Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 1996 11 Fréttir Fellabær ekki á leið í sameiningu: Engin minnimáttar- kennd gagnvart Egilsstöðum - segir Guðlaugur Sæbjörnsson sveitarstjóri DV, Fellabæ: „Það er enginn vilji hjá sitjandi sveitarstjóm til að ganga til samein- ingar við önnur sveitarfélög á svæð- inu. Það eru reyndar ekki nema tvö ár síðan tillaga um sameiningu var felld hér. Það ber þó að taka fram að við eigum mikið samstarf við Egils- staði og fleiri nágranna okkar,“ seg- ir Guðlaugur Sæbjömsson, sveitar- stjóri í Fellabæ, um mögulega sam- Guðlaugur Sæbjörnsson sveitarstjóri við brúna yfir Lagarfljót sem tengir Fellabæ viö Egilsstaði. Hann segir engan áhuga vera hjá sveitarstjórn sinni á aö ganga til sameiningar. DV-mynd ÞÖK Reynir Arnarsson, trillukarl, um nýtt veiöikerfi: Menn sáu peninga og fóru á fullu í braskið „Þessar breytingar á kerfinu eru mgl. Margir þeirra sem höfðu mikla aflareynslu tóku kvótann sinn og fóra út úr gamla kerfinu. Eftir sitja þeir sem vora nýbúnir að kaupa og þeir sem höfðu ekki mikla aflareynslu. Það sem gerðist þarna er einfaldlega það að menn sáu í þessu peninga og fóra á fullu í braskið," segir Reynir Amarsson, trillukarl á Hornafirði, um breyt- ingamar á fiskveiðistjómuninni sem nú hafa tekið gildi. Reynir, sem rær á trillu sinni, Gróu SF, valdi sóknardagakerfi en ekki kvóta þar sem veiðireynsla bátsins er sáralitil. „Ég má róa 85 daga á þessu fisk- veiðiári en síðan er framtíðin væg- ast sagt óljós. Það gætu þess vegna orðið 10 til 30 daga á því næsta. Það er ekki hægt að gera út á svo fáa daga,“ segir hann. Reynir segir aö trillukörlum sé boðið upp á að úrelda báta sína fyr- ir 80 prósent af matsverði. Hann segist ekki hafa hug á að gera slíkt. „Ég keypti þennan bát fyrir rúm- um tveimur árum í því skyni að hafa af honum atvinnu og lifa af honum. Ég ákvað því að þrjóskast áfram og ætla að reyna að berjast áfram,“ segir Reynir. -rt Reynir Ragnarsson við bát sinn, Gróu SF. Hann segist ætla að berj- ast áfram í útgerðinni þrátt fyrir aö stefni í að hann megi aðeins róa 10 til 30 daga á næsta fiskveiðiári. DV-mynd ÞÖK einingu Fellabæjar og annarra sveitarfélaga á svæðinu. í Fellahæ eru rúmlega 440 íbúar og þar era starfandi nokkur smáfyrirtæki. Bærinn liggur nánast við Egilsstaði og hrúin yfir Lagarflót tengir byggð- imar. Úr fjarlægð mætti ætla að um væri að ræða sama byggðarlagið. Guðlaugur sveitarstjóri segir að oft séu fyrirtæki í Fellabæ sögð vera á Egilsstöðum. „Það er oft lítill greinarmunur gerður á okkur og Egilsstöðum. Það er þó alls ekki til minnimáttar- kennd hjá okkur gagnvart þeim,“ segir Guðlaugur. -rt Bæjarstjórinn á Egilsstöðum: Menn þurfa að temja sér að segja „við“ í stað „þið og við“ - segir Helgi Hallgrímsson bæjarstjóri DV, Egilsstöðum: „Það er ekki spuming um skuldastöðu sveitarfélaganna sem stoppar af sameiningu hér á svæðinu. Flest þessara sveitarfé- laga hér standa mjög vel. Það þarf hugarfarsbreytingu, menn þurfa að temja sér að segja við í stað skilgreiningarinnar, þið og við. Þegar menn átta sig á þessu þá mun sameining ganga mjög vel upp,“ segir Helgi Hallgrímsson, bæjarstjóri á Egilsstöðum, um möguleika á sameiningu bæjarfé- lagsins við sveitarfélög í nágrenn- inu. „Það yrði styrkur okkar svæðis ef sveitarfélögin hér næðu að sameinast. Hagkvæmni stærðar- innar liggur í augum uppi,“ segir Helgi. 2. - 28. september 3C Á köldum dögum í Húsasmiðjunni Skútuvogi eru allir Eletrolux frystiskápar seldir með 20 % afslætti ef staðgreitt er og 15% afslætti ef greitt er með afborgunum. Verðdæmi 1251 frystiskápnr verð áður: 42.549 kr. verð á köldiun dögum: 33.990 kr. 5 heppnir kaupendur verða dregnir út 30. september 1996 og fær hver þeirra lambsskrokk að gjöf frá Húsasmiðjunni. __ifti_ RðDIO^IISf HÚSASMIÐJAN Skútuvogi 16 • Slmar 525 3000 og 800 6688

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.