing sé blanda af IRC (eða spjalli) og sjónvarpsútsendingu. Það eru alltaf beinar útsendingar á spjall- inu á rás sem heitir #Liverpoolfc. Java útsendingin er þó miklu skemmtilegri enda sér maður hlut- ina á myndrænu formi,“ segir Jón. Slíkar útsendingar ættu að geta komið fótboltaþyrstum aðdáendum enska boltans vel enda sýna ís- lenskar sjónvarpsstöðvar langt í frá alla leiki í enska boltanum. Fæddist í september Jón segir að hann hafi hafið gerð siðunnar í september síðastliðnum en hún hafi ekki komist almenni- lega í gang fyrr en í febrúar. „Ég tók þetta bara upp hjá sjálfum mér, vinn alla vinnuna sjálfur og borga allan kostnað við þessa síðu. Þetta er stundum þannig að ég kem heim eftir 12 tíma vinnudag og uppfæri síðuna. Ég er með allar klær úti með að fá ferskt og gott efni. Svo hefur það verið áhersluatriði hjá Jón Geir Sigurbjörnsson er höfundur íslensku Liverpool-síöunnar, fyrstu íslensku heimasíöunnar sem er helguö ensku félagsliöi. Slóöin á hana er www.est.is/Liverpool Enski boltinn nýhafinn: íslensk Liverpool-síða - hönnuð af Jóni Geir Sigurbjörnssyni Bandarísku forsetakosningarnar: Rafræn barátta Forsetakosningamar Bandarikjunum nálgast óðfluga og þess eru þegar farin að sjást merki á Intemetinu. Clinton og Gore Þeir félagar, Bill Clinton for- seti og A1 Gore varaforseti, eiga sér sína heimasíðu á slóðinni http: //www.cg96.org/ og þar má skoða stefnumál tvíeykisins auk þess að lesa um það sem þeir félagar telja að vel hafi far- ið á kjörtímabilinu. Á þessari síðu má einnig lesa um ævifer- il þeirra beggja. Það vakti nokkra athygli blaðamanns DV að mun meira var talað um A1 Gore varaforseta en Bill Clinton sjálfan. Dole og Kemp Nú eftir flokksþing repúblikana virðist sem kosningabarátta Bobs Doles hafi öðlast nýjan kraft en hún þótti fara nokkuð hægt af stað. Hundur Bobs Doles, Leader, á auövitaö stna heimasíöu. Heimasíða Doles og varaforsetaefn- is hans, Jack Kemp, er á slóðinni http: //www.dole96.com og er nokk- uð veglegri en heimasíða Clintons og Gores. Þar má meira að segja „rifja upp æskuminningar” með Dole og skoða gamlar myndir úr æsku hans. Áhugasamir geta einnig skoðað heimasíðu Leaders en hann er hundur Bob Dole. Slóðin þangað er http: //www.firstdog.com/ og því má ekki gleyma að hægt er að skoða upplýsingar mn stefnu- mál gömlu kempunnar á síð- unni. Aðrir frambjóðendur Tveir aðrir flokkar eiga sér fram- . Þaö eru Frjáls- hyggjuflokkurinn, en forseta- frambjóðandi þess flokks er Harry Browne, og Endurbóta- eigin flokkur Ross Perrots. Slóðin á heimasíðu frjálshyggju- manna er http://www.lp.org/ en Endurbótaflokksins www.reformparty.org og það verður að segjast að heimasíða frjáls- hyggjumanna virðist í fljótu bragði vera sú málefnalegasta af öllum op- inberum heimasíðum þeirra sem keppa um valdamesta embætti heims. -JHÞ Vefrit íTÍ Metna*arfullir nemendur í Tækniskóla íslands gefa út vef- riti> Útmk http://www.ti.is/utmid Val Kilmer Hann leikur í nfrri mynd um Dfrl- inginn sem einhverjir muna kannski eftir. http//www.pictureso- or.com/index/male/vk.html Far Side Ávalltjraust. http://www.geociti- es.com/paris/33877l... Jeltsín Er a> fara fyrir honum eins og RCissakeisurumí'httpV/www.ahg- ". .. . elfire.com/pages2/ romanov/index.html Breska konungsfjölskyldan fiarf a> gæta meira hófs í lifí nlnum. Sjar'minn er líka Iðnguí inn af henni. http//arachnid.<> fn.cf.ac.uk/places/uk.html Kannabis ifi> upp me> rótum (Hafnáfflr>i inda varasamt fíkniefni. hjtp: //www.agofa.stm.it/Á.Biag- otti/home.html

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.