Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 1996 Fréttir Lengstu jarðgöng á íslandi opnuð um helgma: Heildarkostnaður við gong in um 4,3 milljarðar króna - Djúpvegur næsta stórverkefni á Vestfjörðum Frá opnun Vestfjarðaganganna á laugardaginn þar sem Vestfirðingar fögnuðu mestu samgöngubót allra tíma. Fjöldi manns kom til að vera við vígsluna þar sem samgönguráðherra lýsti göngin formlega tekin í notkun. DV-mynd HK Fjölmenni var í Tungudal við Skutulsfjörð í ágætu veðri laug- ardaginn 14. september við formlega opnun Vestfjarðaganga. Jarðgöng þessi eru mikið mannvirki, alls 9120 metrar að lengd. Göngin, sem eru þau lengstu á íslandi, eru jafnframt með lengstu jarðgöngum í Evrópu og þau næstlengstu á Norðurlönd- um. Formlega var hafist handa við sprengingar á göngunum 5. sept- ember árið 1991 og var lokaspreng- ingin þann 23. mars 1995. Alls voru boraðir um 650 km af sprengiholum, sprengt 2050 sinnum og til þess not- uð 550 tonn af sprengiefni. Heildar- rúmmál efnis sem úr göngunum kom var um hálf milljón rúmmetra sem að mestu var notað til vega- gerðar utan ganganna, m.a. í nýjan veg yfir fjarðarbotninn i mynni Engidals. Heildarkostnaður við göngin nemur um 4,3 milljörðum króna, sem er um 16% hærri upp- hæð en kostnaðaráætlun hljóðaði upp á. Meginorsök aukins kostnað- ar var 2000 sekúndulítra vatnsæð sem opnaðist í jarðgöngunum í júlí 1993. Sá vatnsleki hefur þó orðið til þess að nú fá ísfirðingar í fyrsta sinn hreint og ómengað neysluvatn og er nú einnig unnið að því að leggja vatnslögn úr göngunum til Hnífsdals. Vígsluathöfnin á laugardaginn hófst með því að starfsmenn Vega- gerðar ríkisins, þeir Björgvin Guð- jónsson og Kristinn Jón Jónsson, af- hjúpuðu skilti við gangamunnana í Önundarfirði og Súgandafiröi. Að loknum ávörpum og kórsöng í Tungudal klippti Halldór Blöndal samgönguráðherra á borða sem strengdur hafði verið þvert á ak- brautina í gangamunnanum og opn- aði Vestfjarðagöng það með form- lega. Síðan var sams konar skilti og við hina gangamunnana tvo afhjúp- að i Tungudal af Sveinbimi Vetur- liðasyni vegaverkstjóra sem átti 50 ára starfsafmæli hjá Veggerðinni í vor. Að því loknu ók Halldór Blön- dal jeppa sínum út úr göngunum og til hófs sem haldið var á Hótel ísa- firði og voru göngin þá opnuð fyrir almennri bílaumferð. Við athöfnina í Tungudal söng Sunnukórinn á ísa- firði ásamt söngfólki frá Súðavík, Bolungarvík, Súgandafirði, Önund- arfirði og Dýrafirði, undir stjórn Margrétar Geirsdóttur og við undir- leik Baldurs Geirmundssonar. Sagði Gísli Eiríksson, umdæmisstjóri Vegagerðar ríkisins á ísafirði, við þetta tækifæri að þessi kór væri táknrænt upphaf að samvinnu fólks í félags- og tómstundastarfi sem tor- fær heiði hefði hindrað hingað til og söng kórinn fyrst lagið Vel er mætt til vinafundar. í ræðu við opnunina hvatti Þor- steinn Jóhannesson, forseti bæjar- sljómar ísafjarðarbæjar, samgöngu- ráðherra til að beita sér fyrir því að áfram verið haldið að byggja upp samgöngur innan héraðs og út úr því. Tók Halldór Blöndal undir þessa áskorun og sagði að fram und- an væri skref sem yrði að reyna að stíga til fulls eins fljótt og hægt væri með því að tengja byggðarlögin fyr- ir vestan með traustum og góðum samgöngum við hringveginn. Sagði hann að Alþingi hefði markað þá stefnu að Djúpvegurinn hefði verið tekinn inn sem stórverkefni. Að því verkefni loknu sagði samgönguráð- herra að menn sæju það fyrir sér að Vesturbyggð fengi þær traustu sam- göngur sem hún þyrfti á að halda. Páll Sigurjónsson, forstjóri ístaks, talaði fyrir hönd fyrirtækjasam- steypunnar Vesturíss. Sagði hann í sinni ræöu að fýrsta verk sitt sem verkfræðings fyrir 36 ámm hefði verið að koma fljúgandi til ísaljarð- ar til að kanna lausnir fyrir vatns- veitu á ísafirði og mæla fyrir nýju félagsheimili í Hnífsdal. Hann sagð- ist ekki hafa getað gert mikið við vatnsveituna þá, en komist að raun um að þar væri ekki allt eins og best væri á kosið. „Betra seint en aldrei," sagði Páll því sér sýndist að nú hefði hann lokið þessu verki með því að stuðla að því að leysa vatnsvandamál ísfirðinga endan- lega og átti þar við vatnið sem virkj- að hefur verið fyrir vatnsveituna úr fossinum mikla sem opnaðist í jarð- göngunum 1993. Þá sagði PáÚ að Vesturís hefði ákveðið að gefa Vega- gerðinni og setja upp við alla ganga- munnana ártalið 1996, en það sé ár- tal sem lengi verði minnst vestra sem eins hins merkasta árs í sögu samgangna og vegamála á Vestfjörð- um. -HK Dagfari Ráðherrann leysti deiluna Hún var staðföst, hún Ingibjörg, þegar fréttamaður Stöðvar tvö gekk á hana. Hún lét ekki vaða yfír sig, ráðherrann, þótt fréttamaður- inn reyndi margsinnis að spyrja hana álits á þeim orðrómi að innan þingflokks Framsóknarflokksins heyrðust raddir um að hún réði ekki við embættið. „Mér flnnst að þú eigir að spyrja þá heimildarmenn um það sem þeir hafa að segja,“ sagði heilbrigð- isráðherra. „En hvað segir ráðher- ann um það?“ spurði fréttamaður- inn. „Mér finnst að þú eigir að spyrja þá sem það segja,“ sagði Ingibjörg. „Er ráðherrann þá að mótmæla því að innan Framsóknarflokksins séu efasemdir um getu ráðherrans til að sitja í ráðherrstólnum?" „Mér finnst að þú eigir að spyrja þá sem það segja," sagði Ingibjörg heilbrigðisráðherra. Og jafnvel þótt hún hafi verið nýkomin frá Kýpur, sólbrún og litprúð, mátti sjá það á sjónvarpsskerminum að hún skipti litum af geðshræringu. Sólbrúnkan varð dreyrrauð. Tilefni þessara orðaskipta var utanferð Ingibjargar með syni sín- um og fjölskyldu til Kýpur í miðri læknadeilunni. Þá vildi nefnilega svo heppilega til að deilan leystist, þá loks að ráðherrann hvarf af vettvangi. Fréttamönnunum á Stöð tvö þótti það meiri frétt að deilan skyldi leysast að Ingibjörgu fjar- staddri heldur en að deilan skyldi leysast. Hér var sem sagt allt í kaldakoli í heilsugæslunni og mikil mildi að ekki skyldi verða stórslys vegna fjarvista lækna frá sínum vinnu- stöðum. Stöðvar tvö mönnum þótti það ekki tíðindi að málið skyldi leitt til lykta, heldur að það skyldi leitt til lykta þegar ráðherrann fór frá. Og það sem var enn þá mark- verðara í þeirra augum var að ein- hver þingmaður í Framsóknar- flokknum skyldi missa það út úr sér að sennilega hefði deilan verið í hnút vegna þess að Ingibjörg réð ekki við að leysa hana. Ef þetta er rétt var það auðvitað mikið snjallræði hjá Ingibjörgu að tak sér frí til að deilan leystist og kannski var það ástæðan fyrir því að deilan leystist og þá er það Ingi- björgu að þakka að deilan leystist. Þannig að Framsóknarflokkur- inn ætti miklu fremur að hæla Ingibjörgu fyrir þá sijómvisku að hverfa á braut til að deilan leystist. íslendingar hafa langa reynslu af ráðherrum sem aldrei fara í frí og eru sífellt að þvælast fyrir og halda að þeir séu ómissandi. Það var kominn tími til að þjóðin eignaðist ráðherra sem skilur að hún gerir best gagn með því að halda af landi brott og skilja þrætumálin eftir til að leysa sig sjálf. Það var guðs- þakkarvert að Ingibjörg skyldi þiggja boðið til Kýpur og að hún léti ekki læknadeiluna aftra sér för. Voru ekki læknarnir sjálfir löngu farnir úr sínum störfum og ekkert leystist við það? Þegar Ingi- björg fór ein og tók son sinn með, leystist deilan við læknana á ör- skammri stund! Hvað vilja menn meir? Þingmenn Framsóknar- flokksins verða að skilja að þeir hafa góðan ráðherra með gott tíma- skyn og fréttamenn Stöðvar tvö eiga að hætta að angra Ingibjörgu 'með spumingum sem henni eru óviðkomandi af því að Ingibjörgu er óviðkomandi hvemig deilan við læknana leystist, af því að aðalat- riðið er að deilan leystist. Og það fyrir hennar tilstilli með því að vera ekki heima þegar deilan leyst- ist. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.