Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Síða 3
MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 1996
3
Fréttir
Nikkelsvæðið i Njarðvík:
Fjármagn ekki tryggt til
hreinsunar neðanjarðar
DV, Suðurnesjum:
„Það er búið að ná samkomulagi
um að hreinsa svokallað nikkel-
svæði ofanjarðar en það dugar ekki
til. Það eru gamlar olíuleiðslur á
svæðinu undir yfirborði jarðar og
það veit enginn hvað þær innihalda.
Ekki hefur verið gengið frá neinu
samkomulagi um hver eigi að tæma
þær ef þær innihalda einhver spilli-
efni og hver eigi í raun og veru að
fjarlægja þær,“ sagði Þórður Yngvi
Guðmundsson, deildarsérfræðingur
hjá Vamarmálaskrifstofu utanríkis-
ráðuneytisins, í samtali við DV.
Þórður sagði að gengið hefði ver-
ið frá samningi í byrjun ágúst milli
íslenskra stjórnvalda og Vamarliðs-
ins um að íslensk stjórnvöld myndu
annast hreinsun á öllum mannvirkj-
um og mannvirkjaleifum á yfirborði
jarðar á svokölluðu neðra nikkel-
svæði sem er á milli Reykjanes-
brautar og Móahverfis í Njarðvík.
Svæðið er á vegum Varnarliðsins á
Keflavikurflugvelli. Þórður sagði að
hreinsunarstarf færi væntanlega í
gang fljótlega og yrði framkvæmdin
í höndum Sölu Vamarliðseigna.
Ellert Eiríksson, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, sagði í viðtali, sem
birtist í DV 4. september, að Varn-
arliðið hefði tryggt fjármagn til að
hreinsa svæðið ofanjarðar en ekki
neðanjarðar. Óvíst er hvenær sveit-
arfélagið fær svæðið til umráða.
Vamarliðið hefur óskað eftir því að
fá að skila svæðinu en íslensk
stjórnvöld vilja ekki taka við því
nema að tryggt verði fjármagn til að
hreinsa svæðið neðanjarðar. Svæð-
ið yrði þá væntanlega framselt með
einum eða öðrum hætti, annaðhvort
í sölu eða leigu til Reykjanesbæjar.
„Ástæðan fyrir því að íslensk
stjómvöld hafa ekki treyst sér til að
taka við svæðinu er sú að menn vita
ekki hvað er þarna undir yfirborð-
inu. Menn vilja ekki taka þá áhættu
að afhenda svæðið til bygginga eða
ráðstöfunar upp á að fá í framtíð-
inni einhverjar skaðabótakröfur frá
einstaklingum eða fyrirtækjum sem
nýta svæðið. Þess vegna höfum við
gert þá kröfu að Vamarliðið útvegi
nauðsynlegt fjármagn til þess að
framkvæma þá rannsókn sem Heil-
brigðiseftirlit Suðurnesja hefur ein-
dregið lagt til að verði framkvæmd
á svæðinu. Kostnaður er áætlaður
um 100-150 milljónir Bandaríkjadal-
ir. Varnarliðinu hefur ekki enn tek-
ist að útvega það fé og er óljóst á
þessari stundu hvort það tekst.
Varnarliðið segir aftur á móti að
það hafi framkvæmt rannsóknir
fyrr á árum og erum við að bíða eft-
ir niðurstöðum þeirrar rannsóknar
til að meta hvort þær eru fuUnægj-
andi,“ sagði Þórður Yngvi Guð-
mundsson. -ÆMK
Svipuð af-
koma Olís
- samkvæmt milliuppgjöri
Afkoma Olís fyrstu sex mánuði
ársins var svipuð og á sama tíma í
fyrra. Hagnaður nú nam 82 miUjón-
um króna en var 80 miUjónir á fyrri
árshelmingi 1995. Rekstrartekjur
jukust um 9% eða úr 2,9 í 3,2 miUj-
arða króna. Hagnaður fyrir fjár-
magnsliði og skatta var 146 miUjón-
ir en var 137 miUjónir eftir sama
tímabil í fyrra.
í lok júní sl. var eigið fé Olís rúm-
ir 2 mUljarðar, heUdareignir voru
metnar rúma 5 miUjarða og eigin-
fjárhlutfaU 40%. Arðsemi eiginfjár
var 8%.
„Við borðum Cheerios hringi... á meðan jörðin hringsnýst um mðndul sinn...!“ /
Cheerios
sólarhringurinn
Málið er einfalt, í hvert sinn sem þú borðar Cheerios bc
hollan og góðan mat. Cheerios er trefjaríkur matur, svo
við sykur og fitu en hlaðinn steinefnum og vítamínum.
Þess vegna er ráðlegt að borða Cheerios hvenær sem
hungrið segir til sín - á nóttu sem degi.
-einfaldlega hollt
allan sólarhringinn!
-bjb