Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1996, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1996
Fréttir
Lögreglumaður sýknaður 1 Héraðsdómi Reykjaness:
Sýknaður af akæru
um líkamsmeiðingar
- kærandi hafði brotið tvö ákvæði lögreglusamþykktar
Héraðsdómur Reykjaness hefur
sýknað lögreglumann úr Hafn-
arfirði sem hafði verið ákærður fyr-
ir líkamsmeiðingar og brot í opin-
beru starfi í nóvember á síðasta ári.
Ákæruvaldið höfðaði mál fyrir dóm-
inum þar sem ákærða var gert að
sök að hafa gerst offari í starfi er
hann ásamt öðrum lögreglumanni
hafði afskipti af kæranda og tekið
harkalega á honum þannig að kær-
andi þurfti að undirgangast læknis-
meðferð og sjúkraþjálfun vegna
þess.
Var þess krafist af ákæruvaldinu
að ákærði yrði dæmdur til refsingar
og greiddi kæranda 5 milljónir króna
í bætur auk vaxta frá tjónsdegi.
Málavextir eru þeir að sunnudag-
inn 12. nóvember 1995 var lögreglu
tilkynnt um eld í bátaskýlum við
Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði. Lög-
regla, sjúkra- og slökkvilið fór á
staðinn og er komið var á vettvang
var ljóst að kærandi var að brenna
rusl fyrir neðan skýlin.
Mikið ber á milli í framburði
kærandans og lögreglumannanna
tveggja sem komu á vettvang en
ákærði var annar þeirra. Heldur
kærandi því fram að lögreglan hafi
slegið hann í andlitið og ákærði tek-
ið harkalega á hægri handlegg hans
sem leiddi til brots á nærenda ölnar
og tognunaráverka á olnbogalið.
Lögreglumenn halda því aftur á
móti fram að kærandi hafi neitað að
fara að fyrirmælum þeirra, orðið
strax mjög æstur og slegið til ann-
ars þeirra.
Niöurstaða dómsins
I niðurstöðu dómsins segir að
þessi frásögn lögreglumannanna
eigi sér nokkra stoð í framburði
slökkviliðsmanna er þeir báru að
kærandi hefði verið mjög æstur og
brotist um í tökum lögreglunnar,
sem hefði verið að reyna að róa
hann. Þykir því rétt að leggja fram-
burð lögreglumannanna til grund-
vallar um aðdraganda handtökunn-
ar.
Við þetta mat beri einnig aö hafa
nokkra hliðsjón af eldri lögreglu-
skýrslu um afskipti lögreglunnar af
kæranda. Af henni megi ráða að
kærandi geti orðið nokkuð iilskeytt-
ur í viðskiptum við lögregluna.
Verður því talið að kærandi hafi
veist að öðrum lögreglumanninum
og hafi það verið upptök átakanna.
Undir þeim kringumstæðum hafi
lögreglunni verið heimilt að hand-
taka kæranda sbr. 1. mgr. 97. gr.
laga nr. 19/1991 um meðferð opin-
berra mála. Ennfremur hafi kær-
andi brotið tvö ákvæði lögreglusam-
þykktar Hafnarfjarðar með því að
kveikja eld á almannafæri og að
hlýða ekki fyrirmælum lögreglu.
í niðurstöðu dómsins segir enn-
fremur að þegar allt er virt, aðdrag-
andinn að handtökunni, mótspyrna
kæranda og að ekkert bendi að öðru
leyti til að ákærði hafi farið offari
við handtökuna þyki bera að sýkna
ákærða af kröfum ákæruvalds í
málinu.
Dómsorð eru þau að ákærði skal
sýkn af öllum kröfum ákæruvalds-
ins í máli þessu. Allur kostnaður
sakarinnar greiðist úr ríkissjóði,
þar með talin málsvamarlaun til
skipaðs verjanda, Sifjar Thorlacius
hdl.
Gunnar Aðalsteinsson, dómari í
Héraðsdómi Reykjaness, kvað upp
dóminn.
-RR
Forsetaframboð Ólafs glímir við 18 milljóna skuldabagga:
Árituð mynd af
forsetahjónun-
um boðin til sölu
- sýslumaður hefur sent dómsmálaráðuneytinu erindi
Myndin af forsetahjónunum, Ólafi Ragnari Grímssyni og Guðrúnu Katrínu
Þorbergsdóttur, sem boðin er árituð til sölu ásamt bók um kosningabarátt-
una og merki framboösins.
Forsetaframboð Ólafs Ragnars
Grímssonar, sem eins og kunnugt
er, náði kjöri 29. júní sl„ skilur eft-
ir sig um 18 milljóna króna skuldir.
Félag sem stofnað var í kringum
framboðið vinnur nú að því að ná
endum saman. Meðal fjáröflunar-
leiða er að bjóða til sölu áritaða
mynd af forsetahjónunum, merki
framboðsins og bók sem fyrirhugað
er að gefa út í lok október nk. um
kosningabaráttuna. Fyrirtækið
Markaðsmenn var ráðið til að
hringja út og bjóða þessar eigur
framboðsins til kaups.
Hrannar B. Amarsson hjá Mark-
aðsmönnum sagði við DV að bók,
merki og mynd væru boðin ein-
staklingum á 7.900 krónur en bók og
stækkuð mynd væru boðnar fyrir-
tækjum og stofnunum á 18.900 krón-
ur. Einnig væri hægt að kaupa ein-
staka hluti.
Meðal annars hefur verið hringt i
héraðsdómstóla og sýslumannsemb-
ætti. Héraðsdómarinn á Austur-
landi staöfesti í samtali við DV að
hringt hefði verið í sig. Hann sagð-
Ökumaður keyrði á ljósastaur á
Reykjanesbraut við Keflavík um
hádegisbilið í gær. Maðurinn var á
ist hafa neitað og ekki talið við hæfi
að hringt væri í stofnanir sem væm
reknar fyrir fé skattborgaranna
með tilboð af þessu tagi.
Þorsteinn Geirsson, ráðuneytis-
stjóri í dómsmálaráðuneytinu,
kannaðist við málið og sagði í sam-
tali við DV að erindi hefði borist frá
einu sýslumannsembættanna vegna
þessa. Þar hefði verið spurt um af-
stöðu ráðuneytisins. Þorsteinn
sagði í gær að erindinu yrði svarað
fljótlega en vildi að öðm leyti ekki
tjá sig.
Ekkert athugavert,
segir lögmaöur Ólafs
Sigurður G. Guðjónsson er lög-
maður Ólafs Ragnars. Hann sagði
við DV að ekkert væri athugavert
við þessa fjáröflun framboðsins.
„Það kostar að kjósa forseta.
Stjómvöld leggja enga peninga til
forsetakjörs, eins og t.d. til pólitísks
starfs. Annaðhvort verður að sleppa
svona stöðum í þjóðfélaginu eða þá
að búa þeim sem hyggja á forseta-
framboð sömu skilyrði og þeim sem
töluverðri ferð og missti stjórn á bíl
sínum. Hann slapp án meiðsla en
bíllinn er mjög illa farinn. -RR
hyggja á pólitísk framboð. Peningar
verða ekki til á trjánum og þeir sem
standa að þessum framboðum eiga
ákveðnar eignir. Þeim er frjálst að
bjóða þessar eignir hverjum og ein-
um til kaups. Það er enginn þving-
Svínakjöt á lækkuðu verði kom í
verslanir í gær. Kjötiðnaðarmenn
hjá þeim verslunum sem DV hafði
samband við sögðu útsöluna fara
hægt af stað þótt töluvert hefði ver-
ið spurt eftir kjöti síðustu daga.
Verðið virðist svipað milli verslana,
kótelettur frá kr. 789 upp í kr. 795 og
Hr. Andris Skele, forsætisráð-
herra Lettlands, kemur hingað í op-
inbera heimsókn dagana 18.-20.
september ásamt fylgdarliði og við-
skiptasendinefnd.
Lettnesk stjómvöld munu færa ís-
lenskum stjómvöldum höggmynd
að gjöf í þakklætisskyni fyrir stuðn-
ing þeirra við frelsisbaráttu þjóðar
aður til þess. Ef sýslumaður hefur
heimild til að kaupa DV þá hefur
hann kannski heimild til að kaupa
bók,“ sagði Sigurður.
-bjb
læri frá kr. 435 upp í kr. 439, svo
dæmi séu tekin. Verðmunur var þó
á svínalundum því ekki lækkuðu
allar verslanir það verð vegna
stöðugrar eftirspurnar eftir þeim.
Lundirnar eru því frá kr. 1290 upp i
kr. 1749. Menn bjuggust ekki í gær
við meiri verðlækkunum. -saa
sinnar og mun Davíð Oddsson for-
sætisráðherra afhjúpa hana. Lett-
neski ráðherrann mun m.a. ræða
viö Davíð, fara á sjávarútvegssýn-
ingu i Laugardalshöfl, funda með
Verslunarráði, heimsækja Bessa-
staði, Ámastofnun og Ráðhúsið og
skoða Suðurland, Svartsengi og
Bláa lónið. -ingo
Stuttar fréttir
Ásókn í úreldingu
Mikil ásókn er í úreldingu
krókabáta og fá til þess styrk úr
Þróunarsjóði sjávarútvegsins.
Samkvæmt RÚV hafa yfir 200
umsóknir borist og 140 þeirra
samþykktar. Á tveimur árum
hafa 2 milljarðar verið greiddir
vegna úreldingar skipa.
Lyfjakostnaöur
Lyfjakostnaöur hefur aukist
verulega hjá Tryggingastofhun
ríkisins. Samkvæmt RÚV er
stofnunin að kanna kostnaðar-
auka af sparnaðaraðgerðum
sjúkrahúsanna.
Andstaða við kvóta
Tillögur íslendinga mn að selja
kvóta á rækjuveiðar á Flæmska
hattinum mæta mikilli andstöðu
á ársfundi NAFO, Norður-At-
lantshafsspendýraráðsins. Þetta
kom fram í fréttum RÚV.
Aöstööumunur
Mikill munur er á réttindum
útivinnandi aðstandenda sjúkra
barna hér og annars staðar á
Norðurlöndum. Samkvæmt RÚV
á íslenskt foreldri rétt á 7 dögum
á ári að hámarki til að sinna
sjúkum börnum sínum.
Methagnaður ÍS
Methagnaður varð af rekstri
íslenskra sjávarafurða, ÍS, fyrstu
sex mánuði ársins. Samkvæmt
Mbl. tvöfaldaðist hagnaðurinn
frá fyrra ári, úr 100 í rúmar 200
mifljónir króna.
Bensín hækkar
Olíufélögin hækkuðu bensín-
verð um 90 aura lítrann og
svartolíutonn um 500 krónur.
Ástæðan er hækkandi verð á
heimsmarkaði.
Trén vaxa
Trjávöxtur hefur verið með
besta móti á höfuðborgarsvæð-
inu i sumar. Samkvæmt Mbl. er
hagstæðu veðurfari helst að
þakka.
BYKO leigir
BYKO hefur samið viö Kaup-
félag Suðumesja um leigu á hús-
næði og rekstri byggingavöru-
deildar félagsins í Keflavík sem
áður hét Járn og skip eða þar til
húsnæðið brann fyrr í sumar.
BYKO hefur áður rekið glugga-
og hurðaverksmiðju í Keflavík.
-bjb
Þú getur svarað þessari
spurningu með því að
hringja í síma 9041600.
39,90 kr. mínútan
Já 1 Nei 2
/ rödd
FOLKSINS
904 1600
Átti Ingibjörg Pálmadóttir
að fara til Kýpur?
ökumaður keyrði Svínakjötssalan hæg
á Ijósastaur
Opinber heimsókn