Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Page 32
LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1996 DV Hans-Martin Moser frá Þýskalandi er ástfanginn af íslandi: Fór í hjólaferðalag á Vatnajökul í sumar -ásamt félaga sínum - undirbúningurinn tók tvö ár DV „Við urðum að selflytja farangur- inn, ganga með hjólið og fara svo aft- ur sömu leið til baka til að sækja far- angurinn sem við vorum með á kerru. Við urðum þvi að fara sömu leiðina þrisvar sinnum, fyrst með hjólið og svo til baka til að sækja dót- ið okkar. Okkur sóttist því ferðin seint fyrstu fimm dagana. Á sjötfa degi festum við kerruna við hjólið hans Widmars og hann ýtti öllu sam- an áfram um leið og hann steig hjólið," segir hann. Hans-Martin Moser fór í sjö daga hjólaferðalag á Vatna- jökli í sumar ásamt félaga sínum frá Þýskalandi. Ferð- ina undirbjuggu þeir félagar í tvö ár. DV-mynd GS Voru að hita te Síðustu nóttina á Vatnajökli fengu Widmar og Hans-Martin heimsókn af tveimur flugbjörgunar- sveitarmönnum, sem höfðu áhyggj- ur af því hversu seint þeim sóttist ferðin og óttuðust að eitthvað hefði komið fyrir. Hans-Martin segir þó að allt hafi verið í stakasta lagi, þeir hafi verið að sjóða sér te þegar mennirnir komu. Flugbjörgunar- sveitarmennirnir hafi svo bent þeim á bestu leiðina niður þó að hún hafi síðan reynst seinfarin vegna veðurs. „Að morgni síðasta dagsins var snjóstormur og erfitt að fylgja för- unum eftir snjósleðana, sem flug- björgunarsveitarmennirnir höfðu komið á. Þennan dag var yfirborð jökulsins þó frosið og þá gátum við hjólað í fyrsta og síðasta skipti á jöklinum, alls um 12 kílómetra. Þá fór að rigna og eftir því sem neðar dró varð erfiðara að ganga í snjón- um. Alls gengum við 98 kílómetra á jöklinum en hjóluðum aðeins þessa 12,“ segir Hans- Martin. Ferðalag Þjóðverjanna tók sjö og hálfan dag eða helmingi skemmri tíma en vonir stóðu til enda breyttu þeir ferðaáætlun sinni og fóru aðra leið yfir jökulinn en stefnt var að. Þegar niður var komið skildu leiðir, Widmar stoppaði í Landmannalaug- um til að hitta bróður sinn og Hans- Martin tók rútuna til Reykjavíkur enda hafði hjólið hans bilað. Báðir eru þeir Widmar og Hans- Martin miklir íslandsvinir. Wid- mar stundar nám í sögu í Heidel- berg og Hans-Martin, sem segist vera „ástfanginn af íslandi," stund- ar þar nám í landafræði. Báðir kunna þeir svolitla íslensku þó að ekki hafi þeir beinlínis stundað ís- lenskunám. Þeir hafa bara reynt að læra sem mest á ferðum sínum hér. Þurfa að jafna sig Hans-Martin hefur áður vakið athygli en í fyrra birt- ist við hann viötal í DV um rannsóknir hans á Miðbæ Reykjavíkur til lokaprófs við háskólann í Heidel- berg. Niðurstöður þeirr- ar rannsóknar hafa birst í bók og hefur Hans-Martin gefið Borgarskipulagi eitt eintak. -En hverju taka félagamir upp á á íslandi? Hans-Martin segir ekkert sérstakt sé í bígerð á þessari stundu enda þurfi þeir að jafna sig eftir ævintýraferðalagið á Vatnajökli enda viður- kennir hann að það hafi verið erfitt. Hann segir þó að ferðalögum þeirra um ís- land sé alveg örugglega ekki lokið og játar að vera strax far- inn að velta fyrir sér næstu ferð. -GHS Þar sem hluti textans féll niður í síðasta Helgarblaði DV vegna tæknimistaka er viðtalið nú endur- birt. „Við vorum á ferð á hjólum á Kili fyrir þremur árum og sáum ekki út úr augunum fyrir þoku í þrjá daga og hitinn var aðeins ein gráða. Svo sáum við Langjökul við sjóndeildar- hringinn og sólin skein svo fallega á hann og þá sagði Widmar að næst þegar við færum í hjólaferðalag myndum við ekki hjóla á götunni heldur á jöklinum. Þar væri alltaf sól,“ segir ferðalangurinn og ís- landsvinurinn Hans-Martin Moser frá Þýskalandi, 28 ára. Þetta er fjórða ferð Hans-Martins til íslands en hann kom hingað fyrst árið 1991 og ferðaðist þá á hjóli vítt og breitt um landið. Fyrir fjórum árum kynntist hann hér á landi fé- laga sínum, Widmar König, 29 ára, og með þeim tókst náinn vinskapur. Widmar hefur komið þrisvar tU ís- lands og þeir félagamir hafa ferðast saman um landið. Hans-Martin seg- ist í fyrstu hafa talið Widmar galinn en við nánari umhugsun hafi sér lit- ist vel á hugmyndina. Þeir hafi því drifið sig i hjólaferðalag á Vatna- jökli í sumar. tal DV við fimm íslendinga sem fóra í hjólreiðaferðalag yfir Vatna- jökul fyrir fimm árum. Breyttu fyrstu áætlun sinni Fyrstu áætlanir Hans- Martins og Widmars voru að fara frá Snæfelli í austri að Gnmsvötnum og Köldu- kvíslarjökli og niður af jöklinum við Landmannalaugar. Þessari áætlim hafi þeir orðið að breyta því að sum- arið hafi verið óvenjuheitt á íslandi í sumar og ferðin gengið seint. Á jökl- inum hafi þeir ákveðið að breyta stetnu og fara um 60 kílómetra leið að Breiðubungu að Skála- . Fjárfestum í græjum „Fyrir tveimur árum fórum við að undirbúa ferðalagið með því að lesa um fólk sem hafði farið á jökla og dvalist þar, kynntum okkur nauðsynlegan útbúnað og fjárfest- um í honum og lærðum hvemig ætti að fara með áttavita og aðrar græjur," útskýrir Hans-Martin. Hann segir að þeir hafi komið sér í samband við Slysavamafélagið og síðar flugbjörgunarsveitina og það- an hafi þeir fengið staðsetningar- tæki til að hafa með sér á jökulinn þannig að hægt yrði að fylgjast með ferð þeirra og sjá hvemig þeim mið- aði. Hans-Martin segist einnig hafa fengið gögn frá Veðurstofunni til að geta áætlað veður og gert sér grein fyrir aðstæðum á jöklinum á þess- um árstíma. Þannig hafi hann reynt að skipuleggja ferðalagið sem allra best. Hann segist svo hafa lesið við- Til Landmannalauga ■ Fyrsta áætlun ----► Reyndin Köldukvíslarjökull Grímsvötn Egilssta Snæfell Breiðabunga . V . Skála- fellsjökull Jokulsarlon fellsjökl og þaðæ niður a jöklinurr, við Jök ulsárlón. Þeir von uðust til ac geta hjólac á jöklinun á nóttunn þegar yfir borðið vær: frosið en oi heitt hafi ver- ið í lofti. 'trjiiiJiJii Til Reykjavíku

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.