Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Blaðsíða 32
44 MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 1996 i áPj . •• Sitt sýnist hverjum um söiu á myndum af forsetahjónunum. Forsetahjóna- mynd til sölu „Ekki var verið að kjósa um hver kæmist í aðstöðu til að selja myndir og fjármagna kosn- ingatap. Hliðstæða væri sama og ljósmynd af ríkisstjórninni sem ráðherrarnir árituðu og hirtu sjálflr ágóðann." Jón Steinar Gunnlaugsson, í DV. Ummæli Upptekinn að selja myndir „Ég sá einhvers staðar að hann (Ólafur Ragnar) er upptek- inn við að selja myndir af sér.“ Ástþór Magnússon, fyrrum for- setaframbjóðandi, í Alþýðu- blaðinu. Fækka nammidögum Það gefur auga leið að mark- maður KA-liðsins þatf að breyta mataræði sínu, fækka nammidögum." Jóhann Ingi Gunnarsson, í Morgunblaðinu. Flokkatitringur „Ég held að það sé meiri titr- ingur innan Framsóknarflokks- ins heldur en ihnan Sjálfstæðis- flokksins." Árni Mathiesen alþingismaður, í Alþýðublaðinu. Barist gegn lordum „Hlutverk VSÍ er m.a. að koma í veg fyrir að „lordar“ verkalýðshreyfingarinnar geti gengið á einstök fyrirtæki og barið á þeim.“ Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ, í Dagur- Tíminn. Stærstu blómin Stærsta blóm sem þekkist heitir Rafflesia arnoldii en geng- ur undir nafninu þefilla náliljan. Ber hún stærstu blómin. Sníkju- jurt þessi vex á vínviðarrunnum i Suðaustur- Asíu og blómin verða meira en 90 cm að þver- máli, 1,9 cm þykk og vega um 7 kg. Planta þessi ber nafn með rentu og er afskaplega illþefj- andi. Blessuð veröldin Stærsta blómstrandi plantan Stærsta blómstrandi planta heims er kínverskt risabláregn sem vex í Sierra Madre í Kali- forníu. Það var gróðursett árið 1892 og greinar þess eru nú um 160 cm langar. Það þekur um 4000 fermetra, vegur 228 lestir og er talið bera eina og hálfa millj- ón blóma þær fimm vikur sem það blómstrar. Þegar sá tími gengur yfir er selt inn á svæðið og er talið að um 30.000 manns komi árlega til að sjá blómið. Verðmætasta blómið Bandaríska konan Alice Vong frá Iowa vann til 10.000 dollara verðlauna árið 1975. Það var fyr- ir að geta komið meö fyrstu al- hvítu morgunfrúna. Þessi verð- laun höfðu verið í boði frá árinu 1954. Hlýtt norðan- og austanlands Yfir Ermarsundi er 1025 mb hæð og önnur álíka yfir strönd Noregs. Um 600 km suðaustur af Hvarfi er allvíðáttumikil 980 mb lægð sem Veðrið í dag hreyfist lítið. Yfir vestanverðu ís- landi er lægðardrag sem þokast smám saman austur á land. í dag verður sunnan og suðaustan kaldi eða stinningskaldi og sums staðar hvasst austanlands. Rigning eða súld, einkum sunnan- og vestan- lands en einnig norðanlands og austan. Hiti á bilinu 10 til 20 stig, hlýjast norðaustanlands. Á höfuðborgarsvæðinu verður suðaustan stinningskaldi og rigning en heldur hægari og úrkomulítið fram eftir degi. Hiti 11 til 14 stig. Sólarlag í Reykjavík: 19.49 Sólarupprás á morgun: 6.57 Síðdegisflóð i Reykjavík: 20.20 Árdegisflóð á morgun: 8.39 Veörið á hádegi í gœr: Akureyri skýjað 16 Akurnes alskýjaö 12 Bergstaðir skúrir 15 Bolungarvik alskýjaö 14 Egilsstaðir hálfskýjað 16 Keflavíkurflugv. súld 12 Kirkjubkl. rigning 11 Raufarhöfn skýjaö 12 Reykjavík súld 13 Stórhöfði súld 11 Helsinki rigning 12 Kaupmannah.léttskýjað 15 Osló léttskýjað 15 Stokkhólmur skýjað 14 Þórshöfn alskýjað 11 Amsterdam skýjað 16 Barcelona léttskýjaö 22 Chicago skýjað 17 Frankfurt skýjað 15 Glasgow skýjað 17 Hamborg skýjað 14 London léttskýjaó 20 Los Angeles skýjaö 18 Madríd skýjað 22 Malaga léttskýjaö 24 Mallorca skýjaö 25 Paris léttskýjað 18 Róm léttskýjað 23 Valencia léttskýjaö 27 New York skýjað 19 Nuuk léttskýjað 7 Vín hálfskýjaó 16 Friðgeir Baldursson útibússtjóri: Næsta skrefið er að læra á nöfn og götur geir hefur búið áður og starfað á Suðurnesjum. Hann er einnig lærð- ur rennismíðameistari og vann í smiðju í Njarðvík árið 1977 í eitt ár strax eftir sveinsprófiö og bjó i Keflavík. Þar vann hann meðal ann- ars fyrir Grindavíkurbátana. Friðgeir á nokkur áhugamál fyrir utan fiölskyldu sína. „Ég hef vax- andi áhuga á landinu. Þá á ég hlut i góðu sumarhúsi í Borgarfírði og ég á land í Rangárvallarsýslu og þykir gaman að koma þangað. Síðan hef ég áhuga á að ferðast innanlands. Ég hef verið og búið erlendis og það er komið að íslandi. Tvær dætur mínar æfðu fótbolta með 6. flokki hjá Breiðabliki og önnur þeirra er kom- in upp í 5. flokk. Ég hef heyrt að unglingastarf hjá Grindavík í knatt- spyrnu sé mjög gott og vonandi tekst stelpunum mínum að fmna sig þar og vilji æfa með Grindavík.“ Eiginkona Friðgeirs er Björg Pét- ursdóttir mannvirkjajarðfræðingur, en hún er jarð- og efhaffæðikennari við Menntaskólann í Reykjavík og mun keyra á milli. Þau eiga 5 börn, Eyrúnu Fjólu, 21 árs, Guðbjörgu Evu, 17 ára, Guðrúnu Andreu, 9 ára, Magneu Lillý, 7 ára, og einn strák, Friðgeir Pétur, sem er rúmlega 6 mánaða. -ÆMK Myndgátan Kona slegin við lát mannsins Myndgátan hér aö ofan lýsir orðtaki DV, Suðurnesjum: „Það leggst vel í mig að vera kom- inn til Grindavíkur. Fyrst og fremst er bærinn mjög snyrtilegur og fal- legur og hér er atvinnulífið þannig að ég held að menn þurfi ekkert að vera svartsýnir í þessum kvóta- hremmingum sem eru að hrjá okkur alls staðar á landinu," sagði Friðgeir Baldursson, hinn nýi útibússtjóri Landsbanka íslands i Grindavík. Friðgeir tók við útibúinu 1. sept- ember og er að koma sér ásamt fjöl- skyldu sinni fyrir í Grindavík. „Börnin eru byrjuð í skólanum og tónlistarskólanum þannig að við höfum öll kastað okkur inn í hring- iðuna. Svo er næsta skrefið að læra á nöfh og götur.“ Maður dagsins Áður en Friðgeir kom til Grinda- víkur hafði hann verið búsettur í Kópavogi í sex og hálft ár. Áður var hann í námi í háskólanum í Stokk- hólmi í 5 ár og útskrifaðist þar sem hagfræðingur. Friðgeir vann í höf- uðstöðvum Landsbankans og vann sem sérffæðingur í fyrirtækjavið- skiptum. Hann þekkir töluvert til iSL Friðgeir Baldursson. landsbyggðarinnar þar sem hann vann töluvert á þeim slóðum og þá á Vestfjörðum. „Það voru minni pláss en Grindavík og landfræðilegar að- stæður margfalt erfiðari." Áður en Friðgeir ákvaö að taka við starfmu þurfti hann að ræða við fjölskyldu sína. „Auðvitað eiga allir sínar efa- semdir svona stutta stund. Svona ákvörðun tekur maður ekki nema maður sé með betri helminginn með sér.“ Svo skemmtilega vill til að Friö- DV Leikmenn Newcastle og Manchester United voru í eldlín- unni um helgina. Á myndinni eru Alan Shearer og David May aö kljást um boltann. Mörk og aftur mörk Eftir viðburðarríka helgi í íþróttum er logn á þessum vett- vangi í dag. En fýrir þá sem fylgjast grannt með Evrópubolt- anum er vert að benda á Ríkis- sjónvarpið og Stöð 2 sem sýna ffá helstu leikjum í Evrópu og þar er boðið upp á mikla marka- veislu auk þess sem bestu leik- menn í Evrópu sýna listir sínar. ! Sjónvarpinu er aðallega tekin fyrir enska deildin og einnig eru íþróttir þar sagðar fréttir af stórstjörn- um. Markaregn er á dagskrá kl. 17.15. Síðan er þátturinn endur- sýndur kl. 23.15. Á Stöð tvö er þátturinn Mörk dagsins á dag- skrá kl. 22.45 og þar er ítalska knattspyman í fyrirrúmi og sýnt frá öllum leikjum helgarinnai-. Spennan í knattspymunni hér innanlands er í hámarki eftir leiki helgarinnar en það verður nokkur bið á að leyst verði úr þeirri spennu því ekki verður leikið í 1. og 2. deild fyrr en um næstu helgi. Bridge Þessi „ófreskja“ kom fyrir á NM yngri spilara í Cardiff í sumar og olli sveiflum víða. í leik Dana og Finna olli spilið engum vandkvæð- um fyrir Danina í AV. Vestur opn- aði á einu laufi, norður hindraði á þremur hjörtum, austur sagði fjóra tígla og vestur fjóra spaða. Við því sagði austur sex tigla og vestur sex spaða sem varð lokasögnin. Með lauftrompun á hendi austurs var ekki vandkvæðum bundið aö renna heim tólf slögum. Á hinu borðinu i leiknum var dramatíkin meiri. Sagnir gengu þannig, vestur gjafari og allir á hættu: * D52 * KG98765 * 5 * D4 4 KG10987 «4 -- ♦--- * ÁK86532 * 64 «4 42 * DG8642 4 G109 Vestur Norður Austur Suður 1 * pass 2 ♦ pass 3 * pass 6 Grönd p/h Finnanum í austur lá ósköpin öU á í sögnum og stökk beint í sex grönd án þess að gefa félaga betra tækifæri á að lýsa hendinni. Sá samningur er ekki gæfulegur, en Daninn í suður kom til hjálpar og spilaði út hjarta. Eftir það útspU var tUtölulega einfalt mál að fá 12 slagi. SpUa ÁK í laufi og þriðja laufinu og fá þannig 6 slagi á þann lit og tvo á hvern hinna. í slæmri lauflegu var áUtaf hægt að treysta á spaðasvín- ingu tU vara. En Finninn virðist hafa verið sleginn blindu við borðið því eftir útspilið tók hann slagi á drottningu og ás í hjarta, ÁK í tígli og henti fjórum laufum i blindum. Síðan var spaðaásinn tekinn og spaðagosa svínað og spUið fór einn niður. Danimir græddu því 17 impa sem var eins gott fyrir þá, því leik- urinn fór 15-15. ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.