Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Page 47
X>V LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1996
afmæli
Albert Sigurðsson
Albert Sigurðsson, rafvirki,
Skarðshlíð 12f, Akureyri, er áttræð-
ur í dag.
Starfsferill
Albert er fæddur á ísafirði og ólst
þar upp. Hann varð gagnfræðingur
og lauk námi í rafvirkjun 1936 og
sveinsprófi 1938. Albert fékk síðan
meistararéttindi 1942. Hann vann
sem rafvirki á ísafirði til 1939 er
hann flutti til Akureyrar þar sem
hann hefur átt heima síðan.
Albert vann fyrst eftir að hann
flutti til Akureyrar hjá Samúel
Kristbjarnarsyni og Indriða Helga-
syni, 1939-1945, en þá hóf hann störf
hjá Rafveitu Akureyrar. Hann vann
þar sem eftirlitsmaður raflagna og
við ýmis önnur störf til síðustu ára-
móta er hann lét af störfum.
Albert hefur tekið mikinn þátt í
félagsstörfum. Hann var formaður
Rafvirkjafélags Akureyrar 1947-
1948. Á yngri árum tók hann mikinn
þátt í ýmsum íþróttum. í gegnum
árin hefur hann haft mikil afskipti
af bridge, skák og hestamennsku.
Albert vann að stofnun Skáksam-
bands Norðurlands og var fyrsti for-
maður þess og gegndi því starfi í
þrjú ár. Hann hefur verið kjördæm-
is- stjóri skólaskákar frá upphafi á
Norðurlandi eystra og hefur verið
meira og minna í stjórn Skákfélags
Akm-eyrar síðan 1939.
Albert var lengi í stjórn Hesta-
mannafélagsins Léttis á Akureyri og
átti hann góða hesta sem kepptu á
landsmótum hestamanna.
Albert hlaut gullmerki sjómanna-
dags Akureyrar 1967, heiðursskjal
og styttu frá hestamönnum og Létti
1975. Hann var heiðraður af Bridge-
félagi Akureyrar 1975 og einnig nú í
vor er hann lét af störfum hjá félag-
inu. Hann var heiðraður af Skák-
sambandi íslands 1980, gerður heið-
ursfélagi sambandsins 1986 og heið-
ursfélagi Skákfélags Akureyrar
1988.
Albert fékk réttindi sem alþjóða-
skákdómari 1989.
Fjölskylda
Albert kvæntist 13.3. 1960 seinni
konu sinni, Edith Valborgu Þor-
steinsdóttur, f. 1.7. 1924. Fyrri kona
hans var Guðborg J. Brynjólfsdóttir.
Þau skildu 1958.
Börn Alberts og Edithar eru:
Þórey Helga, f. 17.3.1960. Maki henn-
ar er Hafliði Hauksson og eiga þau
eitt barn, Guðlaugu Anítu, en Þórey
átti áður tvo drengi, Albert og Jón
Heiðar Gestssyni. Þau eru búsett á
Akureyri.
Jón, f. 31.5. 1961. Sambýliskona
hans er Kristjana Kristjánsdóttir.
Þau eiga eitt barn, Helgu Ösp. Þau
eru búsett á Steinhólum í Eyjafirði.
Albert á eina hálfsystur, Sigríði
Sigurðardóttur, til heimilis að Stór-
holti 24 í Reykjavík.
Foreldrar Alberts voru Sigurður
Þórðarson, f. 18.10. 1892, vélstjóri, og
Þórey Albertsdóttir, f. 13.12. 1895.
Þau eru bæði látin.
Ætt
Foreldrar Sigurðar voru Þórður
Sigurðsson og Hólmfríður Jónsdótt-
ir. Þau bjuggu að Austurvöllum á
Kjalarnesi.
Foreldrar Þóreyjar voru Albert
Jónsson járnsmiður og Magnea Guð-
ný Magnúsdóttir. Þau voru búsett á
ísafirði.
Ragnhildur Jónsdóttir
Ragnhildur Jónsdóttir, húsmóðir
og skattendurskoðandi, Spítalavegi
13, Akureyri, er sjötug í dag.
Starfsferill
Ragnhildur er fædd á Gautlönd-
um í Mývatnssveit og ólst þar upp.
Hún hlaut farskólamenntun í Mý-
vatnssveit en fór síðan í Alþýðuskól-
ann í Reykholti í Borgarfirði. Hún
gekk í Malung folkshögskola í
Dalarna í Svíþjóð, Snoghöj gymna-
stikskole á Jótlandi og Vestfold hus-
flidskole í Larvik í Noregi.
Ragnhildur vann við vefnaðar-
kennslu nokkra vetur. Hún hefur
verið húsfreyja í 44 ár. Hún vann í
átta ár við eldhússtörf á Kristnes-
hæli og sl. 20 ár sem skattendur-
skoðandi á Skattstofu Norðurlands-
umdæmis eystra á Akureyri ásamt
húsmóðurstörfunum.
Ragnhildur hefur starf-
að í Kvenfélaginu Hlíf á
Akureyri um áratuga-
skeið auk þess sem hún
hefur starfað í Kvenna-
deild Slysavarnafélags ís-
lands á Akureyri i íjóra
áratugi.
Fjölskylda
Ragnhildur kvæntist
17.10. 1952 JÓni Sigur-
geirssyni, f. 14.4. 1900,
umsjónarmanni FSA í 25
ár og fyrrv. lögreglu-
þjóni. Foreldrar hans voru Sigurgeir
Jónsson, bóndi á Helluvaði í Mý-
vatnssveit, og Sólveig Sigurðardóttir
húsfreyja.
Börn Ragnhildar og Jóns: Jón
Gauti Jónsson, f. 17.7. 1952, land-
fræðingur, kvæntur Helgu P. Brynj-
ólfsdóttur, f. 31.8. 1953,
textílhönnuði; Geirfinnur
Jónsson, f. 5.6. 1955, jarð-
eðlisfræðingur, kvæntur
Hlíf Sigurjónsdóttur, f.
17.9. 1954, fiðluleikara;
Sólveig Anna Jónsdóttir,
f. 21.5. 1959, píanóleikari
og tónlistokennari, gift
Edward F. Frederikjen, f.
10.1. 1944, tónlistarmanni;
Herdís Jónsdóttir, f. 11.8.
1962, víóluleikari, gift
Steef van Oosterhout, f.
24.8. 1961, slagverksleik-
ara.
Systkini Ragnhildar: Ásgerður
Jónsdóttir, f. 29.5. 1919, kennari, bú-
sett i Reykjavík; Sigríður Jónsdóttir
Ragnar, f. 26.7. 1922, d. 10.3. 1993,
kennari á ísafirði; Böðvar Jónsson,
f. 1.7. 1925, bóndi á Gautlöndum í
Mývatnssveit.
Foreldrar Ragnhildar voru Jón
Gauti Pétursson, Gautlöndum í Mý-
vatnssveit, f. 17.12. 1889, d. 27.9. 1972,
og Anna Jakobsdóttir, f. 11.12. 1891,
d. 10.2. 1934, húsfreyja. Jón Gauti
var bóndi og oddviti í Mývatnssveit
í 50 ár.
Ætt
Föðurforeldrar Ragnhildar voru
Pétur Jónsson, bóndi og alþingimað-
ur og ráðherra, búsettur á Gautlönd-
um í Mývatnssveit, og Þóra Jóns-
dóttir frá Grænavatni.
Móðurforeldrar Ragnhildar voru
Jakob Jónasson bóndi, Narfastöðum
í Reykjadal, og Sigríður Sigurðar-
dóttir, húsfreyja.
Ragnhildur tekur á móti gestum i
Lóni á Akureyri kl. 20.00 að kvöldi
afmælisdagsins.
Ragnhildur Jónsdóttir.
Hjörtína Tómasdóttir
húsmóðir, Bjarnastöð-
um, Skagafirði, er níræð
á morgun.
Starfsferill
Hjörtína ólst upp á
Spáná í Unadal hjá for-
eldrum sínum og síðar í
Garðshorni á Höfða-
strönd. Hún stundaði
barnaskólanám í þrjá
vetur, fyrst á Hofsósi og
síðan í heimakennslu.
Hjörtina fermdist 13 ára og fór þá
strax að vinna fyrir sér, fyrst á
Þverá í Blönduhlíð og síðan á
Frostastöðum í sömu sveit. Þar
kynntist hún mannsefni sínu,
Márusi Guðmundssyni. Hjörtína og
Márus hófu búskap á Ystu-Grund í
Blönduhlíð og bjuggu þar allt til árs-
ins 1944 er þau keyptu Bjamastaði í
Blönduhlíð og fluttu þangað. Sam-
búð þeirra hjóna var góð og eignuð-
ust þau sjö börn. Þau hjónin stund-
uðu búskapinn allt þar til er Márus
lést árið 1982.
Hjörtína býr enn á Bjarnastöðum
ásamt Tómasi syni sínum. Hún les
mikið sér til fróðleiks auk þess að
prjóna og sauma út handa afkom-
endum sínum.
Fjölskylda
Hjörtína giftist 9.5. 1926 Márusi
Guðmundssyni, f. 25.7.1902, d. 18.11.
1982, bónda. Foreldrar hans voru
Guðmundur Jónsson bóndi og k.h.,
Hjörtína Tómasdóttir.
Salbjörg Jónsdóttir. Þau
bjuggu á ýmsum stöðum
í Fljótunum.
Börn Hjörtínu og
Márasar: Hjörtína Hall-
dóra, f. 17.6. 1925, gift
Ingólfi Sigmarssyni og
eiga þau tvo syni; Guð-
mundur, f. 1.6. 1928,
kvæntur Nönnu Regínu
Hallgrímsdóttur og eiga
þau fimm börn; Hermína
Sigríður, f. 1.3. 1930, gift
Þorsteini Sigurðssyni;
Sigurbjörg, f. 6.5. 1933,
gift Sveini Hjálmarssyni og eiga þau
sjö börn; Tómas Ingi, f. 26.7. 1937,
fráskilinn og á þrjú börn; Þrúður, f.
14.5. 1939, gift Ágústi Björnssyni, og
Salbjörg, f. 29.9. 1945, gift Bjarna
Gíslasyni og eiga þau fimm börn.
Ætt
Systkini Hjörtínu: Sigríður, f.
11.6. 1903, d. 5.1. 1986, húsmóðir í
Reykjavík; Elín Helga, f. 11.12. 1904,
d. 6.12. 1975, húsmóðir í Reykjavík;
Kristjana Guðrún, f. 2.12. 1908, d.
25.11.1975, húsmóðir á Hofsósi; Ingi-
björg Halldóra, f. 28.10. 1911, hús-
móðir á Brenniborg i Skagaflrði;
Magrét, f. 12.10. 1914, húsmóðir i
Reykjavík, og Ástvaldur Óskar, f.
31.8. 1918, bóndi í Skagafirði.
Foreldrar Hjörtínu voru Tómas
Geirmundur Björnsson bóndi og
Ingileif Ragnheiður Jónsdóttir hús-
móðir. Þau bjuggu lengst af á Spáná
í Unadal og Garðshorni á Höfða-
strönd.
Þórir Gunnarsson
Þórir Gunnarsson,
veitingamaður og aðal-
ræðismaður í Prag, er
fimmtugur í dag.
Fjölskylda
Þórir kvæntist Ingi-
björgu Jóhannsdóttur
15.6. 1974. Foreldrar
hennar eru Jóhann
Kjartansson, f. 5.2.
1921, d. 29.4.1991, versl-
unarmaður og Soffía Þórir Gunnarsson.
Bjarnadóttir, f. 8.11.
1924.
Börn Þóris og Ingibjargar eru
Gunnar Egill, f. 15.12.1974, háskóla-
nemi, unnusta hans er Bríet Guð-
mundsdóttir frá Grenivík, og Soffía
Rut, f. 9.5. 1977, nemi.
Systkini Þóris eru: Helgi Gunn-
arsson, starfar hjá Orkustofnun,
kvæntur Jónu Ágústsdóttur versl-
unarmanni; Katrín Kristín Gunn-
arsdóttir, gift Helga Eiríkssyni raf-
virkja; Gunnar Örn Gunnarsson
bakari, kvæntur Helgu Gústafsdótt-
ur; Sæmundur Gunnarsson mynd-
listarmaður, kvæntur Estivu Ein-
arsdóttur.
Foreldrar Þóris: Gunnar Helga-
son, f. 30.9. 1922, rafvirki, og Elín
Þórðardóttir, f. 28.3. 1922, d. 20.5.
1988. Sambýliskona
Gunnars er Þóra Ólafs-
dóttir.
Foreldrar Gunnars
voru Helgi Guðmunds-
son, verslunarmaður,
og Kristín Óladóttir, frá
Stakkhamri í Staðar-
sveit. Faðir Kristínar
var Óli Jónsson, bóndi
á Stakkhamri, faðir Sig-
urðar Ólasonar hrl. Sig-
urður var faðir Þórunnar Sigurð-
ardóttur leikara og Jóns Sigurðar-
sonar, lektors við Samvinnuskól-
ann. Bróðir Kristínar Óladóttur var
einnig Ágúst, afi Sturlu Böðvarsson-
ar, alþingismanns, og Tómas, faðir
Torfa Tómassonar, verslunar-
manns.
Foreldrar Elínar Þórðardóttur
voru Þórður Þórðarsson og Katrín
Pálsdóttir, bæjarfulltrúi í Reykja-
vík. Bróðir Elínar er Kári Þórðar-
son, fyrrv. rafveitustjóri í Keflavík,
faðir Elínar Káradóttur, ráðskonu á
Bessastöðum.
Þórir og Ingibjörg búa í Prag og
taka á móti gestum á heimili sínu á
afmælisdaginn.
111
hamingju
með
afmælið
25. ágúst
90 ára
Þórður Sigui-ðsson,
Seljalandsvegi 30, ísafírði.
80 ára
Vigdís S. Ólafsdóttir,
Lindargötu 61, Reykjavík.
75 ára
Ármann Sigurðsson,
Hringbraut 7, Hafnarfirði.
Ósk Filippía Þórsdóttir,
Karlsbraut 26, Dalvík.
Sigdór Sigurðsson,
Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði.
70 ára
Sif Áslaug Johnsen,
Holtagerði 65, Kópavogi.
Guðrún Sigurgeirsdóttir,
Skarphéðinsgötu 4, Reykjavík.
Óskar Nikulásson,
Grettisgötu 12, Reykjavík.
Elsa Björnsdóttir,
Hvanneyrarbraut 51, Siglu-
firði.
60 ára
Ingvar Kristinn Guðnason,
Hlíö, Hólahreppi.
Sigurður Briem,
Markarflöt 27, Garðabæ.
Þórir Þórðarson,
Ki-inglunni 75, Reykjavík.
Sigrún Ágústsdóttir,
Túngötu 16, Grindavík.
Esther Æ. Jónsdóttir,
Flétturima 15, Reykjavík.
50 ára
Anna Fríða Winther,
Sæbraut 11, Seltjarnarnesi.
Anna Birna Benediktsdótt-
ir,
Hlíðartúni 35, Hornafirði.
Guðbjörg Kolbeinsdóttir,
Hamarsholti, Gnúpverja-
hreppi.
Guðrún Sólveig Grétars-
dóttir,
Brekkubæ 3, Reykjavík.
Kristbjörg Sigurðardóttir,
Víðihlíð 22, Reykjavík.
40 ára
Aðalheiður Hrönn Guð-
mundsdóttir,
Hátúni lOa, Reykjavík.
Jónfríður Valdis Bjarna-
dóttir,
Mosabarði 15, Hafnarfirði.
Gunnar Jónsson,
Hátúni lOa, Reykjavík.
Kristbjörn Jónsson,
Mávahlíð 46, Reykjavík.
Hlöðver Helgi Gvmnarsson,
Bólstaðarhlíð 60,Reykjavík.
Ágúst Ágústsson,
Lyngbergi 9, Hafnarfirði.
Þröstur Jónasson,
Sílalæk 1, Aðaldælahreppi.